Fréttablaðið - 23.07.2008, Page 17
HEIMILI HEILSA SUMAR BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA GRÆJUR ATVINNA TILBOÐ VINNUVÉLAR O.FL.
krónum lagið
Frá
Fyll'ann takk!
Á Tónlist.is getur þú nálgast yfir 50.000 lög og fyllt
spilarann þinn af topptónlist. Allt efni á Tónlist.is er
ólæst (DRM laust) og kostar frá 79 krónum lagið.
Þannig getur þú fært tónlistina hindrunarlaust á milli
tölvunnar, spilarans og farsímans.
Vertu tilbúinn í sumarfríið!
Salóme Rannveig Gunnarsdóttir laganemi fór
sem sjálfboðaliði til Ekvador í Suður-Ameríku
stuttu eftir að hún kláraði menntaskóla.
„Ég kláraði menntaskóla á þremur og hálfu ári og fór
svo að ferðast þar til ég byrjaði í háskóla,“ segir Sal-
óme brosandi og bætir við að ferðalagið sé það eftir-
minnilegasta sem hún hefur farið í.
Salóme fór til Ekvador sem sjálfboðaliði á vegum
svissneskra samtaka. „Ég bjó í fjallaþorpi með frum-
byggjum Ekvador og kenndi ensku, líkamsrækt og
tölvur í skólanum þar. Eina tölvan var ótrúlega gömul
og virkaði ekki alveg,“ segir Salóme hlæjandi og upp-
lýsir að hún hafi kennt krökkunum að skrifa á lykla-
borð. „En það tók alveg rosalega langan tíma.“
Salóme segir að ýmislegt sé frábrugðið í Ekvador,
samanborið við Ísland. „Íbúar Ekvador borða naggrísi.
Það er flottur réttur þar. Í eldhúsunum hlaupa naggrís-
irnir um, við fæturna á fólki og þegar farið er að elda
er bara einn tekinn og hann drepinn,“ upplýsir Salóme.
Hún segist hafa smakkað naggrís og lýsir bragðinu
svipuðu og kjúklingi en aðeins bragðsterkari. „Ég þótti
ótrúlega skrýtin því mér fannst naggrísirnir svo sætir
að ég var alltaf að taka þá upp og klappa þeim og vera
góð við þá.“
En allt tekur enda um síðir, ferðalög sem annað. „Mig
langaði ekkert heim en ég bara þurfti að fara,“ segir
Salóme og bætir við að hún hafi byrjað í háskólanum
þremur dögum eftir að heim var komið. „Mér fannst
skrýtið að byrja í lögfræði og sitja á Þjóðarbókhlöð-
unni alla daga eftir þetta ferðalag.“ martaf@frettabladid.is
Tölvukennari í fjallaþorpi
Salóme klædd í þjóðbúning Ekvador. Hún kenndi eina fimm mánuði í litlu fjallaþorpi þar. FRÉTTABLAÐIÐ/AUÐUNN
YNGRA BROTAJÁRN
Tæplega átta
þúsund bílar fara
árlega í brotajárn
hér á landi og bíl-
arnir sem fargað er
verða sífellt yngri.
BÍLAR 2
Á FRAMANDI SLÓÐUM
The Big Five-maraþonið er
maraþon sem hlaupið er
í þjóðgarði í Suður-Afríku
innan um villt dýr.
FERÐIR 4
Dugguvogi 2 /Simi 557 9510 / patti.is
Komdu á vinalegu
húsgagna lagersöluna
Almennur opnunartími
Mán - Föstudagar 09 - 18
Út með gamalt
Inn með nýtt
TILBOÐSDAGAR: 17.JÚLÍ - 1.ÁGÚST 25 - 70%
Atson • Brautarholti 4 • s. 561-0060 • www.atson.is
Opnunartími:
mán. - mið. 11:00 - 18:00
fi mmtud. 11:00 - 19:00
föstud. 11:00 - 16:00