Fréttablaðið - 12.07.2008, Side 12

Fréttablaðið - 12.07.2008, Side 12
12 12. júlí 2008 LAUGARDAGUR greinar@frettabladid.is FRÁ DEGI TIL DAGS ÚTGÁFUFÉLAG: 365 RITSTJÓRAR: Jón Kaldal og Þorsteinn Pálsson AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir, Kristján Hjálmarsson, Trausti Hafliðason og Höskuldur Daði Magnússon (dægurmál). FULLTRÚI RITSTJÓRA: Páll Baldvin Baldvinsson. VIÐSKIPTARITSTJÓRAR: Björn Ingi Hrafnsson og Óli Kr. Ármannsson. Fréttablaðið kemur út í 103.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu, Akureyri og þéttbýlissvæðum á suðvesturhorninu. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. issn 1670-3871 UMRÆÐAN Bjarni Már Gylfason Niðursveifla í íslensku efnahagslífi er hafin af fullum þunga og líkur til að vöxt- ur á þessu ári og því næsta verði lítill, jafnvel enginn. Atvinnuleysi mun aukast og kaup- máttur mun dragast saman vegna mikillar verðbólgu. Sama niðursveifla virðist hrjá flest ríki í hinum vestræna heimi og raunar telja margir að upphafið að niðursveiflunni á Íslandi eigi m.a. rætur að rekja til alþjóðlegr- ar lausafjárkreppu sem nú ríður yfir. Í gegnum tíðina hafa veigamestu rök þeirra sem helst vilja halda í íslensku krónuna verið á þá leið að hagsveiflur á Íslandi séu ekki í takti við það sem geng- ur og gerist í löndunum í kringum okkur. Þegar svo háttar er sambúð ríkja í myntbandalagi erfið því sama vaxtastig hentar ekki öllum löndunum. Hætt er við atvinnuleysi þegar illa gengur í efnahagsbúskapnum en mikilli verðbólgu þegar betur árar. Í sögulegu samhengi hefur hagsveifla á Íslandi verið úr takti við hina evrópsku. Ástæðan er aðallega sú að rætur hagsveiflna á Íslandi mátti einkum rekja til sjávarútvegs, annaðhvort vegna aflabrests eða verðlags á sjávarafurðum. Hagkerfið hefur gerbreyst á rúmum áratug og enginn fótur er lengur fyrir þessum rökum. Áður fyrr byggðist útflutn- ingur fyrst og fremst á sjávarútvegi en nú hvílir útflutningur einnig á stóriðju, marg- víslegri þjónustu á sviði samgangna, fjár- mála og hátækni. Eftir því sem fjölbreyttari útflutningur knýr hagkerfið áfram þeim mun háðara verður það hagkerfum viðskiptalanda okkar. Fyrir vikið eru líkur á verulegum frá- vikum í efnahagsbúskap okkar og annarra Evrópulanda minni. Aukin samhverfni veld- ur því að vaxandi líkur eru til þess að hjarta íslenska efnahagslífsins slái í takt við hið evrópska. Á það má einnig benda að upptaka evru og innganga í Evrópusambandið muni eitt og sér verða til þess að íslenska hagsveiflan líkist æ meir þeirri evrópsku. Sameiginlegur gjaldmiðill ætti að auka flæði vöru og þjónustu og auðvelda erlendar fjárfestingar milli svæða. Þær þrengingar sem nú er við að etja í efnahagslíf- inu eru skýrasta dæmið um hvernig efnahagslíf okkar hefur breyst. Aðstæður hér mótast að miklu leyti af því hvernig vindar blása í heimsbúskapnum. Sú stað- reynd er um leið mikilvæg forsenda þess að heppileg- asta fyrirkomulag gengismála á Íslandi er að ganga í myntbandalag Evrópu og taka upp evru í stað krónu. Niðursveiflan sem nú gengur yfir skýrir því kostina. Höfundur er hagfræðingur Samtaka iðnaðarins. Hringdu í síma ef blaðið berst ekki BJARNI MÁR GYLFASON Niðursveiflan skýrir kostina Ný Svörtuloft Tíu metra langur útsýnisgluggi var afhjúpaður í Gestastofu við Lækjargötu á fimmtudag, en í gegnum hann verð- ur hægt að fylgjast með tónlistarhús- inu rísa við Austurbakka. Margt góðra gesta var við athöfnina, til dæmis Björgólfur Guðmundsson, Björn Bjarnason og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, sem hélt stutta tölu. Gestastofa er á efstu hæð í sama húsi og strætisvagna- stöðin við Lækjartorg, sem nýlega var málað svart, en steinsnar frá stendur Seðlabanki Íslands. Sagðist Þorgerður Katrín meðal annars vona að hugsunin yrði frjórri í þessum Svörtuloftum en í þeim hinum megin við Kalkofnsveginn og uppskar mikil hlátrasköll. Einfalt mál Reykvíkingar fengu inn um bréfalúguna í gær bækling frá borgaryfirvöldum þar sem leitað er eftir ábendingum frá íbúum um smærri nýframkvæmdir og almennar betrumbætur á borg- inni. Með fylgir lýsing á hvernig hugmynd verður að veruleika í fimm einföldum skrefum: 1. Hugmynd að framkvæmd kviknar. 2. Hugmyndinni er komið á framfæri, til dæmis á ábend- ingarvef 1,2 og Reykjavík á heima- síðu Reykjavíkur- borgar; við stýrihóp í hverfi á málþingi, barnaþingi eða í öðru samstarfi við stofnanir og félagasamtök í hverfi; á samráðsfundum borgarstjóra í hverfum borgarinnar að vori; með símhringingu í símaver Reykjavíkurborgar. 3. Hugmyndin er rædd á samráðsfundi íbúa og borgarstjóra. 4. Hugmyndin ratar inn á óskalista hverfis ásamt níu öðrum hugmynd- um um nýframkvæmdir í hverfinu. Sérfræðingar innan borgarkerfisins kanna hvort og hvernig mögulegt er að framkvæma hug- myndina. 5. Hugmyndin er fram- kvæmd. Einfaldara getur það ekki verið. bergsteinn@frettabladid.is Ó bilgjarnir aðilar stíga fram hver á fætur öðrum og vilja meina að Samfylkingin í ríkisstjórn sé fylgjandi stóriðju og nýtingu orkunnar í vatnsföllunum og iðrum jarðar, en taki ekki mið af Samfylkingunni í stjórnarandstöðunni sem vildi hvorugt og setti saman um þá stefnu sína kver nokkurt sem síðar hefur orðið víðfrægt og ber heitið Fagra Ísland. Auðvitað sjá allir hversu fráleitur þessi málflutningur er. Þess vegna er bæði ósanngjarnt og óréttmætt af Ungum jafnaðarmönn- um að átelja ráðherra Samfylkingarinnar fyrir að stuðla að tveim- ur nýjum álverum á Íslandi og ganga þar með gegn stefnu flokks- ins í umhverfismálum. Aukinheldur er ekki við hæfi að vísa í þann kafla úr Fagra Íslandi, þar sem orðrétt segir að slá skuli „ákvörð- unum um frekari stóriðjuframkvæmdir á frest þangað til fyrir liggur nauðsynleg heildarsýn yfir verðmæt náttúrusvæði Íslands og verndun þeirra hefur verið tryggð“. Þetta hljóta allir að sjá. Forsíðufrétt Fréttablaðsins í fyrradag um að minnihluti þing- flokks Samfylkingarinnar styðji Fagra Ísland hlýtur að vera sama marki brennd. Auðvitað eiga fjölmiðlar ekkert með það að standa fyrir liðskönnun af slíku tagi. Hvað þá að flytja fréttir af þingflokks- fundum stjórnarflokka, sem boðaðir eru vegna óánægju ráðherra með orð og gjörðir samráðherra sinna. Enginn skilur þetta betur en formaður þingflokksins, sem telur alveg fráleitt að ákvarðanir um álver í Helguvík og á Bakka séu verk þessarar ríkisstjórnar, heldur byggist þær á afstöðu fyrri ríkisstjórnar. En formaður þingflokksins hittir fleiri nagla á höfuðið í frétt sem birt er á vefsíðu Samfylkingarinnar, sem viðbrögð við þeim meinlega misskilningi sem virðist orðinn útbreiddur að Samfylk- ingin styðji ekki eigin stefnu. Hann bendir á að hvergi sé minnst á að stöðva byggingu álvera í stefnu ríkisstjórnarinnar. Í samsteypu- stjórnum liggi líka fyrir að stefnur hvors flokks séu ekki teknar ómengaðar inn í stjórnarsáttmála, heldur reyni menn að finna sam- eiginlega niðurstöðu. „Eftir þeim sáttmála er unnið“, bætir þing- flokksformaðurinn svo við. Þetta er auðvitað kjarni málsins og alveg laukrétt hjá þingflokks- formanninum, sem óumdeilt er einhver mestur þungavigtarmanna í flokknum. Það getur vel verið að samin hafi verið stefna og hún skýrð Fagra Ísland. Menn geta svo rýnt í hana og skilgreint að vild. En við komuna í ríkisstjórn varð til ný stefna og sáttmáli nýrrar stjórnar. Og þar er hvergi minnst á Fagra Ísland. Eða stóriðjustopp. Hvað þá bann við frekari virkjunum. Þess vegna er mikilvægt að fjölmiðlar og aðrir misvitrir álits- gjafar átti sig sem fyrst á þessum grundvallarstaðreyndum og veiti ráðherrum Samfylkingarinnar nauðsynlegan vinnufrið til að halda áfram sínum störfum, en séu ekki að kvabba í þeim í tíma og ótíma um einhver stefnumál sem sett voru saman í fornöld og skipta engu máli núna. Slíkt er auðvitað ómálefnalegt og ekki til þess að skapa hér nauðsynlega festu í stjórnmálunum. Sömuleiðis er mikilvægt að nöldurseggir á borð við umhverfisverndarfólk og Unga jafnað- armenn hætti öllum frekari undirróðri í flokksstarfinu. Misskilningnum hefur nú verið eytt. Fagra Ísland er enn í fullu gildi og Samfylkingin stendur einhuga að því. Samfylkingin í ríkis- stjórn hefur þó öðrum hnöppum að hneppa en glugga í rykug blöð úr kosningabaráttunni og er auðvitað bundin sínum stjórnarsáttmála. Og við það situr. Vitaskuld er fullur einhugur innan Samfylkingar- innar um umhverfisvernd og orkunýtingu. Fagra Ísland BJÖRN INGI HRAFNSSON SKRIFAR Það var óstoltur Íslendingur sem sat úti í sólinni, horfði á norðlensk fjöll og hlustaði á kvöldfréttir Stöðvar 2 í liðinni viku. „Þeir komu bara, handtóku hann og fluttu hann burt. Nú veit ég ekkert hvenær eða hvort við sjáum hann aftur,“ sagði grátklökk kona á ensku með fjarlægum hreim. Í bakgrunni hjalaði nýfætt barn. Hér þurfti að leggja bæði eyrun við til að trúa því að fréttin væri íslensk. Því þetta viðtal var ekki tekið í sprengjurústum í Bagdad eða sveitaþorpi í Simbab- ve heldur í miðri höfuðborg Íslands sumarið 2008. Hér var komin ein af niðurlægingarstund- um íslenskrar samtímasögu sem tyllti sér þegar hátt á Vondustunda- listann, á milli allra krónufallanna og þess þegar Davíð dásamaði Íraksstríðið í afmælisboði hjá Bush. Lengi höfðum við skammast okkar fyrir dáðleysi ráðamanna í hælismálum þar sem einföld pólitík gildir í flóknum málum: Allir sem hægt er að senda burt eru sendir burt en hinir geymdir á hóteli í Keflavík. Jafnvel í fjögur ár ef þarf. Og „Útlendingastofnun“ látin sjá um framkvæmd. (Ég er ekki að biðja um að nafni stofnun- arinnar verði breytt í eitthvert PC- pirrandi skjallyrði eins og „Gestastofa“, en hið forneskjulega heiti segir þó margt um viðhorf okkar í þessum málum.) Auðvitað þýðir ekki að bjóða upp á barnaskap í málefnum hælisleitenda og ólöglegra nýlanda. Einhverjar reglur verður að halda svo Reykjanesskaginn fyllist ekki af flóttamannahótelum en það er í þessu sem öðru; litla ríka þjóðartíkin í norðri er fremur þiggjandi en gefandi. Sjálf vill hún ferðast um víðan hnött en heima bíður húsið læst. Vindbarin þjóð er nísk á skjólið. Um leið og okkar aumasti lyfjasmyglari stígur stóru tá í erlent fangelsi er okkur að mæta. En sígauni sem selur gullhring úr plasti á húströppum á Selfossi er óðar snúinn niður og sendur úr landi. „Talsvert magn peninga fannst í fórum fólksins,“ var kveðjan sem fréttastofa Sjónvarps sendi hópnum sem tókst að plata gullkort úr plasti úr veskjum Sunnlendinga sumarið 2007. Kenýamaðurinn Paul Ramses virðist merkilegur um margt. Ungum sárnar honum ástandið í heimalandi sínu og ákveður að leggja sitt af mörkum: Vinnur uppbyggingarstarf, stofnar skóla, fræðir stúlkur um heimilisofbeldi … Frænka hans býr á Íslandi og þangað fer hann til ársdvalar. Hér kynnist hann fólki sem sinnir hjálparstarfi á vegum SÞ og ákveður að leggja því lið; gerist ómetanlegur tengill skrifstofu- starfsins á Íslandi og vettvangs- verka í Kenýa. Þá hellir hann sér út í stjórnmál, fer í framboð fyrir stjórnarandstöðuna, allt til að betra ástandið. Stjórnin svindlar í kosningum og í kjölfarið eru andstæðingar hennar hundeltir um allar sveitir. Framboðsfélagar Ramsesar finnast ýmist hvergi eða látnir. Íslendingar sem enn stunda hjálparstarf í Kenýa staðfesta að útsendarar ofbeldis- stjórnar hafi komið í búðir þeirra í leit að Íslandsvininum Paul. Stuttu síðar tekst honum að flýja. Til Íslands. Ólétt eiginkona hans fylgir með. Nokkrum mánuðum síðar fæðir hún barn þeirra á Íslandi. Hvorugt þeirra er löglegt í landinu, og ekki barnið heldur. Það kom víst pappírslaust í heiminn. Hvað gera sveitabændur þá? Þeir taka reglu fram yfir rök og kýrin sú er skýr: Þeir sem hingað flýja eru sendir til baka. Því er Paul handtekinn og settur niður í næstu vél. Burt. Maðurinn sem hafði dvalið hér á landi heilan vetur og tekið þátt í íslensku hjálparstarfi fann hér enga hjálp þegar á reyndi. Ísland er ekki vinur allra Íslandsvina. Erum við gott fólk? Nú má vera að ofansögð „ævisaga“ sé hreinn uppspuni eða stórlega ýkt af fjölmiðlum og bloggurum. Þó eru meiri líkur en minni á því að hún sé sönn. Er það ekki nóg? Áhættan sem fylgir því að taka hana trúanlega er svo miklu minni en mannslífin sem hugsanlega eru í hættu. Brottvísun Útlendingastofnunar á þeim óæskilega útlendingi Paul Ramses hefur nú verið kærð til dómsmálaráðherra. Björn Bjarnason hefur fengið málið í fangið. Hann á kost á því að sameina sundraða fjölskyldu og hugsanlega bjarga lífi flóttamanns sem nú er horfinn inn í það völundarhús sem ítalskt réttar- kerfi er. (Fyrr mun blökkumaður klæðast ítölsku landsliðspeysunni en við öðlumst trú á ítalskt réttarfar.) Ríkisstjórnin öll á kost á því að bjarga andlitinu. Sínu jafnt sem okkar. Hún á að setja málið í forgang. Af öllum þeim vandamálum sem liggja á hennar borði eru víst ekki mörg sem varða líf og dauða. Við skorum á ykkur að bjarga Páli Ramses. Og heiðri Íslands. Páll í fangi Björns HALLGRÍMUR HELGASON Í DAG | Paul Ramses

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.