Fréttablaðið - 21.07.2008, Page 34
18 21. júlí 2008 MÁNUDAGUR
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Kjölturakkar Eftir Patrick McDonnell
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
Þeir eru nokkrir tónlist-
armennirnir sem sagð-
ir eru hafa breytt sögu
rokksins með tónlist
sinni og framkomu. Þó
svo að til séu nokkrar
kanónur sem flestir eru
sammála um að eigi skil-
ið nafnbótina rokkgoðsögn
eru þeir fleiri tónlistarmennirnir
sem skiptar skoðanir ríkja um.
Einn þeirra er Bruce Springsteen.
Sannkallaðir rokknirðir eru vís-
ast flestir sammála um að Spring-
steen sé býsna merkilegur tónlistar-
maður sem hafi haft mikil og
ótvíræð áhrif á þróun rokktónlistar
frá og með áttunda áratug síðustu
aldar. Aðrir vilja aftur á móti meina
að áhrif hans hafi ekki verið sér-
lega mikil, utan þess að senda frá
sér nokkra slagara og vera heilli
kynslóð innblástur til þess að klippa
ermarnar af gallajökkunum sínum
og ganga með tóbaksklút um haus-
inn. Sökum þess að hann hefur sent
frá sér lög sem slegið hafa í gegn
virðist ekki vera hægt að taka hann
alvarlega sem listamann, en eins og
alkunna er hamla vinsældir öðru
fremur listrænum ásetningi tón-
listarmanna. Ástandið hefur að
sjálfsögðu ekki ávallt verið svo; á
sjöunda áratug síðustu aldar voru
mörg dæmi þess að vinsælir tón-
listarmenn væru einnig afar fram-
sæknir og metnaðarfullir lista-
menn. En það er eins og að frá og
með áttunda áratugnum hafi popp-
tónlistarlandslagið tvístrast í tvær
höfuðáttir: vinsældir eða virðingu.
Vatnaskil áttu sér stað á ferli
Springsteen þegar hann sendi frá
sér ofurslagarann Born in the USA
á níunda áratugnum; má þá segja
að orðstír hans sem listamanns hafi
nokkuð rénað við útgáfuna. Hugs-
anlegt er að sú þróun hafi að nokkru
leyti byggt á misskilningi; Spring-
steen var á tímabili talinn vera mun
hressari en hann í raun og veru er
ef maður gefur sér tíma til þess að
setjast niður og hlusta á textana
hans. Springsteen kastaði sér þó
síðar af nýju af fullum krafti ofan í
myrkan pytt listrænnar alvöru og
dró um leið úr vinsældum hans,
sem gefur sterklega til kynna að
eitt útiloki annað í vandmeðförnum
rokkbransanum.
STUÐ MILLI STRÍÐA Eitt útilokar annað
VIGDÍS ÞORMÓÐSDÓTTIR UM BANDARÍSKAN TÓNLISTARMANN
Halló! Þessi er nú svolítið
vígalegur!
Já, takk...
Er þetta
ekkert
vesen
með allt
þetta hár?
Ég get
rakað
hann, en
konan vill
hafa hann
svona!
Minn er
næstum
því alveg
hárlaus!
Einmitt! Blendingur! Risa-Schnauzer!
Ég seldi gömlu
vekjaraklukkuna á
uppboði á netinu!
Er það?
Hversu mikið
fékkstu fyrir
hana?
500 kall!
Þetta er algjör
gullnáma!
Ég hef aldrei
átt auðveld-
ara með að
græða!
Gætirðu annars lánað
mér 600 kall fyrir
sendingarkostnaði?
Hefur einhver
séð vekjara-
klukkuna
mína?
Ó, Sfinx, hversu
langt inn í skóginn
get ég farið?
Hálfa leið.
Eftir það ertu á leið
út.
Til hamingju
með daginn,
elskan!
Takk fyrir! Æðislegt!
Og hér er það
besta!
Oh!
Þú mundir
það þá!
Hvað er
þetta?
Kvittunin. Pabbi
þinn hefur aldrei
verið góður í að
kaupa föt á mig.
Þetta er úr línu
sem nefnist Hveiti-
brauðsdögunum
er lokið.
krónum lagið
Frá
Fyll'ann takk!
Á Tónlist.is getur þú nálgast yfir 50.000 lög og fyllt
spilarann þinn af topptónlist. Allt efni á Tónlist.is er
ólæst (DRM laust) og kostar frá 79 krónum lagið.
Þannig getur þú fært tónlistina hindrunarlaust á milli
tölvunnar, spilarans og farsímans.
Vertu tilbúinn í sumarfríið!
Auglýsingasími
– Mest lesið