Fréttablaðið - 15.08.2008, Blaðsíða 54
34 15. ágúst 2008 FÖSTUDAGUR
sport@frettabladid.is
Lögmál 1: Bikarinn skal vera tandurhreinn, þveginn
upp úr fitulausri sápu og skolaður í köldu vatni þar
til hann nær sama hitastigi og ölið. Þannig verður
froðan þéttari og heldur hvítum hlífiskildi sínum
lengur yfir hinum dýrmæta vökva. Minnstu óhrein-
indi geta spillt fyrir og mengað fullkomin bragðgæði
Stellu Artois.
Lögmál 2: Þegar byrjað er að hella er bikarnum hallað um
45 gráður. Þá sjáum við hvernig dýrmætur vökvinn hringar
sig ofan í bikarinn og myndar iðuna sem er galdurinn við
fljótandi gullgerðarlist. Þegar ölið kemst í samband við súr-
efni myndast smám saman þétt froða sem innsiglar inni-
haldið og verndar það frá fyrsta sopa til hins síðasta.
Lögmál 3: Þegar bikarinn, sem
hingað til hefur hallað um
45 gráður, hefur verið fylltur að
þremur fjórðu skal hann réttur
við. Með jafnri hreyfingu er hann
samtímis færður niður frá flösku-
opi um sem nemur hæð bikarins.
Þannig krýnum við ölið þéttri
froðu sem skýlir innihaldi bikars-
ins og tryggir ferskleika og líf
þessa fljótandi gulls.
FÓTBOLTI FH-ingar börðust dyggi-
lega í um 80 mínútur í gær þegar
þeir töpuðu 1-4 fyrir enska úrvals-
deildarliðinu Aston Villa.
Það var grátlegt að sjá FH-inga
mæta sofandi til leiks. Þeir léku
líklega sínar verstu mínútur í
sumar í byrjun leiksins og fengu á
sig tvö mörk. Fyrst skoraði Gareth
Barry eftir að FH mistókst að
hreinsa frá hornspyrnu áður en
Ashley Young bætti við. Hann lét
Höskuld Eiríksson líta illa út og
þrumaði boltanum í stöngina og
inn.
„Þeir spila í eins búningum og
Derby County og spila eins og
þeir,“ heyrðist í einum stuðnings-
manni Villa en FH leit illa út fyrstu
mínúturnar. Jafn illa og lélegast
lið ensku deildarinnar í fyrra.
Leikmenn Villa léku í hægagangi
það sem eftir var hálfleiksins.
Það nýttu FH-ingar sér og náðu
nokkrum álitlegum sóknum, leikur
liðsins hresstist verulega eftir
lélega byrjun. Matthías Guðmunds-
son og nafni hans Vilhjálmsson
voru nálægt því að skora áður en
Gabriel Agbonlahor steig á bensín-
gjöfina, spændi framhjá Höskuldi
og Tommy Nielsen og setti boltann
í markið. Staðan 0-3 fyrir Villa.
Matthías Guðmundssson skor-
aði á lokamínútu fyrri hálfleiks
með skalla eftir að Tryggvi Guð-
mundsson negldi boltanum fyrir
og glæddi lífi í Laugardalsvöllinn.
Gott mark hjá FH og staðan í hálf-
leik 1-3.
Tryggvi skaut svo yfir úr góðu
færi í upphafi síðari hálfleiks en
mark hefði hleypt spennu í leik-
inn. Þess í stað stangaði Martin
Laursen hornspyrnu frá Young
inn eftir um klukkutíma leik og
afgreiddu leikinn.
Eftir það gerðist lítið, FH reyndi
að sækja og átti nokkrar sæmileg-
ar tilraunir en leikmenn Villa lækk-
uðu sig um enn einn gír. Það hefur
enda leik í úrvalsdeildinni á sunnu-
dag og mun komast áfram í einvíg-
inu. Seinni leikurinn fer fram á
Englandi eftir tvær vikur.
FH barðist vel gegn sterku liði
gestanna og getur vel við unað.
Betur fór en á horfðist eftir nokk-
urra mínútna leik en leikurinn var
búinn áður en hann byrjaði.
„Sóknarlega vorum við að spila
mjög vel en það vantaði talsvert
upp á vörnina. Þeir áttu frekar að
gefa okkur forskot en við þeim og
byrjunin var erfið á móti svona
liði. Fyrstu þrjú mörkin eigum við
að geta komið í veg fyrir þannig að
þetta var smá aulaskapur hjá
okkur, hreint út sagt,“ sagði Gunn-
ar Sigurðsson eftir leik. - hþh/ óþ
Góð barátta FH-inga í 80 mínútur
Sofandaháttur í byrjun leiks kostaði FH tvö mörk og um leið einhverja spennu í viðureign þeirra við Aston
Villa. Hetjuleg barátta skilaði þó marki í 4-1 tapi fyrir sterku liði Villa sem spilaði lengst af í hægagangi.
GÓÐ BYRJUN Barry fagnar fyrsta marki
leiksins. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/P
JE
TU
R
MARKIÐ Matthías
Guðmundsson skorar
hér mark FH í leiknum
með skalla af stuttu
færi eftir fyrirgjöf
Tryggva.
> 8.686 áhorfendur í Laugardalnum
Alls létu 8.868 áhorfendur sjá sig í Laugardalnum í gær.
Dyggur kjarni studdi FH allan leik-
inn en annars var stemningin á
vellinum slöpp. Ekkert heyrðist
frá stuðningsmönnum Aston
Villa. Þessi tæp níu þúsund eru
langt frá því að bæta metið yfir
flesta áhorfendur í Evrópukeppni.
Flestir mættu á leik Vals og Benfica
árið 1968, 18.243. Tíu þúsund sáu
leik KR og Liverpool árið eftir en tæp
sex þúsund leik KR og Everton 1996.
Tæp sjö þúsund sáu svo ÍA leika
gegn Barcelona árið 1979.
FÓTBOLTI Tryggvi Guðmundsson,
framherji FH, var svekktur með
úrslit leiksins miðað við hvernig
leikurinn spilaðist.
„Mér fannst þetta nú bara
frekar jafn leikur og er hundfúll
með að tapa 1-4. Leiðinda forgjöf
sem við gefum þeim þarna í
byrjun og mörkin tvö voru algjör
skítamörk. En úti á vellinum
fannst mér við bara vera að gera
fína hluti. Við vorum að halda
boltanum innan liðsins ágætlega
og við skorum gott mark og áttum
að skora alveg tvö í viðbót. Við
hefðum líka getað nýtt það betur
þegar þeir voru komnir á
skokkið,“ sagði Tryggvi sem er þó
bjartsýnn fyrir seinni leikinn.
„Við förum út og spilum okkar
bolta og vinnum sjálfsagt bara 4-0
og förum áfram,“ sagði Tryggvi á
léttum nótum.
Stiliyan Petrov, miðjumaður
Aston Villa, var ákaflega ánægð-
ur með sigurinn í leikslok.
„Sigurinn setur okkur í frábæra
stöðu fyrir seinni leikinn og það
var mikilvægt. Við horfðum á leik
FH gegn KR og komum því
tilbúnir til leiks og kláruðum
dæmið ,“ sagði Petrov. - óþ
Leikmenn FH og Villa tjá sig:
Vinnum seinni
leikinn 4-0
EINA LEIÐIN? Hraði sumra leikmanna
Villa var slíkur að þetta virtist stundum
eina leiðin fyrir Höskuld Eiríksson til að
stöðva þá, með peysutogi.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
FH vörnin hélt ekki í langan tíma áður en enska úrvalsdeildar-
félagið Aston Villa tók forystu í leik liðanna í UEFA-bikarnum
í gærkvöldi.
„Leikurinn var búinn áður en hann byrjaði og eftir sex
mínútur vorum við búnir að fá á okkur tvö mörk. Það
var algjört einbeitingarleysi og ef til vill óþarfa virðing
sem við sýndum leikmönnum Aston Villa,“ sagði
Heimir Guðjónsson, þjálfari FH, á blaðamannafundi í
leikslok.
Heimir gat þó séð ýmislegt jákvætt í leik sinna manna.
„Við vorum að reyna að spila fótbolta og sýndum oft
á tíðum ágætan sóknarleik. Þessi leikur fer náttúrulega
í reynslubankann hjá yngri leikmönnum liðsins og við
vorum til að mynda með einn átján ára gamlan, Björn
Daníel Sverrisson, sem að mínu mati var yfirburðarmaður í
FH liðinu ásamt kannski Dennis Siim,“ sagði Heimir.
Heimir er vitanlega ekki bjartsýnn á möguleika FH liðsins
að komast áfram en er hvergi banginn fyrir seinni leik
liðanna á Villa Park.
„Þeir eiga örugglega eftir að hvíla einhverja leikmenn og líta á
þetta sem létta æfingu þannig að ég á ekki von á einhverri rass-
skellingu. Við mætum bara á Villa Park og blásum til blússandi
sóknar og stöndum og föllum með því,“ sagði Heimir vongóður.
Martin O‘Neill, knattspyrnustjóra Aston Villa, var létt í leikslok.
„Ég var búinn að segja við strákana að ég væri áhyggjufullur
fyrir leikinn og það var því mikill léttir að ná að skora tvö mörk
svona snemma. Byrjunin lagði grunninn að þægilegum sigri
og ég er mjög ánægður með það,“ sagði O‘Neill.
O‘Neill hrósaði FH-ingum fyrir hugarfarið sem þeir
sýndu í leiknum. „Þeir náðu að valda okkur þó nokkrum
erfiðleikum á köflum og náðu að skora gott mark. Mér
fannst líka hugarfarið og löngunin sem þeir sýndu til
þess að spila sóknarbolta í stað þess að liggja í vörn vera
aðdáunarverð,“ sagði O‘Neill.
Spurður út í framtíð Gareth Barry hjá Aston Villa kvaðst
O‘Neill óviss. „Ég veit ekki hvað gerist en ég er alla vega
ánægður með að hann hafi verið með. Hann svildi sjálfur
ólmur spila leikinn,“ sagði O‘Neill að lokum.
ÞJÁLFARARNIR HEIMIR GUÐJÓNSSON OG MARTIN O‘NEILL: TJÁ SIG EFTIR 1-4 SIGUR ASTON VILLA GEGN FH Í GÆR:
Löngun FH til að spila alvöru bolta aðdáunarverð