Fréttablaðið - 21.07.2008, Page 48

Fréttablaðið - 21.07.2008, Page 48
GÓÐAN DAG! Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík Akureyri Heimild: Almanak Háskólans SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060 VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000 BAKÞANKAR Þráins Bertelssonar Í dag er mánudagurinn 21. júlí, 204. dagur ársins. 4.01 13.34 23.05 3.21 13.19 23.13 Í upphafi sólarlandaferða fór miklum sögum af heimóttar- hætti Íslendinga. Þá hófust öll ferðalög í keflvískum bárujárns- skúr þar sem ferðafólk tók til við að sturta í sig brenndum drykkj- um klukkan sex á morgnana þótt penar dömur og bindindismenn létu sér nægja að kneyfa sterkan bjór. Á þessum tíma stóð Íslend- ingum mikill stuggur af lifnaðar- háttum annarra þjóða, einkum mataræði þeirra, og höfðu það fyrir satt að útlendingar nærðust mestan part á froskum. Mótleik- urinn var sá að taka með sér nestis- skrínu og halda kyrru fyrir á hótel- herbergi sínu og stýfa súra hrútspunga úr hnefa og skola niður með rommi í kók í stað þess að láta eitra fyrir sér á veitinga- húsum. ÚTLENDINGAR fengu snemma það orð á sig að þeir væru ekki með öllu frómir. Íslendingum sem hleyptu heimdraganum í fyrsta sinn var jafnan ráðlagt að gæta sín á þjófum, einkum vasaþjófum. Ástæðan fyrir því að Íslendingar lögðu það yfirleitt á sig að ferðast var sú uppgötvun að verðlag á áfengi virtist tengjast breiddar- gráðum, þannig að í sólarlöndum var hægt að drekka sig í ómegin fyrir sanngjarnt verð. MEÐ tímanum hefur æ fleiri Íslendingum tekist að yfirvinna þann eðlislæga ótta sem íbúum smáeyja stafar af útlendingum. Ferðalög eru orðin almenn og matar æði þjóðarinnar hefur verið uppfært til samræmis við reynslu og kunnáttu annarra þjóða síðan frystikistan leysti saltketstunn- una af hólmi. Heimóttarhátturinn lifir þó enn í fordómafullri afstöðu til Evrópusambandsins, sem sumir telja í einlægni að hafi það eina markmið að tortíma sjálfstæði Íslendinga. Í sólarlöndum hér áður fyrr þóttu heimsóknir fordrukkinna Íslend- inga næstum jafnfyrirkvíðanleg- ar og herferðir Þjóðverja. Allt hefur þetta þó breyst og mörland- inn er talinn meðal reffilegri þjóða á baðströndum heimsins. Jafnvel íslenskir karlmenn vekja athygli fyrir fágaða framkomu, að ekki sé minnst á íslenskt kvenfólk sem löngum hefur talist alheimsprýði – enda eru íslenskar konur komn- ar af írskum prinsessum meðan við karlmennirnir rekjum ættir okkar til norskra víkingadurga. Íslensk siðfágun

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.