Fréttablaðið - 24.08.2008, Side 57
Uppli að okkar hætti
Restaurant - Bar Vesturgötu 3b
101 Reykjavík Sími 551-2344
www.tapas.is
Starfsmannaveislur
Afmæli & Hópar
Árshátíðir
7 spennandi Tapas réttir
Léttur fordrykkur
eftirréttur
á 4.390,-
S. 440-1800 www.kælitækni.is Okkar þekking nýtist þér ...
Blandarinn sem allir eru
að tala um!
Mylur alla ávexti, grænmeti klaka
og nánast hvað sem er
Hnoðar deig
Býr til heita súpu og ís
Hraðastillir
Lífstíðareign!
y g
ÁRVISS ÁBÆTIR
100 g íslenskt smjör, brætt
100 g kókosmjöl
1 1/2 dl spelt (fínmalað)
1 dl sykur
3 dl bláber
Allt hrært saman að frátöldum
berjunum sem sett eru ofan á
deigið. Hluta af deiginu þrýst
innan í bökuform (eða eldfast
mót) og einnig aðeins upp á
barmana.
Bláberjunum stráð yfir og
örlitlum sykri; restinni af deiginu
er síðan dreift yfir eða deigið
skorið í ræmur og raðað í
mynstur ofan á bökuna.
Bakað í 20 mínútur við 200
gráðu hita. Borið fram með
þeyttum rjóma
eða ís.
BLÁBERJABAKA
Þetta er gömul og góð upp-skrift sem ég hef sniðið að eigin smekk,“ segir Guðfinna
Rósantsdóttir um bláberjabökuna
sem hún bakaði. Hún segir upp-
skriftina einstaklega einfalda og
fljótlega en það tekur aðeins fimm
mínútur að hræra í deigið. Í
kökunni eru bláber sem Guðfinna
tíndi sjálf. „Það er líka hægt að
nota rabarbara eða jarðarber.“
Berin í bökuna koma úr Skorra-
dal þar sem Guðfinna á sumar-
bústað. „Þar er voðalega mikið
bæði af krækiberjum og bláberj-
um en ég tíni þó yfirleitt bara blá-
berin,“ segir Guðfinna sem finnst
íslensku berin miklu betri en þau
útlensku. „Þau eru rosalega ólík,
ekki nærri því eins sæt.“
Guðfinna starfar sem ræstinga-
stjóri en er mikil áhugamanneskja
um matseld. „Mér finnst voðalega
gaman að bústanga, eins og sagt
er. Ég elda þó meira en ég baka, ég
baka oft brauð og bollur og þess
háttar, en ég baka ekki mikið af
kökum. Mér finnst helst gaman að
elda eitthvað sem ég þarf að hafa
einstaklega mikið fyrir,“ segir hún
hlæjandi. „Ég elda sjaldnast eftir
uppskrift og ef ég fer eftir upp-
skriftinni þá breyti ég henni allt-
af.“
Guðfinna kveðst vera dugleg að
halda matarboð og sér að mestu
leyti um eldamennskuna á heimil-
inu. „Ég fæ nú einstaka sinnum
aðstoð frá bóndanum en stærsta
hlutann geri ég.“ - mþþ
Guðfinna Rósantsdóttir er mikil
áhugamanneskja um matseld og vill
helst hafa réttina sem allra flóknasta.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
„Fyrst þegar ég fékk uppskriftina var venjulegt hveiti í bökunni en núna nota ég spelt í hana,“ segir Guðfinna. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Nýtur þess að hafa fyrir
eldamennskunni
Guðfinna Rósantsdóttir er áhugakona um matseld og fer sjaldnast eftir uppskrift-
um. Hún eldaði gómsæta bláberjaböku sem tekur aðeins 25 mínútur að fullgera.
E
Í berjamó