Fréttablaðið - 13.06.2008, Blaðsíða 88
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
Í dag er föstudagurinn 13. júní,
166. dagur ársins.
2.59 13.28 23.57
1.48 13.12 0.41
Ferðaskrifstofa
Alicante
16. júní – UPPSELT
18. júní – UPPSELT
19. júní – örfá sæti laus
21. júní – 6 sæti laus
23. júní – örfá sæti laus
25. júní – örfá sæti laus
26. júní – 15 sæti laus
28. júní – örfá sæti laus
Tenerife
17. jún. – örfá sæti laus (vél 1)
17. júní – UPPSELT (vél 2)
17. júní – örfá sæti laus (vél 3)
24. júní – UPPSELT (vél 1)
24. júní – UPPSELT (vél 2)
Lanzarote
24.júní – Laus sæti
Krít
18. júní – örfá sæti laus
25. júní – 10 sæti laus
Marmaris
23. júní – örfá sæti laus
24. júní – Laus sæti
Portúgal
19. júní – Laus sæti
26. júní – Laus sæti
Costa del Sol
23. júní – örfá sæti laus
30. júní – Laus sæti
Mallorca
18. júní – 5 sæti laus
25. júní – Laus sæti
Hvað rekur sjötugan hollensk-an ferðamann á húsbíl til að
smygla 190 kílóum af eiturlyfjum
til Íslands? Mér finnst ekki ólík-
legt að sá hollenski hafi kynnt sér
bensínverðið á Íslandi áður en
hann lagði í hann og komist að
þeirri niðurstöðu að ef hann ætl-
aði að keyra hringveginn kæmi
hann með þessu móti kannski út á
sléttu.
ENDRUM og eins erum við
minnt á hversu mikil lífsgæði eru
fólgin í að komast hratt og örugg-
lega á milli staða. Síðast gerðist
það líklega árið 1997, þegar bensín-
afgreiðslufólk fór í verkfall. Það
var hins vegar tíma bundið ástand.
Allt bendir til að eldsneytishækk-
anir undanfarinna mánuða séu
varanlegar og við sjáum ekki
fyrir endann á afleiðingunum.
HÆKKANIR á eldsneytisverði
hafa sína kosti. Til margra mag-
urra ára þjónaði jeppinn til dæmis
því hlutverki fyrst og fremst að
vera stöðutákn vel stæðra karla
sem vildu bæta fyrir innra óör-
yggi með því að berast á. Þetta var
gott ástand sem tryggði félagslegt
gagnsæi. Í góðæri liðinna ára
hefur hins vegar verið gengið
rækilega á sérkenni hinna sterk-
efnuðu og hvalkynja bensín svelgir
eru nú til á öðru hverju heimili. Ef
fer sem horfir færist ástandið
hins vegar bráðum aftur í eðlilegt
horf og það þarf enginn að velkjast
í vafa um að þeir fáu sem aka
áfram jeppa hafa efni á því.
EN ÓKOSTIRNIR eru hins vegar
líka farnir að láta sé kræla. Bensín
er til dæmis að ríða hinu opinbera
á slig; það styttist í að lögreglan
þurfi að meta hvert útkall eftir því
hvort það svari bensínkostnaði og
áður en langt um líður verða
sjúkra- og slökkviliðsbílar skikk-
aðir til sparaksturs í neyðarútköll-
um. Það á eftir að verða bylting í
samgöngumálum. Sjálfur hóf ég
mína eigin byltingu í síðustu viku,
þar sem ég stóð fyrir framan
bensín dælu og gnísti tönnum. Það
var ekki aðeins tankurinn sem var
fullur heldur líka mælirinn – drop-
inn hafði holað steininn. Ég steytti
hnefa í átt að fána olíufélagsins og
strengdi þess heit að kaupa ekki
aftur bensín. Í þessum mánuði.
MÍN litla ráðdeild má sín hins
vegar lítils í hinu stóra samhengi,
allir þurfa að leggja sitt af mörk-
um. Ég legg til að ríkisstjórnin,
sem á víst í ímyndarkröggum í
umhverfismálum, gangi á undan
með góðu fordæmi. Hvað um að
skipta ráðherrajeppunum út yfir
sumarmánuðina fyrir ráðherra-
vespur?
Dýr dropi
BAKÞANKAR
Bergsteins
Sigurðssonar
...ég sá það á visir.is
Segir grafhýsi Kleópötru fundið
Myndir berast frá Mars
Tilfærsla yfir á hægri akrein sviðsett
Býst við minni verðbólgu
MEST LESIÐ: