Fréttablaðið - 19.09.2008, Side 2
2 19. september 2008 FÖSTUDAGUR
DÓMSMÁL „Þetta er stórkostlegur
dagur,“ sagði Eggert Haukdal,
fyrrverandi alþingismaður og
oddviti Vestur-Landeyjahrepps,
eftir að Hæstiréttur sneri í gær
eigin dómi og sýknaði Eggert af
ákæru um fjárdrátt.
Eggert var árið 2001 sakfelldur
í Hæstarétti fyrir að draga sér 500
þúsund krónur úr sjóðum Vestur-
Landeyjahrepps árið 1996. Hann
fór ítrekað fram á að málið yrði
tekið upp aftur, og fékk því að
lokum framgengt árið 2006.
„Ég er búinn að vera í tíu ára
baráttu, og hef staðið gegn ljúg-
vitnum og ómerkilegheitum,“
sagði Eggert í gær. „Það hefur
aldrei verið sannað að ég hafi
stolið einni einustu krónu, en samt
hefur kerfið haldið því fram.“
Eggert segir málinu ekki lokið
af sinni hálfu. Hann hafi verið
beittur órétti og nú taki við undir-
búningur að málaferlum til að
sækja rétt sinn vegna þess.
Eggert viðurkennir að á þessum
tíu ára ferli málsins hafi hann á
stundum efast um að réttlætið
næði fram að ganga. „Ég vonaði
það alltaf, en ekki var ég alltaf
öruggur með það. En ég gafst
aldrei upp.“
Í dómi Hæstaréttar kemur fram
að verulegt ósamræmi hafi verið
milli framburðar fyrrverandi
endur skoðanda hreppsins og
framlagðra gagna um það hvenær
umræddar 500 þúsund krónur hafi
verið færðar á reikning Eggerts.
Í því ljósi þótti fjórum af fimm
dómurum verulegur vafi leika á
því að Eggert hafi vitað um færsl-
una, og að hann hafi hafi haft
ásetning um að draga sér fé, og
var hann því sýknaður af
ákærunni.
Símon Sigvaldason, einn af
fimm dómurum í málinu, skilaði
sératkvæði í málinu. Hann taldi
sekt Eggerts hafna yfir vafa og
vildi staðfesta fyrri dóm yfir
honum á sömu forsendum og
Hæstiréttur gerði árið 2001. - bj
Þú getur alltaf treyst
á prinsinn
Hlíðasmára 8 • 201 Kópavogi • s: 554 7200
Reykjavíkurvegi 68 • 220 Hafnarfirði • s: 5557220
www.hafid.is
VINNUMARKAÐUR Atkvæðagreiðslu
um miðlunartillögu ríkissátta-
semjara í kjaradeilu ríkisins og
ljósmæðra lýkur á hádegi í dag
hjá Ljósmæðrafélagi Íslands.
Úrslitin verða kunngerð klukkan
tvö.
Guðlaug Einarsdóttir, formaður
Ljósmæðrafélagsins, sagði að
snemma í gærmorgun hefðu 65
ljósmæður af 206 verið búnar að
greiða atkvæði um kjarasamning-
inn. - ghs
Ljósmæður kjósa um tillögu:
Úrslit atkvæða-
greiðslu í dag
ALÞJÓÐASAMSKIPTI Geir H. Haarde
forsætisráðherra og Yoweri
Kaguta Museveni, forseti Úganda,
ræddu meðal annars frekari
samskipti ríkjanna, stofnana og
fyrirtækja.
Museveni kvaðst að loknum
fundi afar ánægður með heimsókn-
ina en hann kynnti sér meðal
annars upplýsingatækni, fisk-
vinnslu, jarðhitarannsóknir og
vetnisnýtingu.
Forsetinn sagðist vonast eftir
frekari samvinnu ríkjanna í
þessum málaflokkum. Geir minnti
á gott samstarf ríkjanna hingað til.
Það samstarf væri meðal annars í
gegnum ICEAID. Heimsókn
Musevenis lýkur í dag. - ovd
Heimsókn forseta Úganda:
Vonast eftir
samskiptum
FRÁ FUNDINUM Geir H. Haarde forsætis-
ráðherra og Yoweri Museveni, forseti
Úganda, á fundinum í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
BELGÍA, AP Framkvæmdastjórn
Evrópusambandsins hyggst
endurskoða fiskveiðistefnu
sambandsins frá grunni vegna
þess að hún hefur ekki gagnast til
að vernda fiskistofna.
Joe Borg, sem fer með fisk-
veiðimál í framkvæmdastjórn-
inni, segir að hin árlega sam-
keppni aðildarríkjanna um að fá
sem mest út úr úthlutun veiði-
heimilda leiði einungis af sér
„þröngsýna ákvörðunartöku sem
byggð er á skammtímasjónarmið-
um“ og niðurstaðan veki óánægju
jafnt umhverfisverndarsinna sem
fiskiðnaðarins.
- gb
Framkvæmdastjórn ESB:
Endurskoðun
fiskveiðistefnu
ORKUMÁL Fjölþjóðlegt teymi manna
undir forystu Svisslendingsins
Bernard Piccard vinnur nú að því
að smíða flugvél sem ætlunin er að
fljúga umhverfis jörðina eingöngu
á sólarorku. Piccard, sem var sér-
stakur gestur á ráðstefnunni
Driving Sustainability 08 á Hótel
Nordica í gær, segist með þessari
metnaðarfullu fyrirætlan þó ekki
fyrst og fremst vera að eltast við
að slá met. Hann vilji aðeins opna
augu fólks fyrir því sem mögulegt
sé að gera með þeirri tækni sem
þegar sé fyrir hendi til að draga úr
orkusóun og mengandi útblæstri
gróðurhúsalofttegunda.
Ásamt Brian Jones varð Piccard
árið 1999 fyrsti maðurinn til að
fljúga loftbelg umhverfis jörðina
án millilendingar. Í samtali við
Fréttablaðið segir Piccard að eftir
þá ferð hafi hann einsett sér að
næsta frumkvöðlaævintýrið sem
hann tæki sér fyrir hendur hefði
að markmiði að fljúga umhverfis
jörðina án eldsneytis. Gangi áætl-
anir eftir verður það reynt árið
2011 eða 2012 á tilraunaflugvél-
inni SolarImpulse, sem sameinar
ítrustu léttsmíði og nýjustu sólar-
rafhlöðu- og rafmótoratækni.
„Ég vil hrífa fólk með mér í að
breyta viðteknum viðhorfum og
hugsunarhætti, sem er forsenda
fyrir þeim lífsháttabreytingum
sem verða að eiga sér stað,“ segir
Piccard. - aa
HUGSJÓNAMAÐUR Bernard Piccard vill
opna augu fólks fyrir þörfinni á lífsstíl án
orkusóunar og mengunar. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Frumkvöðullinn Bernard Piccard á ráðstefnu um framtíðarlausnir í samgöngum:
Umhverfis jörðina á sólarorku
Hróbjartur, var þetta rótburst
hjá ykkur?
„Já. Við krossfestum himnafeðgana
báða tvo.“
Rótararnir Hróbjartur Róbertsson, eða
Hrói rót, og félagi hans Ingólfur Magnús-
son, Golli rót, lögðu Jesúfeðgana Pétur
Örn „Jesús“ Guðmundsson og Guðmund
Benediktsson í úrslitaleik Popppunkts í
Popplandi Rásar 2 á miðvikudag.
IÐNAÐUR „Við verðum langstærsti
bjórútflytjandinn í landinu,“ segir
Jón Elías Gunnlaugssson í Brugg-
húsinu Ölvisholti, sem hefur sent
fyrsta gáminn af bjórnum Skjálfta
til Danmerkur.
Að sögn Jóns hefur verið samið
um árlega sölu á eitt hundrað
tonnum af Skjálfta til Danmerkur.
Það samsvarar 300 þúsund bjór-
flöskum. Og í gær bárust þau tíð-
indi hingað heim frá bjórsýningu í
Stokkhólmi að meðeigandi Jóns í
Ölvisholti, Bjarni Einarsson, hefði
náð samningum um sama fjölda
af flöskum til stærsta dreifingar-
fyrirtækis áfengis í Svíþjóð,
Wicked Wine. Að sögn Jóns ætlar
sænska fyrirtækið þessu til við-
bótar að dreifa bjór frá Ölvisholti
til Finnlands og Noregs.
Jóns segir Wicked Wine ætla að
dreifa þremur tegundum af bjór
frá Ölvisholti; Skjálfta, Móra og
„reyktum stout“ sem ekki hefur
fengið heiti enn þá.
„Bjarni var einnig á fundi með
innkaupastjóra Systembolaget
sem er jafnoki Vínbúðar okkar
Íslendinga. Hann lýsti yfir ein-
dregnum vilja til að gera íslenska
bjórnum hátt undir höfði enda
búinn að smakka hann og líkaði
vel,“ segir Jón.
Skjálfti fékk á dögunum frá-
bæra dóma í dagblaðinu Ekstra
Bladet í Danmörku. „Örugglega
besti íslenski bjórinn,“ sagði
Ekstra Bladet og gaf Skjálfta, eða
Skælv eins hann heitir á dönsku,
sex upptakara af sex mögulegum
í einkunnagjöf blaðsins.
Þrátt fyrir góðar móttökur ytra
eru þó blikur á lofti. Jón segir að
auk þess sem salan til Danmerk-
ur hafi byrjað mun seinna en
áætlað var vegna aðstæðna á
bjórmarkaði þar hafi slæmt gengi
íslensku krónunnar afar neikvæð
áhrif.
„Flöktið á krónunni hefur kost-
að okkur tugi milljóna. En þó að
reksturinn sé erfiður erum við
alls ekki að gefast upp – langt frá
því,“ segir Jón.
Brugghúsið Ölvisholti setti
rauða ölið Móra á markað í byrj-
un september. Móri fékk góðar
móttökur að sögn Jóns sem einnig
kveður vekja bjartsýni að Skjálfti
hafi áunnið sér rétt til að vera á
boðstólum á öllum útsölustöðum
ÁTVR frá og með 1. október. - gar
Flytja út 600 þúsund
íslenskar bjórflöskur
Brugghúsið í Ölvisholti hefur náð samningum um að flytja út samtals 600 þús-
und bjórflöskur til Svíþjóðar og Danmerkur. Að sögn eigandans eru Noregur
og Finnland líka í sigtinu. Ölvisholt verður langstærsti bjórútflytjandi landsins.
FYRSTI GÁMURINN Jón Elías Gunnlaugsson við fyrsta gáminn af Skjálfta, sem nú er á leið til Danmerkur.
EFNAHAGSMÁL Verðbólgan ætti að
lækka hratt síðla hausts og á
næsta ári, sagði Davíð Oddsson
seðlabankastjóri í viðtali við Stöð
2 í gærkvöldi. Hann sagði að
stýrivextir
Seðlabankans
myndu lækka
hratt í kjölfarið.
„Hún [verð-
bólgan] er ekki
goluþytur sem
hverfur, við
verðum að berja
hana niður. Það
munum við gera,
en auðvitað er það svo að svona
yfirskot í gengislækkun gerir það
aðeins flóknara,“ sagði Davíð.
Hann sagði sparifé landsmanna
óhult í íslenskum bönkum. Ef allt
færi á versta veg væri útilokað
annað en að stjórnvöld ábyrgðust
innistæður landsmanna. - bj
Bankastjóri Seðlabankans:
Verðbólga nið-
ur síðla hausts
DAVÍÐ ODDSSON
Hæstiréttur sneri eigin dómi og sýknaði Eggert Haukdal af ákæru um fjárdrátt:
Tíu ára baráttu ekki enn lokið
Það
hefur
aldrei verið
sannað að ég
hafi stolið einni
einustu krónu,
en samt hefur
kerfið haldið
því fram.
EGGERT HAUKDAL
FYRRVERANDI ODDVITI
VIÐSKIPTI „Þetta eru fjarri því að
vera tapaðir peningar,“ segir
Ólafur Teitur Guðnason, fjölmiðla-
fulltrúi Straums.
Fjármálaeftirlitið upplýsti í
gær að íslensku viðskiptabank-
arnir ættu inni kröfu hjá banda-
ríska fjárfestingarbankanum
Lehman Brothers og tengdum
félögum upp á 182,6 milljónir
evra, jafnvirði tæpra 25 milljarða
króna. Hlutur Straums er
stærstur en hann hljóðar upp á
13,6 milljarða króna.
Lehman Brothers fór fram á
greiðslustöðvun í byrjun vikunn-
ar. Óvíst er um kröfur á hendur
félögum því tengdu í Evrópu en
Fjármálaeftirlitið segir þess
mega vænta að hægt verði að
innheimta hluta þeirra.
- jab / sjá síðu 18
Milljarðakröfur á Lehman:
Straumur með
hæstu kröfuna
SPURNING DAGSINS