Fréttablaðið - 23.07.2008, Qupperneq 18

Fréttablaðið - 23.07.2008, Qupperneq 18
[ ] Bílasala hefur aukist um tæplega 100 prósent á síðustu tíu árum. Bílar sem fargað er verða sífellt yngri. Fyrir 11 árum, 1997, voru 12.551 ökutæki nýskráð samkvæmt Umferðastofu. Tíu árum síðar, 2007, voru þau 24.800. Aukningin er 97 prósent. En hvað verður um alla þessa bíla? Þeir bílar sem ljúka lífdögum sínum á vegum lands- ins fara flestir til úrvinnslu hér á landi. Þeir eru að einhverju leyti nýttir í varahluti, og spilliefni eru fjarlægð og þeim fargað á viðeigandi hátt. Stærstur hluti bílanna fer hins vegar í brotajárn sem selt er erlendis. Samkvæmt tölum frá úrvinnslusjóði var 7.997 bílum skilað til úrvinnslu hérlendis árið 2007. Meðal- aldur bílanna var 13,88 ár og höfðu þeir yngst nokkuð frá fyrri árum. Til dæmis var meðalaldur þeirra 14,53 ár árið 2005. Í þessu samhengi er fróðlegt að skoða hversu margir bílar voru nýskráðir fyrir 13 árum, en miðað við meðalaldur úrvinnslubíla árið 2007 ættu flestir þeirra að hafa rennt úr hlaði bíla- sala 1994. Það árið voru 6.710 bílar nýskráðir svo þjóðin er að skila af sér fleiri bílum en voru nýskráð- ir á árinu. Miðað við núverandi þróun í nýskráningu má búast við því að árið 2020 verði um 16.000 bílum skilað í brotajárn. Það er að segja ef kreppan gerir ekki út af við efnahaginn og þjóðin keyri enn um á Range Rover árgerð 2007. tryggvi@frettabladid.is Tæplega átta þúsund bílar í brotajárn Langstærstur hluti bíla landsmanna endar í brota- járni sem selt er erlendis. Einhverju af varahlutum er þó bjargað úr bílunum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Volvo hefur tekið til sinna ráða til að sporna gegn umferðarslysum og leggur nú enn frekari áherslu á öryggi og hefur sett sér háleitt framtíð- armarkmið um fækkun slysa. KERRUÖXLAR Í ÚRVALI og hlutir til kerru- smíða Vagnhöfða 7 110 Reykjavík Sími: 517 5000 Árg. 2006 ekin 20 þús mílur. Leður, sjálfsk. fi lmur, tölvukubbur, 35” breyttur, dráttarbeisli, segl yfi r palli. Ásett 4,6 milljónir. Uppl. hjá Bílasölu Selfoss í síma 482 4002 www.bilasalaselfoss.is DODGE RAM 2500 5,9 CUMMINGS DIESEL LARIAT 35” BREYTTUR.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.