Fréttablaðið - 15.08.2008, Page 48

Fréttablaðið - 15.08.2008, Page 48
28 15. ágúst 2008 FÖSTUDAGUR folk@frettabladid.is > EKKI FALLEG Penelope Cruz virðist ekki láta það stíga sér til höfuðs að fjölda fólks þyki hún í hópi fegurstu kvenna heims. „Mér finnst ég ekki falleg. Ég get litið vel út og ég get litið illa út,“ segir stjarn- an, sem leikur á móti Scarlett Jo- hansson í nýju Woody Allen- myndinni, Vicky Cristina Barce- lona. Í næstu þáttaröð af Ameri- ca‘s Next Top Model, sem hefur göngu sína í Bandaríkjunum í sept- ember, munu fjórtán stelpur takast á um titilinn að vanda. Ein þeirra, Isis, hefur þó þá sérstöðu að hafa fæðst í karlmannslíkama. Talsmenn samtaka samkynhneigðra og transgender-fólks ytra taka nýbreytninni afar vel og hrósa Tyru Banks og samstarfsfólki í hástert fyrir að gefa transgend- er-fólki loks pláss á sjónvarpsskjánum. Paris Hilton hefur verið kærð fyrir slaka frammistöðu í kynningarstörf- um fyrir myndina National Lampoon‘s Pledge This! sem kom út árið 2006. Framleiðendur myndarinnar saka hana um að hafa ekki staðið við ákvæði í samningi þess efnis að hún þyrfti að kynna mynd- ina vel, en í staðinn fyrir það framlag átti Paris að vera titluð „executive producer“. Þeir fara fram á 75 þúsund dollara í skaðabætur. Britney Spears segir að heimilis- hjálp hennar skilji eftir ýmis verk- efni fyrir hana sjálfa, þar sem þrif hafi góð áhrif á stjörnuna. Spears segist ekki þola að hafa engin húsverk á sinni könnu, þar sem henni finnist gott að slaka á eftir erfiðan dag með því að taka til. „Ég er ofstækisfull í þrifum. Mér finnst skemmtileg- ast að þurrka af og þrífa glugga,“ segir Britney. Eva Longoria og eiginmaður hennar, Tony Parker, vilja ólm eignast barn sem fyrst. Skapari þáttanna Desperate Housewives, Marc Cherry, ýjar að því að frétta af erfingjanum sé að vænta hvað úr hverju. „Eva er að reyna allt sem hún getur til að verða ólétt. Hún hefur lofað mér að ég verði fyrsta símtalið þegar þau eru búin að tala við lækninn,“ segir Cherry, en þungun Long- oriu myndi eflaust valda framleiðend- um þáttanna einhverjum vandræðum. FRÉTTIR AF FÓLKI Jennifer Aniston og söngvarinn John Mayer eru hætt saman. Parið hafði lítið sést saman upp á síðkastið og í síðustu viku flaug Meyer til Mexíkó þar sem hann naut sólarinnar ásamt nokkrum vinum sínum. Á meðan var Jennifer dugleg að stunda skemmtanalífið ásamt vinkonum sínum. Nýlega barst tilkynning frá talsmanni Mayers þar sem hann staðfestir sambandsslitin. „Þau ætluðu fyrst aðeins að taka sér stutta pásu frá hvort öðru en það endaði með því að þau ákváðu að slíta sambandi sínu endanlega.“ Í kjölfar fregna um sambandsslitin fóru margir að velta fyrir sér hver hætti með hverjum, en það mun hafa verið Jennifer sem sleit sambandinu við John vegna þess hve lausgirtur hann var. „Henni fannst John mjög skemmtilegur og hæfileikaríkur maður en hún þoldi ekki daðrið í honum,“ var haft eftir vini leikkonunnar. John átti að hafa sofið hjá þremur konum meðan á sambandi hans og Jennifer stóð, þar á meðal með einni grúppíu. „Jennifer lét hann róa þegar hún sá að hann myndi ekki breytast. Hún er að leita að stöðugu sambandi þar sem traust og virðing ríkir. Hún er enn sár eftir að Brad yfirgaf hana fyrir Angelinu.“ Jennifer mun þó ekki hafa grátið samband sitt við John lengi því hún er víst komin með nýjan mann upp á arminn og er sá fyrirsæta að nafninu Matt Felker. Vill traust og gott samband HÆTT MEÐ JOHN Jennifer hefur mikið sést með karlfyrirsætunni Matt Felker upp á síðkastið.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.