Fréttablaðið - 24.05.2008, Page 20
24. maí 2008 LAUGARDAGUR
U
tanríkisráðherra valdi í vikunni Ellisif
Tinnu Víðisdóttur, aðstoðarlögreglu-
stjóra á Suðurnesjum, úr hópi 26
umsækjenda til að gegna starfi
forstöðu-
manns nýrrar
Varnarmálastofnunar.
Ellisif Tinna er maður
vikunnar að þessu
sinni.
Ellisif fæddist í
Reykjavík en flutti sex
ára til Danmerkur og
bjó þar næstu átta ár.
Þegar heim var komið
lauk hún grunnskóla,
gekk síðan í Mennta-
skólann við Hamrahlíð
og fór að því loknu í
mannfræðinám við
Háskóla Íslands. Það
var þá sem hún
kynntist fyrst störfum
við löggæslu, þegar
hún vann sem
tollvörður samhliða
náminu. Eftir að hafa
búið í London um tíma
ákvað hún að söðla um
og fara í laganám við
Háskóla Íslands.
Ellisif reis tiltölu-
lega hratt til metorða í
löggæslunni eftir að
laganáminu lauk og
varð fulltrúi hjá
sýslumannsembættinu
á Keflavíkurflugvelli
árið 2001. Hún hafði
skrifað lokaritgerð um
efni sem tengdist
starfinu, landamæra-
vörslu og flóttamenn,
sem ber vott um áhuga
hennar á starfssviðinu.
Hún varð staðgengill
sýslumanns árið 2004
og aðstoðarlögreglu-
stjóri við skipulags-
breytingar árið 2007.
Hún þykir hafa
foringjaeðli, og því
kom það viðmælend-
um ekki á óvart að hún
skyldi velja sér starfa
við löggæslu. Hún
hefur enda haft gaman
af starfinu og þótt
metnaðarfull fyrir
hönd vinnustaðarins.
Flestir eru sömuleið-
is sammála því að hún
sé sem sniðin í nýja
starfið sitt sem
forstöðumaður
Varnarmálastofnunar.
Hún hafi starfað náið
með herliðinu áður en
það hvarf á braut,
þekki vel til borgara-
legra stofnana og sé
vel kunnug starfsemi
Schengen og NATO á
sviði varnarmála og
landamæravörslu. Auk
þess stýrði hún
breytingum á Ratsjár-
stofnun síðasta haust,
en verksvið hinnar
nýju Varnarmálastofn-
unar er að stórum
hluta það sama og
Ratsjárstofnunar. Þá
er það mat manna að
mannfræðimenntunin
veiti henni mikilvæga
jarðtengingu til að
takast á við stjórnunarstörfin.
Dugnaður er fyrsta orðið á vörum allra viðmæl-
enda þegar þeir eru inntir eftir áliti á Ellisif – og
flestir nota það ítrekað. Hún þykir skipulögð og
óhrædd að takast á við hið óþekkta, kraftmikil og
eljusöm. Dugnaðurinn braust fram með hvað mest
áberandi hætti þegar hún hellti sér út í fimm ára
laganám, einstæð móðir með þrjú ung börn. Og hún
lét sér ekki nægja að klára það með hefðbundnum
glans, heldur lauk hún námskeiðum fjórða og fimmta
árs á einu ári. Það tók á, en eftir að fyrri önnin hafði
unnist á tvöföldum hraða sá hún fátt því til fyrir-
stöðu að endurtaka leikinn eftir áramótin.
Vinum Ellisifjar ber saman um að henni sé mjög
umhugað um að hafa
allt fínt og flott í
kringum sig. Ef það á
að gera eitthvað – eða
kaupa eitthvað – á
annað borð, þá skal það
vera almennilegt. Einn
viðmælandi grípur til
orðsins „pjattrófa“, en
dregur það snögglega
til baka og segir það
kannski helst til
neikvætt. „Fagurkeri“
sé nærri lagi. Hún
eyðir peningum, en þó
ekki í hvað sem er, og
hefur til dæmis aldrei
haft áskrift að Stöð 2.
Hún er „lúxuspía“ , vill
hafa huggulegt í
kringum sig og býður
sjálfri sér og öðrum
eingöngu upp á það
vandaðasta og flottasta.
„Ef hún heldur
matarboð þá gerir hún
það með stæl,“ segir
viðmælandi. Þegar hún
var í laganámi bauð
hún til dæmis fjór-
menningum í mat á
heimili sitt, og þá dugði
ekkert minna en að
hafa á staðnum bæði
þjón og kokk. Og Ellisif
gerðist snemma
vandlát. Þannig fór hún
helst ekki í klippingu
nema á uppáhaldshár-
greiðslustofuna sína í
Kaupmannahöfn fyrst
eftir að hún flutti heim
til Íslands.
Það þarf því ekki að
koma á óvart að
lífskúnstnerinn Ellisif
hafi mikið dálæti á
hinum klassískum
kúnstum. Hún er
hrifnæm og listfeng
mjög eins og foreldrar
hennar, sem gáfu
barnabörnunum
listaverk í skírnargjöf
til snemmbúinnar
innrætingar. Þá er
Ellisif mikill óperu-
unnandi, sækir
óperuna á Íslandi
reglulega og þegar
gesti ber að garði er
ekki óalgengt að
tónarnir taki á móti
þeim alla leið út á
bílaplan. Hún giftist
enda óperusöngvara
og átti með honum
þrjú börn.
Ellisif lætur ekki
vaða yfir sig og þykir
hörð í horn að taka
eins og leiðtogum
sæmir. Þannig sópar
að henni hvert sem
hún fer og jafnan er
eftir henni tekið og um
hana rætt. „Hún er
eins og stormsveipur,“
segir einn vandamað-
ur, „nagli“ segir annar.
Og þrátt fyrir að
flestir sem hana
þekkja séu sammála
um að hún sé afar hlý manneskja, barngóð og
heilsteypt, þá getur ákveðið fasi hennar stundum
orðið til þess að hlýjan dylst mönnum við fyrstu
kynni. Hún vill þó opinberast þeim sem kynnast
henni betur, segja kunnugir, en einn bætir við að
hann vildi ekki eiga hana fyrir óvinkonu. Mislíki
henni eitthvað eða misbjóði á hún það til að rjúka
upp, verða óðamála og orðhvöss, og þótt full ástæða
sé þá til að taka mark á því sem sagt er gengur
stormurinn jafnan fljótt yfir.
MAÐUR VIKUNNAR
Eljusamur fagurkeri
ELLISIF TINNA VÍÐISDÓTTIR
ÆVIÁGRIP
Ellisif Tinna Víðisdóttir fæddist í Reykjavík hinn 18. septemb-
er 1965. Hún flutti ung að árum til Danmerkur og ólst þar
upp á meðan foreldrar hennar voru við nám. Þeir eru Víðir
Hafberg Kristinsson sálfræðingur og Hulda Guðmundsdóttir
sállæknir. Ellisif á eina yngri systur, Kolbrúnu Hrund. Yngri
bróðir hennar, Börkur Hrafn, lést af slysförum árið 2002.
Ellisif var gift Tómasi Tómassyni óperusöngvara í þrettán ár
og á með honum þrjú börn: Kolfinnu og tvíburana Björn
og Víði. Hún bjó með Tómasi í London um tíma en flutti til
Íslands þegar þau skildu og býr nú í Hlíðahverfi, í nábýli við
foreldra sína.
Ellisif útskrifaðist með stúdentspróf frá Menntaskólanum
við Hamrahlíð árið 1986 og lauk síðan mannfræðinámi
við Háskóla Íslands árið 1992. BA-ritgerð hennar fjallar um
mannfræðinginn Margaret Mead, ævi hennar og helstu verk.
Þegar hún kom heim frá London hóf hún laganám sem hún
lauk árið 2001. Lokaritgerð hennar fjallar um landamæra-
vörslu og flóttamenn.
Með námi vann Ellisif fyrst sem tollvörður hjá sýslumann-
sembættinu á Keflavíkurflugvelli. Eftir laganámið var hún
ráðin sem fulltrúi hjá embættinu og árið 2004 varð hún
staðgengill sýslumanns. Við skipulagsbreytingar á lögreglu-
embættum árið 2007 var hún ráðin aðstoðarlögreglustjóri á
Suðurnesjum.
Ellisif var fengin til að stýra breytingum á Ratsjárstofnun
síðastliðið haust og var nýlega valin úr hópi 26 umsækjenda
í starf forstöðumanns nýrrar Varnarmálastofnunar.
VANN SÉR TIL FRÆGÐAR
Lauk embættisprófi í lögfræði á fjórum árum í stað fimm á
sama tíma og hún sinnti ein, með aðstoð vina og vanda-
manna, uppeldi á þremur ungum börnum.
HVAÐ SEGJA AÐRIR?
„Hún er eins og Villi spæta, maður setur hana á nýtt tré og
hún goggar það alltaf niður á methraða. Hún hefur alltaf
fengið fleiri og fleiri steina í bakpokann, en það hægir ekkert
á henni í fjallgöngunni.“
Jóhann R. Benediktsson, lögreglustjóri á Suðurnesjum.
www.r
emax.
is
Einn ö
flugas
ti faste
ignave
fur lan
dsins
Allar
faste
ignasö
lur eru
sjálfs
tætt re
knar o
g í ein
kaeign
Fasteig
nablað
165. T
ölublað
- 6. ár
gangur
- 18. m
aí 2008
FRAMÚ
RSKAR
ANDI S
ÖLUFU
LLTRÚ
AR
FRAMÚ
RSKAR
ANDI Á
RANG
UR
bls.
12
ER ÞÍN ATVINNUAUGLÝSING HÉR? MEST LESNA ATVINNUBLAÐ LANDSINS
S. 512 5426 - vip@365.is S. 512 5441 - hrannar@365.is
Matur[ SÉRBLAÐ FRÉTTABLAÐSINS UM MAT ]Maí 2008
VSYKRUÐ SÆLUVÍMA GÆSALIFRARTERRINE MEÐ KRYDÍSTERTA MEÐ MÖNDLUM SUMARLEG
Veislur
Veislur fyrir börn
Ævintýraleg afmæliErla Guðmundsdóttir
Sumarlegir réttir
Nanna Rögnvaldardóttir skrifar
Ofnbakaður fiskur – ljúffengur í veisluna
Uppskriftir að ljúffengum réttum sem henta
við hátíðleg tækifæri
Chris, börnin og Kabbala
Gwyneth Paltrow í viðtali við Fréttablaðið.
Vilja skipta út náttúrunni fyrir eigin
framleiðslu
Bandaríski vísindamaðurinn Jeffrey Smith varar
við erfðabreyttum matvælum, þar sem þau geta
verið okkur skaðleg. Hann segir líftæknifyrirtæki
einungis stjórnast af peningum en ekki hugsjón-
um.
Matur fylgir Fréttablaðinu á sunnudag:
Ævintýralegar afmælisveislur + Sykruð sælu-
víma, léttir sumarréttir, möndluskreytt ísterta,
gæsalifrarterrine með kryddjurtum, Eldað ofan
í erlenda gesti. Matarpistill Nönnu Rögnvaldar-
dóttur.
...ég sá það á visir.is
„...fyrst á visir.is“