Fréttablaðið - 25.05.2008, Síða 11
SUNNUDAGUR 25. maí 2008 11
UMRÆÐAN
Jóhanna Sigurðar-
dóttir skrifar um Dag
barnsins
Sunnudaginn 25. maí verður dagur barns-
ins haldinn í fyrsta sinn á
Íslandi. Það er sannfær-
ing mín að beina þurfi
sjónum í auknum mæli að börnum
og ungmennum þegar unnið er að
jafnréttismálum. Í tengslum við
dag barnsins er mjög ánægjulegt
að geta kynnt mikilvægt og þarft
verkefni sem snýr að jafnrétti í
skólum. Fimmtudaginn 22. maí
undirritaði ég samkomulag við
fjögur sveitarfélög um þróunar-
verkefnið Jafnréttisfræðsla í leik-
og grunnskólum.
Jafnréttisfræðsla í skólum
Í nýjum lögum um jafna stöðu og
jafnan rétt kvenna og karla sem
tóku gildi 6. mars 2008 er kveðið
á um að á öllum skólastigum skuli
nemendur hljóta fræðslu um
jafnréttismál þar sem m.a. skal
lögð áhersla á að búa bæði kynin
undir jafna þátttöku í samfélag-
inu, svo sem í fjölskyldu- og
atvinnulífi.
Jafnréttisfræðsla í skólum er
mikilvægt verkefni í jafnréttis-
baráttunni. Rannsóknir benda til
þess að kynjaskiptur vinnumark-
aður sé hindrun í vegi fyrir jafnri
stöðu karla og kvenna. Kynbund-
ið náms- og starfsval ýtir undir
launamisrétti og lakari stöðu
kvenna. Vinnumarkaðurinn ber
enn merki kynjaskiptingar og
staðalímynda um „náttúrulegan“
starfsvettvang karla og kvenna.
Sterk kynjaskipting innan fags
eða atvinnugreina kemur í veg
fyrir að jafnrétti ríki milli karla
og kvenna á vinnustað.
Þá er umhugsunarefni að í
könnun sem nýlega var gerð á
viðhorfum íslenskra ungmenna á
aldrinum 18 til 23 ára kom í ljós
að í átta af tíu tilfellum reikna
karlar með hærri launum fyrir
tiltekin störf en konur.
Með markvissri fræðslu og
umræðu frá upphafi skólagöngu
er hægt að gefa ungu fólki tæki-
færi til að taka sínar eigin
ákvarðanir varðandi framtíð
sína. Jafnframt styður fræðsla í
jafn réttismálum við málaflokk-
inn þegar litið er til framtíðar.
Jafnréttisfræðsla í leik-
og grunnskólum
Meginmarkmið verkefnisins er
helst að efla jafnréttisfræðslu,
samþætta kynjasjónarmið í
kennslu og auka samvinnu milli
sveitarfélaga um jafnréttismál á
sviði skólamála. Einnig er stefnt
að aukinni samvinnu innan
sveitar félaga um jafnréttismál
almennt og meira upplýsinga-
flæði um jafnréttisfræðslu. Mik-
ilvægt er að búa til vettvang fyrir
þá sem miðlað geta af reynslu
sinni.
Félags- og tryggingamálaráðu-
neytið, Jafnréttisstofa, Reykja-
víkurborg, Hafnarfjarðarbær,
Akureyrarbær, Kópavogsbær og
Mosfellsbær hafa skrifað undir
samstarfssamning um félags- og
þróunarverkefni sem miðar að
því að því að auka og efla jafn-
réttis- og kynjasjónarmið í leik-
skólum og grunnskólum. Álfta-
nes hefur óskað eftir að fá að
gerast þáttakandi. Menntamála-
ráðuneytið og Jafnréttisráð hafa
komið að verkefninu auk þess
sem Samtök atvinnulífsins,
Þróunar sjóður grunnskóla,
Landsvirkjun, Glitnir og Spari-
sjóður Norðlendinga hafa stutt
verkefnið fjárhagslega.
Uppbygging verkefnisins
Verkefnið Jafnrétti í skólum er
tvíþætt. Annars vegar að hanna og
halda úti vefsíðu þar sem upplýs-
ingar um jafnréttisfræðslu verða
aðgengilegar, auk upplýsinga um
verkefni sem nota má í skóla-
starfi. Hins vegar að leikskólar og
grunnskólar sinni tilraunaverk-
efnum á sviði jafnréttismála og að
nota vefsíðuna til kynningar á
þeim. Vefsíðan á að vera aðgengi-
legur gagnabanki fyrir
kennara, nemendur,
námsráðgjafa og foreldra
til að fræðast og fræða
um jafnrétti í námi og
starfi.
Sveitarfélögin sem
taka þátt hafa tilnefnt
leikskóla og grunnskóla
sem tilraunaskóla í sínu
sveitarfélagi og eru skól-
arnir farnir að huga að
tilraunaverkefnum sem unnin
verða næsta skólaár. Vorið 2009
þegar tilraunaverkefnunum lýkur
verða væntanlega til verkefni og
fræðsluefni sem nýst geta í jafn-
réttisfræðslu í íslenskum skólum.
Verkefnisstjóri hefur verið ráð-
inn til eins árs með aðsetur á Jafn-
réttisstofu og er hann tengiliður
við tilraunaskólana og hefur
umsjón með vefsíðu verkefnis-
ins.
Ingólfur Ásgeir Jóhannesson,
prófessor við Háskólann á Akur-
eyri, leiðir faghóp sem í sæti eiga
fulltrúar frá Félagi leikskólakenn-
ara, Félagi grunnskólakennara og
Félagi náms- og starfsráðgjafa.
Faghópurinn mun veita tilrauna-
skólum, stýrihópi, verkefnisstjóra
og öðrum sem að verkefninu koma
faglegan stuðning og ráðleggingar.
Viðræður eru í gangi um mat á
verkefninu og heimasíða er í
vinnslu sem opnuð verður í upp-
hafi næsta skólaárs. Þar til heima-
síðan verður opnuð er hægt að
nálgast upplýsingar um verkefnið
á heimasíðu Jafnréttisstofu, Jöfn
framtíð fyrir stráka og stelpur og
á heimasíðu félags- og trygginga-
málaráðuneytisins http://jafnretti.
felagsmalaraduneyti.is.
Mikilvægt að efla jafnréttisfræðslu
í skólum
Rannsóknir sem gerðar hafa verið
á viðhorfum til jafnréttis í grunn-
skólum landsins á undanförnum
árum sýna að brýn þörf er á að
efla jafnréttisvitund ungmenna.
Brýnt er að hafa í huga að það
læra börnin sem fyrir þeim er
haft. Ég er sannfærð um að
þróunar verkefnið „Jafnrétti í
skólum“ mun verða mikil lyfti-
stöng fyrir mikilvæga fræðslu til
ungmenna um jafnréttismálin.
Það er sérstaklega ánægjulegt hve
gott samstarf margra aðila hefur
tekist um verkefnið. Fram undan
eru áhugaverðir tímar hvað varðar
jafnrétti í skólum.
Höfundur er félags- og trygginga-
málaráðherra.
JÓHANNA
SIGURÐARDÓTTIR
Það læra börnin sem fyrir þeim er haft
Þá er umhugsunarefni að í
könnun sem nýlega var gerð á
viðhorfum íslenskra ungmenna
á aldrinum 18 til 23 ára kom
í ljós að í átta af tíu tilfellum
reikna karlar með hærri laun-
um fyrir tiltekin störf en konur.
Umsóknarfrestur er til 30. maí
Kynntu þér námið á www.hr.is
HEIMSMEISTARAR Í GERVIGREIND
KOMA ÚR TÖLVUNARFRÆÐIDEILD HR
Gervigreind er eitt mest spennandi viðfangsefni tölvunarfræði og hafa nemendur og
kennarar Háskólans í Reykjavík náð miklum árangri á því sviði á undanförnum árum.
Lið Háskólans í Reykjavík sigraði til að mynda í heimsmeistarakeppninni í gervigreind í
fyrra, en keppnin er haldin að frumkvæði Stanford-háskólans í Bandaríkjunum.
Keppt er í því hversu vel gervigreindarhugbúnaður stendur sig í leikjum þar sem honum
eru aðeins kenndar grunnleikreglurnar. Hugbúnaðurinn þarf að læra leikinn að öðru
leyti og finna sjálfur aðferð til að sigra andstæðing sinn. Alhliða leikjaforrit Háskólans í
Reykjavík reyndist ofjarl allra annarra forrita og stóð uppi sem heimsmeistari.
Framtíðin er HR.
Kerfisfræði Tölvunarfræði (BSc & MSc) Hugbúnaðarverkfræði (BSc & MSc) Stærðfræði (BSc)
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
–
0
8
-0
6
0
8