Fréttablaðið - 24.05.2008, Qupperneq 24
24 24. maí 2008 LAUGARDAGUR
KÆRA DAGBÓK
Þráinn Bertelsson skrifar
LAUGARDAGUR, 17. MAÍ.
Sjálfsnám í skóla lífsins
Letilíf. Lauk við að lesa „Empire
des Loups“ (Veldi úlfanna) eftir
Jean-Christophe Grangé sem
skrifaði „Purpuralitar ár“ og „Flug
storkanna“. Þetta er fjórða bókin
sem ég þrælast gegnum eftir kall-
inn – og tilheyrir sjálfsnámi mínu
í franskri tungu.
Ég er ekki eini heimilismaður-
inn sem stunda sjálfsnám óháð
skólapensúmi. Litla Sól er staðráð-
in í að læra að blístra og ég er að
reyna að segja henni til eftir
mætti.
Um er að ræða tvenns konar
blístur. Annars vegar hátt og
hvellt áherslublístur sem maður
notar á tilfinningaþrungnum
augnablikum og hins vegar er svo
tónlistarblístur.
Frökenin og ég stöndum því á
blístri flesta daga svo að hún er á
réttri leið í blístursnáminu eins og
ég í frönskunni, en bæði eigum við
töluvert langt í land með að verða
fullnuma.
SUNNUDAGUR, 18. MAÍ.
Stjórnarandstæðingur
eða stjórna-andstæð-
ingur
Heimsóttum Lenu og Árna. Hjá
þeim var stödd skólasystir Lenu,
Alla. Þær voru saman í bókmennta-
námi við Moskvuháskóla á sjötta
áratug síðustu aldar og bundust
vináttuböndum sem ekki hafa
rofnað síðan, enda er Lena vinföst
með afbrigðum og þeir sem eign-
ast vináttu hennar hafa eignast
eitthvað sem er gulli betra.
Frændi minn og vinur Össur
Skarphéðinsson, sem er með
gleggstu mönnum, tekur soldið
skakkan pól í hæðina þegar hann
kallar mig „stjórnarandstæðing“ á
blogginu sínu í dag og segir m.a.:
„Þráinn er uppreisnarmaður í
eðli sínu og svo þver og þrjóskur
að stöðugar fyrirbænir mínar og
reglulegar handayfirlagnir breyta
engu um það að hann er harðasti –
kanski eini – stjórnarandstæðing-
urinn nú á dögum sem nær ein-
hverju máli.“
Það er rétt hjá Össuri að hvorki
heilun né handayfirlagnir duga til
að breyta því að ég er á móti ríkis-
stjórninni. Maður á ekki að espa þá
upp sem sitja í ráðherrastólum
með því að hrósa þeim heldur
reyna að róa þá niður og hafa vit
fyrir þeim.
Með öðrum orðum þá vil ég held-
ur standa utan við tjaldið og pissa
inn heldur en að híma inni í tjald-
inu og pissa út.
Reyndar er ég ekki „stjórnar-
andstæðingur“ eins og Össur segir
heldur „stjórna-andstæðingur“ því
að í hjarta mínu er ég á móti öllum
ríkisstjórnum.
Mesta samúð hef ég þó með
þeim ríkisstjórnum sem eru dug-
litlar og virðast ekki hafa neina
forystu, svo að andstaða mín við
þá stjórn sem nú situr er í lág-
marki.
Ég óttast mest athafnasamar
stjórnir, því að ævilöng reynsla
mín af ríkisstjórnum er sú að
stjórnmálamenn haldi að ríkið
samanstandi af fyrirtækjum sem
þurfi að hjúkra af árvekni og helst
að næra þau á mannfórnum.
MÁNUDAGUR, 19. MAÍ.
Jarðskjálftar og Vorið 68
Andri sem er tíu ára er í stífum
próflestri þessa dagana. Á morgun
er náttúrufræðipróf og þar geta
hugsanlega komið spurningar eins
og „hvað veldur jarðskjálftum“.
Mikið er ég feginn að vera búinn að
ljúka mínu skólanámi og þurfa ekki
að fara eldsnemma á fætur til að
svara svona spurningum.
Fór í bókabúð og keypti mér „Maí
68“ eftir Einar Má Jónsson (ekki
Guðmundsson) sem stýrir einhverj-
um skemmtilegasta penna á
íslensku nú um stundir; þetta eru
innblásnar greinar frá „Vorinu 68“
sem óskandi væri að endurfæddist í
einhverri mynd á okkar sálardrep-
andi peningaplokkstímum.
Annars vorkenndi ég löggunni
alltaf soldið þegar óánægja ungs
fólks með stjórnmálamenn braust
út í því að henda grjóti í lögregluna.
Hérna lenti fólk í stimpingum við
prúðmennið Bjarka Elíasson lög-
regluvarðstjóra vegna þess að ráð-
herrar höfðu vit á að láta ekki sjá
sig á almannafæri.
ÞRIÐJUDAGUR, 20. MAÍ.
Eurovision og tilgangur
lífsins
Átti fund með mínum ágæta rit-
stjóra, Jóni Kaldal. Við hittumst á
Kjarvalsstöðum og skoðuðum
saman skemmtilegt verk eftir
Mörtu Schwartz, Aluminati, en það
er svart box á stærð við Köbuna í
Mekka sem maður fer inn í og skoð-
ar inn í annan svartan kassa sem
fóðraður hefur verið með krumpuð-
um álpappír. Mjög, hmm, athyglis-
vert!
Til þess að höfða til sem flestra
kjósenda hefur Samfylkingin tekið
upp þá pólitísku jafnréttisstefnu að
bjóða upp á tvær andstæðar skoðan-
ir í senn þannig að öllum sé gert til
hæfis á sama tíma og hafa boð verið
látin út ganga um að formaðurinn sé
á móti hvalveiðum í ríkisstjórn en
fylgjandi þeim á alþjóðavettvangi.
Þetta mun eflaust auka traust
manna á bæði formanni Samfylk-
ingarinnar og utanríkisstefnu
Íslands.
Hugsanlega væri þó hægt að
toppa þetta með því að vera fylgj-
andi hvalveiðum á nóttunni en á
móti þeim á daginn. Eða öfugt.
Þegar leið að kvöldmatartíma
spurði frú Sólveig hvort ég ætlaði
að horfa á Eurovision. Stundum er
eins og eins og þessi yndislega kona
skilji ekki alveg hver er tilgangur-
inn með lífinu.
Sigmar lýsti Evróvisjón-keppn-
inni af svo mikilli snilld að ég geri
fastlega ráð fyrir að hann verði
munstraður sem næsta borgar-
stjóraefni Flokksins og Gísli Mart-
einn verði endurráðinn að Sjónvarp-
inu.
Eitthvert afturhvarf til tíma
Gleðibankans virðist hafa átt sér
stað í Evrópu. Búningarnir eru
margir mjög leikhúslegir, og flutn-
ingur sumra laga minnir frekar á
leikhús en tónleika.
Ísland kom hvergi við sögu í kvöld
svo að ég hélt með frændum okkar
Írum í okkar stað því að frá þeim
höfum við þegið skáldskapargáf-
una.
Írar hafa auk þess allra þjóða oft-
ast unnið Eurovision en í kvöld brást
þeim bogalistin þegar keppandi
þeirra, kalkúninn Dustin, féll úr
keppni, þrátt fyrir ljómandi góðan
söngtexta sem sannar skyldleika Íra
og Íslendinga. Eitt erindið í ljóðinu
var til dæmis svona:
„Hello Abba, hello Bono, hello
Helsinki
Ola Prague, hello sailor, se la vie
Alvida sein Mama Mia, and god
save the Queen
Bon joir Serbia, good day Austria
You know what I mean?“
Þetta kalla ég dýrt kveðið. Meira
að segja James Joyce hefði verið
stoltur af þessu ljóði.
MIÐVIKUDAGUR, 21. MAÍ.
Sigur réttlætisins og
leðjan í Moskvu
Annan daginn í röð var kvöldmatn-
um flýtt svo að ég gæti horft á sjón-
varpið.
Það er þýðingarlaust að reyna að
lýsa þeirri upplifun að sjá ofur-
menninu John Terry skrika fótur í
leðjunni á Luzhniki-leikvanginum í
Moskvu og klúðra mikilvægustu
vítaspyrnu 21. aldar – og Man Unit-
ed vinna Evrópumeistaratitilinn
fyrir framan rauðbólgið nefið á
kærum vini íslenskra mikilmenna,
billjónungnum Róman Abramó-
vitsj, á hans heimavelli.
Stundum efast maður ekki um
æðri forsjón og sigur réttlætisins.
Reyndar var ég soldið veikur
fyrir Chelsea meðan Eiður var þar
innanbúðar.
FIMMTUDAGUR, 22. MAÍ.
Dillibossakvöld
Ríkisstjórnin er búin að ferðast
fyrir 95 milljónir á einu ári meðan
borgarstjórn Reykjavíkur rétt slef-
ar í 12 milljónir – og hefði ég þó
haldið að borgarfulltrúar hefðu
meiri tíma til að skemmta sér en
önnum kafnir ráðherrar. Verst að
þetta lið skuli ekki geta ferðast á
kústsskafti eins og Harry Potter og
fleira gott fólk.
Ólafur borgarstjóri er bara
búinn að ferðast fyrir 0 krónur,
enda gerði minnihlutinn duglega
grín að þeim heimóttarskap borg-
arstjórans að bera sig ekki eftir
frímiðum og dagpeningum eins og
alvöru stjórnmálamaður. Mikið
er ég stoltur af því að þjóðin mín
skuli vera svo dugleg að borga
skatta að mikilmenni þurfi ekki að
neita sér um nokkurn skapaðan
hlut.
Það er að verða fullt starf hjá
mér að horfa á sjónvarpið. Ísland
er komið í úrslitakeppnina í Eurov-
ision.
Þetta var nú meira dillibossa-
kvöldið – og ekki allt búið enn. Það
liggur við að maður fari að sakna
skrímslanna úr Lordi.
Dillibossakvöld eftir kvöld
Í dagbók Þráins Bertelssonar er fjallað um sjálfsnám í blístri og frönsku, írsk-íslenska skáldskapargáfu, heilun og handayfirlagn-
ir. Einnig er vikið stuttlega að ferðalögum á kústsskafti, tilgangi lífsins og dillibossakeppni í Eurovision.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/S
A
M
SE
TT
M
YN
D
S
A
M
SE
TT
M
YN
D
/K
ID
D
I
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/S
A
M
SE
TT
M
YN
D
S
A
M
SE
TT
M
YN
D
/K
ID
D
I
Samkaup Úrval Borgarnesi
Samkaup Úrval við Hyrnutorg óskar eftir verslunarstjóra
ATVINNA
Starfssvið:
Ábyrgð á rekstri verslunarinnar
Dagleg stjórnun og starfsmannahald
Samskipti við viðskiptavini
Birgðahald og önnur tilfallandi störf
Hæfniskröfur:
Reynsla af verslunarstörfum skilyrði
Frumkvæði og metnaður í starfi
Góð framkoma og rík þjónustulund
Reynsla af stjórnun rekstri.
Um áhugavert starf er að ræða hjá ört stækkandi fyrirtæki.
Góð laun í boði fyrir drífandi og kraftmikinn einstakling.
Upplýsingar veitir starfsmannastjóri Dómhildur Árnadóttir í síma 4215400 eða
á netfangið domhildur@samkaup.is. Umsóknarfrestur er til 30.maí
og umsóknir berist á sama netfang.