Fréttablaðið - 21.07.2008, Blaðsíða 4
4 21. júlí 2008 MÁNUDAGUR
Atlantskaup ehf. Bæjarflöt 6,112 Reykjavík S: 533 3700
Upplýsingar á www.atlantskaup.is
STIGAR OG HANDRIÐ ÚR GLERI OG STÁLI
ÚTI SEM INNI
SAMGÖNGUR Gísli Marteinn Bald-
ursson, fulltrúi Reykjavíkur í stjórn
Strætó, segist vera sammála
stjórnar formanninum, Ármanni Kr.
Ólafssyni, um að æskilegt væri að
einkaaðilar sæju um allan akstur
Strætó. Eins og Fréttablaðið greindi
frá í gær verður ríflega helmingur
akstursins boðinn út í haust.
Gísli Marteinn segir að hann
hefði gjarnan viljað sjá hlut einka-
aðila stærri í þessu útboði. „Þetta
varð hins vegar niðurstaðan eins og
staðan er núna. Stjórnin stendur
saman á bak við hana og við erum
mjög sátt við þetta fyrirkomulag
núna.“
Garðar Hilmarsson, formaður
Starfsmannafélags Reykjavíkur-
borgar, segist ekki hafa heyrt af
vilja stjórnar-
manna Strætó
til að færa allan
akstur til einka-
aðila. „Við
myndum hafa
af því mjög
miklar áhyggj-
ur ef af yrði.
Með því væri
verið að rýra
kjör og réttindi
starfsfólks hjá fyrirtækinu,“ segir
Garðar.
Gísli Marteinn segir að með
útboðinu nú sé verið að festa það
fyrirkomulag í sessi að akstur skipt-
ist nokkuð jafnt á milli einkaaðila
og byggðasamlagsins; í bili.
„Það hefur ekkert verið ákveðið
með það hvort
fleiri leiðir verði
boðnar út á
samningstíman-
um. Okkar
ágætu einkaað-
ilar hafa staðið
sig vel og við
munum sjá
hvernig þeir
standa sig
áfram. Það væri
óábyrgt að skoða það ekki að auka
hlut þeirra ef vel gengur. Sú leið
hefur verið farin í nágrannalöndum
okkar svo dæmi sé tekið,“ segir
Gísli Marteinn.
Svandís Svavarsdóttir, sem sat í
stjórn Strætó í tíð 100 daga meiri-
hlutans – en í stjórninni situr einn
fulltrúi hvers sveitarfélags – segir
yfirlýsingu Ármanns athyglisverða.
„Þarna siglir Sjálfstæðisflokkurinn
undir fullum seglum og ég veit ekki
hvaðan pólitískt viðnám ætti að
koma. Þetta er í beinum takti við
það sem er að gerast á landsvísu og
almannaþjónustan á víða í vök að
verjast nú um stundir,“ segir
Svandís.
Spurður um á hverju það hafi
strandað að bjóða fleiri leiðir út
núna segir Gísli Marteinn að menn
hafi metið stöðuna þannig að ekki
væri stemning fyrir því núna. „Til
að mynda í Reykjavík held ég að sé
ekki stemning fyrir að bjóða allan
reksturinn út í einum pakka núna,
hvað sem síðar verður.“
kolbeinn@frettabladid.is
Vilja bjóða allan akstur
Strætó út til einkaaðila
Gísli Marteinn Baldursson segist vilja sjá allan akstur Strætó á hendi einkaaðila. Stjórnarformaður Strætó
sammála. Formaður stéttarfélags er uggandi. Vinstri græn segja almannaþjónustu eiga í vök að verjast.
SVANDÍS SVAVARS-
DÓTTIR
GÍSLI MARTEINN
BALDURSSON
STRÆTÓ Í ÚTBOÐ Ríflega helmingur aksturs Strætó fer í útboð í haust. Útboð alls aksturs hefur verið rætt innan stjórnar. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
VEÐURSPÁ
Kaupmannahöfn
Billund
Ósló
Stokkhólmur
Gautaborg
Helsinki
Eindhofen
Amsterdam
London
Berlín
Frankfurt
Friedrichshafen
París
Basel
Barcelona
Alicante
Algarve
Tenerife
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
19°
20°
23°
20°
22°
23°
16°
17°
20°
17°
17°
17°
20°
20°
26°
30°
30°
21°
13
18
20
Á MORGUN
8-15 m/s austan til
annars hægari
MIÐVIKUDAGUR
5-10 m/s víðast hvar
12 16
18
12
13
13
14
13
12
4
3
3
3
5
5
6
12
7
5
6
12
16
19
12
1312
12
HITABELTIS-
LÆGÐIN BERTHA
Nú síðdegis gengur
hitabeltislægðin
Bertha yfi r land-
ið. Hún er fyrrum
fellibyljalægð. Ekki
er að vænta neinna
storma af hennar
völdum en henni
fylgir hins vegar
mikið vatnsveður í
dag og það víða um
land, einkum þó
síðdegis. Vætusamt
verður sunnan og
vestan til næstu
daga.
Sigurður Þ.
Ragnarsson
veður-
fræðingur
SLYS Þrjú ungmenni voru flutt á
sjúkrahús eftir bílveltu á
Biskupstungnabraut við
Laugarvatnsveg á fimmta
tímanum í fyrrinótt. Ungmennin
voru í jeppa sem hafnaði utan
vegar og valt í kjölfarið.
Tvö ungmennanna fengu að
fara heim að lokinni læknisskoð-
un á slysadeild snemma í
gærmorgun að sögn læknis á
deildinni.
Sá þriðji reyndist upphand-
leggsbrotinn og var auk þess
marinn og sár eftir slysið. Hann
fékk að fara heim af sjúkrahús-
inu eftir hádegið í gær.
- ht
Bílvelta við Laugavatnsveg:
Þrjú ungmenni
flutt á spítala
BRUNI Nokkrir piltar eru grunaðir
um að kveikja eld í sinu á þaki
leikskóla við Gullteig í Reykjavík
laust eftir hádegi í gær.
Ekki er vitað til þess að
skemmdir hafi orðið á leikskólan-
um við brunann en eldsvoðinn var
bundinn við þak skólans sem var
tyrft að sögn varðstjóra hjá
slökkviliði höfuðborgarsvæðisins.
Til nokkurra pilta sást við
leikskólann og eru þeir grunaðir
um að hafa kveikt eldinn.
Slökkvistarf gekk vel og hafði
eldurinn verið slökktur fljótlega
eftir að slökkvilið kom á staðinn.
- ht
Piltar grunaðir um sinubruna:
Kveiktu í sinu á
þaki leikskóla
KÍNA, AP Yfirvöld í Peking,
höfuðborg Kína, hafa takmarkað
mjög umferð bifreiða og iðnaðar-
starfsemi til að draga úr mengun
fyrir Ólympíuleikana í ágúst.
Helmingur bílaflotans má ekki
keyra fram að leikunum. Annan
hvern dag mega bílar með
skráningarnúmeri sem endar á
oddatölu ekki keyra, hinn daginn
bílar með númeri sem endar á
sléttri tölu.
Verksmiðjur þurfa að draga úr
útblæstri um þriðjung og lokað
verður tímabundið fyrir þær
verksmiðjur sem mest menga.
Loftgæði í Peking eru mjög
lítil. Óvíst er að það takist að
koma því í lag fyrir Ólympíuleik-
ana. - gh
Peking ræðst gegn mengun:
Bílar bannaðir
PEKING Skyggni er oft lélegt í Peking
vegna mengunar. NORDICPHOTOS/AFP
NEYTENDUR Neytendastofa hefur
aldrei beitt verslanir sektum
þegar reglur um verðmerkingar
hafa verið brotnar.
Samkvæmt lögum ber öllum
þeim sem selja verslun eða þjón-
ustu að veita greinargóðar upplýs-
ingar um verð. Þessar upplýsing-
ar verða að vera á áberandi stað
og tryggt skal vera að neytendur
skilji hvaða vara er merkt hverju
verði. Uppsett verð skal vera það
sama og neytandinn greiðir.
Þórunn Árnadóttir, sviðsstjóri
neytendaréttarsviðs Neytenda-
stofu, segist ekki geta svarað því
hvers vegna verslanir hafi ekki
verið sektaðar en segir að nú sé
verið að uppfæra reglur Neyt-
endastofu.
„Við höfum fengið mikið af
kvörtunum og erum farin af stað í
verslanir og skoða ástand mála.“
Þórunn segir að með nýjum regl-
um verði breyting á og að verslan-
ir verði sektaðar. „Eftirlit verður
hert og sömuleiðis verður farið að
beita sektum.“ Þórunn segir að
nýju reglurnar verði einfaldari í
sniðum en þær fyrri.
„Reglurnar verða sameinaðar
undir einn hatt og verða mun
aðgengilegri fyrir neytendur.“
Nýju reglurnar eiga komast í
gagnið innan fárra vikna.
- hþj
Neytendastofa má sekta þegar ekki er farið að reglum um verðmerkingar:
Engar verslanir sektaðar enn
VERÐMERKINGAR Í VERSLUNUM
Neytendastofa hefur hert eftirlit með
verðmerkingum.
GENGIÐ 18.07.2008
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
16,4258
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
79 79,38
157,69 158,45
125,22 125,92
16,79 16,888
15,545 15,637
13,218 13,296
0,7408 0,7452
129,1 129,86
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR