Fréttablaðið - 15.08.2008, Page 64
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
BAKÞANKAR
Þórgunnar
Oddsdóttur
Í dag er föstudagurinn 15. ágúst,
228. dagur ársins.
5.20 13.32 21.42
4.53 13.17 21.38
Ólíkt því sem margir halda er íslenska útrásin ekki ný af nál-
inni. Löngu fyrir daga Björgólfs-
og Bónusfeðga höfðu kappar eins
og Egill Skallagrímsson lagt sitt af
mörkum til útrásarinnar og komið
heim með fulla vasa fjár. Góss á
borð við Hamleys og Magasin du
Nord hreinlega blikna í saman-
burði við silfursjóðinn sem Egill
fékk frá Englandskonungi og eng-
inn veit hvar er falinn. Það var nú
maður sem kunni að fara með fé.
Gróf bara draslið í jörðu og mörg-
um öldum síðar eru menn enn að
leita.
GRÆDDUR er geymdur eyrir
segir einhvers staðar og það var
speki sem Egill skildi. Meira að
segja ég, sem þó er slugsari í fjár-
málafræðum, skil þennan málshátt
mæta vel því þegar ég var lítil átti
ég dýrindis sparibauk. Hann var
eins og vörubíll í laginu og ég fór
reglulega með hann í sparisjóðinn
minn (sem nú er búið að kaupa og
selja) og lét tæma hann.
ALLIR þessir geymdu aurar kæmu
sér vel núna þegar kreppudraug-
urinn vofir yfir. Nú þarf að seilast
í varasjóðina, segja menn og virð-
ast hafa gleymt því að það eru
engir varasjóðir til. Íslendingar
hafa aldrei kunnað að spara og
fæstir liggja á feitum sjóðum eins
og Egill. Sparibaukar, eins nytsam-
legir og þeir eru, sjást aðeins í
barnaherbergjum. Þeir fullorðnu
taka bara yfirdrátt sem virðist
ætla að koma þeim í koll núna.
Í Egilssögu er sagt frá því að þegar
Egill var orðinn gamall maður og
blindur hafi hann beðið Grím mág
sinn að ríða með sér til þings. Egil
langaði að stríða lýðnum aðeins
með því að dreifa silfrinu sínu yfir
vellina og kasta því yfir mann-
fjöldann. Síðan ætlaði hann að sitja
hjá og skemmta sér við að hlusta á
lætin þegar gráðugir bændurnir
bitust um auðinn og köstuðu sér á
peningana. Ekki varð af þessu en
eflaust hefði Egill glott við tönn
rúmum 1000 árum síðar hefði hann
fylgst með íslensku þjóðfélagi upp
úr aldamótunum 2000 þar sem
menn hreinlega veltust um vellina
og hrifsuðu til sín góðærisbitana.
OG nú þegar allt er farið fjandans
til og allir silfursjóðir tæmdir eru
fornleifafræðingar komnir á kaf í
rústir Egils í Mosfellsdal. Mikið
væri nú gott ef þeir fyndu silfrið
því ef ég man rétt var um háa upp-
hæð að ræða sem verðbólgan hefur
engin áhrif haft á. Slíkur varasjóð-
ur kæmi sér aldeilis vel fyrir þjóð-
arbúið á þessum síðustu og verstu
tímum.
HVERNIG ætli gengið á þessu sé
annars núna?
Silfur Egils
BÖRN HLAUPAFYRIR BÖRN 23. ÁGÚSTNú er skráning hafin í Latabæjarhlaupið sem verður haldið 23. ágúst fyrir framan Háskóla Íslands. Hlaupið er 1 km að lengd og sérstaklega ætlað börnum 9 ára og yngri.Þátttökugjald í Latabæjarhlaupinu rennur óskipt til UNICEF – Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna. Nánari upplýsingar og skráning á www.glitnir.is. Allir sigra 23. ágúst!
0
8
-
1
5
1
5
/
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA