Fréttablaðið - 26.07.2008, Side 19

Fréttablaðið - 26.07.2008, Side 19
HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA GRÆJUR ATVINNA TILBOÐ VINNUVÉLAR O.FL. Fyrir utan að vera af sjaldséðri tegund nú til dags vekur Ladan hans Kolbeins Sæmundsson- ar menntaskólakennara athygli fyrir tvennt. Að vera ákaflega vel með farin og skarta uppruna- legu skráningarnúmeri X-7975. „Ég er búinn að eiga bílinn í níu ár og tvo mánuði og hann er í ágætu lagi,“ segir Kolbeinn brattur þegar hann er inntur eftir sögu og heilsu bifreiðar sinnar. „Ladan er af árgerð 1987 og var fyrst í eigu Ingigerð- ar Jóhannsdóttur, bónda á Hamarsheiði í Gnúpverja- hreppi, sem nefndi hana Gunnu. Það nafn hefur fylgt henni síðan. Eftir lát Ingigerðar átti að leggja Löd- unni en mér bauðst hún og þekktist boðið.“ Kolbeinn kveðst fara um allt á Lödunni nema um hálendi landsins. Meira að segja á Vestfirðina og séu þó vegirnir þar ekki til að hrópa húrra fyrir. „Það er hátt undir Lödurnar og þær fara ýmislegt sem aðrir fólksbílar komast ekki,“ bendir hann á. „Svo eru þær einfaldar að gerð og fela ekki í sér flókinn tölvubún- að,“ segir hann og gerir lítið úr viðhaldskostnaði. „Það hefur þurft að skipta um hluti en bræðurnir Ragnar og Pétur í Löduþjónustunni í Kópavogi hafa séð um það. Nú eru vegirnir víðast orðnir þannig að bílar slitna lítið sem ekkert.“ Hann viðurkennir að Lödurnar hafi þótt ryðsælar en segir það ekki hafa verið vandamál með Gunnu. „Hún var svo langt uppi í sveit og slapp við ryð,“ segir hann ánægður og telur Gunnu líka fremur spar- sama á eldsneyti. Það telst mikill kostur í dag og Kol- beinn getur hrósað happi því eins og málshátturinn segir er eyðslusöm kona eldur í búi. gun@frettabladid.is Ekur um allt á Gunnu Kolbeinn fer vel með Löduna Gunnu enda þjónar hún honum af dyggð. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN BÆTT ÞJÓNUSTA Bílastæðasjóður vinnur að því að kortavæða bílastæði borgarinnar. Hægt verður að greiða fyrir stæði í gegnum GSM-síma. BÍLAR 2 ENGAN ÁTROÐNING Arnþór Gunnarsson undirbýr MA- verkefni um samspil náttúru- verndar og ferðamennsku í Vatnajökulsþjóð- garði. FERÐIR 4 Hringdu í síma ef blaðið berst ekki

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.