Fréttablaðið - 21.07.2008, Blaðsíða 43
MÁNUDAGUR 21. júlí 2008 27
FÓTBOLTI Eftir að AC Milan
hafnaði kauptilboði Chelsea í
Brasilíumanninn Kaka telja
breskir og spænskir fjölmiðlar að
Robinho sé næstur á óskalista
enska liðsins.
Nokkrir fjölmiðlar gengu
reyndar svo langt í gær að
fullyrða að Peter Kenyon hefði
þegar hafið viðræður við
Madrídinga um hugsanlegt
kaupverð. Þá er
haft eftir
umboðsmanni
Robinhos að
leikmaðurinn sé
tilbúinn að fara
til Chelsea og
Robinho
sagði sjálfur
við spænska
blaðið Marca í
gær að hann
vildi fara frá
Real Madrid. - óþ
Brasilíumaðurinn Robinho:
Vill fara frá
Real Madrid
NORDIC PHOTOS/GETTY
FÓTBOLTI Arsene Wenger, knatt-
spyrnustjóri Arsenal, hefur lýst
því yfir að hann hafi í hyggju að
kaupa minnst einn leikmann til
viðbótar áður en tímabilið hefst í
ágúst.
„Það er pottþétt að við kaupum
einn nýjan leikmann til viðbótar
við þá tvo sem við höfum fengið
til þessa fyrir tímabilið,“ sagði
Wenger í viðtali við BBC Sports
en Lundúnafélagið hefur þegar
keypt þá Samir Nasri frá
Marseille og Aaron Ramsey frá
Cardiff í sumar.
Miðjumennirnir Mathieu
Flamini, Alexander Hleb og
Gilberto hafa hins vegar allir
yfirgefið Arsenal og framherjinn
Emmanuel Adebayor hefur verið
orðaður við önnur félög.
„Adebayor er leikmaður
Arsenal og ég er sannfærður um
að hann verði það áfram á
komandi leiktíð,“ sagði Wenger að
lokum. - óþ
Arsene Wenger, Arsenal:
Kaupum brátt
nýjan leikmann
KAUPUM MEIRA Wenger er sannfærður
um að Arsenal muni fá að minnsta kosti
einn nýjan leikmann til viðbótar fyrir
komandi tímabil. NORDIC PHOTOS/GETTY
KAPPAKSTUR Bretinn Lewis Ham-
ilton á McLaren var búinn að hafa
mikla yfirburði síðan æfingar hóf-
ust á Hockenheim-brautinni fyrir
helgi og hann hélt uppteknum
hætti þegar keppni í þýska Grand-
Prix kappakstrinum í Formúlu 1
fór fram í gær.
Hinn 23 ára gamli Hamilton var
á ráspól í gær en næstir honum
komu Felipe Massa á Ferrari og
Heikki Kovalainen á McLaren en
heimsmeistarinn Kimi Räikkönen
var sjötti í rásröðinni. Nelson
Pique á Renault var sautjándi í
rásröðinni en hann átti heldur
betur eftir að láta til sín taka.
Staða fremstu manna hélst
óbreytt á fyrsta hring og Hamilt-
on náði fljótt öruggri forystu í
kappakstrinum og allt leit út fyrir
þægilegan sigur hans, en sú varð
ekki raunin.
Timo Glock á Toyota braut aft-
urhjól undan bíl sínum og klessti á
vegg á 36. hring og kalla þurfti út
öryggisbílinn og í kjölfarið þéttist
hópurinn. Flest keppnisliðin not-
uðu tækifærið til þess að taka
þjónustuhlé og taka bensín en
McLaren ákvað að gera það síðar í
mótinu. Þegar Hamilton loks tók
þjónustuhlé féll hann niður um
nokkur sæti.
Heikki Kovalainen hleypti liðs-
félaga sínum Hamilton þá fram úr
sér og Bretinn saxaði hratt og
örugglega á Massa og Pique, sem
græddi mikið á óhappi Glocks og
náði þar að vinna sig upp um mörg
sæti. Hamilton náði svo að keyra
fram úr þeim báðum á lokakaflan-
um og tryggja sér verðskuldaðan
sigur á Hockenheim-brautinni.
Pique varð annar en þetta var í
fyrsta skipti sem hann kemst á
verðlaunapall í Formúlu 1.
„Ég hefði frekar kosið það að
geta verið rólegur í forystu eins
og allt stefndi í. En svona er þetta
stundum og við verðum bara að
læra af þessu. Þetta var þó góð
helgi hjá liðinu og bíllinn var frá-
bær,“ sagði Hamilton. - óþ
Lewis Hamilton er með forystu í stigakeppni ökuþóra eftir keppni gærdagsins:
Hamilton fyrstur í Þýskalandi
EFSTU MENN Nelson Pique á Renault í öðru sæti, sigurvegarinn Lewis Hamilton á
McLaren og Felipe Massa á Ferrari í þriðja sæti höfðu ríka áherslu til þess að fagna í
gær. Þetta var í fyrsta skiptið sem Pique komst á verðlaunapall í Formúlu 1 en hann
byrjaði sautjándi í rásröðinni á Hockenheim í gær. NORDIC PHOTOS/GETTY