Fréttablaðið - 30.08.2008, Síða 29
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447
„Ég ek nú ekki á þessum bíl dags
daglega,“ segir sendibílstjórinn
Ágúst Sigurðsson brosandi þar
sem hann er að dedúa við gamlan
og vel með farinn Land Rover í
hlaðinu. Árgerðin er 1964 en allt
vélarkramið er upprunalegt og
örmjó aftursætin beltislaus, undir
hliðargluggunum eins og í önd-
verðu.
Ágúst kveðst hafa keypt bílinn
hálfuppgerðan af Hilmari Foss
fyrir níu árum. „Ég notaði hann
meira fyrstu árin bæði innanbæj-
ar og í sumarferðalögum. Nú eru
svolítið misjafnar skoðanir á því í
fjölskyldunni hvort þetta sé
skemmtilegur ferðabíll. Strák-
arnir mínir kvörtuðu ekkert
meðan þeir voru minni en eru
ekki eins spenntir í dag. Samt
finnst þeim töff að hann sé til,“
segir hann kíminn.
Ágúst kveðst hafa farið í nokkr-
ar hópferðir með félagi Land
Rover-eigenda á Íslandi og alltaf
verið á elsta bílnum. „Einu sinni
fórum við upp með Heklu og þessi
stóð sig ekki síður vel í sand-
brekkunum en þessir nýrri. Á
eftir fórum við í Landmannalaug-
ar en þegar út á þjóðveginn kom
þá varð ég langsíðastur.“
Inntur eftir sögu bílsins segir
Ágúst hann upphaflega hafa verið
læknisbíl á Kristnesi. „Svo veit
ég ekki eigendasöguna þar til
Hilmar Foss fékk hann. Það er
ómögulegt að segja hversu mikið
hann hefur verið keyrður. En
hann nánast dettur í gang þótt
hann standi mánuðum saman þess
á milli,“ segir hann og klappar
gæðingnum.
gun@frettabladid.is
Dettur í gang þótt hann
standi mánuðum saman
Þótt Land Roverinn hans Ágústs Sigurðssonar sé módel sextíu og fjögur og bara fimmtíu hestöfl þá gaf
hann þeim yngri ekkert eftir upp sandbrekkurnar við Heklu. En úti á þjóðveginum hurfu hinir.
„Ég monta mig stundum á þessum 17. júní,“ segir Ágúst um elsta Land Roverinn sinn. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
ALLS KONAR skemmtilegir hlutir, sem tengjast göldrum og
eru vísir með að fegra heimilið, fást í Nornabúðinnni á Vestur-
götu 12. Spábollaskrín og handmáluð rúnaborð, hvort tveggja
íslensk hönnun, er meðal þess sem er í boði í búðinni. Allar nán-
ari upplýsingar um verslunina er að finna á www.nornabudin.is.
• 5 tímar í skvass
• 5 tímar í Golf
• máltíð á BK Kjúkling
• 5 tímar í ljós
• frítt í allar ÍTR sundlaugarnar
• frír mánuður fyrir vin
• tækjakennsla
• bolur
• brúsi
SportKlúbburinn!
Auglýsingasími
– Mest lesið
®