Fréttablaðið - 26.07.2008, Qupperneq 6
6 26. júlí 2008 LAUGARDAGUR
STÓRIÐJA Össur Skarphéðinsson
iðnaðarráðherra velti þeirri
spurningu upp á bloggsíðu sinni í
fyrradag hvort skynsamlegt væri
að bjóða út orkuvinnsluna á
háhitasvæðunum á Norðaustur-
landi.
„Það myndi styrkja orkufyrir-
tækin íslensku, sem efalítið yrðu
hlutskörpust, og það myndi losa
eigendur Landsvirkjunar, ríkið
og skattborgarana undan þeirri
áhættu sem Landsvirkjun sjálf
var að kvarta undan í Fréttablað-
inu á dögunum,“ segir í færsl-
unni. Enn fremur bendir hann á
að fyrirtæki eins og Enex og
Geysir Green gætu vel verið til
þess fallin að taka verkefnið að
sér. Svæðin sem um ræðir eru
Þeistareykir, Bjarnarflag, Krafla
og Gjástykki.
„Landsvirkjun hefur enga
skoðun á þessum hugmyndum
iðnaðarráðherra,“ segir Friðrik
Sophusson, forstjóri Landsvirkj-
unar. „Fyrirtækið fer einfaldlega
eftir þeim lögum og reglum sem
gilda hverju sinni. Það væri hins
vegar nær að spyrja landeigend-
ur á svæðinu sem um ræðir
hvernig þeim lítist á þessar hug-
myndir.“
„Það á við í þessu eins og öðru
að það er ekki á valdi neins nema
eiganda að bjóða eitthvað út,“
segir Guðrún María Valgeirsdótt-
ir, sveitarstjóri Skútustaða-
hrepps, en þar eru Bjarnarflag
og Krafla sem eru í eigu landeig-
enda í Reykjahlíð og síðan hluti
Gjástykkis.
„Í öðru lagi hefur Landsvirkj-
un fengið einkarétt til rannsókna
og nýtingar á þessum svæðum og
á þar að auki hlut í Þeistareykj-
um ehf. sem vinna að þessu verk-
efni með þeim svo að réttur fyr-
irtækisins til að nýta svæðið ætti
að vera nokkuð vel tryggður.
Þannig að ég veit ekki hvað er
verið að fara með þessari hug-
mynd,“ segir hún.
„Það er áhætta í öllum stórum
verkefnum og við sem höfum
unnið að þessu verkefni höfum
lagt mikið til þess, unnið vel
saman og vandað okkur við að ná
settu marki og það er mjög dap-
urt ef menn ætla að fara að rugga
þessum báti,“ segir Bergur Elías
Ágústsson, sveitarstjóri Norður-
þings og stjórnarmaður í Þeista-
reykjum.
„Það hafa verið lagðir rúmlega
fimm milljarðar til þessa verk-
efnis þó ekki sé búið að skrifa
undir samninga, mér er það til
efs að eitthvert einkafyrirtæki
væri tilbúið til slíks,“ segir
Hreinn Hjartarson, verkefna-
stjóri Þeistareykja ehf.
Ekki náðist í Össur Skarphéð-
insson vegna vinnslu fréttarinn-
ar. jse@frettabladid.is
Vill losa Landsvirkj-
un frá áhættunni
Iðnaðarráðherra stingur upp á að bjóða út verkefnið á háhitasvæðum á Norð-
austurlandi til að losa Landsvirkjun, ríki og skattborgara undan áhættunni sem
því fylgir. Sveitarstjóri Skútustaðahrepps segir eigendur eina geta boðið út verk.
„Áherslur Landsvirkjunar fyrir norðan eru mér
óskiljanlegar,“ sagði Össur Skarphéðinsson
í viðtali við Fréttablaðið fyrr í vikunni. „Þar
einblínir stofnunin á vestursvæðið í Kröflu og
Gjástykki í stað þess að einhenda sér í vinnslu
á Þeistareykjum þar sem saman fer mikið
vatnsflæði í gegnum svæðið og mikill og hár
hiti. Og ég segi það bara hreint út að ég veit
ekki hvernig þeir ætla að vera tilbúnir með
orku í Bakka með þessu áframhaldi.“
Friðrik Sophusson, forstjóri Landsvirkjunar,
er bjartsýnn á að það takist að finna næga
orku á svæðinu áður en skrifað verður undir
samninga við Alcoa í árslok 2009. „Við værum ekki að
þessu nema að við teldum okkur geta fundið þá
orku sem til þarf,“ segir hann.
Hreinn Hjaltason, verkefnastjóri hjá Þeista-
reykjum ehf., sem vinnur að verkefninu með
Landsvirkjun, segir verkefnið ganga vel. „Miðað
við þann framkvæmdahraða sem er á álverinu þá
erum við á góðu róli og engin þörf á að fara öllu
hraðar,“ segir hann. Hann segir enn fremur að
ráðgert hafi verið að finna jarðvarma fyrir um 150
megavött (MW) og nú þegar hafi fundist nægur
varmi fyrir um 100 MW en álverið á Bakka mun
þurfa um 400. „Það hefur aldrei staðið til að
finna þessi 400 MW áður en að framkvæmdir við
álverið hæfust.“ - jse
Efast um að næg orka finnist
BAKKI Á TJÖRNESI Landsvirkjun, Þeistareykir ehf. og sveitarfélögin á svæðinu hafa lagt um fimm milljarða í verkefnið á háhita-
svæðunum á Norðausturlandi vegna fyrirhugaðs álvers á Bakka.
ÖSSUR
SKARPHÉÐINSSON
FRIÐRIK
SOPHUSSON
BERGUR ELÍAS
ÁGÚSTSSON
TONGA, AP George Tupou fimmti,
konungur í Tonga, hefur staðið við
loforð sín um að selja öll fyrirtæki
sín áður en hann verður krýndur
með pomp og prakt í ágústbyrjun.
George konungur var auðugur
kaupsýslumaður og glaumgosi
áður en hann tók við konungstign
þegar faðir hans, Tupou fjórði, lést
í hárri elli fyrir tæpum tveimur
árum.
Hann átti ráðandi hlut í flestum
stærstu fyrirtækjum landsins.
Opinberri krýningu hans var
frestað haustið 2006 eftir að
miklar óeirðir brutust út í
höfuðborginni Nukualofa. - gb
Kóngurinn í Tonga:
Hefur selt öll
fyrirtæki sín
GEORGE KONUNGUR Auðugasti mað-
urinn á Tonga hefur beðið krýningar í
nærri tvö ár. NORDICPHOTOS/AFP
Finnst þér að Sigurður G. Guð-
jónsson ætti að mega verja Jón
Ólafsson?
Já 53%
Nei 47%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Er rétt að slá Bitruvirkjun af?
Segðu skoðun þína á vísir.is
KJÖRKASSINN
STJÓRNMÁL Nýlegt útboð á
þjónustu við tólf fatlaða einstakl-
inga sýnir
mannfyrirlitn-
ingu og er hugs-
anlega dæmi
um „einkavina-
væðingu“. Þetta
skrifaði
Ögmundur
Jónasson,
alþingismaður
Vinstri grænna,
á heimasíðu
sína í fyrradag.
Ögmundur segir að einstakling-
arnir hafi ekki verið spurðir álits
á útboðinu og að þeim þyki það
sýna sér fyrirlitningu.
Ögmundur gagnrýnir einnig að
opnað hafi verið fyrir útboðið 21.
júlí þótt rekstraraðili eigi að taka
við 1. ágúst. Spyr hann hvort hinn
skammi viðbragðstími sé merki
um að í raun sé búið að ákveða
fyrirfram við hvern verði samið.
- gh
Ögmundur Jónasson:
Útboð sýnir
fyrirlitningu
ÖGMUNDUR
JÓNASSON
MENNTAMÁL „Það er almennt mikil
aukning á erlendum nemum til
landsins, allavega síðustu fimm
árin,“ segir Alma Joensen,
starfsmaður Alþjóðaskrifstofu
Háskóla Íslands.
Ástæðuna segir Alma mega rekja
til þess að farið er að kenna fög í
meira mæli á ensku í háskólanum.
„Það sem er vinsælast að læra
meðal skiptinema er íslenska fyrir
erlenda nema og eru þeir nemar
ábyggilega um 40 prósent af
heildarfjölda skiptinema. Einnig er
mjög mikið um að erlendir
stúdentar komi hingað til að læra
jarðfræði, landafræði og fleiri
greinar í þeim dúr.“ - stp
Á 150 kílómetra hraða
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu tók
í gær 18 ára pilt er hann ók bifhjóli
sínu á Kringlumýrarbraut á 150
kílómetra hraða. Pilturinn fær 140
þúsund króna sekt og missir ökuleyf-
ið í tvo mánuði.
Rúta út af veginum
Farþegar sluppu ómeiddir þegar
rúta fór út af veginum norðaustan
við Hrútafjöll, skammt frá Gjástykki,
síðdegis í gær. Fólkið náði að koma
rútunni aftur upp á veginn. Björgun-
arsveit var kölluð út en aðstoð hennar
afþökkuð skömmu seinna.
LÖGREGLUFRÉTTIR
VIÐSKIPTI Ísland situr nú í 3.-4.
sæti í hinni svokölluðu Big Mac-
vísitölu, en hefur löngum verið í
toppsætinu. Í efsta sæti sitja nú
Norðmenn og í öðru sæti Sviss-
lendingar. Danir deila sætinu með
okkur.
Vísitalan, sem runnin er undan
rifjum Economist, ber saman
verð á Big Mac-hamborgaranum í
löndum heimsins. Þannig er efsta
sætið með dýrasta hamborgarann
en neðsta með ódýrasta.
Í neðsta sætinu, það er þar sem
hamborgarinn er ódýrastur, sitja
Hong Kong og Malasía.
- vsp
Big Mac-vísitalan gefin út:
Ísland er ekki
lengur á toppi
vísitölunnar
BIG MAC Borgari með sína eigin vísitölu.
Reiknað er verð borgarans í þeim lönd-
um sem selja Big Mac. NORDICPHOTOS/AFP
NÝJA-SJÁLAND, AP Stúdentar við
Háskóla Nýja-Sjálands hafa boðið
stuðning sinn við borgaralega
handtöku
Condoleezzu
Rice, utanríkis-
ráðherra
Bandaríkjanna,
fyrir meint brot
Bandaríkja-
manna gegn
Genfar-
sáttmálunum í
hinu alþjóðlega
„stríði gegn
hryðjuverkum“.
Áður höfðu þeir boðið tæplega
þrjú hundruð þúsund króna
verðlaun fyrir handtöku Rice.
Rice heimsækir í dag Nýja-
Sjáland sem hluta af ferð sinni
um Eyjaálfu og Kyrrahafseyjar.
Hún var í Ástralíu í gær. - gh
Condoleezza Rice í Eyjaálfu:
Stúdentar vilja
handtaka Rice
CONDOLEEZZA
RICE
Skiptinemum fjölgar:
Jarðfræði laðar
nemendur að
Tugir létust í bátaslysi
Að minnsta kosti 47 létust þegar
bátur sökk í norðanverðri Kongó á
þriðjudaginn. 27 farþegum hefur
verið bjargað en um hundrað er enn
saknað. Báturinn var á leið til Mið-
Afríkulýðveldisins sem á landamæri
að Kongó.
KONGÓ
DÓMSMÁL Hálfþrítugur maður,
Ragnar Davíð Bjarnason, hefur
verið dæmdur í átján mánaða
fangelsi fyrir fíkniefna- og
umferðarlaga brot. Ragnar var
tekinn með um 52 grömm af amf-
etamíni í október í fyrra og í annað
sinn með tæp fjórtán grömm af
kókaíni innanklæða þegar hann
var vistaður í fanga klefa á lög-
reglustöðinni við Hverfisgötu í
júní.
Ragnar hefur ratað í fjölmiðla
tvívegis að undanförnu. Í fyrra
skiptið þegar hann var stunginn
sjö sinnum af starfsmanni í sölu-
turni í Kaupmannahöfn. Árás-
ar maðurinn var þá ekki úrskurð-
aður í gæsluvarðhald, þar sem
lögregla taldi ljóst að Ragnar
hefði ögrað honum með ítrekuðu
kynþáttaníði.
Í síðara skiptið var sagt frá því
í DV að Ragnar hefði ráðist inn á
heimili Sæmundar Pálssonar og
ógnað honum með hnífi.
Ragnar hefur margsinnis áður
verið dæmdur í fangelsi frá árinu
1999. Þyngsta dóminn, tveggja og
hálfs árs fangelsi, hlaut hann árið
2003 fyrir tilraun til manndráps.
Honum var veitt reynslulausn
árið 2005, sem hann rauf með
brotunum sem hann er nú dæmd-
ur fyrir. Reynslulausnin er því
tekin upp.
Erfiðlega gekk að hafa uppi á
Ragnari til að fá hann til að mæta
fyrir dóm og taka afstöðu til sak-
ar efnisins. - sh
Ragnar Davíð Bjarnason dæmdur í 18 mánaða fangelsi fyrir fíkniefnabrot:
Síbrotamaður aftur í fangelsi
HÉRAÐSDÓMUR REYKJAVÍKUR Ragnar
hefur ítrekað komist í kast við lögin frá
árinu 1999. FRÉTTABLAÐIÐ / VALLI