Fréttablaðið - 25.04.2008, Qupperneq 27
[ ]Poppkorn gos og nammi er málið um helgina. Slepptu þér í óhollustunni og gerðu vel við þig í náttbuxum yfir góðri mynd.
Ungliðahreyfingarnar Ný-ung og Ung-blind
verða með aðsetur í Hinu húsinu á morgun þar
sem þær ætla að vekja athygli á málefnum
fatlaðra.
Ýmislegt verður í boði fyrir gesti og gangandi og með
hinum ýmsu uppákomum vilja samtökin Ný-ung og
Ungblind vekja athygli á málstað sínum og leggja sitt
af mörkunum til að auka fjölbreytnina í samfélaginu.
Meðal þess sem verður í boði er ljósmyndasýning
Höskuldar Þórs Höskuldssonar, meðlims Ný-ungar
og svo ætla nokkrir Ný-ungar-menn að ganga um
götur miðbæjarins og afófatla fólk. „Með þessu
ætlum við að vekja athygli á því að öryrkjar eru orðn-
ir þreyttir á því að vera minnihlutinn í þjóðfélaginu
og í leiðinni að berjast gegn fordómum gagnvart
örykjum og öðrum minnihlutahópum,“ útskýrir Andri
Valgeirsson, formaður Ný-ungar.
Ný-ung er ungliðahreyfing Sjálfsbjargar, félags
fatlaðra, og eru meðlimir á aldrinum 18-30 ára. „Við
berjumst fyrir jafnrétti og réttlæti í þjóðfélaginu
fyrir öryrkja og hreyfihamlaða en við reynum að
gera það á skemmtilegan hátt, með gjörningum og
ljósmyndasýningum svo dæmi séu nefnd,“ segir
Andri.
Ungblind er vettvangur ungs fólks í Blindrafélag-
inu til að miðla reynslu sinni, ræða saman og skemmta
sér. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem samtökin Ung-
blind skipuleggja viðburði. Samtökin hafa áður verið
með skautaferðir og sjóstangaveiði, staðið fyrir
blindu kaffihúsi þar sem sem gestir sátu í myrkri og
þeim þjónað af blindum. Ungblind tekur einnig þátt í
norrænu og evrópsku samstarfi og alls kyns ung-
mennaskiptum, sem dæmi um það þá fer unga fólkið
í norrænar sumarbúðir á hverju ári, en þær eru
haldnar til skiptis á Norðurlöndunum. Það sem er í
gangi hjá Ungblind í dag er lifandi bókasafn. Þar
gefst almenningi kostur á því að fletta upp í lifandi
bókum um hina ýmsu minnihlutahópa.
Ný-ung er heldur ekki að skipuleggja sinn fyrsta
viðburð. Götuhernaður, www.oryrki.is, er hópur ung-
menna á aldrinum 18-23 sem haldið hefur úti heima-
síðu þar sem félagar vilja vekja athygli á málstað
sínum og reyna að bæta ímynd fatlaðra. „Við tökum
aðallega íslenskar auglýsingar fyrir og breytum þeim
þannig að við notum hreyfihamlað fólk í stað ófatl-
aðra. Við erum einnig með tónlistarmyndbönd, leikið
efni, fréttir og boli til sölu,“ segir Andri. „Við snúum
gildum samfélagins á haus og gerum hreyfihamlaða
að fyrirmyndunum.“ Götuhernaðurinn er þó ekki
hluti af Ný-ung, heldur frekar dótturfélag þess.
Uppákomurnar á morgun hjá Ungblind og Ný-ung
eru ekki bein samstarfsverkefni; félagarnir þekkjast
vel innbyrðis og þegar tækifæri gefst hafa þeir nýtt
sér sameiginlegan vettvang fyrir málstað sinn. Opið
verður í Hinu húsinu á milli klukkan eitt og fjögur.
List án landamæra heldur einnig úti bloggi og þeim
sem hafa áhuga á að fræðast meira um þessi málefni
er bent á að kíkja á www.listanlandamaera.blog.is
klara@frettabladid.is
Jafnrétti með gjörningum
Andri Valgeirsson er formaður Ný-ungar FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Fjöldi ungs og efnilegs skíða-
fólks er nú í Hlíðarfjalli.
Andrésar andar-leikarnir standa
nú yfir í Hlíðarfjalli á Akureyri er
og tilvalið fyrir þá sem hafa gaman
af skíðaíþróttinni að líta þar við og
fylgjast með unga fólkinu keppa.
Á leikunum er keppt í svigi, stór-
svigi og skíðagöngu og yngstu
keppendurnir fara í gegnum
skemmtilega leikjabraut, en kepp-
endur eru á aldrinum 5-14 ára.
Keppendur í ár eru 714 og þar af
eru tíu frá Noregi. - eö
Andrés á
Akureyri
Fjöldi ungmenna keppir í Hlíðarfjalli um
helgina.
Fitnessvog
metabolic rate
www.eirberg.is 569 3100 Stórhöfða 25
Rafskutlur
-umhverfisvænn ferðamáti
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki