Fréttablaðið - 23.07.2008, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 23.07.2008, Blaðsíða 8
8 23. júlí 2008 MIÐVIKUDAGUR AFRÍKA, AP Meira en fjórtán milljónir manna í Austur-Afríku reiða sig á matvælaaðstoð sökum hækkandi matvælaverðs og þurrka á svæðinu, að sögn talsmanna matvælaaðstoðar Sameinuðu þjóðanna. Ástandið er sérstaklega slæmt í Eþíópíu og Sómalíu sem eru meðal fátækustu ríkja heims. Erfitt hefur reynst að aðstoða fólk í Sómalíu. Landið hefur í raun verið stjórnlaust frá því að sósíalískum einræðisherra var steypt af stóli árið 1991. Fimm hjálparstarfsmenn hafa verið myrtir þar á árinu og fleirum rænt fyrir lausnargjald. - gh Hungursneyð í Austur-Afríku: Fjórtán milljón- ir hjálparþurfi SÓMALÍA Stríðsherrar ráða ríkjum í Sómalíu. FRÉTTABLAÐIÐ/AP Vík Selfoss Sparaðu hjá Orkunni í dag! -2 krónur í Vík í Mýrdal í dag! www.orkan.is SPÁÐU Í HVAÐ ÞÚ SPARAR! 1 árs í dag! Afsláttur er veittur af almennu verði Orkunnar sem er 172,1 kr. á 95 okt. bensíni og 190,0 kr. á dísel. M.v. verð 23. júlí 2008. 1 Hvaða götur í Reykjavík er áformað að leggja í stokk? 2 Hverjir tóku við þjálfun ÍA í knattspyrnu á dögunum? 3 Hvar mótmæltu meðlimir Saving Iceland á mánudaginn? SVÖRIN ERU Á SÍÐU 30 JÓRDAN, AP Barack Obama, forseta- frambjóðandi Demókrataflokksins í Bandaríkjunum, er nú á ferðalagi um Mið-Austurlönd og Evrópu. Ferðalaginu er ætlað að efla ímynd Obama í utanríkismálum. Margir telja meiri pólitíska reynslu Johns McCains, frambjóðanda Repúblik- anaflokksins, veita honum forskot í utanríkismálum. Obama heimsótti fyrst Afganist- an þar sem hann ræddi meðal ann- ars við Hamid Karsaí, forseta Afganistans. Obama hefur lagt til að herafli Bandaríkjamanna í Afganistan verði aukinn til að berj- ast gegn hryðjuverkamönnum sem eiga aðsetur á landamærum Afgan- istans og Pakistans. Obama flaug næst til Íraks þar sem hann ræddi meðal annars við Nouri al-Maliki, forsætisráðherra Íraks, og ættbálkaleiðtoga sem hafa barist gegn liðsmönnum hryðjuverkasamtakanna al-Kaída í Írak. McCain hefur sagt Obama hafa lítinn skilning á málefnum Íraks, en McCain hefur sjálfur heimsótt Írak átta sinnum síðan Íraksstríðið hófst. Obama ítrekaði það markmið sitt að draga herafla Bandaríkja- manna frá Írak innan sextán mán- aða frá því hann yrði kjörinn for- seti, nái hann kjöri. Það var nokkur sigur fyrir Obama að írösk stjórn- völd tóku undir að herafli Banda- ríkjamanna ætti að vera farinn frá Írak árið 2010. David Petraeus, yfirmaður herafla Bandaríkjanna í Írak, hefur þó lýst sig andvígan því að setja tímaramma fyrir brottför bandarísks herafla frá Írak. Næsti viðkomustaður Obama var Jórdanía þar sem hann ræddi við Abdullah Jórdaníukonung. Hann hélt þar blaðamannafund þar sem hann ræddi stöðu Ísraels og Palestínu. Hét hann því að vinna að friðsamlegri sambúð sjálf- stæðra ríkja Ísraels og Palestínu. Hann hélt seinni partinn í gær áleiðis til Ísraels þar sem hann ræðir meðal annars við Ehud Olmert, forsætisráðherra Ísraels. Hann mun einnig heimsækja Vest- urbakkann í Palestínu og ræða við Mahmoud Abbas, forseta palest- ínsku heimastjórnarinnar. Obama mun á næstu dögum heimsækja Þýskaland, Frakkland og Berlín. Hann mun halda ræðu í miðborg Berlínar á morgun sem búist er við að þúsundir muni hlýða á. gunnlaugurh@frettabladid.is Efld ímynd Obama í utanríkismálum Barack Obama er nú á ferðalagi um Mið-Austurlönd og Evrópu sem, að minnsta kosti að hluta til, er ætlað að efla ímynd hans í utanríkismálum. Forsetaframbjóðandinn leggur áherslu á pólitíska lausn í Írak. BLAÐAMANNAFUNDUR Í JÓRDANÍU Fyrir aftan Barack Obama sitja þingmennirnir Jack Reed og Chuck Hagel sem fylgt hafa honum á ferðalögum hans. Í bakgrunni er Amman, höfuðborg Jórdaníu. NORDICPHOTOS/AFP SAMGÖNGUR Viðamiklar vegafram- kvæmdir standa nú yfir á Norðausturlandi. Helstu verkefn- in eru nýr vegur yfir Melrakka- sléttu, nýr vegarkafli milli Vopnafjarðar og Hringvegar og á Hringvegi við Arnórsstaðamúla. Einnig verður hafist handa við nýjan Dettifossveg vestan Jökulsár á Fjöllum. Stærsta framkvæmdin er nýbygging á um 56 kílómetra vegi milli Öxarfjarðar og Þistilfjarðar um Hólaheiði og Hófaskarð, með tengingu til Raufarhafnar. Nýr vegur verður einnig byggður á 44 kílómetra leið milli Hringvegar og Vopnafjarðar. - vsp Viðamiklar vegaframkvæmdir: Norðausturland tekið í gegn FÉLAGSMÁL Jóhanna Sigurðardótt- ir, félags- og tryggingamálaráð- herra, hefur staðfest tillögur Framkvæmdasjóðs fatlaðra um úthlutun úr sjóðnum fyrir árið 2008. Alls var 1.032,5 milljónum króna úthlutað. Um 800 milljón- um króna verður varið til uppbyggingar búsetuúrræða fyrir fatlaða. Alls fara 595 milljónir króna í verkefni tengd Straumhvörfum en það er átaksverkefni um eflingu þjónustu við geðfatlaða. Tæpum 200 milljónum króna verður varið til uppbyggingar búsetuúrræða fyrir aðra hópa fatlaðra og bættrar aðstöðu. - vsp Efling búsetuúrræða fatlaðra: 800 milljónir í búsetuúrræði PORTÚGAL, AP Lögreglurannsókn á hvarfi bresku stúlkunnar Madeleine McCann í Portúgal hefur verið hætt. Lögreglan í Portúgal segist engin ummerki hafa fundið um að glæpur hafi verið framinn. Rannsókn málsins hefur staðið yfir í fjórtán mánuði. Madeleine var rétt að verða fjögurra ára gömul þegar hún hvarf á ferðamannastað í Portúgal í maí árið 2007. Foreldr- ar hennar höfðu skilið hana eftir á hótelherbergi sínu meðan þau brugðu sér frá í kvöldmat. Hvarf hennar vakti heimsat- hygli og beindist grunur meðal annars á tímabili að foreldrum hennar. - gb Lögreglan í Portúgal: Rannsókn hætt á barnshvarfi MADELEINE MCCANN ORKA „Eiginfjárstaða Orkuveitu Reykjavíkur fór úr 46 prósent- um og niður fyrir 30 á tímabili, vegna gengishrunsins,“ segir Sigrún Elsa Smáradóttir, stjórn- armaður Orkuveitunnar (OR). Íslenski gjaldmiðillinn skapi mikla óvissu í rekstri og skuldir fyrirtækisins hafi magnast upp þegar krónan féll. Greint hefur verið frá því í Fréttablaðinu að gengishrunið hafi kostað OR tugi milljarða frá áramótum. Nákvæmari tölur fást ekki fyrr en eftir að sex mánaða uppgjör fyrirtækisins verður birt í byrjun ágúst, segir Hjör- leifur B. Kvaran, forstjóri Orku- veitunnar. „Hún er betri en í mörgum fyrirtækjum. En við erum í sömu vandræðum og aðrir,“ segir hann. Sigrún Elsa bað fjármálastjóra fyrirtækisins fyrir nokkru að gera grein fyrir þeim kostnaði sem Orkuveitan ber af krónunni. „Miðað við áætlanir lítur út fyrir að við komum til með að fá um 75 prósent tekna í íslenskum krónum í framtíðinni. Verð- tryggð lán í krónum, með þessa háu vexti, eru hins vegar ósam- bærileg við erlend lán. Því erum við í þessari prísund og verðum að taka erlend lán með gengis- áhættu,“ segir hún: „Og það felur í sér þessar óþolandi sveiflur í rekstri.“ - kóþ Stjórnarmaður Orkuveitu segir krónuna skapa fyrirtækinu mikil vandræði: Eiginfjárstaða versnað mikið HJÖRLEIFUR B. KVARAN SIGRÚN ELSA SMÁRADÓTTIR Martha fór í lónið Bandaríska sjónvarpsstjarnan Martha Stewart fór í gær í Bláa lónið ásamt fylgdarliði sínu. Samkvæmt vefsíðu Víkurfrétta snæddi hún einnig hádeg- isverð á Lava, veitingastað lónsins, auk þess sem hún tilkynnti að hún hefði notað húðvörur Bláa lónsins árum saman. FERÐAMENNSKA Trjásamningi Gísla rift Samningur sem Gísli Marteinn Baldursson, formaður umhverfis- og samgöngusviðs Reykjavíkurborg- ar, undirritaði við Skógræktarfélag Reykjavíkur í júní uppfyllir ekki efnis- kröfur og verður dreginn til baka, að sögn Vísis.is. REYKJAVÍK VEISTU SVARIÐ?

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.