Fréttablaðið - 15.08.2008, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 15.08.2008, Blaðsíða 2
2 15. ágúst 2008 FÖSTUDAGUR DÓMSMÁL Héraðsdómur Reykja vík- ur dæmdi í gær hálffertugan mann í sex ára fangelsi fyrir gróft og ítrekað kynferðisofbeldi gegn stjúpdóttur sinni. Þetta mun vera þyngsti dómur sem kveðinn hefur verið upp fyrir barnaníð á Íslandi, og einn sá allra þyngsti fyrir brot gegn ákvæðum hegningar laga um kynferðisbrot. Brotin framdi maðurinn í janúar og febrúar. Þá var stúlkan ellefu ára. Brotin þykja sérstaklega gróf. Maðurinn er meðal annars dæmd- ur fyrir að hafa í fjölmörg skipti haft samræði við stúlkuna um leg- göng og enda þarm, og í nokkur skipti fengið hana til að til að hafa við sig munnmök. Maðurinn var handtekinn eftir að vinafólk móðurinnar fjarlægði stúlkuna af heimilinu þegar heimiliserjur stóðu yfir. Þegar lög- regla kom á staðinn fengust þær upplýsingar að maðurinn hefði játað að hafa kysst stúlkuna ítrekað á munninn. Maðurinn játaði sök og sagðist sjálfur hafa orðið fyrir kynferð- is ofbeldi af hálfu stjúpföður síns, sem haft hefði mikil áhrif á hann. Stúlkan, sem er af erlendum upp- runa, átti erfitt með að tjá sig við sálfræðing um málið, að því er segir í dómnum. Hún segist skamm- ast sín fyrir ofbeldið sem hún var beitt. Sálfræðingurinn segir erfitt að segja til um batahorfur. Maðurinn er jafnframt dæmdur til að greiða stúlkunni tvær og hálfa milljón króna í skaðabætur, sem munu vera hæstu bætur sem um getur í máli af þessum toga. stigur@frettabladid.is STÓRIÐJA Sameiginlegt umhverfismat fyrir fram- kvæmdir á álveri á Bakka verður ekki tilbúið fyrr en haustið 2009. Þetta sagði Franz Árnasonar, stjórnarformaður Þeistareykja, eftir fund með fulltrúum Skipulagsstofnunar í gær. Undir það tók Agnar Olsen, staðgengill forstjóra Landsvirkjunnar. Skipulagsyfirvöld geta ekki sýnt stjórnendum fjögurra fyrirtækja sem koma að framkvæmdun- um hvernig komast megi hjá töfum vegna úrskurðar umhverfisráðherra um að vinna verði sameiginlegt mat vegna álversins og tengdra framkvæmda, segir Franz. Hann segir að líklega verði sameiginlegt umhverfismat ekki tilbúið fyrr en haustið 2009, hvað svo sem menn leggi á sig til að flýta því. Það þýði að í stað þess að bora tilraunaholur á Þeista- reykjum sumarið 2009 verði að bora þær ári seinna. „Ef þetta er endanleg niðurstaða, og ekki fæst endurskoðun á þessum þáttum, þá þýðir þetta árs töf,“ segir Franz. Ákveðið verður hver viðbrögð Þeistareykja og Landsvirkjunar verða á næstunni. Alcoa hyggst reisa álver á Bakka, með orku frá jarðvarmavirkjunum Landsvirkjunar og Þeista- reykja. Fjórða fyrirtækið sem kemur að verkinu er Landsnet, sem mun flytja orkuna. Franz segir Alcoa styst komið með umhverfis- mat, enda hafi forsvarsmenn fyrirtækisins talið lítið liggja á. - bj Ljóst eftir fund með skipulagsyfirvöldum að tilraunaboranir tefjast að óbreyttu: Álver á Bakka tefst um eitt ár DÓMSMÁL Héraðsdómur Reykj- a ness hefur dæmt ríflega þrítugan karlmann í mánaðar langt óskilorðsbundið fangelsi fyrir að framvísa vegabréfi annars manns við komuna til landsins. Maðurinn, sem er nígerískur ríkisborgari, var handtekinn á Keflavíkurflugvelli 26. júlí síðastliðinn þegar hann fram vís- aði vegabréfi svissnesks manns við komuna. Maðurinn játaði brot sitt skýlaust. Við ákvörðun refsingar var tekið tillit til játningarinnar og þess að maðurinn hefur ekki áður gerst brotlegur við lög hér á landi. - sh Fangelsi fyrir skjalamisnotkun: Nígeríumaður þóttist frá Sviss LöGREGLUMÁL Lögreglunni í Reykja- vík barst tilkynning um einkenni- legt ljós á himni seint á miðviku- dagskvöld. Íbúi í Grafarvogi tilkynnti um ljósið. Lögreglu- menn fóru á vettvang en eftir töluverða eftirgrennslan yfirgáfu þeir svæðið einskis vísari. Samkvæmt lögreglu er með öllu óljóst hvað var þar á ferðinni. Grunur leikur þó á að um blys hafi verið að ræða, en líkur á fljúgandi furðuhlut eru taldar hverfandi. Lögreglu hefur áður borist tilkynningar frá fólki sem er sannfært um að hafa séð slíka furðuhluti, en ekkert hefur tekist að sanna í þeim efnum. - kg Einkennilegt ljós á himni: Teikn á lofti í Grafarvogi BANDARÍKIN, AP Formaður Demó- krataflokksins í Arkansas-ríki í Bandaríkjunum var skotinn til bana á miðvikudag. Fimmtugur maður réðst inn á skrifstofu formannsins Bill Gwatney rétt fyrir hádegi á miðvikudag og skaut hann margsinnis. Gwatney lést svo af sárum sínum nokkrum klukku- stundum síðar. Árásarmanninum hafði verið sagt upp störfum fyrr um daginn. Hann flúði af vettvangi í bíl sínum en lögregla náði honum eftir 50 kílómetra eltingarleik. Hann var skotinn til bana eftir að hafa hafið skothríð á lögreglumenn. - þeb Demókrataleiðtogi skotinn: Missti vinnuna og hóf skothríð VIÐSKIPTI Afskráning Teymis hf. úr Kauphöll Íslands (OMX Nordic Exchange) var samþykkt mótatkvæðalaust á hluthafafundi félagsins í gærmorgun. Fulltrúar 81,21 prósents hlutafjár mættu á fundinn. Auk þess að samþykkja afskráninguna var stjórn félagsins heimilað að kaupa allt að 22 prósent eigin hluta á 1,90 krónur á hlut og að greitt yrði fyrir hlutina með hlutum í Alfesca hf. Sömuleiðis var stjórn félagsins falið að kaupa hlut þeirra hluthafa sem vilja selja, en þeir fá fyrir 0,27 hluti í Alfesca á á móti hverjum hlut í Teymi. - óká Hluthafafundur í gærmorgun: Teymi afskráð úr Kauphöllinni SKIPULAGSMÁL Ákveðið var í skipulagsráði í gær að efna til hönnunarsamkeppni um nýtt háskólasjúkrahús við Hringbraut. Samkeppnin mun byggja á drögum að deiliskipulagstillögu C. F. Möller arkitekta sem kynnt var skipulagsráði í apríl. Þær fela meðal annars í sér að Holtsgöng verði felld niður í aðalskipulagi. Einnig hefur verið óskað eftir því að við skipulagn- ingu nýrrar samgöngumiðstöðvar verði gert ráð fyrir þyrlupalli fyrir sjúkraflutninga. Samkeppnin verður auglýst að fengnu samþykki samstarfs- nefndar um opinberar fram- kvæmdir. - hþj Hönnunarsamkeppni hefst: Háskólasjúkra- hús byggt Grill-leikur me› s‡r›um rjóma! Taktu þátt í grillleik MS og þú gætir unnið glæsilegt Weber-grill eða vandað grillsett. Kauptu dós af sýrðum rjóma frá MS, farðu á www.ms.is, sláðu inn lukkunúmerið sem er í lokinu og þú færð strax að vita hvort þú hefur unnið. H V ÍT A H Ú S IÐ /S ÍA 0 8 -1 0 2 0 Það er mat sérfræðinga Skipulagsstofnunar að ekki sé heimilt að taka ákveðna þætti framkvæmda vegna álvers á Bakka út úr því ferli sem nú er hafið, segir Stefán Thors, skipulagsstjóri ríkisins. Forsvarsmenn Landsvirkjunar og Þeistareykja óskuðu eftir því að kannað yrði hvort taka mætti tilraunaboranir út úr sameiginlegu mati á umhverfis- áhrifum, til þess að ekki þyrfti að koma til tafa á verkinu. Neikvæð niðurstaða Skipulagsstofnunar þýðir að ekki verður hægt að hefja tilraunaboranir vegna fyrirhugaðra virkjana næsta sumar. TILRAUNABORANIR EKKI TEKNAR ÚT ÚR Þyngsti dómur fyrir barnaníð í seinni tíð Maður á fertugsaldri var dæmdur í sex ára fangelsi fyrir gróft og ítrekað kyn- ferðis ofbeldi gegn stjúpdóttur sinni. Einn þyngsti dómur sem fallið hefur hér- lendis fyrir slík brot. Maðurinn var misnotaður af fósturföður sínum sem barn. HÉRAÐSDÓMUR REYKJAVÍKUR Héraðsdómarinn Símon Sigvaldason segir í dómi sínum að brot mannsins hafi verið einstaklega gróf. FRÉTTABLAÐIÐ / VALLI Dómurinn yfir manninum er einn sá alþyngsti sem nokkru sinni hefur verið kveðinn upp hérlendis fyrir kynferðisbrot. Eftir því sem Fréttablaðið kemst næst er tíu ára fangelsisdómur yfir Guðmundi Þórðarsyni frá árinu 1961 sá eini sem er þyngri. Guðmundur var dæmdur fyrir nauðgun og skírlífisbrot, en hann réðst á tólf ára gamla skólastúlku á Ásvallagötu í janúar það ár, dró hana inn á leikvöll, barði höfði hennar ítrekað við steinvegg þar til hún rotaðist og nauðgaði henni. Nokkrir þungir dómar fyrir kynferðisbrot: EINN ALLRA ÞYNGSTI DÓMURINN ■ 10 ÁR Guðmundur Þórðarson, 1961. Nauðgaði tólf ára stúlku á leikvelli. ■ 6 ÁR X, 2008. Nauðgaði stjúpdótt- ur sinni ítrekað. ■ 5 ÁR Jón Pétursson, 2006. Nauðg- aði og misþyrmdi tveimur konum. ■ 5 ÁR Jón Pétursson, 2007. Hlaut annan fimm ára dóm, fyrir brot gegn þriðju konunni. ■ 5 ÁR Anthony Lee Bellere, 2008. Nauðgaði tveimur ungum stúlkum og áreitti þær ítrekað. ■ 4,5 ÁR Stefán Ófeigsson Hjalte- sted, 2007. Nauðgaði tveimur konum. ■ 4 ÁR X, 2008. Fyrrverandi háskóla- kennari sem misnotaði sjö stúlkur. JAFNRÉTTISMÁL Össur Skarphéð- ins son iðnaðar ráðherra braut ekki gegn ákvæðum jafnréttislaga þegar hann skipaði Guðna A. Jóhannesson í embætti orkumála stjóra í upphafi árs. Þetta er niðurstaða kæru nefnd- ar jafnréttis mála, sem sendi álit sitt á aðila málsins í fyrradag. Ragnheiður Inga Þórarinsdóttir aðstoðarorkumálastjóri kærði ákvörðun Össurar til nefndarinnar, þar sem hún taldi að gengið hefði verið fram hjá sér við skipanina. Meira hefði verið gert úr reynslu og menntun Guðna en efni hefðu staðið til, en jafnframt of lítið gert úr hennar eigin reynslu og þekk- ingu. Segir í niðurstöðu kærunefnd- ar innar að telja verði að sá sem skipar í stöðuna hafi „nokkurt svigrúm til að vega og meta á heildstæðan hátt hvaða kosti og þætti í fari umsækjenda áhersla skuli lögð á [...] enda sé við slíkt mat og val byggt á hlutlægum og málefna legum forsendum.“ Fallast megi á það með Ragn- heiði að hún standi Guðna framar þegar kemur að menntun, en hann hafi hins vegar umtalsvert lengri starfsreynslu, meðal annars ára- tuga langa reynslu af störfum við erlenda háskóla. Ekki verði því talið að ákvörð- unin hafi verið ómálefnaleg þannig að kynferði Ragnheiðar teljist hafa skipt máli. - sh Iðnaðaráðherra braut ekki jafnréttislög við skipan nýs orkumálastjóra: Össur gerði ekkert rangt BRAUT EKKI LÖG Össur sætti nokkurri gagnrýni eftir skipan Guðna í embættið. FRÉTTABLAÐIÐ / STEFÁN Starfsmenn langþreyttir Starfsmenn Reykjavíkurborgar eru orðnir þreyttir á tíðum meirihluta- skiptum í borginni, segir Garðar Hilm- arsson, formaður Starfsmannafélags borgarinnar. Nógu erfitt sé að fá nýja yfirmenn á fjögurra ára fresti, hvað þá oft á kjörtímabili. REYKJAVÍKURBORG Þorleifur, fara sjálfstæðismenn ekki að verða flóttaleiðir? „Jú, þá fer að skorta flóttaleiðir.“ Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokks viku sér fimlega undan fjölmiðlamönnum á leið úr ráðhúsinu í gær, með því að skjótast út um bakdyr og niður brunastiga. Frægt varð þegar þeir léku svipaðan leik í Valhöll fyrr í ár. SPURNING DAGSINS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.