Fréttablaðið - 26.08.2008, Blaðsíða 34
18 26. ágúst 2008 ÞRIÐJUDAGUR
timamot@frettabladid.is
CHRIS BURKE LEIKARI
ER 43 ÁRA
„Gefstu ekki upp á barni.
Gefðu barninu menntun og
skjól. Gefðu barninu ást á
hverjum degi.“
Chris Burke er Íslendingum
minnisstæður í hlutverki Corkys
úr sjónvarpsþáttunum Life goes
on á tíunda áratugnum. Chris
er með Downs-heilkenni og
hefur barist fyrir rétti jafningja
sinna í tilverunni.
Samtök íslenskra berkla- og brjóst-
holssjúklinga, SÍBS, minnast þess nú
að 70 ár eru liðin síðan 28 stórhuga
berklasjúklingar komu saman á Vífils-
stöðum og stofnuðu Samtök íslenskra
berklasjúklinga.
„SÍBS var stofnað til hjálpar berkla-
sjúklingum að ná fótfestu í lífinu. Strax
var hafist handa við fjársöfnun og fljót-
lega keypt jörð í Mosfellsbæ þar sem
Reykjalundur var reistur og tekinn í
notkun árið 1945,“ segir Helgi Hróð-
marsson, framkvæmdastjóri SÍBS.
„Með tilkomu berklalyfja um 1955
þurrkaðist nýgengi berkla nánast út.
Að starfi SÍBS komu þá ný aðildarfé-
lög og með tilkomu Astma- og ofnæmis-
félagsins árið 1974 var nafninu breytt í
Samtök berkla- og brjóstholssjúklinga.
Síðar bættust við Hjartaheill, Vífill og
Samtök lungnasjúklinga.
SÍBS eru hagsmunasamtök sem
bjóða upp á fræðslu um for varnir
og meðferðarúrræði. Við ferðumst
um landið og bjóðum upp á mæling-
ar á blóðþrýstingi, blóðfitu og súrefn-
ismettun, og þá hefur SÍBS komið á
framfæri ábendingum og ályktunum
til stjórnvalda til hagsbóta fyrir sjúk-
linga,“ segir Helgi.
„Berklar hafa aldrei þurrkast al-
farið út og árlega veikjast tólf til fjór-
tán manns með berkla hérlendis, sem
allir fá meðferð. Nú eru tilkomin ný af-
brigði berklabakteríunnar sem svara
illa eða alls engri lyfjagjöf. Mér hefur
stundum fundist að í hugum Íslend-
inga séu berklar ýmist löngu liðinn
fortíðar vandi eða í versta falli langt
frá Íslandsströndum, en því miður er
það ekki svo. Hlutverk SÍBS, vegna
berklanna, á því sannarlega enn við í
dag,“ segir Helgi.
„Starfsemin að Reykjalundi hefur
verið rósin í hnappagati SÍBS. Upp-
bygging á Reykjalundi hefur að mest-
um hluta verið fjármögnuð af happ-
drætti SÍBS og þar er nú langstærsta
endurhæfingarmiðstöð landsins með
níu endurhæfingarsvið. Menn hafa
verið vakandi fyrir nýjum heilsufars-
ógnum og nú eru að koma inn stórir
hópar kynslóða sem fengu ekki næga
vitneskju um skaðsemi reykinga og er
margt hvert að missa heilsuna mjög
illa í dag. Eins þjáist stór hópur þjóðar-
innar af offitu, áunninni sykursýki og
hjarta- og lungnasjúkdómum og njóta
endurhæfingar á Reykjalundi,“ segir
Helgi.
„Einkunnarorð SÍBS, „Styðjum
sjúka til sjálfsbjargar“, hafa alla tíð
verið leiðarljós í starfinu og eiga enn
við. Verkefnin eru óþrjótandi og verða
um ókomna tíð.“
thordis@frettabladid.is
SÍBS ER SAMTÖK ÍSLENSKRA BERKLA- OG BRJÓSTHOLSSJÚKLINGA: SJÖTÍU ÁRA
Sjúkir studdir til sjálfsbjargar
HORFT TIL FRAMTÍÐAR Berklar þróast enn í heiminum með illviðráðanlegum hætti og Helgi
Hróðmarsson segir Íslendinga þurfa að vera vel á verði. FRÉTTABLAÐIÐ/RÓSA
Það var þennan dag fyrir 91 ári að ung-
verski undankomumeistarinn Harry
Houdini náði að losa sig úr keðjum
ofan í vatnsbúri Aquatic Park í San
Francisco á 57 sekúndum. Fjórum sinn-
um á ævinni kom hann fram með at-
riði sín í Aquatic Park, en í fyrsta skipt-
ið þótti hann ekki nógu frægur til að ná
á forsíður með atriði sín, sem þó voru
nýlunda á heimsvísu. Houdini öðlað-
ist heimsfrægð eftir vatnsundankom-
una í San Francisco, en þar hafði hann
handjárnað sig á höndum og fótum og
strengt þykkar keðjur á milli lása um lík-
amann, sem hann náði að losa á áð-
urnefndum tíma um leið og hann barðist við að halda niðri í sér
andanum. Atriðið nefndi hann „Chinese Water Torture Wall“, en
það varð hans allra frægasta undankomuatriði, sem hann sýndi
allt til dauðadags.
ÞETTA GERÐIST: 26. ÁGÚST 1907
Vatnapíning Houdinis
Elskuleg móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
Helga Ingimarsdóttir
Víðilundi 24, Akureyri,
lést á heimili sínu laugardaginn 23. ágúst.
Útför hennar fer fram frá Akureyrarkirkju
föstudaginn 29. ágúst kl. 13.30.
Valborg Svavarsdóttir Haukur Valtýsson
Agnes Tulinius Svavarsdóttir Ottó Tulinius
Guðmundur Þorsteinsson
og ömmubörnin.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Jón Lárus Guðnason
Jökulgrunni 14, Reykjavík,
lést á Hrafnistu Reykjavík föstudaginn 22. ágúst.
Útförin fer fram frá Áskirkju fimmtudaginn
28. ágúst kl. 11.00.
Sigþóra Scheving Kristinsdóttir
Guðrún Linda Jónsdóttir Pálmi Bergmann Vilhjálmsson
Íris Björk Jónsdóttir Kristmundur Carter
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Þóra Abigael
Þorvarðardóttir
Sólvangsvegi 1, 220 Hafnarfirði,
sem lést á St. Jósepsspítala hinn 22. ágúst
síðastliðinn, verður jarðsungin frá Þjóðkirkjunni
í Hafnarfirði föstudaginn 29. ágúst kl. 13.00.
Hafsteinn Viðar Halldórsson Erla S. Engilbertsdóttir
Hafdís Abigael Gunnarsdóttir Garðar S. Gunnarsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir færum við öllum þeim
sem sýndu okkur samúð sína og
hluttekningu með heimsóknum, kortum,
skeytum og blómasendingum við fráfall
Ágústu Skúladóttur
Vallholti 39, Selfossi.
Kjartan T. Ólafsson
Jökull Veigar Kjartansson Elín Sigmarsdóttir
Ólafur Helgi Kjartansson Þórdís Jónsdóttir
Skúli Kjartansson Nancy Barish
Hjálmar Kjartansson Guðný Anna Arnþórsdóttir
Bergdís Linda Kjartansdóttir Þórður Kristjánsson
ömmu- og langömmubörn
Ástkær móðir mín, amma okkar
og langamma,
Karólína Ragnheiður
Petersen Bye
frá Akureyri
andaðist á hjúkrunarheimilinu Fellsenda, Búðardal,
laugardaginn 23. ágúst. Fyrir hönd vandamanna,
Guðrún Sólveig Högnadóttir.
Ástkær faðir minn, tengdafaðir,
afi, bróðir og mágur,
Ásmundur Einarsson
lést föstudaginn 15. ágúst á Landspítala
Háskólasjúkrahúsi við Hringbraut. Útförin fór fram í
kyrrþey, að ósk hins látna. Innilegar þakkir færum við
öllum þeim sem önnuðust hann og sýndu umhyggju
og hlýhug í erfiðum veikindum.
Steinunn Ásmundsdóttir Stefán Ingimar Bjarnason
Áslaug Ragna Stefánsdóttir
Hildur Einarsdóttir Egill Ágústsson
Anna Margrét Einarsdóttir.
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir,
afi, bróðir og vinur,
Ólafur Þ. Hafberg
fyrrverandi bifreiðastjóri,
Þjóðólfsvegi 14, Bolungarvík,
lést á heimili sínu fimmtudaginn 14. ágúst.
Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey.
Þórarinn Hafberg Ásthildur Halldórsdóttir
Sigrún Ólafsdóttir
Ingibjörg Þ. Hafberg Leifur E. N. Karlsson
Engilbert Þ. Hafberg Janina Hafberg
Krystyna Brzeziak
barnabörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Sigurbjörg Svanhvít
Steindórsdóttir
Borgarheiði 17h, Hveragerði,
lést laugardaginn 23. ágúst á Landspítalanum við
Hringbraut. Jarðarförin auglýst síðar.
Sigurbjörg Gísladóttir Hannes Kristmundsson
Svanhvít Gísladóttir Reynir Gíslason
Magnea Ásdís Árnadóttir
og fjölskyldur.
Ástkær eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
Karl Adolfsson
húsgagnabólstrari og tónlistarmaður,
sem lést á Landspítalanum Fossvogi 18. ágúst, verður
jarðsunginn frá Langholtskirkju í dag, þriðjudaginn
26. ágúst, kl. 13.00.
Ásdís Árnadóttir
Árni H. Karlsson
Sigurður G. Karlsson Guðrún Svava Svavarsdóttir
Davíð K. Karlsson Kolbrún Júlínusdóttir
Gauja S. Karlsdóttir Björgvin Högnason
barnabörn og barnabarnabörn.