Fréttablaðið - 29.07.2008, Qupperneq 14
14 29. júlí 2008 ÞRIÐJUDAGUR
Umsjón: nánar á visir.is
KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf]
OMX ÍSLAND 15 Fjöldi viðskipta: 137
4.121 +0,73% Velta: 923 milljónir
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Alfesca 6,94 -0,14% ... Atorka 5,46
+0,00% ... Bakkavör 25,00 -0,60% ... Eimskipafélagið 14,25 +0,00%
... Exista 6,10 -0,33% ... Glitnir 14,80 -0,80% ... Icelandair Group
17,05 +0,00% ... Kaupþing 727,00 -0,41% ... Landsbankinn 22,40
-1,75% ... Marel 84,50 +0,00% ... SPRON 3,01 +0,33% ... Straumur-
Burðarás 9,25 -0,22% ... Teymi 1,52 -1,94% ... Össur 84,50 +0,00%
MESTA HÆKKUN
CENTURY ALUM. +8,01%
SPRON +0,33%
MESTA LÆKKUN
HB GRANDI -4,76%
TEYMI -1,94%
LANDSBANKINN -1,75%
Polar hjólhýsi
Sérhönnuð fyrir norðlægar slóðir. Alde gólfhitakerfi, galvaníseruð
grind, iDC stöðugleikakerfi og ríkulegur staðalbúnaður.
19˝ LCD
skjár
Séstakur
vínkælir
DVD
spilari
44mm
einangrun
-40 °C
iDC
stöðugleikakerfi
iDC
Evrópskar
þrýstibremsur
Rockwood fellihýsi
Sérstaklega löguð að íslenskum aðstæðum með galvaníseraðri
grind, fjöðrum fyrir akstur á erfiðum vegum og upphituðum lúxusdýnum.
Fjöðrun f.
ísl. aðstæður
Vatn tengt
heitt/kalt
CD spilari/
útvarp
Upphitaðar
lúxusdýnur
12 cm
Evrópskar
þrýstibremsur
Sumarg
jöf
Sólar
rafhla
ða,
fortja
ld og
gasgr
ill
fylgir
öllum
fellih
ýsum
Tilbo
ðið g
ildir t
il 30.
júlí
Útilegumaðurinn er sérverslun með allt sem þú þarft
til ferðalagsins, hjólhýsi, fellihýsi, pallhýsi, húsbíla,
fylgihluti og margt fleira.
Fossháls 5-9 110 Reykjavík Sími 551 5600
Fax 551 5601 www.utilegumadurinn.is
Þægindi um land allt
40%
afsláttur
af fortjöldum fyrir
hjólhýsi og húsbíla
Tilboð gildir til 1. ágúst
„Með aðkomu nýrra fjárfesta mun
hlutur okkar fara niður í 15 pró-
sent en við munum áfram eiga
skuldabréfið,“ segir Þórdís Sigurð-
ardóttir, stjórnarformaður Stoða
Invest. Fyrir áttu Stoðir Invest 49
prósent. „Við erum búin að setja í
þetta verkefni 450 milljónir
danskra króna og þar af er skulda-
bréf upp á 250 milljónir,“ segir
Þórdís. Hún segist jafnframt vera
vongóð um að fá það lán greitt til
baka um leið og félagið verður
skráð á markað.
Nýr fjárfestir er kominn að félaginu og
mun samanlagður hlutur hans og Mortens
Lund, meirihlutaeiganda Nyhedsavisen,
verða 85 prósent. Enn hvílir mikil
leynd yfir nýja fjárfestinum en með
tilkomu hans mun fyrirtækið verða
sett á markað á næsta ári. Lars
Lind strøm, fjármálastjóri fríblaðsins,
hefur staðfest að undirbúningur sé nú
þegar hafinn að kauphallarskrán-
ingu.
Enn bólar ekkert á ársreikningi
Nyhedsavisen en nú er liðin rúm vika
frá lokafresti félagsins til að leggja
hann fram. Samkvæmt Jyllands Post-
en er ástæðuna að finna í því að end-
urskoðandinn vill ekki skrifa upp á reikning-
inn fyrr en fé nýja fjárfestisins er komið inn
á reikning útgáfunnar. Að því loknu verði
hulunni svipt af nýja fjárfestinum. - ghh
Nyhedsavisen á markað
Nýr fjárfestir kemur inn. Stoðir Invest minnka hlut sinn í blaðinu.
NYHEDSAVISEN
Hlutur Stoða Invest
verður 15 prósent.
Gengi Bandaríkjadals hækkaði á
mánudag í kjölfar þess að Banda-
ríkjaþing gekk frá lögum um
aðgerðir til stuðnings fasteigna-
lánarisunum Fannie Mae og Fredd-
ie Mac. Dollarinn hefur ekki verið
hærri gagnvart japönsku jeni í
mánuð og evrunni í þrjár vikur.
Íslenska krónan veiktist um 1,24
prósent innan dagsins í gær, en
einn dollari kostar nú 82,6 krónur.
„Björgunaraðgerðirnar styðja
við dollarann. Þær létta á áhyggj-
um af húsnæðiskreppunni,“ sagði
Yuji Saito, yfirmaður gjaldeyris-
viðskipta Societe Generale í
Tókýó.
Ástæður hækkunarinnar eru
lækkun olíuverðs og aðrar tiltölu-
lega jákvæðar fréttir undanfarið.
Margar bandarískar fjármála-
stofnanir hafa birt árshlutaupp-
gjör sem voru betri en spáð hafði
verið, og á föstudaginn birtu
stjórnvöld tölur sem sýndu að sam-
dráttur í sölu nýrra húseigna í júní
var minni en gert hafði verið ráð
fyrir. Tölurnar eru taldar gefa til
kynna að botni húsnæðis- og láns-
fjárkreppunnar kunni að hafa
verið náð.
Margir óttast þó að botninn sé
enn ekki í sjónmáli, og markaðs-
aðilar bíða því uggandi eftir frek-
ari vísbendingum um ástand efna-
hagsmála. Mörg stór fyrirtæki
birta árshlutauppgjör í vikunni og
í lok hennar koma nýjar tölur um
hagvöxt og atvinnuleysi. - msh
Gengi Bandaríkjadals hækkar
BÍLAIÐNAÐUR Hagfræðingar og greiningardeildir telja að atvinnuleysi í Bandaríkjun-
um hafi aukist í júlí, sjöunda mánuðinn í röð. AFP/MARKAÐURINN
„Við erum að undirbúa
lagningu nýs sæstrengs,
Danice, til Danmerkur
og þessi samningur við
THUS er hluti af því
verkefni. Flutningsgeta
Danice verður 100 Gbit/
s í upphafi og því þurf-
um við líka að auka
flutningsgetuna á Far-
ice-1-sæstrengnum til
Bretlands upp í 100
Gbit/s, til þess að eiga til
reiðu jafnmikla flutningsgetu um
báða sæstrengina“ segir Guð-
mundur Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri Farice hf.
Guðmundur segir að stærstur
hluti aukinnar flutningsgetu fari
til netþjónabús Verne Holding í
Keflavík.
Farice hf. og fjarskiptafyrir-
tækið THUS hafa undirritað samn-
ing til tíu ára um landleiðir fyrir
Farice-sæstrenginn í Bretlandi.
THUS mun útvega 100
Gbit/s samband frá land-
tökustöð Farice-1-
sæstrengsins í Norður-
Skotlandi, til
afhendingarstaðar þjón-
ustu Farice hf. í London.
Leiðin er tvöföld að mestu
leyti til aukins öryggis,
segir í tilkynningu.
Eignarhaldsfélagið Far-
ice ehf,. sem er félag
íslensku hluthafanna í Farice
hf., mun síðar á árinu leggja hinn
nýja sæstreng Danice milli Íslands
og Danmerkur.
Áætlað er að Danice-sæstreng-
urinn verði kominn í notkun í jan-
úar 2009 og frá þeim tíma verða
því tvær jafngildar leiðir fyrir öll
fjarskipti Íslendinga til annarra
landa. Samtímis verður flutnings-
geta Farice-1 aukin og er samn-
ingurinn við THUS hluti af því
verkefni. -as
Flutningsgetan aukin
GUÐMUNDUR
GUNNARSSON
Færeyska olíuleitarfélagið Atlantic
Petroleum hefur tekið brúarlán upp
á 100 milljónir danskra króna til
þess að fjármagna þróunarvinnu á
olíuvinnslusvæðum við Chestnut og
Ettrick, að því er fram kemur í til-
kynningu. Upphæðin jafngildir um
1,7 milljörðum íslenskra króna.
Eftir lántökuna nema heildar-
skuldbindingar félagsins í brúar-
lánum, en þau eru alla jafna til
skemmri tíma, 270 milljónum
danskra króna (um 4,6 milljörðum
króna). Lánið á að endurgreiða
lánið á fyrsta fjórðungi næsta árs.
Að auki segir Wilhelm Petersen,
forstjóri félagsins, stefnt á hluta-
fjárútboð á þessu ári. Eik Banki og
Føroya Banki lána brúarlánið. - óká
Taka brúarlán
í Færeyjum