Fréttablaðið - 21.07.2008, Síða 37
MÁNUDAGUR 21. júlí 2008 21
Michelle Williams úr Destiny‘s
Child undirbýr útgáfu sólóplötu
sinnar Unexpected. Hún fetar nú í
fótspor stallsystra sinna Beyoncé
Knowles og Kelly Rowland sem
báðar hafa gefið út sólóplötur með
góðum árangri.
Michelle hefur áður gefið út
gospelplötu sem náði toppsæti
Billboard-gospellistans, en Unex-
pected mun vera fyrsta poppsóló-
plata hennar og er væntanleg í
verslanir í lok september.
Söngkonan hefur haft í nógu að
snúast frá því að Destiny‘s Child
var upp á sitt besta, en hún tók við
titilhlutverki söngleiksins Aida af
söngkonunni Toni Braxton árið
2003 á Broadway og síðan í fyrra
hefur hún leikið í söngleik byggð-
um á sögunni The Color Purple,
víðs vegar um Bandaríkin.
Heildsöludreifing og þjónusta:
Tæknivörur, Skútuvogi 12c auk viðurkenndra söluaðila um land allt
M110 fæst hjá Vodafone og Símanum,
ÚTIVISTARSÍMINN
sem þorir og þolir
Flúðasiglingin var rosaleg,
allt rennblotnaði en síminn
virkaði.
Þekki þessi ekki
neitt, Fannst þau
bara svo ekta
þýsk eitthvað.
Skemmtilegt sjónarhorn,
Nonni skal aldrei komast
með tærnar þar sem ég
hef hælana.
Þetta var frábær ferð
og kjötið ljúffengt.
Sætt.
Blautasta Hróarskeldu-
hátíðin hingað til, að
utan sem innan.
30 mínútum áður
en sá stóri tók.
Nenni þessu varla aftur,
en það var gaman
meðan á því stóð.
Á skíðum
skemmti ég
mér...
Högg,- ryk- og rakavarinn (IP54) • VGA myndavél • Bluetooth
Vasaljós • Stereo FM-útvarp • Innbyggður hátalari
Á myspace-síðunni Atomstation,
sem áður hét Atómstöðin (leitun
er að nafni sem kemur jafn kjána-
lega út í enskri snörun), er því
hikstalaust haldið fram að helsti
áhrifavaldurinn á tónlist sveitar-
innar sé tónlistarsagan eins og
hún leggur sig. Það vekur undr-
un, því atómstrákarnir sýna ein-
beittan brotavilja í að sækja
grimmt og skammlaust í smiðju
eins ákveðins hluta rokksögunn-
ar.
Illmögulegt er að hlusta á Exile
Republic án þess að leiða hugann
að bandarískum rokksveitum
fyrri hluta tíunda áratugarins,
eins og Nirvana (í árdaga ferils
síns), Soundgarden og jafnvel
Rage Against the Machine. Frum-
leikinn er á algeru undanhaldi og
varla getur það talist Atomstation
til tekna. Góðu fréttirnar eru hins
vegar þær að Íslendingarnir gefa
Könunum lítið eftir hvað varðar
kraft og spilagleði.
Söngur, hljóðfæraleikur og
hljóðblöndun eru oftast nær til
hreinnar fyrirmyndar og greini-
legt að sveitin hefur sjóast
mikið á þeim fimm árum
sem liðin eru frá fyrri
breiðskífunni (New
York, Baghdad, Reykja-
vík frá 2003). Keyrslan
er í fyrirrúmi í öllum tíu
lögunum og er það vel. Í
bestu lögunum er þó söng
og melódíu leyft að
njóta sín á kostnað
hamagangsins (Kill us
all, Bloodline) og
viðlögin grípa
hlustandann í
fyrstu atrennu
(Killed my
jesus og Mace).
Textar plötunnar eru afskap-
lega eymdarlega ortir, en ætla
mætti að flestum sé nokk
sama, ekki síst meðlimum
Atomstation. Með Exile
Republic hefur sveitin opin-
berað sitt „manifestó“. Hún
vill rokka, svitna og hlæja
og skammast sín ekkert
fyrir það. Enda engin
ástæða til.
Kjartan Guðmundsson
Ófrumlegt og gott
TÓNLIST
Exile Republic
Atomstation
★★
Atomstation gefur skít í frumleika
og rokkar að hætti pungsveittra
Kana. Spilagleði sveitarinnar ætti
auðveldlega að smita keyrsluþyrsta
rokkhausa.
Fjökskylda fyrirsætunnar Mir-
öndu Kerr hefur nú svarað þeim
sögusögnum að Miranda og leikar-
inn Orlando Bloom séu hætt saman.
Bróðir Miröndu segir að parið hafi
aldrei verið hamingjusamara og að
sögur um sambandsslit séu ekki á
rökum reistar. „Ég skil að almenn-
ingur hafi áhuga á lífi fólks sem er
í sviðsljósinu, en ég trúi varla hvað
sumar sögurnar eru í raun langt
frá sannleikanum. Miranda og
Orlando hafa aldrei verið nánari og
eru mjög hamingjusöm. Hann
ætlar að heimsækja hana í París í
næstu viku,“ sagði móðir Miröndu
um málið.
Fjölskyldan kemur
Miröndu til hjálpar
Eru Orlando og Miranda hætt
saman eða ekki?
SYNGUR OG LEIKUR
Michelle Williams fetar í fótspor
Beyoncé Knowles og Kelly Rowland
og gefur út sína fyrstu poppsólóplötu í
september.
Michelle gerir sólóplötu
GUÐMUNDUR
INGI ÞORVALDS-
SON
Fer fyrir Atóm-
stöðinni.