Fréttablaðið - 29.07.2008, Qupperneq 24
29. JÚLÍ 2008 ÞRIÐJUDAGUR4 ● fréttablaðið ● vinnuvélar
Á Landbúnaðarsýningunni
á Hellu gefur að líta bæði
gamlar og nýjar vélar.
Mikið verður um að vera fyrir
vélaáhugamenn á Landbúnaðar-
sýningunni á Hellu 22. til 24.
ágúst næstkomandi. Sýningin er
haldin í tilefni af aldarafmæli
Búnaðarsambands Suðurlands.
„Til sýnis verða vélar, svo sem
kornþreskivélar, dráttarvélar og
jarðvinnslutæki frá stærstu og
helstu vélaumboðum landsins.
Einnig verða eldri búvélar á sýn-
ingunni eins og gamlar dráttarvél-
ar og amboð,“ segir Jóhannes Hr.
Símonarson, framkvæmdastjóri
sýningarinnar.
„Gömlu vélarnar fáum við bæði
frá Landbúnaðarsafni Íslands á
Hvanneyri og einkaaðilum. Þetta
eru sjaldgæfar vélar sem ein-
staklingar hafa oftar en ekki gert
upp sjálfir.“
Jóhannes segir gömlu sýning-
argripina alltaf heilla fólk. „Það
sem gerir þessar gömlu búvél-
ar svona skemmtilegar er sagan
á bak við þær. Þær urðu nánast
partur af heimilisfólkinu eins og
hestarnir voru á undan þeim og
fengu nöfn eins og hver annar
heimilismaður,“ segir Jóhann og
tekur vélarnar Jón og Nalla sem
dæmi.
Eigendur gripanna verða á
staðnum og tjá fólki sögu þeirra.
„Eigendurnir eru í sjálfu sér
partur af sögunni og láta bílana
yfirleitt ekki úr augsýn.“ Forn-
bílar, gamlir vörubílar, jeppar
og mjólkurbíll verða einnig til
sýnis.
Land-
búnaðar-
sýningin er
einstakt tæki- færi
til að fræðast betur um land-
búnað, hvort sem menn stunda
búskap eða ekki. „Síðasta sýn-
Ný grafa, Liebherr R-984, var í vor
sett um borð í dýpkunarprammann
Gretti RE sem Ístak er með í sinni
þjónustu. Hún er á kransi og var
sérstaklega byggð á prammann. Sá
sem stýrir gröfunni heitir Þröstur
Elísson. Hann er búinn að vinna í
nokkur ár á prammanum og hefur
því oft verið með hugann niðri á
hafsbotni.
„Þetta er fín græja,“ segir hann
um gröfuna. „Mun öflugri og marg-
falt fljótari en sú gamla sem var
venjuleg beltagrafa. Það er meðal
annars að þakka sérstökum bún-
aði á bómunni sem hægt er að láta
síga mjög hratt,“ útskýrir hann og
er ánægður með tölvubúnaðinn
um borð, fullkomið þrívíddar GPS-
staðsetningarkerfi frá Trimble
sem er alfarið unnið eftir.
Undanfarið hefur Grettir verið
við dælustöð í Hafnarfirði næstum
úti undir Straumsvík. „Við grófum
skurð fyrir lögn úr landi út á haf,“
lýsir hann og segir bæði klöpp og
sand í botninum. Að hans sögn var
klöppin ekki sprengd heldur fleyg-
uð og rippuð, eins og hann orðar
það.
En tekur hann hnullunga af hafs-
botni upp með gröfunni? „Já, það
var dálítið af steinum sem við þurft-
um að hreinsa í burtu en lögðum þá
stærstu til hliðar,“ segir Þröstur
sem nú vinnur að því að moka yfir
lögnina og hlakkar til að takast á við
fleiri verkefni með gröfunni. - gun
Með hugann á hafsbotni
Þröstur Elísson færir til hnullunga með gröfunni á dýpkunarprammanum Gretti.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Hluti af heimilisfólkinu
Sjálfkeyrandi múgsaxari af gerðinni Claas sem fyrirtækið Túnfang ehf. í Árnessýslu á og rekur.
Valtra-dráttarvél með Pöttinger-fjöl-
hnífavagni sem notaður er við heyskap
í flatgryfjur.
M
Y
N
D
/B
Ú
N
A
Ð
A
R
S
A
M
B
A
N
D
S
U
Ð
U
R
L
A
N
D
S
Dekkjaframleiðandinn Michelin
lyfti hulunni nýlega af dekkjum
úr línunni Energy SaverGreen og
kynnti um leið nýja gerð af vöru-
bíl frá Renault sem kallast Ren-
ault Magnum.
Eins og heitið gefur til kynna
er Energy SaverGreen vistæn
dekkjalína. Dekkin eiga að vera
endingargóð og eru hönnuð með
fullkomnu veggripi til að draga
úr eldneytisnotkun og útblæstri
koltvíoxíðs, einum af helstu or-
sakavöldum gróðurhúsaáhrifa. En
aukin sparneytni kemur sér ekki
síst vel á tímum hækkandi olíu-
verðs.
Öryggið var einnig haft í önd-
vegi við hönnun dekkjana. Þannig
á veggripið að auka öryggið enn
frekar við vond veðurskilyrði eins
og blauta vegi og svo framvegis.
Nýju Energy SaverGreen-dekk-
in frá Michelin gefa því fyrirheit
um öryggi, lægri rekstrarkostn-
að og góða endingu. Þess má jafn-
framt geta að fyrirtækið tók þátt
í þróun Renault Magnum þegar á
upphafsstigum vörubílsins og allt
til enda sem gerði það aftur að
verkum að hönnuðirnir gátu lagt
sitt enn frekar af mörkum til að
fylgja eftir markmiðunum fyrr-
nefndu.
Allar nánari upplýsingar um
dekkin er að finna á www.renault-
trucks.com - mm-
Dekk sem auka sparneytni
Michelin-dekkin á Renault Magnum
auka sparneytni bílsins og lækka rekstr-
arkostnað. MYND/RENAULT TRUCKS