Fréttablaðið - 26.07.2008, Qupperneq 28
● heimili&hönnun
● BÆÐI ÞJÓÐLEGAR OG TÖFF Það hlýtur að teljast við-
eigandi að nota servíettur með lopapeysumynstri þegar þjóðleg-
ir réttir, eins og hangikjöt og flatkökur, eru snæddir, jafnvel úti í ís-
lenskri náttúru. En þær eru líka svo nútímalegar
að þær passa í hvaða samhengi sem er.
Þessar servíettur eru hannaðar
af listakonunni Heklu Björg Guð-
mundsdóttur. Þær eru tiltölulega
nýjar af nálinni en hafa algerlega
slegið í gegn á íslenskum markaði
og fást í öllum blómabúðum,
Iðu og Tekkhúsinu svo dæmi séu
tekin.
Þ að er kreppa og um að gera að spara. En spara fyrir hverju? Væri Marta Rúnarsdóttir, yfirhönnuður og eigandi Logo 69, spurð væri
svarið án efa „skóm“.
Logo 69 hefur sett á markað skóbauk-
inn, bleikan sparigrís, sem ætlað er að taka
við klinki sem til fellur og safna mynt í
magann sem síðan á að nota til skó-
kaupa.
Hvort sem sparnaðurinn er tilvilj-
anakenndur eða skipulagður þá ætti
það að létta á samviskunni á erfiðum
tímum að kaupa skó fyrir peninga sem
þegar er búið að spara. Skóbaukurinn fæst
í Steinari Waage og Kaupfélaginu.
Bleiki sæti skógrísinn
Yfirlitssýning á verkum franska
arkitektsins Dominique Perrault
stendur nú yfir í Pompidou-lista-
safninu í París. Perrault er af
mörgum talinn vera einn af helstu
arkitektum samtímans. Bygg-
ingar eftir hann standa víða um
heim og fjölmargar eru í bygg-
ingu í Evrópu, Bandaríkjunum og
í Rússlandi.
Perrault hefur að mestu feng-
ist við stórar byggingar eins og
íþróttahús, skýjakljúfa, háskóla,
leikhús og fleira. Höfuðeinkenni
hans er notkun á stálneti sem
hann þekur gjarnan byggingar
sínar með eða notar innanstokks
til að klæða loft og veggi, eða sem
skilrúm.
Perrault er þó þekktastur fyrir
að hafa hannað þjóðarbókasafn-
ið í París fyrir tilstilli Mitter-
ands, fyrrverandi Frakklands-
forseta. Byggingin olli ekki að-
eins byltingarkenndri breytingu
á austurhluta borgarinnar, sem
Skógur stálbygginga
● Sýning á verkum Dominique Perrault stendur nú yfir í París en Perrault er einn af helstu
arkitektum samtímans og sjálfsagt þekktastur fyrir ævintýralega þjóðarbókasafnið þar í borg.
Mariinsky-leikhúsið í Sankti Pétursborg er enn í smíðum en áætlað er að það verði tilbúið á næsta ári. Gyllta litinn má víða sjá í
verkum Perrault, sem gefur stálbyggingum hans hlýlegra yfirbragð.
Dominique Perrault við opnun sýn-
ingarinnar í Pompidou-safninu í París.
NORDICPHOTOS/GETTY/MARTIN BURE
Þekktastur er Perrault sjálfsagt fyrir þjóðarbókasafnið í austurhluta Parísar. Margir
ferðamenn jafnt sem borgarbúar sækja þennan borgarhluta eingöngu til að berja
bygginguna augum.
Perrault er þekktur fyrir að sveipa
byggingar sín stálneti sem hann notar
líka inni.
Bókasafnið er byggt í kringum lítinn skóg og verður ævintýralegt fyrir vikið.Séð innan í þjóðarbókasafnið í París.
Sumarblaðið
Fjölbreytt, fallegt og
hreinlega ómótstæðilegt!
Sumarhúsið
& Garðurinn
Áskriftarsími 578 4800
www.rit.is
Blaðið fæst á öllum helstu blaðsölustöðum.
26. JÚLÍ 2008 LAUGARDAGUR4