Fréttablaðið - 25.04.2008, Síða 24
24 25. apríl 2008 FÖSTUDAGUR
UMRÆÐAN
Þórunn Sveinbjarnar-
dóttir skrifar um um-
hverfismál
Dagur umhverfisins er í dag haldinn
hátíðlegur í tíunda sinn.
Að þessu sinni er dagur-
inn tileinkaður vistvæn-
um lífsstíl. Mörgum
þykir sem þeir standi
frammi fyrir ókleifum hamri
þegar þeir velta því fyrir sér
hvort og þá hvernig þeir geti
orðið umhverfisvænni í sínu dag-
lega amstri. Þá er gott að hafa í
huga að enginn getur gert allt en
allir geta gert eitthvað. Ef við
leggjumst öll á eitt geta litlar
breytingar hjá mörgum haft
mikil áhrif á lífsgæði okkar allra.
Umhverfisvernd er samfélags-
verkefni, daglegt verkefni þar
sem enginn er undanskilinn og
allir þurfa að taka þátt: einstakl-
ingar, fjölskyldur, fyrirtæki,
félagasamtök og stjórnvöld. Það
er í okkar höndum, hvers og eins,
að breyta rétt gagnvart umhverf-
inu – að sjá til þess að líf
okkar og neysla stuðli að
minni mengun og sjálf-
bærri nýtingu auðlinda.
Fræðsla vekur áhuga
Það er í verkahring
stjórnvalda að vekja fólk
til umhugsunar og veita
því gagnleg ráð um það
hvernig við getum fetað
okkur í átt til vistvænni
lífsstíls. Í þessu ljósi
býður umhverfisráðu-
neytið, í samstarfi við Úrvinnslu-
sjóð og Sorpu, til sýningarinnar
Vistvænn lífsstíll í Perlunni á
morgun. Þar gefst fólki tækifæri
til að kynna sér vistvænar vörur
og þjónustu. Það er óskandi að
áhugi neytenda á að skipta við
vistvæn fyrirtæki aukist og að
þeir láti sig í auknum mæli
umhverfissjónarmið varða í inn-
kaupum og daglegu lífi. Með því
að huga að umhverfissjónarmið-
um í innkaupum og neyslu hvetja
neytendur fyrirtæki til að gefa
slíkum sjónarmiðum meiri gaum
og til að leggja sín lóð á vogar-
skálar betra umhverfis. Einnig
hefur umhverfisráðuneytið end-
urútgefið fræðsluritið Skref fyrir
skref í samvinnu við Landvernd.
Ritinu er ætlað að hvetja fólk til
dáða og auðvelda því að tileinka
sér breytta og betri lífshætti.
Nú er hafið átak hjá Umhverfis-
stofnun við að efla starfsemi
Svansins hér á landi. Svanurinn
er opinbert umhverfismerki
Norðurlandanna og það á að auð-
velda neytendum að velja gæða-
vörur sem eru vistvænni en sam-
bærilegar vörur á markaði.
Markmið átaks Umhverfisstofn-
unar er að Svanurinn öðlist þær
vinsældir sem hann á skilið.
Unnið verður að því að auka hlut-
fall Svansmerktrar vöru og þjón-
ustu á markaði og að efla áhuga
almennings og fyrirtækja á Svan-
inum og öðrum umhverfismerk-
ingum.
Sveitarfélög vinna gott verk
Mörg sveitarfélög hafa lagt sig
fram um að auðvelda almenningi
að stunda vistvænan lífsstíl.
Bæjar yfirvöld í Stykkishólmi
hafa til að mynda gert samkomu-
lag við þjónustufyrirtæki um
flokkun sorps og moltugerð úr
lífrænum úrgangi fyrir öll heim-
ili í bænum. Stykkishólmur er
fyrsta sveitarfélagið á landinu
sem býður upp á slíka þjónustu.
Markmið verkefnisins er að
minnka umfang almenns sorps
sem fer til urðunar að minnsta
kosti um 60%. Úr Reykjavík hafa
líka borist jákvæðar fréttir en í
fyrra mældist minna magn af
óflokkuðu heimilissorpi í tunnum
borgarbúa en árið á undan. Fram
að því hafði magnið aukist ár frá
ári. Þetta bendir til þess að borg-
arbúar séu duglegri að skila sorpi
í endurvinnslustöðvar og í
grenndargáma en áður og að vin-
sældir endurvinnslutunna séu að
aukast. Verkefnið Frítt í strætó
fyrir námsmenn er annað dæmi
um góðan árangur sveitarfélaga.
Vegna þess hefur farþegum
Strætó fjölgað um u.þ.b. eina
milljón. Allt þetta eykur bjart-
sýni okkar sem störfum á vett-
vangi umhverfismála um að
verulegum árangri megi ná með
réttum aðgerðum.
Fordæmi stjórnvalda
Það er ekki einungis skylda
stjórnvalda að fræða og hvetja
almenning til góðra verka í þágu
umhverfsins. Stjórnvöld verða
líka að sýna gott fordæmi. Nú er
unnið að stefnu um vistvæn inn-
kaup ríkisins. Með slíkri stefnu
eru gefin skýr skilaboð um að
ríkið vilji vera leiðandi í því að
efla vistvæn innkaup á Íslandi,
enda kaupir ríkið vörur og þjón-
ustu fyrir um 90 milljarða króna
á ári. Það er því ljóst að áhrifa-
máttur opinberra innkaupa er
mikill. Með því að setja skýrar
kröfur um umhverfissjónarmið í
opinberum innkaupum er hvatt
til nýsköpunar og virkrar sam-
keppni um vistvænar vörur og
þjónustu á markaði. Um leið er
stuðlað að því að draga verulega
úr umhverfisáhrifum innkaupa
og neyslu í opinberri starfsemi
og samfélaginu öllu.
Dagur umhverfisins gefur
okkur tækifæri til að staldra við,
meta árangurinn af starfi okkar á
sviði umhverfismála og brýna
okkur áfram til góðra verka. Við
höfum stigið mörg skrefin til
góðs – en betur má ef duga skal.
Til hamingju með dag umhverfis-
ins!
Höfundur er umhverfisráðherra.
Gleðilegan dag umhverfisins
ÞÓRUNN SVEIN-
BJARNARDÓTTIR
Ný kynslóð jarðgufuvirkjana
UMRÆÐAN
Eiríkur Hjálmarsson og
Jakob Sigurður Friðriksson
skrifa um orkumál
Við gamla áningarstaðinn á alfaraleiðinni um Hellis-
heiði er verið að byggja
jarðvarmavirkjun sem sver
sig í ætt við systur sínar í
Svartsengi og á Nesjavöllum.
Hún er stór, hún er áberandi í
umhverfi sínu og hún er mjög hagkvæm.
Á síðustu árum hefur raunverð á rafmagni til
viðskiptavina Orkuveitu Reykjavíkur lækkað um
þriðjung og hitaveitureikningurinn um fjórðung.
Hellisheiðarvirkjun á að tryggja hagstætt
orkuverð til næstu áratuga.
Nú hafa verið á teikniborðinu um hríð tvær
nýjar gufuaflsstöðvar á Hellisheiðinni, Hvera-
hlíðarvirkjun og Bitruvirkjun. Bitruvirkjun
liggur nær verðmætum útvistarsvæðum og
skiptir því höfuðmáli að til hennar sé vandað
þannig að sem traustastur vörður sé staðinn um
þau verðmæti sem útivistarsvæðin eru. Það er
vandasamt og því hefur Orkuveitan haft
forgöngu um að kalla til skrafs og ráðagerða
ekki eingöngu lögformlega umsagnaraðila
heldur ekki síður ferðafólk, fyrirtæki í ferða-
þjónustu og umhverfisverndarsamtök.
Mikilvægi samráðsins
Orkuveita Reykjavíkur hefur ætíð litið svo á að
markvisst umhverfismat framkvæmda sé til
þess að bæta framkvæmdina. Umhverfismatið
leiði í ljós áhrif á umhverfi og samfélag og sé á
engan hátt stefnt gegn framkvæmdinni. Án þess
að samráðs- og umsagnaraðilar vegna Bitru-
virkjunar séu með nokkrum hætti gerðir ábyrgir
fyrir áformum Orkuveitunnar er rétt að halda til
haga og þakka þeirra umsagnir, ábendingar og
athugasemdir. Þær hafa leitt til þvílíkra breyt-
inga á hönnun og skipulagi Bitruvirkjunar að
rétt er að tala um að Bitruvirkjun sé hin fyrsta
af nýrri kynslóð jarðgufuvirkjana.
Frá því fyrstu áform um Bitruvirkjun voru
kunngerð hafa þau tekið þessum breytingum:
• Framkvæmdasvæðið hefur minnkað úr 675
hekturum í 285, eða um u.þ.b. tvo þriðju.
• Framkvæmdasvæðið hefur verið fært
lengra frá hinum stórbrotnu hverasvæðum á
Ölkelduhálsinum.
• 60% af gufulögnum verða neðanjarðar,
30% gerðar torsýnilegar frá algengustu
gönguleiðum með mönum og einungis einn
tíundi hluti gufulagnanna verður með þeim
hætti sem við þekkjum frá eldri virkjunum.
• 99% af brennisteinsvetni frá virkjuninni
verður fargað og hveralykt frá henni verður
því hverfandi.
• Húsbyggingar verða staðsettar þannig að
hæðir og ásar í landslagi eru nýtt til að gera
mannvirkin torsýnileg frá gönguleiðum.
• Hönnun gufuháfa og annarra mannvirkja
er háttað þannig að gufustrókar verða minni
og gisnari.
• Fleiri borholur verða á hverjum borteig
þannig að yfirborðsraski er haldið í lág-
marki og þeir aðlagaðir landslagi við lok
framkvæmda.
• Rafmagn frá virkjuninni verður lagt í
jarðstreng að núverandi
línum á Hellisheiðinni.
Sambúðin við jarðhitann
Gamlir annálar lýsa því
viðhorfi til jarðhita hér á
landi að hann sé skaðvaldur.
Það fylgi honum ekki bara
hamfarir heldur fargist fé og
jafnvel fólk í hverum og
heitum pyttum. Hefði
aldamótakynslóðin síðasta
stuðst alfarið við afstöðu
forfeðra okkar til jarðfræði-
legra eiginleika Íslands værum við ekki sú
fyrirmynd annarra þjóða í orkumálum, sem við
erum, með um 80% orkuöflunar endurnýjanlega.
Í jarðhitanum búa hættur og líka tækifæri.
Hætturnar þekkjum við af aldalangri sambúð
við reginöfl eldgosa og jarðskjálfta. Tækifærin
eru a.m.k. af tvennum toga. Gríðarleg endur-
nýjanleg orka býr í jarðhitasvæðunum og flest
þeirra eru líka undursamleg smíð af náttúrunnar
hendi. Við viljum njóta beggja þessara kosta.
Orkuveita Reykjavíkur hefur lagt mikið af
mörkum til þess að Hengilssvæðið er kjörlendi
útivistarfólks. Um 100 km göngustíga hafa verið
stikaðir og þeim viðhaldið, gönguleiðarkort
hefur verið gefið út, fræðsla stendur gestum og
gangandi til boða í tveimur virkjunum og
almenningi er boðið í reglubundnar fræðsluferð-
ir um þetta magnaða svæði. Þrjátíu ára reynsla
af Hengilssvæðinu segir að hægt sé í senn að
virkja jarðhitasvæði og nýta það til útivistar og
annarrar ferðamennsku.
Nýjar áskoranir
Jarðhitavirkni fylgja fagrar jarðmyndanir og
Ölkelduhálsinn og næsta umhverfi hans eru þar
enginn eftirbátur. Það þekktu það því miður ekki
margir þegar háspennulína frá Búrfelli var lögð
þvert yfir svæðið um miðjan síðasta áratug, en
landverndarsamtök létu vel af sér vita í umræð-
unni um línustæðið. Það dregur ekki úr kröfunni
um vandvirkni, tillitssemi og varúð þegar uppi
eru áform um frekari framkvæmdir.
Höfundar eru starfsmenn Orkuveitu Reykjavíkur.
EIRÍKUR
HJÁLMARSSON
JAKOB SIGURÐUR
FRIÐRIKSSON
ÖLKELDUHÁLS
UMRÆÐAN
Helgi Helgason skrifar
um bæjarmál í Kópavogi
Í aðdraganda umræðunn-ar um óperuhús í Kópa-
vogi sögðu fulltrúar meiri-
hluta Sjálfstæðisflokks og
Framsóknarflokks að ein
af þeim staðsetningum
sem til greina kæmu fyrir
óperuhús væri við Borgarholts-
braut. Mörgum fannst sú staðsetn-
ing fráleit. Við í Frjálslynda flokkn-
um í Kópavogi höfum áður viðrað
þær skoðanir okkar að okkur finnist
umhverfis- og skipulagsstefna
bæjar yfirvalda vera á rangri braut.
Þegar menn eru farnir að þétta
byggð svo óhóflega að til vandræða
horfir í umferðarmálum eru menn
ekki á réttri leið. Það er einmitt það
sem er að gerast ef óperuhúsi
verður valinn staður við Borgar-
holtsbraut. Nóg er umferðin fyrir.
Það þarf ekki að fara mörgum
orðum um það að það er ekki sjáan-
legt að hægt sé að breikka þær
götur sem liggja að húsinu verði
það staðsett þarna. Og hvers eiga
íbúarnir að gjalda? Kópavogsbúar
sáu glögglega hvers konar
ástand myndaðist þegar
Nýbýlavegi var lokað vegna
framkvæmda fyrir ekki löngu.
Svar bæjarstjórnar hefur
verið ákaflega nýstárlegt. Þeir
leysa málið með því að byggja
fleiri bílastæðishús! Þetta
svæði er í dag fallegt grænt
svæði sem fólk virðist nota og
njóta. Þar má oft sjá fólk að
leik t.d. eldri borgara að pútta.
Á þessu svæði er nú þegar orðið
hæfilega þéttbýlt. Við eigum enn
eftir að sjá afleiðingar þess að
meirihluti bæjarstjórnar hefur með
klækjum eða offorsi holað niður
byggð á svæðum þarna í kring sem
áður voru græn s.s. í Fossvogsdal
og á Kópavogstúni. Þeir hafa og
eyðilagt náttúrulega strandlengju
Kársnessins með uppfyllingum og
hyggjast enn bæta þar í bygging-
um.
Það hlýtur að vera hægt að finna
aðra staðsetningu fyrir þetta hús.
Ég get að minnsta kosti ekki með
neinu móti fallist á að til greina
komi að reisa húsið á þessum stað.
Höfundur er formaður Frjálslynda
flokksins í Kópavogi.
Óperan í Kópavogi
HELGI
HELGASON
Dagskrá fundarins er
1. Sk‡rsla stjórnar.
2. Ger› grein fyrir ársreikningi.
3. Tryggingafræ›ileg úttekt.
4. Fjárfestingarstefna sjó›sins kynnt.
5. Önnur mál.
Ársfundur 2008
Allir sjó›félagar, jafnt grei›andi sem lífeyrisflegar,
eiga rétt til fundarsetu á ársfundinum.
Sjó›félagar eru hvattir til a› mæta á fundinn.
Stjórn Söfnunarsjó›s l ífeyrisréttinda
Ársfundur Söfnunarsjó›s lífeyrisréttinda ver›ur
haldinn a› Borgartúni 29, Reykjavík á 4. hæ›,
8. maí 2008 og hefst kl. 16.30.
Reykjavík 21. 04. 2008