Fréttablaðið - 15.08.2008, Blaðsíða 6
6 15. ágúst 2008 FÖSTUDAGUR
Smiðjuvegi 5 + Höfðabakka 3 + Borgartúni 29 + Akureyri
skólavörubúðin þín...
www.a4.is
Þú verslar
skólavörur fyrir
5.000 kr.
og við gefum þér
miða í bíó
Átt þú von á meirihlutaskiptum
í borgarstjórn Reykjavíkur?
Já 83,3%
Nei 16,7%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Ertu ánægð(ur) með meiri-
hlutaskiptin í borgarstjórn?
Segðu þína skoðun á visir.is
REYKJAVÍK „Óskar rauf samstöðu
[innan minnihlutans] um að draga
línu í sandinn og taka ekki þátt í
þeim klækjastjórnmálum sem
Sjálfstæðisflokkurinn hefur orðið
valdur að ítrekað á þessu kjör-
tímabili,“ segir Dagur B. Eggerts-
son um myndun nýs borgarstjórn-
armeirihluta í gærkvöldi.
Hann segir Óskar hafa tilkynnt
sér símleiðis rétt fyrir sex um
myndun hins nýja meirihluta.
„Sjálfstæðisflokkurinn er að
bjóða borgarbúum upp á klækja-
stjórnmál sem á ekki að tíðkast og
stuðlar þannig að óstöðugleika.
Þau eru ekki að taka á málunum
af þeirri ábyrgð og festu sem þarf
að vera í stjórn borgarinnar,“
segir Dagur.
Dagur segir að þetta komi til
vegna þess að Sjálfstæðisflokkur-
inn sé að leysa sinn innri vanda
sem hefur skapast vegna skoðana-
kannana og fylgisleysi.
„Borgarbúar sjá í gegnum svona
atburðarás og hvernig hún er sett
upp. Það er lang hollast að mínu
mati að þessi vinnubrögð tali sínu
máli,“ segir Dagur aðspurður um
hvort honum finnist vinnubrögðin
um myndum nýs meirihluta hafa
verið óheiðarleg. - vsp
DAGUR B. EGGERTSSON Dagur var að
vonum ósáttur við myndum nýs meiri-
hluta. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Óskar rauf samstöðu Tjarnarkvartettsins að mati Dags B. Eggertssonar:
Lét Dag vita rétt fyrir sex
STJÓRNMÁL „Þetta kemur mér ekki á
óvart og væntanlega engum öðrum
heldur,“ segir Össur Skarphéðins-
son iðnaðarráðherra um stjórnar-
slitin í borginni. „Þegar Ólafur varð
borgarstjóri spáði ég því á lítilli
heimasíðu minni að hann myndi
taka Sjálfstæðismenn slíkum
heljargreipum að meirihlutinn
myndi springa.
Þessi slit leysa ákveðið
ófremdarástand sem Sjálf-
stæðisflokkurinn ber alla
ábyrgð á. Ég óska nýja
meirihlutanum góðs geng-
is en dreg þó stórlega í
efa, að þessi skipti leysi
þá stjórnarkreppu sem
lengi hefur verið í borg-
inni. Sjálfstæðisflokk-
urinn er búinn að rýja sig svo inn að
beini hvað traust varðar að þrátt
fyrir þessa nýjustu pólitísku æfingu
þá mun hans bíða að uppskera eins
og hann hefur sáð til í lok kjörtíma-
bilsins. Eyðimerkurganga flokks-
ins mun verða löng - eins og
hann á skilið,“ segir Össur en
bætir við að þetta muni þó ekki
hafa nein áhrif á ríkisstjórnar-
samstarfið. „Þroskaðir stjórn-
málamenn láta þennan
farsa í ráðhúsinu sem
vind um eyru þjóta.“ -
ges
Sjálfstæðisflokkurinn ber ábyrgð á ófremdarástandi:
Verðskulduð
eyðimerkurganga
ÖSSUR SKARPHÉÐINSSON
Leysir ófremdarástandið
en bjargar flokknum ekki
frá eyðimerkurgöngu.
MARSIBIL SÆMUNDARDÓTTIR OG KJARTAN MAGNÚSSON Kjartani sárnaði að slíta
samstarfinu við vin sinn Ólaf F. Magnússon. Marsibil styður ekki nýjan meirihluta.
FRÉTTABLAÐIÐ/ÚR SAFNI
KJÖRKASSINN
REYKJAVÍK Helsta ástæða þess að
það dróst að tilkynna nýtt meiri-
hlutasamstarf milli Framsóknar og
Sjálfstæðisflokks í gær mun vera
sú að Marsibil Sæmundardóttir,
varaborgarfulltrúi Framsóknar
vildi ekki styðja
samstarfið.
Einnig var Kjartan Magnússon,
aðalhöfundur samstarfs F-lista og
Sjálfstæðisflokks, ósáttur í fyrstu,
en hann er góður vinur Ólafs.
Borgarfulltrúar nýs meirihluta
vildu ekki endurtaka leikinn frá
síðustu borgarstjórnarmyndun,
sem fór fram án þess að lægi fyrir
stuðningur Margrétar Sverrisdótt-
ur, varaborgarfulltrúa Ólafs F.
Magnússonar.
En þegar þau Óskar og Hanna
Birna hittust í gærkvöldi í ráðhús-
inu svaraði Óskar spurningu um
hvort Marsibil styddi meirihluta-
viðræðurnar þannig að „skiptar
skoðanir“ væru í flokknum.
Að öðru leyti er enginn sérstak-
ur málefnaágreiningur sagður hafa
verið uppi á borðinu milli Fram-
sóknar og Sjálfstæðisflokks og
mun að mestu hafa verið gengið
frá samningi um málefni REI fyrr
um daginn.
Heimildarmenn úr röðum sjálf-
stæðismanna segja að ekki hafi
annað komið til greina en að slíta
samstarfinu við Ólaf, þótt það hafi
gengið vel í fyrstu. Síðustu vikur
hafi gert útslagið. Afar erfitt hafi
verið að starfa með honum per-
sónu- og faglega.
Ólafur hafi beitt neitunarvaldi í
mörgum málum og jafnvel hótað
að styðja ekki Hönnu Birnu Kristj-
ánsdóttur til borgarstjóra þegar
þar að kæmi.
Andstaða Ólafs við nýbyggingu
Listaháskólans fór illa í sjálfstæð-
ismenn, sem og andstaða við Bitru-
virkjun og annar ágreiningur innan
velferðarráðs og skipulagsráðs.
Þá hafi endanlega gengið fram
af sjálfstæðismönnum að Ólafur
hafi ráðið til starfa Gunnar Smára
Egilsson fjölmiðlamann, stuttu
weftir að gengið hafði verið frá
sérstöku samkomulagi innan meiri-
hlutans um að Gunnar Smári starf-
aði ekki á skrifstofu borgarstjóra.
Davíð Oddsson, fyrrverandi for-
maður Sjálfstæðisflokksins mun
hafa blandað sér í málin vegna
þeirrar ráðningar.
klemens@frettabladid.is
NÝR MEIRIHLUTI Í BORGARSTJÓRN
Kjartan Magnússon
tafði samningana
Helsta ástæða þess að það dróst að ganga frá nýjum meirihluta var sú að vara-
borgarfulltrúi Framsóknar studdi hann ekki. Kjartan Magnússon var einnig
ósáttur. Ólafur F. mun hafa hótað að styðja ekki Hönnu Birnu.
REYKJAVÍK „Ég ræddi við Ólaf í
fyrradag og í gærmorgun. Hann
var tilbúinn að leggja sitt af
mörkum til að stofna nýjan
Tjarnarkvartett,“ segir Árni Þór
Sigurðsson, alþingismaður.
„Óskari var gerð grein fyrir
þessu, en hann valdi frekar að
starfa með Sjálfstæðisflokknum.“
Árni staðfesti það að Ólafur
hafi verið tilbúinn til að stíga frá
og gefa þannig Margréti Sverris-
dóttur, varamanni sínum,
tækifæri til að mynda nýjan
Tjarnarkvartett - ht/vsp
Árni Þór Sigurðsson:
Ólafur vildi
Tjarnarkvartett
BORGARMÁL „Þegar Sjálfstæðis-
menn og F-listi tóku við borginni í
janúar bast
minnihlutinn
böndum um að
halda saman þar
til við tækjum
aftur við
völdum,“ segir
Þorleifur
Gunnlaugsson,
borgarfulltrúi
Vinstri grænna.
Þorleifur
segir að fljótt hafi sést að slíkir
brestir voru í samstarfi sjálfstæð-
ismanna og Ólafs F. að samstarfið
myndi ekki duga lengi. „Við
sendum út mjög afdráttarlausar
yfirlýsingar um að við ætluðum að
vinna saman,“ segir Þorleifur.
„Óskar Bergsson stóð heilshugar
með okkur í því á þeim tíma.“ - ht
Borgarfulltrúi Vinstri grænna:
Sáu fljótt bresti
í samstarfinu
ÞORLEIFUR
GUNNLAUGSSON