Fréttablaðið - 25.04.2008, Blaðsíða 78
46 25. apríl 2008 FÖSTUDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
VEISTU SVARIÐ
Svör við spurningum á bls. 8
1 Um tuttugu.
2 Um sextíu.
3 Piparúða og kylfum.
BESTI BITINN Í BÆNUM
LÁRÉTT
2. skaði 6. frá 8. hár 9. nafar 11. ryk
12. brambolt 14. digurmæli 16. í röð
17. húsfreyja 18. sauðaþari 20. utan
21. útmá.
LÓÐRÉTT
1. skraf 3. tvíhljóði 4. garðplöntuteg-
und 5. angan 7. forskot 10. pípa 13.
hrós 15. klasi 16. kæla 19. í röð.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. bagi, 6. af, 8. ull, 9. bor,
11. im, 12. brölt, 14. grobb, 16. íj, 17.
frú, 18. söl, 20. án, 21. afmá.
LÓÐRÉTT: 1. rabb, 3. au, 4. glitbrá,
5. ilm, 7. forgjöf, 10. rör, 13. lof, 15.
búnt, 16. ísa, 19. lm.
„Mér finnst Sushibarinn á
Laugaveginum góður. Ég kaupi
mér gjarnan smá sushi þar á
föstudögum.“
Björn Ingi Hilmarsson, leikari.
Nýjasta kvikmynd Dags Kára Péturssonar, The Good
Heart, brýtur að öllum líkindum blað í íslenskri kvik-
myndasögu þegar hún verður frumsýnd. Þar verður
sýnt frá alvöru hjartaskurðaðgerð sem hjartaskurð-
læknir á Landspítalanum framkvæmdi. Aðgerðin og
tökurnar hafa farið fram en undirbúningur fyrir
þennan einstaka viðburð stóð yfir í tæp tvö ár. Raun-
verulegu hjartaaðgerðinni verður síðan blandað inn í
tilbúna aðgerð í kvikmyndinni þannig að ekki er víst
að áhorfendur sjái muninn.
„Ég hafði fyrirfram mestar áhyggjur af því að það
myndi líða yfir mig. Og það var kannski til að bæta
gráu ofan á svart að ég er mjög spítalahræddur
maður. En eftir þessa reynslu er alveg ljóst að ég
myndi treysta þessum færu starfsmönnum fyrir
hjartanu mínu,“ segir Dagur Kári í samtali við Frétta-
blaðið. Leikstjórinn útskýrir að tökuliðið hafi verið
eins fámennt og mögulegt var, aðeins hann, aðstoðar-
maður og tökumaður hafi verið viðstaddir.
Dagur vann mikla rannsóknarvinnu fyrir tökuna,
fékk að vera viðstaddur nokkrar aðgerðir til að undir-
búa sjálfan sig og skoða aðstæður. „Þetta var alveg
mögnuð upplifun því þegar svona aðgerðir hafa verið
sýndar í fræðslumyndum hef ég yfirleitt lokað aug-
unum eða skipt um stöð. En það er svo undarlegt að
þetta er auðveldara þegar maður er á staðnum og það
var stórkostlegt að sjá í hversu öruggum höndum
sjúklingurinn er,“ segir Dagur sem hafði fyrst og
fremst áhuga á að mynda handbragðið við slíkar
aðgerðir og því voru hvorki líffæri né sjúk-
lingur í aðalhlutverki.
Tómas Guðbjartsson, hjartaskurð-
læknir á Landspítalanum, framkvæmdi
aðgerðina sem sést í kvikmyndinni. Hann
segir að öll tilskilin leyfi hafi fengist
fyrir kvikmyndatökunni, hjá bæði sjúkl-
ingnum og æðstu ráðamönnum á Land-
spítalanum. „Þetta hefði ekki verið fram-
kvæmanlegt ef ekki hefði verið fyrir
samvinnu margra aðila. Þetta var undirbúið
í smáatriðum og tökuliðið hafði engin áhrif
á aðgerðina, hún var framkvæmd á
venjulegan hátt og án röskunar,“ segir
Tómas sem tekur skýrt fram að
þeir hefðu aldrei gefið
samþykki sitt fyrir
þessu ef þeir væru
ekki fullvissir um að
þetta væri fram-
kvæmanlegt án
nokkurra hnökra.
Tómas mun einnig
koma að tækni-
brelluatriðinu og aðstoða við að hanna líkan af
hjarta og veita tökuliðinu ráðgjöf.
Eins og komið hefur fram í Fréttablaðinu
munu stórstjörnurnar Paul Dano og Brian
Cox leika aðalhlutverkin í kvikmynd-
inni en tökur á The Good Heart
hefjast í næstu viku hér á landi.
freyrgigja@frettabladid.is
DAGUR KÁRI: THE GOOD HEART BRÝTUR BLAÐ Í KVIKMYNDASÖGUNNI
Dagur Kári kvikmyndar al-
vöru hjartaaðgerð fyrir bíó
MÖGNUÐ LÍFSREYNSLA Dagur Kári Pétursson segir
það hafa verið magnaða lífsreynslu að vera viðstaddur
hjartaskurðaðgerð.
TVEGGJA ÁRA UNDIRBÚNINGUR
Tómas Guðbjartsson framkvæmdi
aðgerðina sem sést í kvikmyndinni
The Good Heart.
Í maí útskrifast Birgitta Haukdal
frá söngskóla í Danmörku sem hún
er búin að vera í undanfarið ár.
Sumarvinna söngkonunnar verður
meðal annars að taka upp Ávaxta-
körfuna fyrir RÚV, en þættir unnir
upp úr þessum vinsæla barna-
söngleik verða teknir til
sýninga á næsta vetri.
Nýlega komu á ton-
list.is tvö endurunnin
lög af plötu Birgittu,
Ein. Það voru tveir
Bretar sem búa í
Reykjanesbæ,
þeir Simon
Latham og
Pete Lunn,
sem endur-
unnu lögin
og settu í
danstónlist-
argír.
Íslenska smokkaplakatið frá 9.
áratugnum er enn meðal best
heppnuðu auglýsingaherferða
Íslandssögunnar. Þar var frægu
fólki safnað saman og látið flippa
með smokka. Nú er svipuð herferð
í burðarliðnum þar sem þekktir
Íslendingar verða látnir setja
öryggið á oddinn. Þetta er reyndar
auglýsing fyrir reiðhjólahjálma og
það er Umferðarstofa sem lætur
gera hana.
Gamanleikarinn Bjarni Haukur
nýtur mikilla vinsælda, ekki síst
meðal helstu sjónvarpsstjarna
og þáttagerðarmanna Stöðvar 2.
Þannig var Bjarni í ágætu viðtali
hjá Sigmundi Erni Rúnarssyni í
þættinum Mannamál og nú er Jón
Ársæll að vinna þátt um Bjarna í
þáttaröðina Sjálfstætt fólk. Í næsta
Mannamáli er hins vegar von á
manni úr annarri átt.
Þá mun Mikael
Torfason setjast hjá
Sigmundi og ræða
endurútgáfu bókar
sinnar Falskur fugl
sem Mikael
er að dreifa
nú um
stundir.
- glh/jbg
FRÉTTIR AF FÓLKI
„Nei, það hefur ekkert verið
kvartað undan þessu,“ segir Ari
Edwald, forstjóri 365, sem á og
rekur Digital Ísland og Frétta-
blaðið. Á Digital Ísland hafa
áhugasamir og áskrifendur getað
nálgast ljósblátt erótískt efni á
sjónvarpsstöðinni Blue Hustler
en að undanförnu hefur svo
brugðið við að grófu klámefni er
dreift eftir klukkan ellefu á
kvöldin. Ari segir það ekkert
launungarmál að ákveðið hafi
verið að breyta efninu til að bæta
samkeppnisstöðu Digitalsins en í
gegnum svokallað VOD-kerfi
Símans hefur mátt leigja gróft
klámefni með fremur einföldum
hætti. Ari segir hins vegar að
menn þurfi að bera sig eftir
björginni, stöðin sé læst með
lykil orði og menn þurfi að biðja
um að vera áskrifendur að stöð-
inni. „Menn ramba því ekkert inn
á Blue Hustler fyrir einhverja
tilviljun,“ segir Ari. „Það krefst
ákveðins frumkvæðis af hálfu
neytandans að horfa á svona
efni.“
Ari bendir jafnframt á að í
bókabúðum sé hægt að finna
tímaritaefni frá sama vörumerki,
Hustler, og að myndefnið á sjón-
varpsstöðinni sé ekkert grófara
en það sem þar megi lesa um og
sjá. Hann bendir einnig á að
nýverið hafi mál verið látið niður
falla á hendur 365 og Skjá heims
vegna dreifingar á klámefni en
Skjár heimur hefur Playboy-rás-
ina innan sinna vébanda.
Ari segir jafnframt að Digital
Ísland hafi lögin sín megin, leyfi-
legt sé að dreifa sjónvarpsstöð
sem sé lögleg í sínu heimalandi
og í einhverju öðru Evrópulandi.
Þetta standi skýrt og greinilega í
samþykktum Evrópusambands-
ins um evrópska efnahagssvæðið.
„Svo lengi sem stöðin uppfyllir
skilyrðin um sjónvarp án landa-
mæra: að svona efni sé ekki dreift
nema seint á kvöldin og að það sé
ekki aðgengilegt börnum. Og
Blue Hustler fellur undir öll þau
skilyrði. Auk þess sem við höfum
ekkert verið að auglýsa hana neitt
sérstaklega.“ -fgg
Hörð samkeppni um gróft klámefni
ALLT INNAN RAMMA LAGANNA Grófu
klámefni er dreift á klámrásinni Blue
Hustler. Og því dreifa nú bæði Síminn
og 365 klámefni fyrir þá sem það vilja.
Skagamaðurinn Kristinn Einars-
son, sem tók þátt í erfiðustu
skíðagöngukeppni heims á Græn-
landi á dögunum, og Hans
Stephensen ætla að hjóla tvö þús-
und kílómetra um Noreg í ágúst.
Kristinn hjólaði 1.100 km um
Noreg í fyrra á aðeins átta dögum
og ætlar hann að ljúka ferðalagi
sínu um landið í sumar með þrem-
ur félögum sínum. Hafa þeir
áætlað tvær vikur í ævintýrið en
þess má geta að hringvegurinn
um Ísland er 1.339 km. „Við erum
nokkrir gaurar sem erum í þessu.
Við fórum í kajakleiðangur til
Grænlands fyrir tveimur árum
og höfum verið að gera eitthvað á
hverju ári. Það fer eftir því hvað
hverjum og einum dettur í hug,“
segir Kristinn, sem segir tiltölu-
lega auðvelt að hjóla í Noregi.
„Þetta eru aðallega dalir. Það er
rosalega fallegt þarna og maður
horfir eiginlega á flest annað en
veginn. Noregur er frábært land
til að hjóla í.“
Auk þess að hjóla, skíða og
sigla er Kristinn mikill sjósunds-
maður og synti meðal annars
Drangeyjarsund fyrir nokkrum
árum. Hefur hann verið duglegur
að synda í ísköldum sjónum á
Grænlandi þar sem hann starfar
sem smiður fyrir Ístak. „Maður
er í raun og veru að takast á við
sjálfan sig og sjá hvað maður
getur gert,“ segir Kristinn um
ævintýramennskuna.
Hann ætlar að skíða 160 km á
Grænlandi á næsta ári ásamt
Hans í stað þeirra hundrað sem
þeir fóru fyrir skömmu. „Þetta
var rosalega skemmtilegt en tók
virkilega á. Þetta var ekki bara
skíðamennska, heldur líka fjalla-
mennska, sem gerir þetta meira
spennandi.“ - fb
Ofurhugi hjólar um gjörvallan Noreg
KRISTINN EINARSSON Kristinn Einarsson
ætlar að hjóla tvö þúsund kílómetra um
Noreg í ágúst. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN