Fréttablaðið - 14.08.2008, Side 8

Fréttablaðið - 14.08.2008, Side 8
8 14. ágúst 2008 FIMMTUDAGUR 1 Hver er borgarfulltrúi fram- sóknarmanna? 2 Hvar í Georgíu stóðu bardag- ar við rússneskar hersveitir yfir síðustu daga? 3 Hversu margir bíða eftir að hefja offitumeðferð á Reykja- lundi? SVÖRIN ERU Á SÍÐU 42 SAMGÖNGUR Vinstrihreyfingin - grænt framboð skorar á ríkis- stjórnina að hætta skattlagningu á almenningssamgöngur. Þetta kemur fram í ályktun flokksins frá því í gær. Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnar- innar er lögð áhersla á almennings- samgöngur en VG segir það „ein- ungis vera orð á blaði, án innihalds.“ Ennfremur leggur VG áherslu á að gera verði almenningssamgöngur jafn réttháar og einkabílinn auk þess að minna á nauðsyn þess að styrkja vistvænni ferðamáta. Sveitarfélögin vantar um 300 milljónir króna til þess að geta haldið áfram með reksturinn taplaust. Bæjarstjórar Kópavogs og Hafnarfjarðar hafa báðir lýst óánægju sinni með afskiptaleysi ríkissins af rekstri Strætó bs. á höfuðborgarsvæðinu. Á Norðurlöndunum tekur ríkið umtalsverðan þátt í rekstri almenn- ingssamgangna. Einar Kristjáns- son, sviðsstjóri þjónustusviðs Strætó bs., sagði í samtali við Fréttablaðið að stjórnvöld í Sví- þjóð, Noregi og Danmörku hafi markað þátttöku sína með niður- fellingu olíugjalds. „Í Danmörku hefur ríkið endur- greitt olíugjaldið sem er á díselol- íu. Svo eru þeir með frjálsa fjár- veitingu frá ríki til sveitarfélaga sem þau nota oft til niðurgreiðslu á almenningssamgöngum.“ Þetta hefur leitt til þess að Danir ætla nú að fella niður niðurgreiðslu olíu- gjaldsins. „Á Fjóni er útboði nýlokið en vegna nýju reglnanna um olíu- gjald og fjármögnun þýðir það 20 prósenta hækkun á tilboðsverði frá verktökum,“ segir Einar. „Svíar fella niður olíugjald en hafa sömuleiðis hjálpað til við skipulag innra kerfis eins og vegamál, uppbyggingu á járn- brautarteinum og þess háttar.“ Einar segir Norðmenn haga sínum fjárveitingum eins og Svíar auk þess að hafa stutt fyrir- tækið sem sér um Osló-svæðið um tæplega 260 milljónir íslenskra króna í kjölfar hækkun- ar á heimsmarkaðsverði á olíu. „Vegna þess hve lágar tekjur Strætó hefur af fargjöldum reyn- ist það okkur erfiðara að ná endum saman,“ segir Einar. „Sveitarfélögin hér þurfa að leggja miklu meira til en ríki og bæir á Norðurlöndunum.“ Einar segir þó fjölda farþega ekki ein- göngu skýra skekkjuna. „Við erum með mun færri farþega á ferkílómetra auk þess að vera með víðfeðmt svæði til að þjón- usta.“ helgath@frettabladid.is Vilja að ríkið styrki vistvæn- an ferðamáta VG hvetur ríkisstjórnina til að fella niður olíugjald á almenningssamgöngur. Á hinum Norðurlöndunum greiðir ríkið fyrir almenningssamgöngum, jafnvel allt að 260 milljónir vegna hækkandi olíuverðs. STRÆTÓ BS. VANTAR 300 MILLJÓNIR Bæjarstjórar Kópavogs og Hafnarfjarðar, auk Vinstri grænna, vilja að ríkið taki þátt í kostnaði við almenningssamgöngur. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM STJÓRNMÁL Umhverfisráðherra, Þórunn Sveinbjarn- ardóttir, mun ekki sitja fund umhverfisnefndar Alþingis í dag þar sem fjallað verður um þá ákvörð- un hennar að meta sameiginlega umhverfisáhrif allra framkvæmda vegna fyrirhugaðs álvers á Bakka. Höskuldur Þór Þórhallsson, þingmaður Framsókn- arflokksins, fór þess á leit að Þórunn kæmi fyrir nefndina. Helgi Hjörvar, formaður umhverfisnefndar, segir óþarft að ráðherra sitji fundinn. „Ráðherra er búin að gera grein fyrir sínum úrskurði og hennar afstaða liggur fyrir. Ég sé því ekki í fljótu bragði hverju hún ætti að bæta við það sem hún hefur þegar sagt,“ segir hann. Á fundinn koma fulltrúar umhverfisráðuneytisins auk hagsmunaaðila. „Venjan er að umfjöllun í nefndum sé efnisleg og fagleg. Ef menn vilja pólitíska umræðu við ráðherra þá taka þeir hana í þingsal,“ segir Helgi. Hann kveðst þó ekki útiloka að nefndin fái ráðherra fyrir nefndina á síðari stigum. „Mér finnst þetta frekar dapurt,“ segir Höskuldur Þór Þórhallsson um afstöðu Helga og fjarveru umhverfisráðherra. - bþs Formaður umhverfisnefndar segir óþarft að ráðherra sitji nefndarfund um Bakka: Pólitísk umræða fari fram í þingsalnum KÍNA, AP Lögreglan rannsakar nú hvort sprengingar í borginni Xinjiang í Kína á sunnudaginn, sem kostuðu tólf manns lífið, tengist hótunum hóps, sem tengdur er Al-Kaída-samtökun- um, um að stofna til óeirða vegna Ólympíuleikanna í Peking. Fimmtán árásarmenn voru í hópnum og ráðist var á ráðuneyt- isbyggingar og lögreglustöð. Tíu árásarmenn létu lífið auk öryggisvarðar og vegfaranda. - vsp Sprengjuárás í Kína: Grumur um Al- Kaída-tengsl Vilja hætta við stækkun Grænfriðungar vilja að finnsk stjórn- völd hætti við stækkun kjarnorkuvers í Olkiluoto í Finnlandi. Talsmenn Grænfriðunga segja að byggingin standist ekki gæðakröfur. FINNLAND STJÓRNMÁL Framhaldsstofnfundur borgarmálafélags Frjálslynda flokksins í Reykjavík fer fram í kvöld og verður þá kosið í stjórn og til annarra trúnaðarstarfa. Stofnfundur var haldinn fyrir mánaðamót og sóttu hann á fimmta tug manna, samkvæmt upplýsingum á heimasíðu flokksins. Umræður voru það fjörugar að ákveðið var að halda fundinum áfram síðar. Framhaldsstofnfundurinn fer fram í félagsheimili Frjálslynda flokksins að Skúlatúni 4. Formaður undirbúningsnefndar er Ásgerður Jóna Flosadóttir. - bþs Borgarmálafélag Frjálslyndra: Kosið í stjórn á fundi í kvöld VITA | Skútuvogi 13a | Sími 570 4444 VITA er í eigu Icelandair Group og flýgur með Icelandair á vit ævintýranna. VITA er lífið Þú getur notað Vildarpunktana hjá okkur Skráðu þig í netklúbbinn - VITAferðir.is Njóttu lífsins á Kanarí í vetur Jólaferð 21. desember. Áramótaferð 28. desember. Vikulegt morgunflug með Icelandair í janúar, febrúar, mars og apríl. hið ljúfa la dolce líf Hið ljúfa líf á Kanarí Verð frá 69.900 kr. og 15.000 Vildarpunktar á mann í smáh. með 1 svefnh., í 7 nætur á Green Golf, brottför 31. jan. Almennt verð: 79.900 kr. Hjá VITA geturðu keypt ferðapakkann og borgað með Vildarpunktum og jafnframt fengið 2500 punkta. Njóttu lífsins í fjörinu á Kanarí í vetur. ÍS L E N S K A S IA .I S V IT 4 32 53 0 8. 20 08 HÖSKULDUR ÞÓR ÞÓRHALLSSON HELGI HJÖRVAR ÞÓRUNN SVEIN- BJARNARDÓTTIR Vegna þess hve lágar tekjur Strætó hefur af fargjöldum reynist það okkur erfiðara að ná endum saman. EINAR KRISTJÁNSSON SVIÐSSTJÓRI ÞJÓNUSTUSVIÐS STRÆTÓ BS. NOREGUR Átta til tíu grunnskólar og framhaldsskólar í tveimur sveitarfélögum í Noregi, Kristi- ansand og Vest-Agder, taka á næstunni í notkun íslenskt mæli- tæki sem gerir þeim kleift að meta hvaða nemendur eru í brott- hvarfshættu svo að hægt sé að veita þeim aðhald og stuðning og minnka þannig líkurnar á brott- hvarfi. Mælitækið er spurningalisti sem nemendur svara rafrænt í upphafi skólaárs. Spurt er um námsvenjur, fyrri árangur í skóla, stuðning fjölskyldu, vinnu, vini og margt fleira. Niðurstaðan sýnir hvort ástæða sé til að hafa áhyggjur og þá af hvaða nem- endum. Í framhaldinu ræðir síðan ráðgjafi eða umsjónar- kennari við viðkomandi nemend- ur. Kristjana Stella Blöndal, dokt- orsnemi við félagsvísindadeild Háskóla íslands, hefur þróað tækið í samvinnu við samstarfs- konu sína, Sigríði Huldu Jóns- dóttur, forstöðumann við HR, Háskólann í Reykjavík og tölvu- fyrirtækið Stúdíu. Verkefnið er styrkt á vegum Leonardo og hefur verið prófað í þremur lönd- um, á Íslandi, Spáni og í Noregi. Kristjana Stella segir að mæli- tækið sé enn í þróun og í vetur verði aðferðin prófuð í skólum í Noregi en ekki sé endanlega ljóst ennþá hversu margir þessir skól- ar verða. - ghs Íslenskt mælitæki verður prófað í skólum í Noregi: Minnkar líkur á brotthvarfi úr skóla VEISTU SVARIÐ?

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.