Fréttablaðið


Fréttablaðið - 26.07.2008, Qupperneq 21

Fréttablaðið - 26.07.2008, Qupperneq 21
LAUGARDAGUR 26. júlí 2008 3 Ten of the Best 7-keppnin fer fram á morgun í Elvington í Bretlandi. Íslendingar eiga sína fulltrúa í keppninni, feðgana Halldór Jónsson og Guðlaug Má Halldórsson, sem tefla fram rúmlega 880 hest- afla Subaru Impreza undir nafninu Team Ice. Ten of the Best-keppnin fer fram í sjöunda sinn nú um helgina í Elvington í Bretlandi. Keppt er í kvartmílu, hámarkshraða og stutt- um brautarakstri en allir bílarnir sem taka þátt eru götubílar, sem þýðir að þeir eru löglegir á götuna, skoðaðir og tryggðir. Leitað er eftir bestu bílum hverrar tegundar, auk þess sem keppt er í hverri grein fyrir sig. Aðalmálið er þó heildar- keppnin þar sem keppt er um titil- inn „besti götubíll Evrópu“. Feðgarnir Halldór Jónsson og Guðlaugur Már Halldórsson, sem mynda Team Ice, taka þátt fyrir Íslands hönd en þeir hafa nokkrum sinnum keppt með vægast sagt góðum árangri. Þeir keyra Subaru Impreza og árið 2005 urðu þeir fyrstir í Evrópu til að fara kvart- míluna á undir 10 sekúndum á bein- skiptri Impreza. Árið 2006 kepptu þeir til úrslita í kvartmílunni í Ten of the Best og sama ár enduðu þeir í fjórða sæti heildarkeppninnar. Þar með náðu þeir því markmiði að vera með einn af fimm bestu bílum keppninnar. Feðgarnir kepptu ekkert á síð- asta ári þar sem bíllinn var gjör- samlega tekinn í gegn. Útkoman er enn kraftmeiri bíll sem skilar rúm- lega 880 hestöflum. Hugsanlegt er að smávægilegar breytingar verði gerðar á bílnum rétt fyrir keppni þannig að hilla fer í 1.000 hestafla markið. Feðgarnir ættu því að eiga raun- hæfa möguleika á að jafna eða jafnvel bæta árangur sinn frá 2006. En til þess þarf allt að ganga upp og bæði bíll og ökumaður að eiga toppdag. tryggvi@frettabladid.is Einn besti götubíll Evrópu Impreza Halldórs og Guðlaugs er ein kraftmesta Impreza Evrópu. Hún er fullkomlega lögleg á götuna en þar sem bíllinn er ætlað- ur í brautarakstur er hann afar óhentugur á rúntinn að sögn Halldórs, eiganda hennar. Kúplingin vill annaðhvort vera opin eða lokuð og henni líður ekkert vel í hálfkáki eins og Halldór orðar það. MYND/ÚR EINKASAFNI Hámarkshraði bílsins er rúmlega 320 km/klst. Hraðinn gæti verið meiri eftir breytingarnar sem bíllinn gekk í gegnum á síðasta ári. MYND/ÚR EINKASAFNI Vetnis-sporðdreki RONN SCORPION ER 450 HESTAFLA VETNISTVINNBÍLL, SEM KEMUR Á MARKAÐ Í HAUST. Nú keppast bílaframleiðendur við að setja á markað vistvænni bíla sem eyða minna eldsneyti. Þetta á líka við um framleiðendur ofursportbíla, en skemmst er að minnast nýja Tesla rafmagns-sportbílsins. Nýjasti „vistvæni“ ofursportbíllinn kemur hins vegar úr óvæntri átt: Frá Ronn Motors í Texas, af öllum stöðum. Um tvinnbíl er að ræða sem nýtist við nýja vetnistækni. Vélin í Scorpion er 3,5 lítra VTEC vél með tveimur forþjöppum. Vetni er blandað við bensínið þannig að umtalsverður orkusparnaður næst. Stærstu tíðindin eru þó ef til vill sú að tæknibúnaður í bílnum vinnur vetni úr vatni og geymir það í tanki sem ekki er undir þrýstingi. Því þarf ekki að að keyra upp á Höfða í vetnisstöðina í hvert skipti sem fylla á bílinn. Vélin í bílnum skilar 450 hestöflum og ökumann- inum dálítið hreinni samvisku. - tg Scorpion þykir taka öðrum tvinnbílum fram hvað útlit varðar. MYND/RONN MOTORS Umhverfismildustu bílarnir NÝ SAMANTEKT FRÁ BRETLANDI SÝNIR AÐ BMW ER UMHVERFISMILDASTA BÍLAMERKIÐ Á MEÐAL LÚXUSBÍLA. Umhverfismildasta bílamerkið meðal lúxusbíla er BMW, að því er fram kemur í nýrri samantekt sem stofnunin Clean Green Cars gerði í Bretlandi. CO2 útblástur nýrra BMW bíla hefur minnkað um rúmlega ellefu prósent á undangengnu árstímabili og meðalútblástur bílanna er 161,64 g/km. Reyndar hefur bæði Jeep og Subaru tekist að draga meir úr útblæstrinum í prósent- um talið, sá fyrrnefndi um sautján og hinn um fjórtán prósent. En meðalút- blástur þeirra er með því mesta sem gerist eða yfir 200 g/km. Þá hefur meðalútblástur hjá Audi lækkað um 5,78 prósent niður í 177,36 g/km. Mercedes um 4,13 prósent niður í 192,85 g/km. Áhugavert er að Lexus, sem leggur talsvert upp úr tvinntæknilækkaði um 2,16 prósent. Með- alútblásturstalan er engu að síður fremur há, eða 194,85 g/km. Porsche er slakastur í flokki lúxusbifreiða, þar sem aukning hefur orðið um 0,63 prósent upp í 275,64 g/km. Sjá www.fib.is. - stp í dag klukkan 13.00 við Kvartmílubrautina Kapelluhrauni. www.kvartmila.is

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.