Fréttablaðið - 21.07.2008, Side 8
8 21. júlí 2008 MÁNUDAGUR
SKIPULAGSMÁL Umtalsvert niðurrif
og tvöföldun á byggingarmagni er
meðal breytinga á deiliskipulagi
Kvosarinnar sem borgarráð sam-
þykkti á fundi sínum fyrir helgi.
Er gert ráð fyrir byggingu rúm-
lega 7.300 fermetra hótels og
bankaútibús í nýbyggingu á sam-
einaðri lóð Lækjargötu 12 og Von-
arstrætis 4 og 4b.
Meðal húsa sem heimilað er að
rífa er hús Glitnis banka, For-
eldrahús og bygging við Vonar-
stræti 4b. Hefur starfsemi For-
eldrahúss þegar flutt í Borgartún.
Í bókun skipulagsráðs frá 16.
júlí síðastliðnum segir að deili-
skipulagstillagan sé vel unnin og
telur ráðið að vel hafi til tekist
með að koma til móts við athuga-
semdir nálægra íbúa með þeim
breytingum sem gerðar hafa verið
á tillögunni eftir auglýsingu.
„Athugasemdirnar snerust aðal-
lega um hæð hússins og umfang
þess enda er um mjög stórt hús að
ræða,“ segir Helga B. Laxdal, yfir-
lögfræðingur á skipulags- og
byggingarsviði Reykjavíkurborg-
ar. Þá segir hún að uppi hafi verið
vangaveltur um hvort fleiri hótel
vanti á umrætt svæði.
Athugasemdum hafi verið mætt
með því að hönnuðir hússins hafi
dregið úr byggingamagni að
Kirkjutorgi, lækkað húsið um
hálfa hæð, tekið glugga sem sneru
að íbúðarhúsum og fært veggi.
„Þetta er látlaus bygging,“ segir
Helga og bætir við að horft hafi
verið til annarra húsa í nágrenn-
inu þegar húsið var hannað.
Byggingin verður frá einni hæð
upp í fimm hæðir þar sem hún
snýr út að Lækjargötu. Frá Vonar-
stræti verður ekið í bílakjallara
undir byggingunni sem rýma mun
27 bíla og segir Helga kjallarann
einnig ætlaðan fyrir aðföng fyrir
hótelið.
Áskilið er að jarðhæðin verði
almenningsrými og gert er ráð
fyrir að útibú Glitnis verði áfram
á jarðhæð hússins. „Þarna eiga að
vera veitingastaðir, kaffihús, inn-
garður og möguleiki á að opna út á
götu sem hafði mjög mikil áhrif á
hvað skipulagsráð var hrifið af til-
lögunni,“ segir Helga.
Lóðarhafi er Eignarhaldsfélagið
Fasteign hf. og segir Helga í þeirra
höndum hvenær framkvæmdir
hefjast. „Lóðarhafar eru mjög
áfjáðir í að fara af stað sem fyrst.
Í lok ágúst er allt klárt af okkar
hálfu og þá mega þeir sækja um
byggingarleyfi og fara af stað.“
olav@frettabladid.is
Borgaryfirvöld heimila að
stórt hótel rísi í Kvosinni
Borgarráð samþykkir tillögu að breytingu á deiliskipulagi Kvosarinnar og heimilað tvöföldun á byggingar-
magni á horni Lækjargötu og Vonarstrætis. Áætlað að rúmlega 7.300 fermetra hótelbygging rísi á reitnum.
SUÐUR EFTIR LÆKJARGÖTU Ásýnd
Lækjargötunnar mun breytast nokkuð
með tilkomu hótelbyggingarinnar en
endanlegur fjöldi hótelherbergja hefur
ekki verið ákveðinn.
HÓTELBYGGINGIN Horft í norður eftir Lækj-
argötu blasir hótelbyggingin við.
1 Hver hefur verið ráðinn til að
veita forsætisráðherra ráðgjöf í
efnahagsmálum?
2 Hvar fóru Kátir dagar fram
um helgina?
3 Hvaða íslenski tónlistar-
maður selur te til eins flottasta
veitingastaðar í heimi?
SVÖRIN ERU Á SÍÐU 30
VÍSINDI Læknar við Cleveland-
sjúkrahúsið í Bandaríkjunum
hafa þróað nýja aðferð við upp-
skurð vegna nýrnagjafar. Aðferð-
in styttir endurhæfingartíma
eftir líffæragjöfina og skilur
eftir minna ör. Skorið er gat í
naflann og nýrað tekið út í gegn-
um rör.
Ellefu nýrnagjafar hafa geng-
ist undir slíka aðgerð og virðist
árangurinn góður. Endurhæfing-
artími hefur að meðaltali verið
sautján dagar samanborið við 51
dag eftir hefðbundna aðferð og
sársauki er minni.
Aðgerðin felst í því að skorið
er gat í naflann. Rör er sett í gatið
og koltvísýringi blásið inn í kvið-
arholið svo kviðurinn þenjist út.
Læknarnir geta þá komið inn
tólum sem þeir nota til að skera
nýrað frá og koma því út um
rörið.
Í Bandaríkjunum bíða nú átta-
tíu þúsund manns eftir nýra en
aðeins rúmlega þrettán þúsund
gáfu nýra á síðasta ári og þar af
var rúmlega helmingur látinn.
Inderbir S. Gill er einn lækn-
anna sem þróuðu hina nýju
aðferð. „Mun þetta draga úr
tregðu til nýrnagjafar? Ég held
að svarið við því sé já,“ sagði
hann.
- gh
Ný uppskurðaraðferð styttir endurhæfingartíma líffæragjafa:
Líffæragjöf gegnum naflann
INDERBIR S. GILL Gill er einn læknanna
sem þróað hefur nýja aðferð við nýrna-
töku. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
SAMGÖNGUR Hlífðarfatnaður bif-
hjólafólks er tollflokkaður sem
tískuvara og ber því hærri tolla í
innflutningi en annar öryggis-
fatnaður.
Fimmtán prósenta tollur er nú
greiddur af slíkum fatnaði að
sögn Ragnhildar Hjaltadóttur,
ráðuneytisstjóra í samgöngu-
ráðuneytinu.
„Við teljum slíkan fatnað fyrst
og fremst öryggisbúnað en ef
fella á tollana niður er það í
verkahring fjármálaráðuneytis-
ins,“ segir Ragnhildur.
Bifhjólafólk er ósátt við breyt-
ingar á umferðarlögum sem gera
þeim skylt að klæðast viður-
kenndum lágmarkshlífðarbún-
aði við aksturinn eins og fram
hefur komið í Fréttablaðinu.
Lagabreytingarnar voru gerð-
ar á næstsíðasta þingi eftir frum-
varp sem Jóhanna Sigurðardótt-
ir félagsmálaráðherra var ein
flutningsmanna að en hún var þá
í stjórnarandstöðu.
Fatnaðurinn á að vera merkt-
ur sérstaklega fyrir notkun á
bifhjólum en samgönguráðu-
neytið vinnur nú að reglugerð
um hvað teljist viðurkenndur
útbúnaður.
„Þetta hefur ekki verið hugsað
til enda,“ segir Sylvía Guð-
mundsdóttir, formaður Snigl-
anna. „Við viljum frekar í sam-
vinnu við klúbbana vinna að því
að fólk sé í galla en að það sé
bundið í landslög.“ - ht
Hlífðarfatnaður bifhjólafólks ber hærri tolla en annar öryggisútbúnaður:
Bifhjólaföt tollflokkuð sem tískuvara
VEL BÚNIR Hlífðarfatnaður bifhjólafólks ber fimmtán prósenta toll eins og tískuvara
meðan öryggisbúnaður er tollfrjáls. FRÉTTABLAÐIÐ/AUÐUNN
KJARAMÁL Félag ungra lækna
(FUL) hefur sent frá sér ályktun
þar sem læknar eru hvattir til að
fella rúmlega vikugamlan
kjarasamning Læknafélags
Íslands (LÍ) við fjármálaráðu-
neytið.
Samningurinn gerir ráð fyrir
4,14 prósenta launahækkun sem
felur í raun í sér kjaraskerðingu í
ljósi mikillar verðbólgu, að mati
Ragnars Freys Ingvarssonar,
formanns FUL. Samkvæmt
samningnum hækka grunnlaun
nýútskrifaðra lækna úr 274
þúsund krónum í 286 þúsund.
Atkvæðagreiðsla um kjara-
samninginn er hafin meðal félaga
í LÍ. Úrslit verða ljós um 30. júlí.
- gh
Félag ungra lækna:
Hvetja lækna
til að fella
RAGNAR FREYR INGVARSSON Ragnar
segir þann unglækni ekki fyrirfinnast
sem sé ánægður með kjör sín.
HORN VONARSTRÆTIS OG LÆKJAR-
GÖTU Við hönnun byggingarinnar
var tekið mið af öðrum húsum í
nágrenni hennar.
UMRÆTT SVÆÐI Byggja á rúmlega 7.300 fermetra hótelbyggingu á þremur sameinuðum lóðum á horni Lækjargötu og Vonar-
strætis. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
MEXÍKÓ Forystumenn mexíkóska
knattspyrnuliðsins Universidad
Nacional þóttust hafa himin
höndum tekið þegar hinn 56 ára
Englendingur Derek Williams
sótti félagið heim nýlega. Þeir
héldu hins vegar að þeir væru að
taka á móti Sven-Göran Eriksson,
fyrrverandi landsliðsþjálfara
Englendinga og núverandi
þjálfara landsliðs Mexíkó.
Williams þessi er sláandi líkur
Eriksson. Hann þóttist ætla að
kanna hæfileika leikmanna
liðsins, og fékk konunglegar
móttökur. Knattspyrnusambandi
Mexíkó ku hafa verið lítt skemmt
yfir uppátækinu. - kg
Tvífari Sven-Göran Eriksson:
Gabbaði heilt
íþróttafélag
HEILBRIGÐISMÁL „Eftirspurnin er
meiri en framboðið af fólki í
þessar stöður, en við höfum ekki
sérstaklega miklar áhyggjur.
Þetta er líklega í takt við þann
fjölda sem starfar á þessum
vinnustað,“ segir Svanhvít
Jakobsdóttir, forstjóri Heilsu-
gæslu höfuðborgarsvæðisins.
Heilsugæslan auglýsti mörg störf
hjúkrunarfræðinga, sjúkraliða og
ljósmæðra laus til umsóknar í
atvinnublaði Fréttablaðsins í gær,
sunnudag.
Milli 600 og 700 manns starfa
hjá Heilsugæslu höfuðborgar-
svæðisins. Svanhvít segir
stofnunina þurfa að keppa við
aðrar heilbrigðisstofnanir um
starfsfólk. Einnig sé eitthvað um
að starfsfólk sé að hætta vegna
aldurs eða taki sér námsleyfi. - kg
Heilsugæslan auglýsir:
Keppast um
starfsfólk
HJÚKRUNARFRÆÐINGAR Heilsugæsla
höfuðborgarsvæðisins auglýsti mörg
störf hjúkrunarfræðinga laus um
helgina.
VEISTU SVARIÐ?