Fréttablaðið - 26.07.2008, Side 47
LAUGARDAGUR 26. júlí 2008
> PUSSYCAT KIM
Kim Kardashian verður næsti gest-
ur hjá Pussycat Dolls, en hún mun
feta í fótspor Scarlett Johanson og
Christinu Aguilera og koma fram
með bandinu í haust. Kim er helst
þekkt fyrir að vera mikið úti á líf-
inu og hafa þrýstinn bakhluta,
en hún og fjölskylda henn-
ar eru einnig í sviðsljósinu í
veruleikaþáttunum Meet The
Kardashians.
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
34
76
9
Nú er
potturinn
fjórfaldur
og stefnir í
20 milljónir.
Ná›u flér í Lottómi›a á næsta
sölusta› e›a á lotto.is
ein stærstu
myndlistarver©laun
heims kynna 26 norræna
myndlistarmenn
í listasafni
kópavogs – ger©arsafni
hamraborg 4 | kópavogi
19. júní – 10. ágúst
opi© alla daga nema
mánudaga kl 11 – 17
lei©sögn mi©vikud.
kl. 12 og sunnud. kl. 15
www.gerdarsafn.is | www.carnegieartaward.com
folk@frettabladid.is
Fréttablaðið hefur fjallað
um sérstætt mál, kæru
Sverris Stormskers á hend-
ur Eyjólfi Kristjánssyni
þess efnis að brotið hafi
verið á höfundarrétti með
því að titla Sverri Ólafsson
en ekki Stormsker. STEF
hefur ályktað í málinu og
Sverrir fagnar.
„Eyfi sagði í viðtali í Fréttablað-
inu fyrir stuttu að hann skildi ekk-
ert í því hvernig mér dytti í hug að
kæra sig fyrir að skrá mig ekki
mínu rétta höfundarnafni á plötu
sinni og fannst ég greinilega ekki
vera með öllum mjalla. Núna ligg-
ur niðurstaða lögfræðings STEF
fyrir, og hvor okkar skyldi nú vera
með öllum mjalla?“ spyr Sverrir
Stormsker tónlistarmaður.
Niðurstaða í máli hans á hendur
Eyjólfi Kristjánssyni liggur nú
fyrir en Sverrir sagði hann hafa
brotið höfundarréttarlög með því
að skrá hann fyrir laginu „Gott“
sem Sverri Ólafsson en ekki Sverri
Stormsker sem er höfundarnafn
Sverris auk þess að sem slíkur er
hann þekktur. Í bréfi Eiríks Tóm-
assynar, lögmanns STEF, til Eyfa
segir meðal annars að vegna þess
hversu langt er um liðið frá því
diskurinn „Engan jass hér“, þar
sem lagið er að finna, kom
út verður ekki gripið til
aðgerða af hálfu STEF
en ætlast til þess að höf-
undarnafnið Sverrir
Stormsker verði notað
eftirleiðis þegar hans
er getið sem textahöf-
undur lagsins Gott.
„Hann var að brjóta
höfundarréttarlög. Einfalt. Ég hélt
að allir starfandi tónlistarmenn
vissu eitthvað um höfundarréttar-
lög og ég held reyndar að Eyfi hafi
alveg vitað hvað hann var að gera
með þessu feluleiksmakki sínu.
Það eru 6 ár síðan þessi plata hans
kom út með texta mínum
„Gott“ og STEF sér því
ekki ástæðu til að aðhaf-
ast frekar í málinu og ég
þar af leiðandi ekki
heldur, nema hann geri
eitthvað meira á minn
hlut. STEF áminnti
hann hinsvegar. Ég þyk-
ist vita að hann muni
ekki einu sinni biðja mig
afsökunar á þessum „mis-
tökum“ sínum.
Ef eitthvað er
þá held ég að
honum og
Stebba
góðvini
hans
þætti frekar fýsilegra að reyna að
klekkja á mér með moldvörpu-
starfsemi. Sögurnar sem ég heyri
eru allavega í þá átt. Sumir geta
villst og endað úti í móa þó þeir
séu með kompás í hendinni. Ef
menn vilja hasar þá fá þeir hasar,“
segir Sverrir.
Eyfi segir Sverri verða sér til
minnkunar í þessu máli sem ekk-
ert er. „Það er ekki eins og hann
hafi ekki fengið STEF-gjöldin!
Hann hefði getað hringt í mig og
beðið um leiðréttingu. Ég veit ekki
einu sinni hvernig þessi skráning
er til komin. Líklega frá honum
sjálfum upphaflega. En hann vill
fara þessa fáránlegu leið, líklega
þakkirnar fyrir að hafa sungið
frítt fyrir hann sjö lög inn á plötu
- þeirra á meðal „Andskotans“ og
„Hildi“ sem fóru hátt á vinsælda-
listum. En þó þessi framkoma eigi
eftir að koma í hausinn á honum
þá vorkenni ég honum fremur en
að vera honum reiður,“ segir Eyfi.
jakob@frettabladid.is
Eyfi braut á Sverri Stormsker
EYFI Segir málið
fáránlegt og þetta
séu þá þakkirnar
fyrir að hafa
sungið frítt
fyrir Sverri
sjö lög inn
á plötur.
SVERRIR STORMSKER Hrósar nú sigri í máli sínu á hendur Eyfa sem hefur verið
áminntur af lögmanni STEF fyrir að kalla Sverri Sverri Ólafsson en ekki Sverri Storm-
sker. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Leikkonan Jennifer Aniston flaug
til London fyrir stuttu til þess að
vera með kærasta sínum, söngv-
aranum John Mayer, sem er nú á
tónleikaferðalagi um Evrópu.
Jennifer sást snæða kvöldverð
með vinkonu sinni eitt kvöldið á
litlum fjölskylduveitingastað í
Chelsea-hverfinu í London á
meðan John flaug til Danmerkur
fyrir næstu tónleika sína. Söngv-
arinn er víst mjög duglegur í
tannhirðu og á tónleikum vill hann
hafa nóg af tannburstum, munn-
skoli og tannþráði baksviðs. „Ég
vil nýjan tannbursta á hverjum
degi. Sem rokkstjarna get ég leyft
mér það,“ viðurkenndi John.
Vill nýjan tann-
bursta daglega
JENNIFER ANISTON Flaug til London
til þess að geta verið með kærasta
sínum.
Bassaleikari Rolling Stones, Ronnie
Wood, er sem kunnugt er kominn í
meðferð. Rokkarinn skráði sig í
meðferð að ósk fjölskyldu sinnar
eftir að hafa eytt tvemur vikum á
sveitasetri sínu á Írlandi ásamt
tvítugri kærustu sinni. Vinur
Ronnies sagði í viðtali við The Sun
að Ronnie fengi ekki að eiga í
neinum samskiptum við
umheiminn næstu daga á
meðan hann ynni að bata
sínum. „Ronnie sækir fundi og í einum þeirra
sagðist hann elska tvær konur, eiginkonu sína og
kærustu. Þetta hljómar undarlega en svona sér
hann þetta. Sjálfum finnst honum að fjölmiðlar
hafi gert úlfalda úr mýflugu þegar þeir fjölluðu um
framhjáhald hans, en það er einmitt hluti vandans,
honum finnst hann ekki hafa gert neitt rangt.“
Eiginkona Ronnies sagði í kjölfar framhjáhaldsins
að hjónabandi þeirra til 23 ára væri lokið.
Wood elskar báðar
RONNIE WOOD
Kominn í meðferð
og segist elska tvær
konur.