Fréttablaðið - 23.07.2008, Qupperneq 40
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
BAKÞANKAR
Þórhildar Elínar
Elínardóttur
Ef íslenskur almannarómur gæti njörvað skoðun á þjóðum
heims niður í eitt orð yrði niður-
staðan kannski sú að til dæmis
væri sú þýska skipulögð, danska
afslöppuð, norska trúrækin en
írska, rússneska og grænlenska
staupsöm. Finnska þjóðarsálin
væri lokuð, bandaríska yfirborðs-
leg og þannig áfram. Einn fjöl-
margra víðkunnra sleggjudóma er
svo vitaskuld að Svíar séu almennt
og yfirhöfuð hroðalega leiðinlegir.
Nokkrar hinna örugglega dálítið
líka, en samt einkum og sér í lagi
sænska þjóðin.
Í SÉRSTAKRI rannsóknarferð til
Svíþjóðar í sumar lagði ég tölu-
vert púður í að kveða niður eigin
þjóðarfordóma en var vakin og
sofin í að vera viðustyggilega
sænsk alla daga og dró fjölskyld-
una með í verkefnið. Satt best að
segja gekk það furðu vel.
STRAX á þriðja degi var ég farin
að tala prýðilega sænsku með
syngjandi góðum framburði. Orða-
forðinn var raunar nokkuð tak-
markaður framanaf, en snäll og
bra eru fín orð til uppfyllingar við
ýmis tækifæri. Með hrökkbrauð í
annarri og Ramlösa í hinni eru
Skandínavanum allir vegir færir
ef hann kann að segja snäll og bra.
Þessu stagli fylgdi reyndar dálítill
veruleikaflótti sem kemur sér
annars yfirleitt vel í fríum þegar
markmiðið er einmitt að frelsa
hugann frá hversdagslegum barn-
ingi. Í þetta sinnið brast hann á
sem óvænt myrkfælni sem pass-
aði hvorki við sumarbjartar nætur
né rómantískt umhverfið.
HIN sænsku híbýli fjölskyldunn-
ar voru raunar margra alda gömul.
Þar marraði í öllum hurðum og
brast í hverri fjöl, þetta var áþekkt
því að búa í húsi úr Árbæjarsafn-
inu og þannig mjög draugalegt.
Laus úr viðjum vanans fór stjórn-
laus ímyndun um voveiflega dauð-
daga og fordæmdar sálir á flug.
Eftir sólsetur byrjaði ég að anda
grunnt og fór ekki fylgdarlaust
milli herbergja. Á meðan var
skynsemin upptekin við sænsk-
una.
EFTIR að hafa ekið vikum saman
á Volvo hlustandi á Abba er ég
samt sannfærð um að allt skemmti-
legt komi frá Svíþjóð og finnst ég
fyndnari en nokkru sinni fyrr. Nú
les ég eingöngu Astrid Lindgren
fyrir börnin og Lizu Marklund
fyrir sjálfa mig. Niðurtúrinn eftir
heimkomuna hefur fjölskyldan
svo auðvitað notað í Ikea við að
skoða hagnýta innanstokksmuni
og borða sænskar kjötbollur.
Sænska
sumarið
Í dag er miðvikudagurinn 23.
júlí, 206. dagur ársins.
4.07 13.34 22.59
3.29 13.19 23.06
Þá smælar heimurinn framan í þig
Við hjá Toyota erum stolt af því að hafa verið hluti af
íslensku samfélagi í hartnær 40 ár og hlökkum til að takast
á við verkefni morgundagsins, með bros á vör. :-)
www.toyota.is
framan í heiminn
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
T
O
Y
4
26
76
0
6/
08
Toyota á Íslandi
Nýbýlavegi 2-8
200 Kópavogi
Sími: 570-5070