Fréttablaðið - 30.08.2008, Blaðsíða 62
38 30. ágúst 2008 LAUGARDAGUR
timamot@frettabladid.is
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og
útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is.
MERKISATBURÐIR
1720 Jón Vídalín Skálholtsbisk-
up deyr á leið sinni norð-
ur Kaldadal.
1779 Hið íslenska lærdóms-
listafélag stofnað í Kaup-
mannahöfn.
1874 Efnt til þjóðhátíðar í
Reykjavík í annað sinn í
blíðskaparveðri eftir mis-
heppnaða hátíð fyrr í
mánuðinum.
1945 Hong Kong fær sjálfstæði
eftir að hafa verið undir
stjórn Japans.
1967 Tvær vöruskemmur Eim-
skipafélagsins brenna í
Borgarskálabruna sem
varð mesta eignatjón í
eldi til þess tíma.
1987 Kanadamaðurinn Ben
Johnson setur heimsmet
í 100 m hlaupi á 9,83
sekúndum.
Það var þennan dag fyrir 29
árum að heimspressan ljóstraði
upp sérstæðu atviki þegar Jimmy
Carter, þáverandi forseti Banda-
ríkjanna, hafði lent í því sem
fjölmiðlar vestra kölluðu „árás
dráps kanínu“.
Carter hafði skotist með veiði-
stöng á árabát sínum út á stöðu-
vatn í heimabæ sínum Plains í
Georgíu þegar hvæsandi mýrar-
kanína synti hratt upp að bát
hans. Að sögn forsetans var um-
rædd kanína ekki krúttleg páska-
kanína, heldur stór og virkilega
ógnvekjandi þar sem hún sýndi
tennurnar og þandi út nasavængina þegar hún
gerði sig líklega til að stökkva upp í bát forset-
ans.
Þegar Carter kom aftur á skrif-
stofu sína í Hvíta húsinu átti sam-
starfsfólk hans bágt með að trúa
sögunni og hélt því fram að kan-
ínur væru ósyndar eða réðust
aldrei með ógnandi hætti að
mönnum. Fljótlega kom í ljós að
ljósmyndari Hvíta hússins hafði
náð ljósmyndum af atvikinu, en á
þeim sést Carter stugga við trylltri
skepnunni með árum bátsins.
Fjölmiðlar komust óvænt á
snoðir um málið og þeir birtu for-
síðufréttir með fyrirsögnum á
borð við: „Forsetinn verður fyrir
árás kanínu“, en atvikið þótti vatn
á myllu andstæðinga Carters sem gripu hverja
gæs sem gafst til að undirstrika ólánlega og
þróttlausa forsetatíð hans.
ÞETTA GERÐIST 30. ÁGÚST 1979
Kanína ræðst á Jimmy Carter
AFMÆLI
TINNA OG DALLA ÓLAFSDÆTUR,
DÆTUR FORSETA ÍSLANDS
eru 33 ára.
KARL PÉTUR
JÓNSSON,
ALMANNA-
TENGILL OG
TENGDASON-
UR FORSETA
er 39 ára.
LEIKKONAN CAMERON DIAZ ER 36 ÁRA
„Ég bíð í ofvæni eftir að kom-
ast á þann aldur að geta hang-
ið í golfi og á ströndinni alla daga
með jafnöldrum mínum. Við
munum hlæja og hafa gaman;
fara á kenderí á ellilyfjunum og
keyra um á golfkerrum. Ég get
ekki beðið.“
Cameron Diaz varð fyrirsæta 16 ára.
Henni var óvænt boðið aðalhlutverk
í The Mask 1994 og hefur síðan verið
með vinsælli leikkonum samtímans.
„Mig langar mest til að vera innan um
fólkið mitt, sjá það hlæja og njóta lífs-
ins saman,“ segir afmælisbarn dags-
ins, Sigrún Edda Björnsdóttir, þegar
hún er innt eftir óskagjöf á fimmtug-
asta afmælisdaginn.
„Ég er þakklát fyrir að vera fimm-
tug og við hestaheilsu. Ég á yndislegan
mann, heilbrigð og mannvænleg börn,
æðislega fjölskyldu, mikið af góðum
vinum og starfa við það sem draum-
ar mínir stóðu til. Það gaman að vera
til en lífið er hverult og maður þarf að
vanda sig og njóta hverrar stundar,“
segir Sigrún Edda sem fæddist í rúmi
foreldra sinna, Guðrúnar Ásmunds-
dóttur leikkonu og Björns Björnsson-
ar flugvirkja, á Reynimel.
„Þá hafði komið upp pest á fæðingar-
deildinni og flest ágústbörn 1958
fæddust í heimahúsum. Í móðurkviði
var reiknað með að ég yrði strákur og
kölluð Spútnik, því fyrsta geim farið
fór á loft 1958, en þegar ég reyndist
vera stelpa var ég kölluð Spútlú í stað-
inn,“ segir Sigrún Edda.
„Fyrsta minningin er um mömmu,
þegar hún var að setja slaufur í hárið
á mér. Ég minnist þess að hafa verið
dramatískt barn sem hugsaði mikið
um líf og dauða, en átti þá ósk heitasta
að verða fyndin þegar ég yrði stór. Það
lá svo beinast við að ég yrði leikkona
þar sem ég ólst upp í Iðnó þar sem
mamma var leikkona. Leikhúsið varð
því minn hversdagur, en líka hátíð, því
mér fannst svo gaman að vera í Iðnó
innan um allt það góða fólkið sem þar
var,“ segir Sigrún Edda.
„Svo sá ég auglýsingu frá nýstofn-
uðum leiklistarskóla, skellti mér í inn-
tökupróf og bara lenti í þessu; en auð-
vitað sló hjarta mitt alltaf í leikhús-
inu. Leikhúsin láta mig nú vita að ég sé
standi á fimmtugu og tvö verk fram-
undan sem fela í sér staðreyndir um
miðjan aldur; fyrst hlutverk Milljarða-
mærinnar sem heitir á frum málinu Sú
gamla kemur í heimsókn og hitt uppi-
standfarsinn Fúlar á móti sem á frum-
málinu heitir Geðvondar, gamlar
konur!“ segir Sigrún Edda og skellir
upp úr.
„Í dag ætla ég að taka lífinu með
ró, en á morgun bjóða ástvinum til
konungsveislu eins og þær voru bestar
í stóru borðstofu Iðnó. Til þessa hefur
þrítugsafmælið verið skemmtilegast,
þar sem eiginmaðurinn kynnti sig
fyrir fjölskyldunni í fyrsta sinn. Þá
var hann, eins og enn í dag, alveg æðis-
legur gæi, í hljómsveitinni Langa-Sela
og Skuggunum. Ég hafði aldrei séð
hann í öðru en leðurdressi með svaka
greiðslu, en svo birtist hann í grænum
jakkafötum af því hann vildi koma vel
fyrir og ég ætlaði ekki að þekkja hann!
Ég hlakka því alltaf til afmælis veislna
og finn alltaf betur og betur hvað ég
má vera þakklát fyrir margt. Ætla að
njóta þess að syngja, borða og vera
til.“ thordis@frettabladid.is
SIGRÚN EDDA BJÖRNSDÓTTIR LEIKKONA: FÆDDIST FYRIR FIMMTÍU ÁRUM
Var kölluð Spútlú á sænginni
FÖGUR OG FIMMTUG
Sigrún Edda Björnsdóttir hefur
margoft á leikferli sínum leikið
smástelpur, en segir nú leikhúsin
færa henni viðeigandi hlutverk
miðaldra kvenna.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Fjölleikahúsið Sirkus
Agora sýnir á Akur-
eyri í dag klukkan 17
og aftur á morgun
sunnudag klukkan 18.
Sýningarnar fara
fram á flötinni fyrir
framan Samkomu húsið
og eru liður í Akureyr-
arvöku sem stendur
yfir nú um helgina.
Fólk getur nálgast
miða á www.midi.is
eða við innganginn.
- rat
Sirkus Agora
á Akureyri
Ástkær móðir mín, amma okkar og lang-
amma,
Karólína Ragnheiður
Petersen Bye
frá Akureyri,
verður jarðsungin frá Fossvogskapellu miðvikudaginn
3. september kl.13.00.
Fyrir hönd vandamanna,
Guðrún Sólveig Högnadóttir.
Innilegar þakkir færum við öllum þeim
sem sýndu okkur samúð og hlýhug við
andlát og útför eiginmanns míns, föður
okkar, tengdaföður, afa og langafa,
Aðalbjarnar Benediktssonar
frá Grundarási.
Einnig færum við læknum, hjúkrunarfólki og öðru
starfsfólki Landspítalans við Hringbraut á
skilunardeild og deild 13-E sérstakar þakkir fyrir
afburða aðhlynningu og þá stöku alúð og virðingu
sem hann naut þar. Sömuleiðis færum við starfsfólki
Droplaugarstaða alúðarþakkir fyrir umhyggjuna
síðastliðna mánuði.
Guðrún Benediktsdóttir
Sigrún Aðalbjarnardóttir Þórólfur Ólafsson
Inga Hjördís Aðalbjarnardóttir Helgi Jón Jónsson
Aldís Aðalbjarnardóttir Páll Sigurðsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir,
afi, bróðir og vinur,
Ólafur Þ. Hafberg
fyrrverandi bifreiðastjóri,
Þjóðólfsvegi 14, Bolungarvík,
lést á heimili sínu fimmtudaginn 14. ágúst.
Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey.
Þórarinn Hafberg Ásthildur Halldórsdóttir
Sigrún Ólafsdóttir
Ingibjörg Þ. Hafberg Leifur E. N. Karlsson
Engilbert Þ. Hafberg Auður Sæland
Sigurður Þ. Hafberg Janina Hafberg
Krystyna Brzeziak
og barnabörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
Soffía Ólafsdóttir
Viðjugerði 12, Reykjavík,
lést fimmtudaginn 28. ágúst.
Björg Ingólfsdóttir
Ágústa Ingólfsdóttir
Ólafur Ingólfsson Bjarghildur Jósepsdóttir
Hrafnhildur Ingólfsdóttir Magnús Á. Magnússon
Finnbogi Ingólfsson Kristín Birna Jakobsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.