Fréttablaðið - 15.08.2008, Side 8
8 15. ágúst 2008 FÖSTUDAGUR
1. Hvað heitir íslenski kepp-
andinn í júdó á Ólympíuleik-
unum?
2. Hvað heitir norska fyrir-
tækið sem lýst hefur áhuga á
að reisa sólarkísilverksmiðju í
Þorlákshöfn?
3. Hvar reisti hinn ungi
athafnamaður Patrekur Her-
mannsson verslun sína?
SJÁ SVÖR Á SÍÐU 42
Janúar, húsin við Laugaveg
Í fyrsta meirihlutanum, samstarfi Fram-
sóknar og Sjálfstæðisflokks, áttu húsin við
Laugaveg 4 og 6 að víkja fyrir nýbyggingu.
Eitt fyrsta verk Ólafs F. Magnússonar borgar-
stjóra var svo að kaupa húsin á 580 milljónir.
Janúar, flugvöllur í Vatnsmýri
Málefnasamningur F-lista og Sjálfstæðis-
flokks kvað á um að ekki yrði tekin ákvörðun
um flutning flugvallarins á kjörtímabilinu.
Ólafur F. hélt því fljótlega fram að flugvöllur-
inn yrði á sínum stað um
ókomna tíð. Þessu
mótmælti
sjálf-
stæðis-
fólk.
Apríl, REI-málið
Óvissa ríkti um framtíð
REI mestalla tíð 200 daga
meirihlutans. Gísli Marteinn Baldursson sagði
í útvarpsfréttum að REI yrði selt. Ólafur F.
Magnússon var í sjónvarpinu á sama tíma og
sagði að ekki stæði til að selja REI.
Maí til ágúst, mannaforráð
Jakob Frímann Magnússon var ráðinn
framkvæmdastjóri miðborgarmála, af Ólafi.
Borgarstjóri lýsti Jakobi sem „framhandlegg“
sínum. Þá þegar var Ólöf Guðný Valdimars-
dóttir aðstoðarmaður Ólafs. Sjálfstæðisfólki
þótti víst nóg um.
Maí til júlí, Bitruvirkjun
Ágreiningur innan meirihlutans kom í ljós
vegna Bitruvirkjunar. Ólafur F. óskaði
borgarbúum til hamingju, þegar hætt var við
hana. Kjartan Magnússon
sagði seinna í fjölmiðlum að
ekki væri endilega hætt við
Bitruvirkjun. Víst, sagði
Ólafur þá.
Júlí, Listaháskólinn
Þegar vinningstillaga að
nýjum listaháskóla við
Laugaveg var kynnt tók
Ólafur dræmt í hana.
Ágreiningur varð um þetta
innan F-lista þegar Ólöf Guðný Valdimarsdótt-
ir sagðist ekki vilja tjá sig um tillöguna fyrr
en hún yrði tekin fyrir í skipulagsráði. Þetta
varð til þess að Ólafur rak hana úr ráðinu,
sem var óþægilegt fyrir sjálfstæðismenn, en
Ólöf skammaði þá fyrir að virða samstarf við
sig að vettugi.
Ágúst, Gunnar Smári
Það mun hafa farið illa í sjálfstæðismenn
þegar Ólafur réð Gunnar Smára Egilsson í
upplýsingamál. klemens@frettabladid.is
Umdeild mál í samstarfinu
Meirihluti F-lista og Sjálfstæðisflokks starfaði í 203 daga. Hér er stiklað á stóru í nokkrum málum sem
vöktu athygli og voru umdeild á tímabilinu, þar á meðal hús við Laugaveg, REI og Bitruvirkjun.
MEIRIHLUTI KYNNTUR, 21. JANÚAR REI-málið gekk frá fyrsta meirihluta B og D. Sjálfstæðismenn fengu svo Ólaf
úr 100 daga meirihluta Tjarnarkvartettsins og stofnuðu það sem varð 200 daga meirihlutinn. Hann er nú allur og
endurómur af fyrsta meirihlutanum tekinn við. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
ÓLÖF GUÐNÝ
VALDIMARSDÓTTIR
STJÓRNMÁL „Svo virðist sem fráfar-
andi meirihluti hafi verið orðinn
gersamlega óstarfhæfur og sjálf-
stæðismenn ekki talið sig geta unnið
lengur með Ólafi F. Magnússyni,
borgarstjóra.“ segir Einar Mar
Þórðarson, stjórnmálafræðingur.
Það að Hanna Birna Kristjáns-
dóttir hafi tekið við sem oddviti hafi
greinilega ekki breytt stöðunni neitt
því fylgi flokksins hafi haldið áfram
að minnka. Í nýjustu könnuninni
hafi fylgið verið komið í tæplega 27
prósent sem jafngildi fjórum borg-
arfulltrúum.
„Ég held að mörgum sjálfstæðis-
manninum hafi brugðið við það,“
segir Einar Mar sem telur niður-
stöður könnunarinnar vera einn af
mörgum áhrifaþáttum.
Þá megi líta svo á að framsóknar-
menn hafi litlu að tapa á samstarfi
við Sjálfstæðisflokkinn. „Fram-
sóknarflokkurinn er að mælast með
afskaplega lítið fylgi í síðustu könn-
un og þrátt fyrir að flokkurinn hafi
verið hluti af Tjarnarkvartettinum
þá gerði það, samkvæmt könnun-
um, lítið fyrir hann.“
Einar Mar segir kjósendur lítið
geta gert í stöðunni. Þeir geti mót-
mælt eins og þegar fráfarandi
meirihluti tók við.
- ovd
Stjórnmálafræðingur um stöðu Framsóknarflokksins:
Hefur litlu að tapa
REYKJAVÍK Gunnar Smári Egilsson
kannast ekki við að til hafi staðið
að hann yrði aðstoðarmaður
borgarstjóra.
Ólafur F.
Magnússon
borgarstjóri réð
Gunnar Smára
til að endur-
skoða upplýs-
ingamál Reykja-
víkurborgar.
Þetta hefur
verið nefnt sem
hugsanleg
ástæða meirihlutaslitanna.
„Nei, þá er sálarjafnvægi þessa
fólks lakara en sést á myndum,“
segir Gunnar Smári. „Allavega er
mér ekki svo illa við nokkurn
mann að ég myndi láta sex vikna
úttektarverkefni trufla mig
svona,“ segir hann. - kóþ
Gunnar Smári Egilsson:
Ætlaði ekki að
aðstoða Ólaf
GUNNAR SMÁRI
EGILSSON
NÝR MEIRIHLUTI Í BORGARSTJÓRN
STJÓRNMÁL Sviptingar hafa orðið í
pólitíkinni í Reykjavík síðan kosið
var vorið 2006. Ekki er nóg með að
meirihlutaskipti hafi verið tíð
heldur hafa borgarfulltrúar horfið
frá borði, oddvitaskipti orðið og
leiðir samherja skilið.
Árni Þór Sigurðsson VG, Björn
Ingi Hrafnsson Framsóknarflokki
og Steinunn Valdís Óskarsdóttir
Samfylkingunni sem kjörin voru
til setu í borgarstjórn eru hætt
fyrir fullt og fast. Stefán Jón Haf-
stein Samfylkingunni er í tveggja
ára leyfi og vinnur að þróunar-
aðstoð í Afríku og Gísli Marteinn
Baldursson Sjálfstæðisflokki mun
láta af nefndasetu en sitja borgar-
stjórnarfundi næsta árið samhliða
háskólanámi í Skotlandi.
Fimmtán sitja í borgarstjórn.
Oddvitaskipti hafa orðið hjá
Sjálfstæðisflokknum; Hanna
Birna Kristjánsdóttir er tekin við
af Vilhjálmi Þ. Vilhjálmssyni og
leiðir fyrsta og annars manns á
lista Frjálslyndra og óháðra; Ólafs
F. Magnússonar og Margrétar
Sverrisdóttur, hafa skilið.
- bþs
Miklar breytingar hafa orðið á skipan borgarstjórnar:
Þrír fulltrúar hættir, einn
í fríi og einn á flugi
GÍSLI
MARTEINN
BALDURSSON
STEFÁN JÓN
HAFSTEIN
STEINUNN
VALDÍS ÓSK-
ARSDÓTTIR
BJÖRN INGI
HRAFNSSON
ÁRNI ÞÓR
SIGURÐSSON
VEISTU SVARIÐ?