Fréttablaðið - 26.07.2008, Blaðsíða 51
LAUGARDAGUR 26. júlí 2008 31
GOLF Eygló Myrra Óskarsdóttir
er enn í forystu í kvennaflokki á
Íslandsmótinu í Vestmannaeyj-
um. Eygló lék á 79 höggum í gær,
fimm fleiri en í gær. Hún er sam-
tals þrettán höggum yfir pari.
Einu höggi á eftir henni koma
Tinna Jóhannsdóttir, Nína Björk
Geirsdóttir og Helena Árnadóttir
sem lék best kvennanna í gær.
Helena spilaði hringinn á 72 högg-
um, tveimur yfir pari.
„Ég held að betri einbeiting
hafi skilað þessu,“ sagði Helena
sem bætti sig um tíu högg frá
fyrsta keppnisdegi. „Ég var að slá
betur og pútta betur og það gekk
eiginlega bara allt betur í dag en í
gær. Stutta spilið var mjög gott
og ég hitti brautina vel. Ég var í
litlum vandræðum.“
Helena segir að vindurinn hafi
verið mjög sterkur og hann hafi
sett sitt strik á skorkortin. „Þegar
vindurinn er svona þá má lítið
klikka til að allt fari í vitleysu.
Vindurinn var mjög sterkur,“
sagði Helena sem sagði að það
væri sjaldnast sem það kæmi
fyrir að það blési ekki á vellinum
í Vestmannaeyjum.
„Það er auðveldara að missa
einbeitinguna þegar veðrið er
svona. Ef ég finn að ég er ekki
með fulla einbeitingu hætti ég að
slá og reyni að einbeita mér að
fullu að höggunum og halda púls-
inum réttum. Anda djúpt,“ sagði
Helena sem ætlar að bæta vippin
í dag.
Helena átti högg gærdagsins
og líklega mótsins á sextándu
holu í gær, sem er par fimm. Hún
var um 80 metra frá holu, tók upp
„wedge“ og gerði sér lítið fyrir og
hitti fyrir erni. „Það var geðveikt.
Boltinn lenti í brekku á flötinni og
rann fallega ofan í holuna. Þetta
var voða gaman.“
Hún spilaði með Eygló Myrru
fyrstu tvo dagana og segir hana
mjög efnilega. „Eygló er búin að
vera í feiknastuði. Hún var að
pútta mjög vel og var mjög ein-
beitt,“ sagði Helena sem býst við
mikilli spennu fram á síðustu
holu.
„Það lítur út fyrir að þetta verði
spennandi alveg fram undir lokin.
Þannig á þetta líka að vera, við
erum allar í einum hnapp,“ sagði
Helena. - hþh
Helena Árnadóttir lék best allra kvenkylfinga í Vestmannaeyjum í gær en Eygló Myrra er enn í forystu:
Setti niður af 80 metra færi fyrir erni
STAÐAN Í KVENNAFLOKKI:
1. Eygló M. Óskarsdóttir, GO 153 (+13)
2. Tinna Jóhannsdóttir, GK 154 (+14)
3. Nína B. Geirsdóttir, GKJ 154 (+14)
4. Helena Árnadóttir, GR 154 (+14)
5. Ásta B. Magnúsdóttir, GK 155 (+15)
6. Ragnhildur Sigurð., GR 158 (+18)
7. Ragna B. Ólafsdóttir, GK 159 (+19)
8. Þórdís Geirsdóttir, GK 160 (+20)
9. Valdís Þ. Jónsdóttir, GL 162 (+22)
10. Andrea Ásgrímsd., GA 162 (+22)
11. Guðrún Brá Björgv. GK 165 (+25)
12. Hanna L. Sigurðard., GR 166 (+26)
13. Guðrún Pétursdóttir, GR 167 (+27)
14. Heiða Guðnadóttir, GS 170 (+30)
15. Ingunn Gunnarsd., GKG 179 (+39)HANDBOLTI Strandhandboltamótið
2008 verður haldið í Nauthólsvík í
dag en þar munu sextán lið keppa
um Íslandsmeistaratitilinn í
greininni.
Mótið hefst klukkan 9.00 í dag
og því lýkur með úrslitaleik
klukkan 16.45. Það er ekki bara
gullið sem er í boði því stefnan
hefur verið sett á að senda
landslið til keppni erlendis næsta
sumar en mörg alþjóðleg mót eru
haldin víða um Evrópu. Fimm
bestu leikmönnum mótsins
verður boðið í fyrsta íslenska
landsliðið í strandhandbolta. - óój
Strandhandboltamótið 2008:
Landsliðssæti í
boði í dag
2007 Hér sjást tilþrif frá Íslandsmótinu í
fyrrasumar. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
GÓÐAR SAMAN Forystus-
auðurinn Eygló Myrra og
Helena Árnadóttir sem
lék best allra í gær fylgj-
ast hér með keppninni.
Þær spiluðu saman fyrstu
tvo dagana.
FRÉTTABLAÐIÐ/VÍKURFRÉTTIR
GOLF Heiðar Davíð Bragason hefur
fjögurra högga forystu á Íslands-
mótinu í Vestmannaeyjum eftir að
hafa leikið á þremur undir pari í
gær. Heiðar tekur forystuna af
Íslandsmeistaranum Björgvini
Sigurbergssyni sem náði ekki að
fylgja góðum fyrsta degi eftir.
Hann lék á fjórum yfir pari í gær
og er samtals á pari.
„Ég hef verið í ágætis formi og
það er mikilvægt að halda jafnað-
argerðinu í þessu veðri. Það þýðir
ekkert að vera a´pirra sig á hlut-
unum. Svo hef ég verið að redda
mér ágætlega sem er nauðsynlegt
ef maður ætlar að spila vel í þessu
veðri,“ sagði Heiðar við Frétta-
blaðið í gær.
„Ég hef verið að spila nokkuð
stöðugt golf og það hefur verið
lítið um mistök. Það er ekki auð-
velt en völlurinn er það góður að
það hefst ágætlega,“ sagði Heiðar
sem var mjög ánægður með seinni
níu holurnar sem hann spilaði á
fjórum undir.
Hann var sáttur með púttin í
gær og þokkalega sáttur með vipp-
in. „Ég hef verið að slá þokkalega
en það er reyndar erfitt að segja
hvort maður sé að slá vel eða ekki
í þessum vindi. Maður getur sleg-
ið gott högg en vindurinn feykt
boltanum í burtu,“ sagði Heiðar
sem heldur sér vel á jörðinni þrátt
fyrir að vera í forystu.
„Mótið er bara hálfnað og það
getur heilmikið gerst. Ég er ekk-
ert að fara að opna kamðpavínið.
Það verður geymt til sunnudags-
ins.“
Keppendur hefur nú verið fækk-
að í 72 en 100 karlar hófu leik. Þeir
sem voru í 73. sæti voru á 21 höggi
yfir pari.
Í dag verður ein viðamesta
útsending frá íþróttaviðburði á
Íslandi á Stöð 2 Sport. Um 60
manns koma að henni en Páll Ket-
ilsson og atvinnukylfingurinn
Birgir Leifur Hafþórsson munu
lýsa mótinu. Útsendingin hefst
klukkan 15.00. - hþh
Heiðar Davíð Bragason hefur tekið forystuna af Björgvini Sigurbergssyni í karlaflokki:
Ætlar að geyma kampavínið til sunnudags
STAÐAN Í KARLAFLOKKI:
1. Heiðar D. Bragason, GR 136 (-4)
2. Ottó Sigurðsson, GR 140 (0)
3. Björgvin Sigurbergsson,GK 140 (0)
4. Sigmundur E. Máss., GKG 141 (+1)
5. Örn Ævar Hjartarson, GS 141 (+1)
6. Kristján Þ. Einarsson, GKJ 142 (+2)
7. Ólafur Björn Loftsson, NK 42 (+2)
8. Sigurpáll G. Sveinss., GKJ 142 (+2)
9. Guðjón H. Hilmars.,GKG 144 (+4)
10. Auðunn Einarsson, GK 144 (+4)
HEIÐAR Slær hér í Eyjum í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VÍKURFRÉTTIR
FÓTBOLTI Landsliðsmaðurinn
Indriði Sigurðsson hefur fram-
lengt samning sinn við Lyn. Hann
er nú samningsbundinn út árið
2011 en félög í Danmörku höfðu
sýnt honum áhuga. Indriði kom til
Lyn árið 2005 og segist ekki hafa
haft nokkurn áhuga á því að færa
sig um set. - hþh
Indriði Sigurðsson:
Áfram hjá Lyn
FÓTBOLTI Valur hefur hætt við að
fá Bjarna Guðjónsson til sín frá
ÍA. „Málið tók óvænta og
öfgafulla stefnu í morgun. Við
sáum ástæðu til að draga okkur
úr viðræðunum og við drógum
tilboð okkar til baka. Bjarni
verður ekki leikmaður Vals,“
sagði Edvard Börkur Edvardsson,
formaður knattspyrnudeildar
Vals, við Fréttablaðið í gær.
Allt stefnir nú í að Bjarni gangi
í raðir KR eftir leik ÍA og FH á
sunnudagskvöld. Gísli Gíslason,
formaður knattspyrnudeildar ÍA,
vildi sem minnst tjá sig um málið
en sagði að ekki hefði náðst
samkomulag um kaupverð við
neitt félag. „Hvað gerist á
sunnudagskvöld eða mánudag
kemur bara í ljós,“ sagði Gísli.
- hþh
Valur hætt við Bjarna:
Bjarni færist
nær KR-ingum
FÓTBOLTI Þór/KA vann Stjörnuna
2-0 í Landsbankadeild kvenna í
gær. Ivana Ivanovic skoraði með
fallegu skoti í fjærhornið áður en
Rakel Hönnudóttir kláraði leikinn
skömmu fyrir leikslok.
„Leikurinn var jafn í upphafi
en mér fannst við betri eftir það,“
sagði Dragan Stojanovic, þjálfari
Þórs/KA eftir leikinn í gær. „Ég
er mjög ánægður með sigurinn.
Við erum að nálgast toppsætin og
við spiluðum vel. Við komum frá
Reykjavík klukkan 5 á þriðju-
dagsnóttina og það var ákveðin
þreyta í stelpunum en þær stóðu
sig frábærlega.“ - hþh
Þór/KA vann Stjörnuna:
„Stelpurnar
voru frábærar“
FÖGNUÐUR Stelpurnar í Þór/KA gátu
leyft sér að fagna í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/AUÐUNN
HANDBOLTI Það er stutt á milli hlát-
urs og gráts segir málshátturinn.
Hann á við íslenska landsliðið í
handbolta sem treystir á að Ung-
verjar vinni Þýskaland í kvöld á
heimsmeistaramóti U-20 ára liða í
Makedóníu. Gerist það kemst liðið
áfram í milliriðil, ef ekki fer liðið í
annan riðil þar sem spilað verður
um sæti neðarlega á mótinu.
Ísland tapaði fyrir Rúmeníu í
gær með fjórum mörkum, 32-28.
Það vann frækinn sigur á Þýska-
landi á fimmtudag og segir lands-
liðsþjálfarinn að þreyta hafi gert
vart við sig.
„Aðalmunurinn fannst mér vera
þreytan á liðunum. Við spiluðum
mjög erfiðan leik í gær á meðan
þær hvíldu. Þetta er gríðarlegt
álag á leikmenn og þeir eru þreytt-
ir,“ sagði Stefán Arnarson lands-
liðsþjálfari við Fréttablaðið í gær-
kvöldi.
„Það er erfitt í svona sterkum
riðli að sýna alltaf 100% frammi-
stöðu en þær eiga hrós skilið fyrir
að reyna allan tímann.“
Rúmenar leiddu nánast allan
leikinn. Staðan var 10-10 áður en
Rúmenar tóku forystuna og leiddu
með fjórum til fimm mörkum
allan síðari hálfleikinn.
„Við spiluðum ekki nógu góða
vörnin. Heilt yfir er eina skýring-
in samt sú að leikmenn voru
þreyttir,“ sagði Stefán sem segir
liðsheildina hafa verið mjög
sterka.
Ísland er nú í þeirri stöðu að
þurfa að treysta á aðra upp á fram-
haldið en með sigri í gær væri það
komið áfram. „Ef Ungverjaland
vinnur Þýskaland komumst við
áfram á betri markatölu en Rúm-
enar, sem ég býst við að vinna Sló-
vena. Ef ekki þá þurfum við að
bíta í það súra epli að komast ekki
áfram,“ sagði Stefán.
Ef liðið kemst áfram fer það
upp í milliriðil með þrjú stig og
mætir þar Danmörku, Japan og
Svartfjallalandi. „Þá ættum við
góðan möguleika á að spila til
verðlauna,“ segir Stefán.
„Gengið hefur verið mjög gott.
Ef liðið hefði verið í öðrum riðli
væri það löngu komið áfram. Liðið
er búið að standa sig frábærlega
og það eiga allir hrós skilið. Liðið
er klárlega að stimpla sig inn sem
vel samkeppnishæft á heimsvísu.
Við höfum tapað tveimur leikjum
af síðustu ellefu og það segir meira
en margt.“ hjalti@frettabladid.is
Sýnileg þreytumerki á stelpunum
Það ræðst ekki fyrr en í kvöld hvort Ísland komist áfram í milliriðil á HM U-20 ára liða. Ef það gerist er lið-
ið í frábærum málum í milliriðli. Ísland tapaði í gær og segir landsliðsþjálfarinn að þreyta hafi hrjáð liðið.
STOLTUR Landsliðsþjálfarinn er stoltur af stelpunum sínum sem syngja hér þjóðsönginn í Makedóníu. FRÉTTABLAÐIÐ