Fréttablaðið - 21.07.2008, Síða 21
fasteignir
21. JÚLÍ 2008
Fasteignasalan Stakfell hefur til sölu tveggja
hæða einbýli ásamt bílskúr á góðum útsýnis-
stað í Grafarholti.
Um er að ræða rúmlega tvö hundruð fermetra tveggja hæða einbýlishús ásamt tvöföldum bílskúr. Verönd hússins að framanverðu er
hellulögð og upphituð og í garðinum er sólpallur með
stiga niður í heitan pott.
Húsið skiptist í flísalagða forstofu með eikarskáp-
um, sameiginlega stofu og borðstofu með ljósum flís-
um, arni og fallegu útsýni. Útgengt er úr borðstofu út
á verönd í suðvestur. Eldhúsið er með kirsuberjainn-
réttingu með innbyggðri þvottavél, ísskáp og frysti.
Granít er á borðum. Svefnherbergin eru fjögur tals-
ins, öll rúmgóð með eikarparketi og eikarskápum.
Gestasnyrting og aðalbaðherbergi eru bæði flísalögð
í hólf og gólf. Baðkar og sturtuklefi eru á aðalbaðher-
berginu ásamt góðu skápaplássi.
Þvottaherbergi með góðri innréttingu og flísa-
lögðu gólfi er á neðri hæð hússins. Gengið er inn í bíl-
skúrinn úr þvottahúsi, en í honum eru góðar hillur,
gólfið steypt og hurð með rafmagnsopnara.
Nánari upplýsingar veita Þorlákur Einarsson og
Þórhildur Sandholt fasteignasalar í síma 535-1000.
Verönd og fallegt útsýni
Aðkoman að húsinu, sem og götunni allri, er mjög falleg.
PL 01 Svart PL 45 Silfur-
metallic
PL 20 Dökk Grá PL 22 Dökk Rauð PL 56 Dökk brún PL 42 Rauðbrún PL 80 Hvítt PL 55 Kopar -
metallic
Aluzink Kopar
BLIKKÁS –
Smiðjuvegi 74 – 200 Kópavogi – Sími 515 8700
www.funi.is – www.blikkas.is
Fr
u
m
ÞAKRENNUKERFI
á öll hús – allsstaðar
Úrval lita á lager
Það er engin ástæða til að horfa á heiminn
í svarthvítu. SIBA–ÞAKRENNUKERFI í fjölda lita
Létt í m
eðföru
m lang
ódýras
t
HÚSIN Í BORGINNI • Klapparstíg 5 • 101 Reykjavík • Sími 511 5005 • Fax 511 5009 • www.husin.is
Fr
u
m
Telma Róbertsdóttir
Löggiltur fasteignasali
HÚSIN Í BORGINNI … það borgar sig!
• Ekkert skoðunar- og skráningargjald.
• Ekkert gagnaöflunargjald.
• Ekkert umsýslugjald fyrir seljanda.
• Framúrskarandi þjónusta og ráðgjöf á sviði fasteignaviðskipta.
• Við stöndum vaktina frá upphafi til enda með bros á vör.
• Löggiltir fasteignasalar með þér alla leið.
Hestafólk – Sumarhús
Skógrækt – og allt annað!
Erum með í sölu mjög fallegt og áhugavert land í Landssveit (úr landi Heysholts). Um er að ræða
fimm stórar spildur sem fást keyptar
sér eða allar saman. Stærð landsins er
um 26 hektarar og eru fjórar spildur 5
hektarar og ein spilda 6 hektarar. Land-
ið er allt gróið og hólótt. Landið skiptist
í hæðir og lautir og býr því yfir skemmti-
legum sjarma. Falleg bæjarstæði. Einn-
ig til sölu gott og gróið beitarland ca. 30
hektarar úr sama landi sem hægt er að
tengja spildunum ef vill. Kjörið tækifæri
fyrir t.d. hestafólk, skógrækt, heilsárs-
hús og svo framvegis. Rafmagn og heitt
vatn við lóðarmörk. Vegur að landi.
Vegalengd frá Reykjavík ca. 90
mín. Landið stendur við veginn upp
í Landssveit.
Allar nánari upplýsingar veita
sölumenn Stórborgar.
EIGNARLÓÐIR TIL SÖLU / 5 - 6 hektara spildur
Kirkjustétt 4 - Sími 534 8300
Fr
u
m
HeysholtÞjórs
á
Heysholt Landssveit
Lan
dve
gur
Síðumúla 27 108 Reykjavík sími 534 4040
Fr
um
Mjög góð 101 fm. íbúð á jarðhæð með sérinngangi. Íbúðin skiptist í forstofu,
hol/miðrými. tvö svefnherbergi, parketlagða rúmgóða stofa og borðastofa.
Opið parketlagt eldhús með hvítri innréttingu með beikihöldum. Glæsilegt
flísalagt baðherbergi í hólf og gólf með nuddbaðkari og Philips Starck tækj-
um og skápur. Þvottaherbergi/geymsla í íbúð. Húsið er í mjög góðu ástandi
að utan. Sérgarður tilheyrir íbúðinni með hellulagðri verönd. Frábær stað-
setning. Stæði framan við inngang. Allt sér. Verð 34.500.000.-
Erlendur Davíðsson, lögg. fasteignasali og verðbréfamiðlari • www.eignastyring.is
EIGNASTÝRING
ÁLFALAND, REYKJAVÍK.