Fréttablaðið - 03.07.2008, Blaðsíða 12
12 3. júlí 2008 FIMMTUDAGUR
Urð og grjót - Upp í mót ...
HOLTAGÖRÐUM GLÆSIBÆ KRINGLUNNI SMÁRALIND SÍMI 545 1500
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/U
T
I
42
81
3
06
/0
8
Meindl Colarado lady
Nubuk leður.
Gore Tex vatnsvörn.
Multigriff sóli.
Þyngd: 750 g (stærð 42).
Einnig til í herraútfærslu.
Tilboð21.990kr.
Verð áður 25.990 kr.
Meindl Borneo
Nubuk leður.
Gore Tex vatnsvörn.
Multigriff sóli.
Þyngd: 750 g (stærð 42).
Einnig til í herraútfærslu.
Tilboð24.990kr.
Verð áður 28.990 kr.
Meindl Island Pro GTX
„Einn sá allra besti“.
Heil tunga og vandaður frágangur.
Ótrúlega léttir! Þyngd: 830 g (stærð 42).
GTX vatnsvörn. MFS fóður lagar sig að fætinum.
Vibram veltisóli með fjöðrun.
Sérlega góður stuðningur við ökklann.
Einnig fáanlegir í dömustærðum, bláir.
Tilboð28.990kr.
Verð áður 33.990 kr.
RV
U
n
iq
u
e
0
6
0
8
0
3
Rekstrarvörur
- vinna með þér
Réttarhálsi 2 • 110 Reykjavík
Sími: 520 6666 • Fax: 520 6665
sala@rv.is • www.rv.is
Hentugt við grillið
- einnota diskar, glös, bollar og hnífapör
Nánari upplýsingar veita sölumenn og ráðgjafar RV
LÖGREGLUMÁL Neyðarsending
barst frá litlum kanadískum
fiskibáti sem rak vélarvana úti
fyrir Reykjanesi snemma í
gærmorgun.
Flugvél Landhelgisgæslunnar
hélt til leitar vegna sendingarinn-
ar skömmu eftir klukkan tíu og
náði sambandi við bátinn skömmu
fyrir hádegi. Tveir menn
reyndust vera um borð í bátnum
og sakaði þá ekki.
Flugvélar Landhelgisgæslunn-
ar og danska flughersins héldu
uppi fjarskiptasambandi við
bátinn í gær þar til næsta skip
kom á vettvang síðdegis. - ht
Neyðarsending frá litlum báti:
Rak vélarvana
úti fyrir landi
GLEÐI Í VENESÚELA Andlitsmáluð kona
tekur þátt í hátíðinni San Pedro Par-
randa í bænum Guatire í Venezuela.
Hátíðin hefur verið haldin síðan á 19.
öld. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Fíkniefni fundust við húsleit
Um tvö hundruð grömm af fíkniefn-
um, aðallega amfetamín, fundust við
húsleit í Grafarvogi í fyrrakvöld. Karl-
maður á fimmtugsaldri var handtek-
inn í tengslum við málið. Hann hefur
áður komið við sögu lögreglu.
Stuttur vegarkafli opnaður
Stuttur vegarkafli á Reykjanesbraut,
frá Vogum að Grindavíkurafleggj-
ara, var tekinn í notkun í gær og
nýr afleggjari til Grindavíkur einnig
opnaður að sögn lögreglu. Hvetur
lögregla ökumenn til að aka varlega
meðan þeir átta sig á aðstæðum.
LÖGREGLUFRÉTTIR
LÖGREGLUMÁL Þyrla og björgunar-
sveitir voru kallaðar út vegna
tíu ára drengs sem varð viðskila
við foreldra sína við Setur inni
undir Hofsjökli eftir hádegi í
gærdag.
Foreldrarnir höfðu leitað að
drengnum í eina og hálfa
klukkustund þegar lögreglu var
gert viðvart undir klukkan
hálffjögur í gærdag. Þar sem
veður var ekki gott, rigning og
nokkuð hvasst, var ákveðið að
kalla strax til björgunarsveitir
og þyrlu að sögn lögreglu.
Drengurinn fannst heill á húfi
áður en til leitar kom, innan við
Kisubotna. - ht
Björgunarsveitir kallaðar út:
Tíu ára týndist
við Hofsjökul
ÖRYGGISMÁL Bætt eignatjón vegna
bruna á síðasta ári nam alls 1.579
milljónum, sem er mikil aukning
frá árinu 2006 og nokkuð yfir meðal-
tali síðustu 27 ára. Þetta kemur
fram í nýrri ársskýrslu Brunamála-
stofnunar fyrir árið 2007.
Eignatjón árið 2006 nam aðeins
1.018 milljónum, sem er með
minnsta móti undanfarin ár. Upp-
reiknað meðaltal síðustu 27 ára er
1.232 milljónir og var tjónið í fyrra
því talsvert yfir því. Sé það hins
vegar skoðað sem hlutfall af heildar-
brunabótamati er það undir meðal-
tali, að því er segir í skýrslunni.
Enginn lést í bruna hérlendis á
síðasta ári, í fyrsta sinn síðan árið
2003. Að jafnaði hefur 1,76 látist í
eldsvoða hérlendis árlega frá 1979.
Þá segir í skýrslunni frá átaki
stofnunarinnar til að efla eldvarnir
og viðbrögð við mengunarslysum
um allt land. Stofnunin fékk leyfi
frá umhverfisráðuneytinu og
Alþingi fyrir kaupum á búnaði fyrir
hundrað milljónir króna og var bún-
aðurinn afhentur í fyrra. Um er að
ræða stærsta einstaka átak í eld-
vörnum sem ráðist hefur verið í um
langt árabil, að því er fram kemur í
skýrslunni. - sh
Enginn lést í eldsvoða á Íslandi á síðasta ári í fyrsta sinn í fjögur ár:
Brunatjón eykst á milli ára
STÓRBRUNI Bruninn í miðbænum í apríl
var langstærsta verkefni slökkviliðs í fyrra.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
VÍSINDI Fornleifafræðingar hafa
grafið upp fjölda verkfæra frá
tugþúsund ára gömlu samfélagi
Neanderdalsmanna við Beedings
á Suðaustur-Englandi.
Uppgröfturinn hefur staðið í
nokkrar vikur, að því er fram
kemur á fréttavef BBC. Staðurinn
fannst fyrst í byrjun síðustu aldar
fyrir tilviljun þegar verið var að
grafa húsgrunn. Þá fundu menn
rúmlega tvö þúsund verkfæri en
töldu að þau væru eftirlíkingar
svo meirihluta þeirra var hent.
Nýlegar rannsóknir leiddu í ljós
að verkfærin væru ekta.
Verkfærin eru líklega um þrjá-
tíu til fjörtíu þúsund ára gömul.
Líklega voru þau notuð til að veiða
hesta, loðfíla og nashyrninga.
Neanderdalsmenn voru náskyld-
ir manninum, homo sapiens, og
bjuggu í Evrópu og hluta Asíu.
Þeir dóu út fyrir um þrjátíu þús-
und árum.
Vísindamennirnir sem unnu að
uppgreftinum vonast til þess að
fundurinn veiti upplýsingar um
tækni neanderdalsmanna og bæti
samanburð við þróun okkar eigin
tegundar, homo sapiens.
- gh
Verkfæri Neanderdalsmanna grafin upp á Englandi:
Töldu tólin eftirlíkingar
NEANDERDALSMENN Ef til vill hafa neanderdalsmenn litið svona út, en þeir dóu út
fyrir þrjátíu þúsund árum. FRÉTTABLAÐIÐ/AP