Fréttablaðið - 12.07.2008, Blaðsíða 8
8 12. júlí 2008 LAUGARDAGUR
1. Hvað heitir sonur Pauls
Ramses?
2. Hvernig fór leikur Vals og
KR í Frostaskjóli í gærkvöld?
3. Hvað heitir fyrrverandi
forstjóri Orkuveitunnar sem á í
deilum við fyrirtækið?
SVÖRIN ERU Á SÍÐU 38
AUSTURRÍKI, AP Eiginkona og börn
austurríska barnaníðingsins
Josefs Fritzl hafa smám saman
verið að hætta sér æ oftar út fyrir
veggi sjúkrahússins, þar sem þau
hafa dvalist og fengið meðferð
síðustu þrjá mánuði.
Elizabeth dóttir hans, sem hann
hélt fanginni í kjallaraholu á heim-
ili þeirra í nærri aldarfjórðung,
var í gær í fyrsta sinn yfirheyrð af
lögreglu. Yfirheyrslan var tekin
upp á myndband sem verður sýnt
við réttarhöldin svo hún þurfi ekki
að mæta þar föður sínum og kval-
ara. Yfirheyrslunum verður hald-
ið áfram í næstu viku.
Fimmtán ára dóttir Josefs, ein
sjö barna sem hann eignaðist með
dóttur sinni í kjallaraholunni, tók
um síðustu helgi að eigin ósk þátt í
sumarbúðum og hitti þar í fyrsta
sinn skólafélaga sína. Aðrir í búð-
unum fengu þó ekki að vita hver
hún var.
Aðrir úr fjölskyldunni hafa
einnig farið út í dagsferðir, meðal
annars í sund. Þessar ferðir hafa
verið farnar með leynd.
Læknar segja heilsufar fjöl-
skyldunnar nokkuð gott miðað við
þær raunir sem Elizabeth og börn
hennar máttu líða í kjallarahol-
unni. Nítján ára dóttir þeirra, sem
lengi var í dái, hefur einnig smám
saman verið að ná sér á strik.
Réttarhöld yfir Fritzl hefjast
væntanlega fyrir árslok. - gb
Yfirheyrslur hafnar yfir Josef Fritzl og Elizabeth og börnin með leynd í dagsferðir:
Fritzl-börnin í sund og sumarbúðir
JOSEF FRITZL
Hefur setið
þrjá mánuði
í fangelsi fyrir
að halda dótt-
ur sinni nærri
aldarfjórðung
í prísund á
heimili sínu
og eignast
með henni sjö
börn.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
BANDARÍKIN, AP Bandarískur
flotaforingi sem sakaður er um
morð á Íraka var yfirheyrður á
þriðjudag. Flotaforinginnn Ryan
Weemer skaut óvopnaðan íraskan
fanga.
Við yfirheyrslunar var spiluð
upptaka af viðtali við Weemer þar
sem hann sagðist hafa „gengið frá
einum“.
Ákveðið verður eftir yfir-
heyrslunar hvort réttað skuli yfir
Weemer fyrir herdómstóli. Verði
Weemer fundinn sekur bíður hans
lífstíðarfangelsi og brottvikning
úr starfi. Síðar á árinu verður
réttað yfir tveimur öðrum
hermönnum sem sakaðir eru um
morð á öðrum föngum úr sama
hópi. - gh
Réttað yfir Bandaríkjamanni:
Hermaður sak-
aður um morð
HERMENN OG FANGI Bandarísku
hermennirnir voru undir mikilli pressu
þegar þeir skutu fangana og höfðu
nýlega orðið fyrir skothríð. NORDICPHOTOS/AFP
HEILBRIGÐISMÁL Guðlaugur Þór
Þórðarson heilbrigðisráðherra
segir að rekstrarvandi sumra
heilbrigðisstofnana sé ekki nýtt
vandamál. „Við erum að skoða
hverja stofnun fyrir sig. Við
bregðumst við þar sem þarf,“
segir hann.
Fréttablaðið greindi frá því að
Heilbrigðisstofnun Austurlands
hefði verið rekin með 200
milljóna króna halla fyrstu fimm
mánuði ársins. Guðlaugur Þór er
tregur til að ræða sérstaklega um
hallann hjá Heilbrigðisstofnun
Austurlands og segir að farið
verði yfir hverja stofnun fyrir sig
og gripið til aðgerða. - ghs
Heilbrigðisráðherra:
Sérhver stofnun
verður skoðuð
MUNUM BREGÐAST VIÐ „Við bregðumst
við þar sem þarf,“ segir Guðlaugur Þór
Þórðarson heilbrigðisráðherra.
Sæði feitra lélegra
Karlmenn sem eru of þungir eru
sextíu prósentum líklegri til að hafa
lélegt sæði en karlar í kjörþyngd,
samkvæmt niðurstöðum skoskrar
rannsóknar. Mögulegar skýringar eru
hormónaraskanir vegna offitu og
hærra líkamshitastig of feitra.
VÍSINDI
VERSLUN Áfengissala dróst saman
um næstum tíu prósent í júní,
miðað við sama mánuði í fyrra.
Þetta kemur fram í tölum frá
Rannsóknarsetri verslunarinnar
við Háskólann á Bifröst. Hér er
miðað við fast verðlag. Þá var
salan átta prósentum minni í júní
en í maí.
Greiningardeild Kaupþings
segir að þetta komi á óvart, því
almennt hafi áfengissala aukist á
sumrin. Veður hafi verið með
besta móti í júní, auk þess sem
landinn fari í sumarfrí á þessum
tíma. Alla jafna hafi þetta orðið
til þess að auka sölu á áfengi.
- ikh
Minna selt af áfengi í sumar:
Sala minnkar
um tíu prósent
PERSÓNUVERND Netveitan YouTube
verður að láta af hendi gögn um þá
sem heimsótt hafa vefsíðu þeirra.
Þetta kemur fram á fréttavef
breska útvarpsins, BBC. Dómur
var kveðinn upp í máli fjölmiðlar-
isans Viacom gegn YouTube vegna
meintra höfundarréttarbrota. Í
eigu Viacom eru til að mynda CBS-
sjónvarpsstöðin, MTV, Paramount
Pictures, DreamWorks og Nickel-
odeon.
Dómurinn þýðir að Viacom
getur kannað netvenjur tuga millj-
óna YouTube-notenda. Í hnotskurn:
fjölmiðlarisinn getur fengið upp-
lýsingar um alla sem hafa heim-
sótt síðuna, hvað var skoðað, hve
oft og hvenær. Einnig er hægt að
sjá skráð nafn notanda og einka-
númer hverrar tölvu, IP-töluna,
sem um ræðir. Dómurinn tekur
einnig til upplýsinga um þau
myndbönd sem hafa verið fjar-
lægð af síðunni.
Þórður Sveinsson, lögfræðingur
hjá Persónuvernd, segir að kæmi
slíkt mál upp á Íslandi þyrftu gríð-
arlegir hagsmunir að vera í húfi
til þess að einkaaðila yrðu veittar
svo persónulegur upplýsingar.
„Ég tel það ólíklegt að fólk sem
heimsækir síður á borð við þessa
yrði lögsótt, ábyrgðin myndi held-
ur falla á dreifingaraðila.“
YouTube er í eigu Google og er
langstærsta myndbandasafnið á
vefnum. Viacom fær aðgang að
magni upplýsinga sem nema stærð
154 heimilistölva með 80 gígabæta
hörðum diski. Mál Viacom gegn
YouTube snýst um að sanna að
YouTube og Google viti af broti á
höfundarrétti og geti gert meira
til þess að koma í veg fyrir það. Ef
Viacom vinnur málið myndi það
eyða þeirri friðhelgi sem veitur á
borð við YouTube njóta. Friðhelg-
in hefur fengist vegna þess að
efnið sem er sýnt á síðunni kemur
frá notendum, ekki YouTube.
Dómarinn hafnaði beiðni Via-
com um að komast yfir leitarkóða
YouTube með þeim rökum að hann
væri viðskiptaleyndarmál og að
engar sannanir væru fyrir því að
YouTube stjórnaði leitarvél á
myndskeiðum bundnum höfundar-
rétti í óhag.
Rök Google um að vernda þyrfti
persónuupplýsingar voru höfð að
engu en Google safnar upplýsing-
um um notendur, til dæmis með
því að afrita tölvupóst, í þeim til-
gangi að stunda hnitmiðaða aug-
lýsingamennsku. Google hefur
beðið Viacom um að fá að eyða
persónuupplýsingunum í gagna-
banka YouTube. helgath@frettabladid.is
Viacom fær upplýs-
ingar frá YouTube
Myndbandaveitan YouTube hefur verið dæmd til að láta fjölmiðlarisann
Viacom fá persónuleg gögn um þá sem heimsótt hafa vefsíðu þeirra. Eigendur
YouTube biðla til Viacom um að fá að eyða nöfnum út úr gagnagrunninum.
VINSÆL NETSÍÐA YouTube, serm er í eigu Google, er langstrærta myndbandasafnið
á vefnum.
KENÍA, AP Lögreglan í Kenía varð
völd að nærri helmingi þeirra
dauðsfalla sem urðu í átökum
eftir forsetakosningarnar í vetur.
Þessu héldu þarlend mannrétt-
indasamtök fram á fundi rann-
sóknarnefndar, sem á að fara
ofan í saumana á því sem gerð-
ist.
Samtökin, sem nefnast IMLU,
segja 80 lík hafa verið krufin af
handahófi í líkhúsum víðs vegar
um landið. Af þeim höfðu 43 pró-
sent látist af völdum skotsára, en
hin af völdum bruna, sveðjusára
eða barsmíða.
Nánast allir lögregluþjónar í
landinu báru skotvopn, en nánast
enginn þeirra vígamanna sem
fóru um landið höfðu önnur vopn
en sveðjur og barefli.
Átökin í Kenía í vetur eru talin
hafa kostað meira en þúsund
manns lífið, en 600 þúsund manns
að auki voru hrakin að heiman og
meira en 40 þúsund hús brennd.
Mwai Kibaki forseti, sem lýsti
yfir sigri í forsetakosningunum í
lok desember, og helsti keppinaut-
ur hans, Raila Odinga, sem sakaði
Kibaki um kosningasvindl, náðu á
endanum samkomulagi um að
stjórna landinu saman, þannig að
Odinga yrði forsætisráðherra en
Kibaki áfram forseti.
Í samkomulaginu fólst einnig að
stofnuð yrði rannsóknarnefnd,
sem kanna skyldi orsakir ofbeldis-
ins og hlutdeild lögreglu og hers í
því. - gb
Rannsókn á ofbeldinu í Kenía í vetur sýnir að lögreglan varð mörgum að bana:
Helmingur dó af skotsárum
DRENGIR Í FLÓTTAMANNABÚÐUM Í flóttamannabúðum á íþróttavelli í Nakuro voru
upphaflega 1.300 manns en 350 manns eru þar enn og þora ekki heim.
NORDICPHOTOS/AFP
TÆKNI Nýr vírus herjar á notend-
ur MSN-þjónustunnar. Hann lýsir
sér á þann hátt að skyndilega
berast fólki skilaboð frá vini sem
jafnharðan skráir sig út úr
kerfinu. Þau eru get-that-stuff.
info, imagefrosty.info, hostapic.
info. og cooooolio.info Oftar en
ekki fylgir nafn á heimasíðu sem
ber hluta úr tölvupóstfangi
vinarins.
Til þess að koma í veg fyrir að
vera „rænt“ af vírusnum þarf að
skipta um lykilorð á heimasíðu
MSN-þjónustunnar. - hþj
Vírus herjar á MSN-notendur:
Breyta verður
lykilorði strax
BANDARÍKIN, AP George Bush
Bandaríkjaforseti skrifaði á
fimmtudag undir lög sem veita
ríkisstjórninni
auknar
hlerunarheim-
ildir auk þess
að veita
símafyrirtækj-
um sem hafa
aðstoðað
ríkisstjórnina
við hleranir
friðhelgi frá
lögsóknum vegna þess.
Bush sagði að lögin myndu
„gegna mikilvægu hlutverki í því
að hindra aðra árás á [Bandarík-
in]“. Demókratar og repúblikanar
studdu lagafrumvarpið í þinginu,
þar á meðal Barack Obama,
forsetaframbjóðandi Demókrata,
þó hann hefði áður lýst sig
andvígan því að veita símafyrir-
tækjum slíka friðhelgi. - gh
Bush undirritar hlerunarlög:
Símafyrirtæki
fá friðhelgi
GEORGE BUSH
INDLAND Þúsundir mótmælenda
lentu í átökum við lögreglu í
Srinagar í Kasmírhéraði á
Indlandi í gær.
Átökin brutust út í kjölfar
ásakana íbúa borgarinnar á
hendur ríkistjórninni um að
lögregla hefði kveikt í múslímsku
hofi. Þegar fregnirnar bárust út
streymdi fólk út á götu og tók að
mótmæla ósjálfstæði Kasmírhér-
aðs og grýta lögreglustöð.
Talsmaður yfirvalda segir
ásakanirnar ekki á rökum reistar
og bendir á að slökkvilið hefði
verið á staðnum til þess að
slökkva eldinn en ekki kveikja
hann. Hofið er ekki alvarlega
skemmt. - hþj
Átök í Kasmír á Indlandi:
Lögregla sökuð
um íkveikju
Veifa kústi að bangsa
Dýraverndunarsamtök hvetja fólk
til að skjóta ekki ísbirni sem nálgast
það, heldur hræða þá burt með
kústi. Þetta kemur fram í vefmiðlin-
um Sermitsiaq í Nuuk. Með því að
veifa kústi virkar viðkomandi stærri í
augum bjarnarins og hann þorir ekki
að koma nær.
GRÆNLAND
VEISTU SVARIÐ?