Fréttablaðið - 26.05.2008, Blaðsíða 57
MÁNUDAGUR 26. maí 2008 25
HANDBOLTI Íslenska kvennalands-
liðið náði fram hefndum gegn
danska liðinu Kolding, sem það
tapaði fyrir á laugardag.
Landsliðið átti miklu betri leik í
gær og vann, 26-23. Þetta var
síðasti æfingaleikur liðsins fyrir
slaginn gegn Rúmenum um laust
sæti á EM en fyrri leikur fer
fram hér á landi um næstu helgi.
Mörk Íslands: Rakel Dögg
Bragadóttir 6, Dagný Skúladóttir
5, Sólveig Lára Kjærnested 5,
Sara Sigurðardóttir 2, Hildigunn-
ur Einarsdóttir 1, Stella Sigurðar-
dóttir 1, Arna Sif Pálsdóttir 1.
Berglind Íris Hansdóttir varði
rúmlega tuttugu skot í íslenska
markinu. - hbg
Kvennalandsliðið:
Sigur gegn
Kolding
RAKEL DÖGG BRAGADÓTTIR Lék vel
gegn Kolding. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
FORMÚLA 1 Bretinn Lewis Hamilt-
on fagnaði sigri í Mónakó-kapp-
akstrinum í gær sem var mjög
fjörugur. Hamilton slapp reyndar
fyrir horn snemma í kappakstrin-
um þegar hann keyrði utan í hlið
og sprengdi dekk.
Það reyndist dulin blessun í
þeim árekstri því hann fékk fullan
tank um leið og skipt var um dekk.
Hann gat því frestað síðasta við-
gerðarhléinu sínu og byggt upp
góða forystu áður en hann tók síð-
asta hléið sitt,
Robert Kubica á BMW tók annað
sætið af Ferrari-manninum Felipe
Massa. Þjóðverjinn Adrian Sutil
hafði verið að keyra vel og átti
fjórða sætið nokkuð víst þegar
heimsmeistarinn Kimi Räikkönen
keyrði aftan á hann undir lokin og
sá til þess að Sutil datt úr leik.
Mark Webber varð því fjórði,
Sebastian Vettel fimmti og Rubens
Barrichello sjötti.
Brautin var blaut þegar keppni
hófst í gær og þá lenti Hamilton í
sínum ógöngum. „Það var mjög
erfitt að ráða við rigninguna og
það spýttist svo mikið vatn á mann
í tólftu beygju að það var engu lík-
ara en maður væri að keyra í gegn-
um á. Ég fór ofan í þessa á og rann
bara á hliðið. Þegar veðrið er
svona skiptir öllu að halda sér
bara á brautinni en ég get ekki
lýst því hversu erfitt það er í raun
og veru. Við breyttum um taktík
eftir slysið og það vann með
okkur,“ sagði Hamilton eftir kapp-
aksturinn.
Fernando Alonso keyrði út af en
gat haldið áfram. Þeir David Coult-
hard og Sebastian Bourdais fóru
einnig út af á sama stað en voru
ekki eins lánsamir og Alonso.
„Ég náði gríðarlegum hraða um
tíma og var að keyra sekúndu
betur en flestir ökumennirnir. Þá
var þetta orðið frekar auðvelt.
Þessi sigur er sá stærsti hjá mér á
ferlinum og mun verða það sem
eftir lifir á mínum ferli. Þegar ég
ók síðustu hringina var ég að
hugsa um þegar Ayrton Senna
vann hérna,“ sagði Hamilton
brosmildur. - hbg
Æsileg Formúlukeppni í Mónakó þar sem mikið gekk á frá upphafi til enda:
Dramatískur sigur hjá Hamilton
SIGURREIFUR Hamilton sagði að sigurinn í gær væri hátindurinn á ferli hans.
NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
NBA Besta lið NBA-deildarinnar í
vetur, Boston Celtics, vann sinn
fyrsta útisigur í úrslitakeppninni
í ár þegar það mætti Detroit
þriðja sinni í úrslitum Austur-
deildar.
Boston var miklu sterkara allan
leikinn og vann sannfærandi, 94-
80, og leiðir því einvígið 2-1.
„Fyrsta tapið á heimavelli gaf
okkur mikinn og nýjan kraft og
við vissum sem var að við
þurftum virkilega að vinna
þennan leik,“ sagði Paul Pierce,
leikmaður Boston, eftir leik en
hann hafði óvenju hljótt um sig
og skoraði aðeins 11 stig.
Kevin Garnett var sterkastur
þeirra grænu með 22 stig og 13
fráköst. Rip Hamilton skoraði
mest fyrir Detroit, 26 stig. - hbg
Úrslitakeppni NBA:
Loks vann
Bost on á útivelli
KEVIN GARNETT Fór fyrir liði Celtics.
NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES