Fréttablaðið - 15.08.2008, Síða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
REYKJAVÍK Marsibil Sæmundar-
dóttir, varaborgarfulltrúi Fram-
sóknarflokks, styður ekki
meirihlutasamstarf við Sjálf-
stæðisflokkinn. Hún gerði Óskari
Bergssyni borgarfulltrúa grein
fyrir þessu í gærdag, áður en
hann gekk til viðræðna við sjálf-
stæðismenn.
Marsibil ætlar að starfa áfram
sem varaborgarfulltrúi, en
segir að í ljósi stöðu sinnar sé
óráðið hvort það verði fyrir
Framsóknarflokkinn eða ekki.
Fram kom í fjölmiðlum í gær að
Óskar Bergsson reiknaði með
samstarfi við hana.
„Óskar hringdi í mig klukkan
12.30 í gær þegar ég var í líkams-
rækt og ég gat ekki svarað síman-
um. Þegar ég var búin og heyrði í
fréttum að þetta væri því sem
næst frágengið milli hans og
Sjálfstæðisflokks ákvað ég að
halda mig til hlés. Seinna um dag-
inn ræddi ég við Óskar og skýrði
mína skoðun. Við skildum eftir
langan fund þar sem reynt var að
samræma hans sjónarmið og
mína afstöðu. Það tókst ekki,“
segir hún. Marsibil kveðst hafa
sagt Óskari að hann mætti hefja
viðræður sín vegna og að hann
mætti segja að henni væri kunn-
ugt um þær, en ekki meira.
„Ég verð að standa við mína
sannfæringu. Ég hef engan áhuga
á að koma Framsókn eða Óskari
illa, en ég hef ekki neina trú á
þessu samstarfi. Með stuðningi
við það væri ég að samþykkja
framgöngu sjálfstæðismanna á
kjörtímabilinu og hvernig pólitík
þeir hafa ástundað. Ég get bara
ekki kvittað upp á það,“ segir
hún.
Marsibil gremst að henni hafi
ekki verið gefinn meiri tími til
umhugsunar. Óskar hafi þó gert
það sem hann taldi fyrir bestu.
„Og ég vona bara að samstarfið
gangi vel og ég mun ekki reyna að
grafa undan því með tækifæris-
mennsku. En við vorum í ákveðnu
samstarfi í Tjarnarkvartettnum
og bundumst vissum böndum. Það
var möguleiki á að halda því
áfram og við hefðum átt að halda
í þá samstöðu að mínu mati,“
segir hún.
Í gærkvöldi tilkynntu þau
Hanna Birna Kristjánsdóttir og
Óskar Bergsson um nýjan borg-
armeirihluta Sjálfstæðisflokks og
Framsóknar, þann fjórða á kjör-
tímabilinu. Einkunnarorð hans
eru „höldum áfram“. Oddvitarnir
eiga eftir að ganga frá málefna-
samningi, en hann verður kynnt-
ur næsta fimmtudag. Þau sögðust
hafa náð saman um öll helstu
grundvallaratriði. Hanna Birna
verður borgarstjóri, og Óskar
formaður borgarráðs.
Meirihluti F-lista og Sjálfstæð-
isflokks lifði í 203 daga.
- kóþ / sjá síður 4,6 og 8
HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA GRÆJUR ATVINNA HELGIN VINNUVÉLAR O.FL.
Sigurður Frosti, matreiðslumaður á Humar-
húsinu, gefur gómsæta uppskrift að humri með
seljurót og hollandaise-sósu.
Sigurður Fr i
landaisesósunni. „Þeytt er saman einni eggjarauðu og
örlitlu ediki þar til blandan er orðin ljós og lét
grömmum af bræddu smjöo þ
Pantar sér aldrei mat
Sigurður eldaði humar með seljurót en rétturinn getur bæði verið for- og aðalréttur.
FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
KÁTT Í KÚREKABÆKántrýdagar verða haldnir um helgina á Skagaströnd. Dagskráin er fjölbreytt og ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi, sýningar eða
námskeið.
HELGIN 3
ÞJÓÐLEGT Í SVEITINNIVeitingastaðurinn að Hrauns-nefi liggur við þjóðveginn, um þrjá og hálfan kíló-metra frá Bifröst. Matseð-illinn er bæði fjölbreyttur og þjóðlegur en á honum er meðal annars grjónagrautur.MATUR 2
Ódýrt og gott
í hádeginu
Í kaffiteríunni Perlunnar er hægt að fá alls kyns góðgæti á
frábæru verði: Fylltar pönnukökur (crépes), samlokur, pizzur,
súpubar, nýbökuð brauð og gómsætan salatbar. Eins er hægt
að fá heimatilbúinn ítalskan ís, alls kyns ísrétti, kökur og
tertur. Nýlega bættust svo belgískar vöfflur á matseðilinn
(láttu það eftir þér – þær eru algerlega þess virði). Við Perluna eru næg ókeypis bílastæði.
4ra rétta tilboð á veitingastað Perlunnar
Léttreyktur laxmeð granateplum og wasabi-sósuRjómalöguð humarsúpameð grilluðum humarhölumLambahryggurmeð lambaskanka og rósmarínsósuBanana- og súkkulaðifrauðmeð vanillusósu
Verð: 6.490 kr
Gjafabréf PerlunnarGóð tækifærisgjöf!
Sími: 512 5000
FÖSTUDAGUR
15. ágúst 2008 — 220. tölublað — 8. árgangur
Ég verð að standa við
mína sannfæringu. Ég
hef engan áhuga á að koma Fram-
sókn eða Óskari illa, en ég hef
ekki neina trú á þessu samstarfi
MARSIBIL SÆMUNDSDÓTTIR
VARABORGARFULLTRÚI FRAMSÓKNAR
SIGURÐUR FROSTI BALDVINSSON
Eldar frekar einfaldan
mat heima hjá sér
• matur • helgin
Í MIÐJU BLAÐSINS
FYRST OG
FREMST Í
ÍSLENSKRI
TÓNLIST
RÁS 2
Ný plata
Tónlistarmaður-
inn Eberg er að
leggja lokahönd
á nýjustu plötu
sína sem hann lýsir
sem poppplötu.
FÓLK 32
VIÐSKIPTI „Júlímánuður sló öll
sölumet hjá okkur,“ segir Steinn
Logi Björnsson, framkvæmda-
stjóri Húsasmiðjunnar. Hann
segir að þrátt fyrir samdrátt í
íbúðabyggingum og krepputíð
séu ýmsar aðrar framkvæmdir í
gangi.
Nefnir hann sem dæmi fram-
kvæmdir við Tónlistarhúsið,
Hellisheiðarvirkjun og Helguvík.
Í sama streng tekur Þorsteinn
Víglundsson, forstjóri BM Vallá.
Hann segir að júlímánuður hafi
verið sá stærsti í sölu á steypu í
Reykjavík.
- bþa / sjá síðu 16
Sölumet í byggingageiranum:
Meiri steypa
seld í sumar
Skiptinám í dansi
Íslenskir Lindy Hop-dansarar taka
á móti erlendum dönsurum. Von
er á um hundrað manns hingað
til lands.
FÓLK 32
TÓNLEIKAR Hópferð á vegum
Loftbelgsins, samstarfsverkefn-
is Icelandair og Rásar 2, á
Reading-tónlistarhátíðina eftir
viku er í uppnámi.
Að sögn
Ólafs Páls
Gunnarssonar
hjá Rás 2 var
misskilningur
milli manns,
sem starfar á
vegum Ice-
landair á
Englandi við að
útvega miða,
eða dagspassa
á hátíðina, og
Icelandair með
þeim afleiðingum að hópurinn
hefur ekki þriggja daga passa
með leyfi til að tjalda á svæðinu
eins og um var talað. Þar með er
forsenda fararinnar brostin hjá
mörgum þeirra 24 sem ætluðu.
Ragnheiður Ásta Karlsdóttir
er ein þeirra og lýsir þessu sem
gríðarlegum vonbrigðum og er
ósátt við vinnubrögð aðstand-
enda ferðarinnar sem aldrei var
farin.
- jbg/sjá síðu 42
Reading-hátíðin:
Ferðin sem
aldrei var farin
Berjadagar í
tíunda sinn
Örn Magnússon, fram-
kvæmdastjóri Berjadaga
í Ólafsfirði, segir
dagskrána glæsilega
í ár eins og ávallt.
TÍMAMÓT 22
ÞORSTEINN JOÐ
Nýr menningarþáttur í
bígerð
Káta maskína Þorsteins verður á dagskrá
Sjónvarpsins í vetur
FÓLK 42
BJART EYSTRA Í dag verða
suðvestan 8-13 m/s V- og NV-til
annars hægari. Bjartviðri austan-
lands annars skýjaðra og hætt við
smáskúrum vestan til. Hiti 10-18
stig, hlýjast fyrir austan.
VEÐUR 4
13
12
15
17
12
Dýrkeyptar
sex mínútur
FH-ingar lágu 4-1
fyrir Aston Villa en
ætla að vinna
útileikinn 4-0.
ÍÞRÓTTIR 34
VEÐRIÐ Í DAG
Marsibil styður ekki
nýja meirihlutann
Varaborgarfulltrúi Framsóknar styður ekki samstarf við Sjálfstæðisflokkinn og
segir samstarf við Framsókn óráðið. Verður áfram varaborgarfulltrúi og hefði
viljað starfa með Tjarnarkvartettinum. „Verð að standa við mína sannfæringu.“
SAMSTARFIÐ INNSIGLAÐ Óskar Bergsson, oddviti Framsóknarflokksins og Hanna Birna Kristjánsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins
og verðandi borgarstjóri gengu frá samningi um meirihlutasamstarf á ellefta tímanum í gærkvöldi eftir tveggja klukkustunda fund
í Ráðhúsinu. Meirihlutinn er sá fjórði á einu ári. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
ÓLAFUR PÁLL
GUNNARSSON