Fréttablaðið - 23.07.2008, Page 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 512 5000
MIÐVIKUDAGUR
23. júlí 2008 — 199. tölublað — 8. árgangur
VEÐRIÐ Í DAG
Í fullkomnu óttaleysi
„Nú eru nefnilega úr gildi gengin
þau ævafornu sannindi að við
ekkert séu yfirvöld jafn hrædd og
sína eigin þegna,“ skrifar Einar Már
Jónsson.
Í DAG 16
Fullt af eldmóði
Ungt listafólk heldur
listahátíðina Eldur í
Húnaþingi í vikunni.
TÍMAMÓT 18
Masterklass
Girnileg nýjung
með 2 í pakka.
Fæst í næstu verslun.
Meistara-
flokkssúpur
Nýjung
FRÁBÆR TILBOÐ!
SÉRBLAÐ FYLGIR
Þú færð á öllum
þjónustustöðvum N1
26
79
/
IG
12
SALÓME RANNVEIG GUNNARSDÓTTIR
Naggrísir flottur réttur í
fjallaþorpum Ekvador
• ferðir • bílar • sumar
Í MIÐJU BLAÐSINS
HEIMILI HEILSA SUMAR BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA GRÆJUR ATVINNA TILBOÐ VINNUVÉLAR O.FL.
krónum lagið
Frá
Fyll'ann takk!
Salóme Rannveig Gunnarsdóttir lasem sjálfb
Tölvukennari í fjallaþorpi
Salóme klædd í þjóðbúning Ekvador. Hún kenndi eina fimm mánuði í litlu fjallaþorpi þar.
FRÉTTABLAÐIÐ/AUÐUNN
YNGRA BROTAJÁRNTæplega átta
þúsund bílar fara árlega í brotajárn hér á landi og bíl-arnir sem fargað er verða sífellt yngri.
BÍLAR 2
Á FRAMANDI SLÓÐUMThe Big Five-maraþonið er maraþon sem hlaupið er í þjóðgarði í Suður-Afríku innan um villt dýr.
FERÐIR 4
Dugguvogi 2 /Simi 557 9510 / patti.is
Komdu á vinalegu húsgagna lagersölunaAlmennur opnunartímiMán - Föstudagar 09 - 18
Út með gamalt
Inn með nýtt
DAGUR KÁRI PÉTURSSON
Átta ára
ferli að ljúka
Tökum á The Good Heart lokið
FÓLK 22
Mikill heiður
Ólöf Arnalds er
fyrsti Íslendingur-
inn sem býðst að
fara á tónlistarráð-
stefnuna World
Music Expo.
FÓLK 24
BÍLAR Átta þúsund voru settir í
úrvinnslu á síðasta ári. Bílar sem
settir eru í brotajárn eru sífellt
yngri, en árið 2007 var meðalald-
ur úrvinnslubíla 13,88 ár. Árið
2005 var meðalaldur bíla sem
fóru í brotajárn 14,53 ár.
Sé litið til bílasölu á síðustu tíu
árum má ætla að árið 2020 verði
um 16 þúsund bílum fargað á ári.
Bílasala hefur aukist um 97
prósent á tíu árum, en árið 1997
voru 12.551 ökutæki nýskráð hér
á landi. Árið 2007 voru nýskráð
ökutæki hins vegar 24.800 talsins.
Ef miðað er við meðalaldur
úrvinnslubíla í fyrra má gefa sér
að flestir þeirra hafi verið af
árgerð 1994, en það ár voru þó
einungis nýskráðir hér á landi
6.710 bílar.
Stærstur hluti úrvinnslubíla er
seldur í brotajárn eftir að búið er
að taka úr þeim seljanlega
varahluti. - tg / sjá Allt
8.000 bílum fargað í fyrra:
Sífellt yngri bíl-
ar í brotajárn
BRAGGAR Á FERÐ „Hálendisvegirnir eru erfiðir þessum bílum,“ sagði Daninn Peter þegar ljósmyndari Fréttablaðsins hitti hann á
Víðistaðatúni í Hafnarfirði í gær. Hópur erlendra ferðamanna ferðast um þessar mundir um landið á Citroën-bröggum.
FÓLK „Þetta er mun meira
framandi en ég bjóst við. Ég hélt
að borgin væri vestrænni. Þetta
er svona eins og
úr 1001 nótt;
slöngur, apar og
eyðimerkur-
stormar,“ segir
Gísli Örn
Garðarsson
leikari. Gísli er
staddur í
Marokkó þar
sem tökur
hófust á næstu
stórmynd framleiðandans Jerry
Bruckheimers í gær. Myndin
heitir Prince of Persia: The Sands
of Time og fer Gísli með eitt af
aðalhlutverkunum.
Með önnur aðalhlutverk í mynd-
inni fara Jake Gyllenhaal, Ben
Kingsley og Alfred Molina. Gísli
verður við tökur með hléum fram
í nóvember. - shs / sjá síðu 30
Gísli Örn Garðarsson:
Kominn í faðm
Bruckheimers
GÍSLI ÖRN
GARÐARSSON
VIÐSKIPTI Forskot þjóðarinnar liggur
í nýtingu náttúruauðlinda segja
þingmennirnir Bjarni Benedikts-
son og Illugi Gunnarsson. Í opnu-
viðtali í Markaðnum segja þeir
minna bera í milli stjórnarflokk-
anna í stóriðjumálum en margir
vilji halda. Þeir viðurkenna að hér
hafi verið gerð mistök í hagstjórn,
svo sem með skorti á stuðningi við
stefnu Seðlabankans.
Illugi og Bjarni segja áhrif spá-
kaupmennsku með svonefnd krónu-
bréf skaðleg fyrir hagkerfið hér.
„Við verðum að komast út úr þeim
vítahring og fá þess í stað erlenda
fjármuni í formi langtímafjárfest-
inga. Ég tel að peningamálastefna
Seðlabankans hafi lent í miklum
ógöngum,“ segir Illugi og kveður þá
stöðu að stýrivextir Seðlabankans
séu nú fyrst og fremst notaðir til að
hafa áhrif á gengi krónunnar kalla á
endurmat peningamálastjórnarinn-
ar. „Auðvitað er hægt að stöðva
verðbólgu með því að drepa hag-
kerfið með vöxtum en það er ekki
ásættanleg niðurstaða.“
Þingmennirnir leggja áherslu á
mikilvægi þess að sýna megi fram á
að íslenskt hagkerfi horfi ekki fram
á langvarandi stöðnunarskeið. „Við
hljótum í þessu tilliti að horfa til
nýtingar náttúruauðlinda okkar, því
þar höfum við sannanlega forskot á
aðrar þjóðir,“ segir Bjarni. Þá bend-
ir Illugi á að sigli landið inn í mikla
kreppu sé sú hætta fyrir hendi að
alþjóðlegir lánveitendur ákveði að
lána ekki íslenskum bönkum.
Bjarni og Illugi kalla á næstu 12
til 18 mánuðum eftir sameinuðu
átaki til að taka á þeim vandkvæð-
um sem hér plaga efnahagslífið, þar
sem Seðlabanki og ríkisstjórn geri
sitt, bankarnir gætu létt á hagkerf-
inu með stofnun erlendra dótturfé-
laga, atvinnurekendur stilli verð-
hækkunum í hóf og
verkalýðshreyfingin sýni áfram
ábyrgð.
Umræðu um gjaldmiðil í stað
krónunnar segja þeir eðlilega í ljósi
mikilla sveiflna hennar. Takist ekki
að hemja þær segir Illugi ljóst að
skoða verði aðrar leiðir. Bjarni
segir að viðurkenna verði hvað
óstöðugleiki krónunnar valdi mikl-
um vandkvæðum. Hann segir vafa-
samt eins og málum sé komið að
kostir sjálfstæðrar myntar vegi
upp ókostina af sveiflum hennar.
- óká/bih / Sjá Markaðinn
Vítahring krónu-
bréfa þarf að rjúfa
Hjálpa þarf Seðlabankanum að búa til aðstæður þar sem hægt er að lækka vexti,
segja tveir þingmenn Sjálfstæðisflokks. Nýtingu náttúruauðlinda segja þeir geta
orðið til að skapa traust á hagkerfinu. Krónan ónýt verði hún ekki hamin.
LÍTIL VÆTA Í dag verður suðaustan
3-8 m/s en stífari SV- og V-til. Bjart
NA- og A-til og þurrt að mestu. Dá-
lítil rigning eða súld SV- og V-lands.
Hiti á bilinu 12-20 stig, hlýjast á
norðaustanverðu landinu.
VEÐUR 4
13 16
18
1212
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/S
TE
FÁ
N
Toppliðin á sigurbraut
Valur og KR þurftu að hafa fyrir
þremur stigum í
Landsbankadeild
kvenna í gærkvöldi
en voru sem fyrr á
sigurbraut.
ÍÞRÓTTIR 26