Fréttablaðið - 15.08.2008, Page 12
12 15. ágúst 2008 FÖSTUDAGUR
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000• Akureyri • sími 461 1099 • www.heimsferdir.is
ÞORLÁKSHÖFN Þórður Hilmarsson,
framkvæmdastjóri Fjárfestinga-
stofunnar, telur líklegt að norska
stórfyrirtækið REC Group, sem
ætlar að stofnsetja sólarkísilverk-
smiðju við Þorlákshöfn eða Que-
bec í Kanada hlíti því að fram-
kvæmdin fari í umhverfismat,
alltaf hafi verið reiknað með því.
Fréttablaðið greindi frá því
nýlega að Skipulagsstofnun hefði
úrskurðað að framkvæmdin þyrfti
að fara í umhverfismat og að for-
stjóri REC Group, Eric Thorsen,
hefði sagt á hluthafafundi að
félagið þyrfti að ákveða staðsetn-
ingu hennar fyrir lok ágúst.
Þórður segir að ákvarðanataka
hafi staðið til í lok ágúst eða sept-
ember en hún hafi dregist af
mörgum ástæðum, ekki síst vegna
efnahagsástandsins í heiminum.
„Það er minni asi á þeim við
ákvarðanatöku en var,“ segir
hann.
Ekki er hægt að segja til um
hvort sé líklegra að verksmiðjan
verði stofnsett á Íslandi eða í Kan-
ada. Þórður segir kosti og galla
við báða staði. Kanadamenn hafi
vatnsaflsorku og geti boðið upp á
tilbúið atvinnusvæði. Þar sé þegar
búið að vinna umhverfismat fyrir
iðnað af þessu tagi.
„Við bjóðum hinsvegar orkuna
á samkeppnishæfu verði og höfum
hæft og gott vinnuafl. Við erum
vel staðsett gagnvart hráefni og
flutningi og höfum hagstætt
skattaumhverfi. En ég get ekki
sagt hver niðurstaðan verður,“
segir hann. - ghs
Framkvæmdastjóri Fjárfestingastofunnar:
REC hlítir líklega
umhverfismati
VIÐSKIPTI „Miðað við aðstæðurnar
sem uppi voru held ég að við
séum að ná mjög góðri lendingu,“
segir Gísli Kjartansson spari-
sjóðsstjóri Sparisjóðs Mýrasýslu
(SpM).
Upplýst var um mikið tap
Sparisjóðs Mýrasýslu á fyrri
helmingi þessa
árs á íbúafundi
um stöðu sjóðs-
ins sem haldinn
var í Borgar-
nesi í fyrradag.
Fram kom að
eiginfjárhlut-
fall sjóðsins
hefði verið
komið niður
fyrir lögleg
mörk. Leitað
var til Kaupþings og Straum-
borgar um aukningu stofnfjár og
verður skrifað undir samning
þess efnis í dag.
Gísli segir að SPM hafi losað
um eignir og á nú einungis eitt
prósent í Kistu eignarhaldsfélagi
sem heldur utan um eign spari-
sjóða í Exista. Hann segir jafn-
framt að sparisjóðurinn hafi selt
hlut sinn í Icebank en haldi
óbreyttum hlut í VBS fjárfest-
ingabanka.
Sveinbjörn Eyjólfsson, oddviti
minnihlutans í Borgarbyggð,
setti fram ákveðna gagnrýni um
að rétt hefði verið að upplýsa
opinberlega fyrr um stöðu mála.
„Það var útilokað að upplýsa um
stöðu mála fyrr því þá hefðu öll
okkar mál verið í uppnámi. Það
þurfti að fara varlega á meðan
unnið var að málinu,“ segir
Gísli.
Stjórn Borgarbyggðar fundaði
með með Björgvini G. Sigurðs-
syni viðskiptaráðherra í gær-
morgun þar sem farið var yfir
stöðu mála. Björgvin telur ekki
rétt að ríkið grípi fram fyrir
hendur markaðsafla og eðlilegt
að það ferli sem hafið er klárist.
Talið hefur verið að lækkanir á
hlutabréfamörkuðum kunni að
koma illa niður á fleiri sparisjóð-
um, svo sem Sparisjóðnum í
Keflavík (SpK), sem er meðal
þeirra sem átt hafa í Kistu, fjár-
festingafélagi sjóðanna. „Við
erum ágætlega fjármagnaðir,“
segir hins vegar Geirmundur
Kristinsson sparisjóðsstjóri og
bendir á að nánast hafi lokast
fyrir alla fjármögnun til Íslands í
lausafjárkreppunni. Því fagni
hann framtaki ríkisstjórnarinnar
um aðgengi að lausafé í gegnum
Íbúðalánasjóð. Þar segir hann
sjóðinn hafa fengið „ágætis upp-
hæð“.
Geirmundur segir hins vegar
verulega mismunun í aðgengi að
fjármögnun í íslensku fjármála-
kerfi og vísar til þess að að smærri
fjármálafyrirtæki hafi ekki getað
leitað til Seðlabankans eftir fjár-
mögnun og veðsett íbúðalána-
vafninga líkt og stóru viðskipta-
bankarnir. Þar telur hann tilefni
til rannsóknar Samkeppniseftir-
lits. bjornthor@markadurinn.is
Segja lending-
una vera góða
Upplýst var um mikið tap Sparisjóðs Mýrasýslu (SpM)
á fundi í Borgarbyggð. Ráðherra segir óeðlilegt að
hið opinbera grípi fram í fyrir markaðsöflunum.
Á HITAFUNDI Í BORGARBYGGÐ Forsvarsmenn Borgarbyggðar auk sparisjóðsstjóra
og stjórnarformanns SPM sátu fyrir svörum á hitafundi í Borgarbyggð í fyrrakvöld. Á
sjötta hundrað sótti fundinn. MYND/SKESSUHORN, MAGNÚS MAGNÚSSON
BJÖRGVIN G.
SIGURÐSSON
ÞJÓÐHÁTÍÐ Í PAKISTAN Ungur Pak-
istani hélt upp á þjóðhátíðardaginn
málaður fánalitunum. Haldið var upp á
það á fimmtudaginn að 61 ár er frá því
að Pakistan fékk sjálfstæði frá Bretum.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
INNFLYTJENDAMÁL „Innflytjendur
eru uggandi vegna þessara
hnífstungumála,“ segir Dane
Magnússon, formaður Félags
antírasista. Í byrjun þessa mánaðar
var Chilebúi stunginn í bak, síðu og
handlegg á gatnamótum Hverfis-
götu og Ingólfsstrætis og í febrúar
síðastliðnum hlaut marókkóskur
maður alvarlega áverka eftir
hnífárás í miðbæ Reykjavíkur.
„Það hafa margir haft samband við
okkur, nú er svo komið að margir
útlendingar þora ekki í miðbæinn
lengur.“
Fjórðu styrktartónleikar
félagsins verða haldnir á skemmti-
staðnum Organ á morgun en þar
munu skemmta erlendir tónlistar-
menn og plötusnúðar. Félagið var
stofnað árið 2006 og eru félags-
menn hátt í fimm hundruð talsins
og fer ört fjölgandi að sögn Danes.
- jse
Félag antírasista:
Innflytjendur
uggandi
Það var útilokað að upp-
lýsa um stöðu mála fyrr
því þá hefðu öll okkar mál verið í
uppnámi.
SVEINBJÖRN EYJÓLFSSON
ODDVITI MINNIHLUTANS Í BORGARBYGGÐ
VIÐSKIPTI Danska fjárfestingafélagið Stones
Invest sendi frá sér fréttatilkynningu í gær
um að kaupum á Keops Development, sem
áttu sér stað í maí síðastliðnum, hafi verið rift
vegna vanefnda Landic Property. Stones
Invest fer fram á 4 milljarða íslenskra króna í
skaðabætur vegna hnekkja sem viðskiptavild
félagsins hafi hlotið vegna viðskiptanna.
„Þeir eru búnir að reka þetta fyrirtæki í
allnokkurn tíma og að koma núna og ætla að
rifta kaupunum einhliða og bera við vanefnd-
um okkar er algjörlega úr lausu lofti gripið.
Steen Guud, eigandi Stones Invest, á fyrirtæk-
ið og verður að bera ábyrgð á því,“ segir
Skarphéðinn Berg Steinarsson, forstjóri
Landic Property.
Keops Development hefur verið áberandi í
dönskum fjölmiðlum undanfarna daga.
Iðnaðarmenn, sem ekki höfðu fengið launin
sín, lögðu niður störf við verkefni á Sjálandi
sem er á vegum Keops Development. Í
tilkynningunni frá Stones segir að ein af
vanefndum samningsins hafi verið að Landic
hafi ekki staðið í skilum á ábyrgðum sem
félagið gegndi, til dæmis á verkefninu á
Sjálandi. Skarphéðinn segir þetta vera rangt.
„Við héldum eftir fjárhagslegri ábyrgð á
nokkrum verkefnum sem eru að klárast,
þetta tiltekna verkefni er ekki eitt þeirra.“
Skarphéðinn segir að tilkynningin hafi komið
eins og þruma úr heiðskíru lofti þar sem
starfsmenn Landic voru síðast í sambandi við
Gude í gærmorgun. „Hann sendir út tilkynn-
ingu um leið og hann sendir okkur bréf. Þetta
er algjörlega óskiljanlegt,“ segir Skarphéðinn.
- ghh
Danska félagið Stones Invest sakar Landic Property um vanefndir á kaupsamningi:
Krefja Landic Property um 4 milljarða
SKARPHÉÐINN BERG, FORSTJÓRI LANDIC PROPERTY
„Fyrirtækið sem við seldum er vel rekstrarhæft. Ég
man ekki eftir eins ítarlegri yfirferð eins og áreiðan-
leikakönnunin var fyrir þessi kaup,“ segir Skarphéðinn.
FRÉTTABLAÐIÐ/RÓBERT