Fréttablaðið - 14.08.2008, Page 22

Fréttablaðið - 14.08.2008, Page 22
22 14. ágúst 2008 FIMMTUDAGUR UMRÆÐAN Sighvatur Björgvinsson skrifar um fjármál. Næstliðin fjögur til fimm ár hafa verið einhver mesti uppgangs- tími í þjóðarsögunni. Atvinnuleysi var nánast ekkert heldur gátu lands- menn valið sér atvinnu við hæfi hvers og eins. Tekjur uxu hröðum skrefum. Verðmæti íbúðarhúsnæð- is heimilanna fór ört hækkandi. Skattar voru lækkaðir a.m.k. á meðaltekj- um og hærri. Næstum ótakmarkað framboð var á lánsfé. Lifað á sparnaði annarra Hvernig notuðu landsmenn þessi gullnu tækifæri? Til þess að safna í sjóði og auka eignir sínar? Verða efnaðri þjóð? Nei. Hækkun á verðmati íbúðarhúsnæðis var notað sem andlag aukinnar lántöku heimila. Hækkandi tekjur voru nýttar til réttlætingar fyrir vaxandi greiðslubyrði heimila. Lækkun skatta sem ástæða aukinna neysluútgjalda heimila. Nærfellt ótakmarkað framboð á lánsfé til þess að geta „eignast“ hluti, já heilu heimilin með öllu tilheyrandi og nýjum bíl í innkeyrsl- unni, en allt í skuld. Niðurstaðan eftir þessi uppgangsár: Íslensk heimili urðu á þessum blómatíma skuldsettustu heimili í víðri veröld. Athugið að sú skuldsetning er reiknað meðaltal skulda heimila. Mörg íslensk heimili hafa ekki tekið þátt í þessari háskaferð. Hvílíkan skuldabagga hafa þá ekki bundið sér þau heimili, sem hlut eiga að máli fyrst meðaltalið segir þessa sögu? Þau heimili, sem vildu eignast allt strax en eiga ekkert nema í skuld? Þau heimili, sem hafa fleytt sér áfram með því að taka ný lán til þess að greiða þau gömlu þegar að gjalddögum kemur og hafa þá gjarna haft nýju lánin eilítið hærri en þau gömlu til þess að geta keypt sér 42ja tommu flatskjá í stofuna? Þau heimili sem enn eru að kaupa sér nýja bíla hjá bílaum- boðunum með 100% lánsfjármögnun þrátt fyrir allt krepputalið? Þau heimili, sem ekki aðeins eiga allt í skuld heldur skulda líka hæstu yfirdráttarlán í sögunni og visa- raðgreiðslulán í ofanálag? Þessi heimili hafa framfleytt sér árum saman á sparnaði annarra þjóða, sem þau hafa tekið að láni. Og þau virðast hafa hug á að halda því áfram. Hver er ábyrgur? Hvernig gat þetta gerst? Hvernig var þetta hægt? Jú með því, að lánveitendurnir – bankarnir – tóku skefjalaust erlend skammtímalán á lágum vöxtum og framlánuðu þau til íslenskra íbúðakaupenda og heimila á miklu hærri vöxtum og yfirleitt til mun lengri tíma. Sú er hins vegar ekki ástæðan fyrir hrikalegri skuldsetningu íslenskra heimila. Enginn banki neyðir neinn til lántöku. Þá ákvörðun taka menn sjálfir. Bankarnir gerðu mönnum einfaldlega mögulegt að lifa langt um efni fram. Ákvörðunin um að það skuli gert er hins vegar auðvitað fólksins sjálfs. Þeirra, sem völdu sér þann kost að eignast allt í skuld. Lán til að lána eigendum. En þessar lánveitingar til íslenskra íbúðakaupenda og neyslulán til íslenskra heimila eru samt aðeins lítill hluti af auknum umsvifum bankakerfisins. Mestöll erlendu skammtímalánin, sem íslensku bankarnir tóku, voru nýtt til annarra þarfa. Annars vegar til þess að kosta áhættufjár- festingar og eignakaup bankanna sjálfra, einkum í útlöndum, og hins vegar til þess að lána íslenskum útrásarfyrirtækjum til áhættufjárfestinga erlendis. Og svo vill til, að mjög margir þessir áhættufjárfestar eru jafnframt eigendur bankanna. Bank- arnir voru sem sé að taka lán til þess að framlána eigendum sínum. Og a.m.k. sumar þessar áhættufjárfestingar hafa því miður ekki reynst vera áhættunnar virði. Allri þjóðinni sökkt í fenið? Hin alþjóðlega lánsfjárkreppa hefur stöðvað þennan hrunadans. Bankarnir fá ekki lengur lán í útlöndum til þess að geta haldið áfram að bjóða skuldsettum íslenskum heimilum að skuldbreyta neyslulánum sínum með nýjum og hærri lántökum. Nú er komið að því að skuldend- urnir þurfa að fara að borga. Og bankarnir fá ekki heldur erlend lán til þess að geta sjálfir skuldbreytt erlendum skammtíma- lánum sínum með nýjum lántökum á meðan beðið er eftir því að lán bankanna til áhættufjárfestinga útrásarfyrirtækj- anna fari að skila tilætluðum arði – ef það þá gerist. Og hvert á þá að vera svarið? Að Seðlabanki Íslands taki lán í erlendum gjaldeyri á ábyrgð þjóðarinnar að fjárhæð 500 milljarðar króna til þess að lána bönkunum svo þeir geti staðið í skilum og haldið áfram að lána skuldsettum íslensk- um heimilum og útrásarfyrirtækjum, þ.á m. eigendum sínum!?! Þetta er sagt að sé krafa þjóðarinnar. M.ö.o. sú þjóð, sem fest hefur sig í forað skuldsetningar og erlendr- ar lántöku sjái enga aðra betri leið út en að taka nýtt risalán á ábyrgð sjálfrar sín til þess að fleyta sér áfram eftir sama farvegi? Ekki áhugasamur um uppáskrift Má ég, sem verandi einn einstaklingur meðal þessarar þjóðar, frábiðja mér að verið sé að tala um slíkt úrræði sem „lausn á efnahagsvandanum“. Þetta er ekki lausn heldur algert neyðarúrræði reynist svo að hinir stóru íslensku bankar og hinir ríku eigendur þeirra, útrásaraðilarnir, ráði ekki við vanda, sem þeir hafa að verulegu leyti orsakað sjálfir. Ég vil fá að horfast í augu við að slíkt neyðarástand muni skapast áður en ég tek í mál að gerast meðábyrgur fyrir 500 milljarða króna lántöku þjóðar- innar til þess að „leysa“ vanda ofurskuld- settra heimila og bankanna. Stutt er síðan bankarnir voru einkavæddir og nýir eigendur hófu hraða sókn til aukinna umsvifa. Er það ekki nokkur áfellisdómur um þá einkavæðingu þegar svo er komið að opinber sjóður, Íbúðalánasjóður, þarf að taka lán á ábyrgð íslenska ríkisins til þess að lána bönkunum svo þeir geti veitt íslenskum íbúðakaupendum lánsfjárfyrir- greiðslu? Væri það ekki að bíta höfuðið af skömminni ef þjóðin þarf nú að bakábyrgj- ast 500 þúsund milljóna króna erlenda lántöku Seðlabanka Íslands til þess að þess- ir sömu bankar geti staðið skil á skuldbind- ingum sínum erlendis? A.m.k. vil ég fá að horfast í augu við hvaða úrræði bankarnir sjálfir og eigendur þeirra kunna að eiga í fórum sínum áður en ég fellst á að styðja slíkt neyðarúrræði. Nei, þetta er ekki lausn á efnahagsvand- anum. Kröfur eru gerðar á ríkisstjórnina. En hvað getur hún gert? Hennar úrræði við þessar aðstæður eru takmörkuð. Það verða menn að gera sér ljóst. Samtímaúrræði og framtíðarlausnir Engin töfralausn er til á þeim vanda, sem nú steðjar að þjóðinni; að sumu leyti fyrir hennar eigin tilverknað en að öðru leyti vegna þess að hún getur ekki lengur kostað neyslu sína með sparnaði annarra þjóða. A. m.k. ekki í náinni framtíð. Hættan er hins vegar fyrst og fremst sú eins og nú standa sakir að ofan á erfiðleikana bætist atvinnu- leysi. Skuldsettir landsmenn geta ekki tekið á vandamálum sínum ef við bætist missir atvinnutekna. Meginviðfangsefni og raunar eina samtímaúrræðið, sem ríkis- valdið getur beitt við þessar aðstæður, er að berjast með öllum ráðum gegn umtals- verðri aukningu atvinnuleysis. Þar verður að nýta öll tækifæri til atvinnusköpunar sem bjóðast. Enginn atvinnuleysingi lifir á loftinu – ekki heldur þó það sé bæði tært og ómengað. Og hver hefur kjark til þess að segja við þá, sem nú eru að missa atvinnuna í fjöldauppsögnum, að þeir eigi að lifa á hugvitinu? Ísland er ekki slíkt draumaland að þannig lausnir dugi. Frambúðarlausn er svo vitaskuld fólgin í því að leita leiða til þess að búa íslenskum heimilum og atvinnulífi meira öryggi með traustari gjaldmiðli. Það er öllum í hag – en það er lausn sem tekur óhjákvæmilega nokkurn tíma þannig að því fyrr sem lagt er af stað í þá vegferð þeim mun betra. Allra þýðingarmest er þó að segja á þjóðinni sannleikann svo hún geti horfst í augu við veruleikann eins og hann er en ekki eins og menn vilja að hann sé. Þar hafa margir fjölmiðlar ekki rækt sína skyldu heldur hlaupið krókaleiðir á krókaleiðir ofan eftir villuljósum, heimsku- legum hugdettum og innistæðulausum upphrópunum. Höfundur er fyrrverandi alþingismaður og ráðherra. Vill skuldsett þjóð sökkva sér dýpra? SIGHVATUR BJÖRGVINSSON UMRÆÐAN Fanný Gunnarsdóttir skrifar um Listahá- skóla. Í hádegisfréttum RÚV 30. júlí sl. tjáði Magn- ús Skúlason, væntanleg- ur varaformaður og full- trúi borgarstjóra í skipulagsráði, sig um fyrirhugaða byggingu Listahá- skóla Íslands. Fram kom að Magnús áttar sig ekki alveg á því hvað nemendur Listaháskólans hafa að gera við að „ráfa um“ á Laugaveginum. Þetta eru óvar- leg ummæli sem segja meira en mörg orð um hugmyndir og skoð- anir þess manns sem á komandi misserum gegnir mikilvægu hlutverki við meðferð málsins. Reyndar sendi Magnús inn athugasemd síðar í fréttatíman- um og reyndi með því að draga í land. En hugsunin var mótuð og orðin komin í loftið. Sú sýn sem fyrrgreind orð fela í sér vekja ugg um að ekki verði hægt að vinna áfram á faglegan og hlut- lausan hátt að endanlegri stað- setningu og skipulagi Listahá- skólans. Ég hef áður heyrt og lesið að Magnúsi finnst reyndar jafnvel koma til greina að horfa til nýrr- ar staðsetningar fyrir skólann nema að til komi verulegar breytingar á verðlaunahugmynd- inni. Sú spurning vaknar hvort hugmyndir og fyrrgreind orð endurspegli skoðanir borgar- stjóra. Mér hugnast mun betur vinnubrögð Ólafar G. Valdimars- dóttur fv. varaformanns í skipu- lagsráði. Eins og alþjóð veit neit- aði hún að tjá sig opinberlega um málið fyrr en eftir fund skipu- lagsráðs en í kjölfarið vék borg- arstjóri henni úr ráðinu. Nú ligg- ur fyrir að borgaryfirvöld og skipulagsráð verða í fullum trúnaði og af hei- lindum að leggjast yfir vinningstillöguna í sam- starfi við stjórnendur skólans og með öðrum þeim er málið varðar. Veikja ekki orð væntan- legs varaformanns þá trú að hægt verði að vinna áfram á faglegan og hlutlausan hátt? Ég sé að Hanna Birna, formað- ur skipulagsráðs, er að reyna að lenda málinu í sátt, en tekst henni að sætta ólík sjónarmið? Verða sjálfstæðismenn að sam- þykkja gagnrýnislaust sjónar- mið borgarstjóra? Björn Bjarna- son, ráðherra og þingmaður Reykjavíkur, hefur opinberlega lýst yfir ánægju sinni með tillög- una en hver er skoðun borgar- fulltrúa Sjálfstæðisflokksins? Ég geri ráð fyrir að menntamála- ráðherra sé samþykk tillögunni þar sem ráðuneytið átti fulltrúa í valnefndinni. Ef af byggingunni verður þarf að passa að hún taki mið af nærliggjandi húsum og falli eins vel að heildarmynd göt- unnar og unnt er. Mér skilst að hugmyndin sé sú að nærvera skólans gefi vegfarendum mögu- leika á að fylgjast með nemend- um að störfum, ganga á út frá samvinnu nemenda og þeirra sem leið eiga um bæinn og nýir sýningarsalir og torg fylgja til- lögunni. Að lokum hvet ég les- endur til að kynna sér allar til- lögurnar sem bárust, kosti þeirra og galla, og horfa til ábendinga sérfræðinga eins og Sigmundar Gunnlaugssonar. Aðeins eftir hlutlausa kynningu er hægt að taka upplýsta afstöðu. Höfundur er varaformaður Kjördæmasambands framsókn- arfélaganna í Reykjavík. Hverjir eiga að „ráfa um“ á Laugavegi? FANNÝ GUNNARSDÓTTIRDAGAR Kántrý SKAGASTRÖND 14.-17. ÁGÚST Brúðubíllinn Spákonutjald Gospelmessa Dorgveiðikeppni Sigga Beinteins og félagar Buskarar spila á götuhornum Barna- og fjöskylduskemmtun Hljómsveitin Janus í Kántrýbæ Kafhlaðborð í Café Bjarmanesi KK, Leo Gillespie og buskararnir Ingó og veðurguðirnir í Kántrýbæ Þórdísarganga með leiðsögn á Spákonufell Uppistand Sigríðar Klingenberg í Café Bjarmanesi Listsýningar í Nes-listamiðstöð og gamla frystihúsinu Við skjótum úr fallbyssu Ókeypis tjaldsvæði Listin að lifa er að njóta Sjá DAGSKRÁ: www.skagastrond.is

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.