Fréttablaðið - 12.07.2008, Blaðsíða 62
38 12. júlí 2008 LAUGARDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
PERSÓNAN
Saga Sigurðardóttir
Aldur: 21 árs.
Starf: Framtíðar-
ljósmyndari.
Fjölskylda:
Kærastinn
heitir
Erling
Egilsson.
Foreldrar:
Sigurður Árni
Þórðarson, prestur í Neskirkju, og
Hanna María Pétursdóttir, guðfræð-
ingur og kennari.
Búseta: 101 miðbær.
Stjörnumerki: Vog.
Saga er upprennandi ljósmyndari og er á
leið í nám í London College of Fashion í
haust. Hún hefur vakið mikla athygli fyrir
ljósmyndir sínar hér heima.
LÁRÉTT
2. að lokum, 6. tveir eins, 8. þyrping,
9. dýrahljóð, 11. samanburðartenging,
12. ull, 14. virki, 16. verslun, 17. atvik-
ast, 18. drulla, 20. frá, 21. faðmlag.
LÓÐRÉTT
1. ákaflega, 3. kúgun, 4. kvarta, 5.
persónufornafn, 7. dráttur, 10. kusk,
13. framkoma, 15. róa, 16. hryggur,
19. ullarflóki.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. loks, 6. ff, 8. kví, 9. urr, 11.
en, 12. reyfi, 14. skans, 16. bt, 17. ske,
18. aur, 20. af, 21. knús.
LÓÐRÉTT: 1. ofur, 3. ok, 4. kveinka,
5. sín, 7. frestun, 10. ryk, 13. fas, 15.
sefa, 16. bak, 19. rú.
„Sirkusinn kemur með Norrænu
til landsins og tekur allt með sér
nema fílinn. Hann hefði þurft að
dvelja átta vikur í Hrísey og það
er bara allt of mikið mál,“ segir
Björgvin Rúnarsson hjá 2B
Company sem stendur fyrir
komu Agora-sirkussins til
Íslands 26. ágúst næstkomandi.
„Agora er einn frægasti sirkus
í evrópu og fagnar tuttugu ára
starfsafmæli sínu um þessar
mundir. Norskir eigendur sirk-
ussins höfðu mikinn áhuga á að
koma með hann til landsins og
eftir að þau fengu styrk frá
norska ríkinu í vor verður það að
veruleika, en flutningarnir sjálf-
ir til landsins kosta um sex millj-
ónir,“ útskýrir Björgvin. „Aðal-
málið verður að ferðast um
þjóðvegina því þau koma með
150 metra vagnalest sem þau
munu ferðast á um landið,“ bætir
hann við, en sirkusinn mun sýna
á fimm stöðum víðs vegar um
landið og enda á plani Smára-
lindar.
„Fyrir utan eigendurna sjálfa
eru þetta allt sígaunar sem gista
í vögnunum sem þau ferðast í
milli staða og nota til að mynda
girðingu með því að leggja þeim
hringinn í kringum sirkustjaldið
á hverjum viðkomustað. Tjaldið
sjálft er risastórt og bæði upp-
hitað og vatnshelt, svo veðrið
mun ekki skipta neinu máli,“
segir Björgvin og vill meina að
aðgangseyrir verði innan skyn-
samlegra marka.
„Þetta er skemmtun sem öll
fjölskyldan á að geta leyft sér að
sjá, svo miðarnir verða ekki á
neinu tónleikaverði,“ segir Björ-
vin að lokum, en miðasala hefst
eftir hálfan mánuð á midi.is.
- ag
Flytja inn allt nema fílinn
„Þetta er Elín Hirst þeirra á austurströnd
Bandaríkjanna,“ segir matreiðslumeistarinn
Sigurður Hall – Siggi Hall. Siggi fór ásamt
fjórum meistarakokkum til Washinton DC í
byrjun júlí að kynna íslenskan mat. Af því
tilefni var hann boðaður í viðtal hjá J.C.
Hayward hjá CBS TV. „Ég hef farið til
hennar og við vorum að ræða um íslenskan
mat. Hún talaði um hvað henni þætti skyrið
gott og úðaði því alveg í sig,“ segir Siggi.
Kokkarnir voru að elda á veitingastöðum
víðs vegar um borgina en þeirra stærsta
verkefni var að sjá um matinn fyrir 2000
gesti Rammy´s-verðlaunanna sem eru að
sögn Sigga „Óskarsverðlaunaafhending
veitingahúsanna“. Siggi hafði þar umsjón
með matseðlinum og bauð JC Hayward að
mæta í þennan stóra kvöldverð. „Þar fékk
hún lambakjöt og var alveg sjúk í það. Ég er
búinn að lofa að senda henni lamb í haust,“
segir Siggi og mun sjónvarpsstjarnan vera
að rifna úr spenningi.
Siggi hefur kynnt íslenskan mat árum
saman erlendis ásamt Baldvini Jónssyni.
Hann segir enga kynningu á íslenskum mat
hafa heppnast jafn vel og þá á Rammy´s.
Hvort sem að kynning Sigga og félaga skili
sér í rjúkandi sölu á íslenskum afurðum þá
er það deginum ljósara að JC Howard er
heilluð og bíður spennt eftir sendingu af
nýslátruðu lambi frá Sigurði Hall. „She can´t
wait,“ segir Siggi. „Hún var alltaf að segja
„ó, Siggi, I can´t wait to get my lamb leg“.“
Sem þýðir á góðri íslensku: „Ó, Siggi ég get
ekki beðið eftir að fá lambalærið mitt.“
- shs
Siggi sendir sjónvarpsstjörnu lambakjöt
MEÐ SJÓNVARPSSTJÖRNU Siggi og JC Hayward náðu
vel saman og hann ætlar að senda henni nýslátrað
lamb í haust. MYND/BALDVIN JÓNSSON
150 METRA VAGNALEST Agora-sirkusinn
mun dvelja á Íslandi í þrjár vikur og
ferðast um með 150 metra vagnalest.
BJÖRGVIN RÚNARSSON Færir Íslending-
um sirkus í ágúst.
VEISTU SVARIÐ
Svör við spurningum á síðu 8.
1. Fídel Smári
2. 1-2 fyrir Val
3. Guðmundur Þóroddsson
Ragnar Bjarnason verður 75 ára á
næsta ári og má búast við miklu
húllumhæi enda er Raggi sá söngv-
ari Íslands sem einna lengst hefur
haldið fullum dampi og vinsældum.
Þorgeir Ástvaldsson, vinur Ragga
og samstarfsmaður úr Sumargleð-
inni, vinnur nú að heimildarmynd
um Ragga ásamt dóttur sinni, Evu
Rún.
„Mér fannst löngu kominn tími
til að gera þessum höfðingja skil,“
segir Þorgeir. „Hann hefur siglt
ljúflega gegnum áratugina og er
enn í fullu fjöri.“
Feðginin hafa elt Ragga á rönd-
um undanfarin misseri og filmað
hann við leik og störf. „Við erum að
safna efni og sanka að okkur heim-
ildum. Það er til gríðarlega mikið
efni með honum og um hann og svo
er fullt af fólki sem hefur sitt að
segja um hann. Margir af hans sam-
tíðarmönnum eru að týna tölunni
svo það er ekki seinna vænna að
gera þessa mynd. Það er nú bara
gangur lífsins.“
Þorgeiri þykir mikið til Ragga
koma. „Hann er eins við alla og
maður finnur ekkert kynslóðabil í
honum. Á ferðalögum finnur maður
hvað hann á mikið í þjóðinni, allt
frá unglingum í gamalt fólk sem
man eftir honum í gamla daga lætur
hrífast með. Raggi er er vel á sig
kominn og hefur haldið röddinni.
Það sem mest er um vert
er að hann hefur enn
gaman af þessu og er
leitandi í músíkinni.“
Það er ekki mikil
hjálp í Ragga sjálf-
um þegar rifja
þarf upp ártöl og smáatriði löngu
liðinna atburða. „Sérgrein hans er,
eins og alþjóð veit, að muna
ekki textana, jafnvel við
lög sem hann hefur sungið
þúsund sinnum,“ segir
Þorgeir og bætir við hlæj-
andi: „En það er nú bara
partur af hans fasi,
textablöðin og hans
hangandi hönd.“
Þetta er fyrsta mynd-
in sem Þorgeir og Eva
Rún gera. Stefnt er á að hún verði
tilbúin í tíma fyrir stórafmælisdag
Ragga, sem verður 75 ára 22.
september árið 2009.
gunnarh@frettabladid.is
ÞORGEIR ÁSTVALDSSON: ELTIR HÖFÐINGJA Á RÖNDUM
Toggi í Tempó gerir heim-
ildarmynd um Ragga Bjarna
Á MIKIÐ Í ÞJÓÐINNI OG ER EINS VIÐ ALLA Raggi Bjarna hóf ferilinn sem trommari og
tekur enn reglulega í settið. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
FYLGIR VINIR SÍNUM Þorgeir
Ástvaldsson gerir heim-
ildarmynd um Ragga
Bjarna. Hún verður
tilbúin fyrir 75 ára
afmæli kappans á
næsta ári.
VINNUR MEÐ PABBA
Eva Rún, dóttir Þor-
geirs, gerir myndina
með pabba sínum.
Lögreglan á Akureyri færði rekstr-
arstjóra Vodafone á Norðurlandi til
yfirheyrslu á fimmtudaginn vegna
hangandi efnisbúta sem þóttu líkj-
ast íslenska fánanum sem hanga
uppi í verslun Vodafone
á Glerártorgi á Akur-
eyri. Honum var sleppt
að loknum yfirheyrslum
og enn hanga efnisbút-
arnir uppi. Athygli
vekur að lögreglan
fyrir norðan tekur
harðar á brotum
á fánalögum en
kollegar þeirra
fyrir sunnan. Hafa
Vodafone-menn velt því fyrir sér
að kannski hafi það eitthvað með
það að gera að Stefán Eiríksson,
lögreglustjóri höfuðborgarsvæð-
isins, var í nýbylgju rokksveitinni
Fyrirbæri á sínum tíma og því ef til
vill opnari fyrir smá pönki.
Nú bíða menn spenntir eftir
því hvers konar byggð verði við
Kársnes í Kópavogi. Sá sem er
einna spenntastur
er athafnamaðurinn
Eyþór Guðjónsson
en hann ásamt fjár-
sterkum aðilum hefur
kynnt hugmyndir um
glæsilega hafnar-
byggð. Hugmyndir
Eyþórs munu
vera hvað vin-
sælastar meðal
íbúa á svæðinu en
Eyþór býr sjálfur þar.
Svo telst það ekki ónýtur bónus að
Eyþór er góður vinur leikstjórans
Quentins Tarantino og gæti hann
vel sést þarna á vappi í framtíðinni.
Gordon Ramsey er nú hér á landi.
Hann skellti sér út á lífið á fimmtu-
dagskvöldið ásamt fjórum breskum
félögum sínum. Þegar Vegamótum
var lokað lét Gordon ekki þar við
sitja heldur fór hann í partí á Skúla-
götu. Mikil stemning var í partíinu,
svo mikil að lögregla var kölluð til
vegna hávaða. - shs
FRÉTTIR AF FÓLKI
Óska eftir að kaupa enskt
Lingafon námskeið
Óska eftir að kaupa enskt Lingafon námskeið útgefi ð
árið 1978, -79, -80. Útgáfuár bóka er skráð áberandi
fremst í bókum. Upplýsingar í síma 865 7013
Björgvin Ómar Ólafsson
Auglýsingasími
– Mest lesið