Fréttablaðið - 19.09.2008, Page 8
8 19. september 2008 FÖSTUDAGUR
SAMGÖNGUMÁL Samtök verslunar
og þjónustu (SVÞ) hafa til umfjöll-
unar formlega kvörtun frá innan-
landsdeildum Eimskips og Sam-
skipa sem gagnrýna rekstur
Íslandspósts harðlega. Sam-
keppniseftirlitið hefur til rann-
sóknar hvort Íslandspóstur hafi
brotið samkeppnislög.
Samkeppniseftirlitið hefur
fyrir nokkru hafið rannsókn á því
hvort Íslandspóstur, sem er hluta-
félag í eigu ríkisins, hafi brotið
tvær aðskildar greinar sam-
keppnislaga. Um er að ræða 11.
grein sem fjallar um bann við
misnotkun fyrirtækja á markaðs-
ráðandi stöðu og 14. grein um
fjárhagslegan aðskilnað.
Fyrirtækið hefur að undan-
förnu legið undir ámæli vegna
uppbyggingar á tíu pósthúsum
sem sérstaklega eru til þess ætluð
að styrkja fyrirtækið á flutninga-
markaði á sama tíma og eldri hús
eru aflögð. Er fullyrt að lögbund-
ið þjónustuhlutverk sé virt að
vettugi. Í sölum Alþingis hefur
verið tekist á um starfsemi og
lögbundið hlutverk Íslandspósts
og stjórnarliðar sem og stjórnar-
andstæðingar hafa gagnrýnt
fyrirtækið. Kristján L. Möller
samgönguráðherra hefur varið
rekstur fyrirtækisins staðfast-
lega á þeim vettvangi. Um sé að
ræða eðlilega uppbyggingu fyrir-
tækisins til framtíðar og engir
árekstrar séu á milli einkaleyfis-
og samkeppnishluta rekstursins.
Guðmundur Nikulásson, fram-
kvæmdastjóri innanlandssviðs
Eimskips, segir að erindi fyrir-
tækjanna fjalli meðal annars um
framgöngu Íslandspósts á sam-
keppnismarkaði og farið hafi
verið fram á að samtökin veiti
aðstoð sína til að ákvarða hvort á
hlut fyrirtækjanna hafi verið
gengið.
Jörundur Jörundsson, fram-
kvæmdastjóri innanlandssviðs
Samskipa, telur að Íslandspóstur
hafi ekki haldið aðgreindum
rekstri sínum sem varinn er
einkaleyfi og samkeppnisrekstri,
og fyrirtækið hækki verðlagn-
ingu á einkaleyfisstarfsemi óeðli-
lega mikið til að niðurgreiða sam-
keppnisrekstur sinn.
Andrés Magnússon, fram-
kvæmdastjóri SVÞ, segir að fjall-
að hafi verið um erindið í stjórn
SVÞ og innihald þess verið kynnt
forsvarsmönnum Íslandspósts í
því skyni að gera þeim grein fyrir
að samtökin hafi verið beðin um
aðstoð við úrlausn málsins. „Við
viljum helst leita leiða til þess að
farið verði ofan í málið af frum-
kvæði fyrirtækjanna án þess að
komi til kæru eða málshöfðunar,“
segir Andrés.
svavar@frettabladid.is
1. Hver er forstjórinn sem má
ekki vera á skrifstofu sinni hjá
jarðhitafyrirtækinu Enex?
2. Forseti hvaða Afríkuríkis
hefur verið síðustu daga hér á
landi í opinberri heimsókn?
3. Hvaða leikmaður er nú
markahæstur í úrvalsdeild
karla í knattspyrnu?
SVÖRIN ERU Á SÍÐU 42
- flegar flú kaupir parket!
undirlag
og gólflistarFRÍ
TT!
Eikarparket
Kr. 4.990,- m2
Krókhálsi 4 • Sími 567 1010 • wwwparket.is
E
in
n
,
t
v
e
ir
o
g
þ
r
ír
2
8
7
.1
13
Endurvinnsla
– í þínum
höndum
NÁTTÚRUVERND Mosi hefur drepist, eða er illa farinn,
á rúmlega eins ferkílómetra svæði í kringum
Reykjanesvirkjun. Talið er að mosinn þoli ekki
brennisteinsmengun frá virkjuninni.
Starfsmenn Náttúrufræðistofnunar Íslands (NÍ)
og Umhverfisstofnunar könnuðu svæðið umhverfis
Reykjanesvirkjun á miðvikudag, í kjölfar frétta af
mosaskemmdum í nágrenni Hellisheiðarvirkjunar í
síðustu viku.
„Mér finnst þetta vera of mikið til að við getum
sætt okkur við þetta,“ segir Sigurður H. Magnússon,
gróðurvistfræðingur hjá NÍ.
Mosi á svæðinu er mikið skemmdur næst virkjun-
inni. Þar sem ástandið er verst er mosi á svæðinu að
mestu dauður og yfirborðið þakið dauðum mosa.
Sigurður segir skemmdir á mosa mest áberandi
næst mannvirkjunum. Þær hafi verið vel greinan-
legar í allt að 900 metra fjarlægð.
Vitað er að mosi er mjög viðkvæmur fyrir
mengun og ummerkin benda til þess að um einhvers
konar mengun sé að ræða, segir Sigurður.
Jarðvarmavirkjanir losi brennisteinsvetni og vel sé
hugsanlegt að það hafi þessi áhrif á mosann.
Stærri plöntur og fléttutegundir virðast ekki hafa
orðið jafn illa úti vegna mengunarinnar.
Skemmdirnar eru mun meiri en í nágrenni
Hellisheiðarvirkjunar, enda hefur virkjunin verið
starfandi í rúmlega þrjá áratugi. - bj
Brennisteinsmengun talin drepa mosa í hrauni í nágrenni jarðvarmavirkjana:
Mosi skemmdur á stóru svæði
SKEMMDIR Dauður eða mikið skemmdur mosi þekur hraunið
í kringum Reykjanesvirkjun. Hraunið heitir Illahraun, og er talið
hafa runnið árið 1226. MYND/SIGURÐUR H. MAGNÚSSON
Flutningafyrirtæki
krefjast rannsóknar
Tvö flutningafyrirtæki hafa sent Samtökum verslunar og þjónustu kvörtun
vegna flutningastarfsemi Íslandspósts. Samkeppniseftirlitið rannsakar sömu
tvær greinar samkeppnislaga sem fyrirtækin telja að hafi verið brotin.
11. grein.
Misnotkun eins eða fleiri fyrirtækja
á markaðsráðandi stöðu er bönnuð.
Misnotkun getur m.a. falist í því að:
a. beint eða óbeint sé krafist ósann-
gjarns kaup- eða söluverðs eða
aðrir ósanngjarnir viðskiptaskil-
málar settir,
b. settar séu takmarkanir á fram-
leiðslu, markaði eða tækniþróun,
neytendum til tjóns,
c. viðskiptaaðilum sé mismunað
með ólíkum skilmálum í sams
konar viðskiptum og samkeppnis-
staða þeirra þannig veikt,
d. sett sé það skilyrði fyrir samninga-
gerð að hinir viðsemjendurnir taki
á sig viðbótarskuldbindingar sem
tengjast ekki efni samninganna,
hvorki í eðli sínu né samkvæmt
viðskiptavenju.
14. grein.
Þegar um er að ræða opinbert
fyrirtæki eða fyrirtæki sem starfar
að einhverju leyti í skjóli opinbers
einkaleyfis eða verndar er Sam-
keppniseftirlitinu heimilt að mæla
fyrir um fjárhagslegan aðskilnað,
annars vegar á milli þess hluta
rekstrar fyrirtækisins sem nýtur
einkaleyfis eða verndar og hins
vegar þess hluta rekstrar sem er í
frjálsri samkeppni við aðra aðila.
Skal þess gætt að samkeppnisrekst-
ur sé ekki niðurgreiddur af starfsemi
sem nýtur einkaleyfis eða verndar.
11. OG 14. GREIN SAMKEPPNISLAGA
PÓSTUR Forstjóri Íslandspósts hefur alfarið hafnað því að fyrirtækið brjóti gegn
samkeppnislögum enda sé starfsemi þeirra öll samþykkt af Póst- og fjarskipta-
stofnun. FRÉTTABLAÐIÐ/TEITUR
BANDARÍKIN, AP Stærstu samtök
sálfræðinga í Bandaríkjunum
hafa samþykkt bann við því að
félagar í samtökunum starfi fyrir
bandarísk stjórnvöld í fangabúð-
um Bandaríkjahers við Guant-
anamo-flóa á Kúbu.
Sálfræðingarnir hafna því allri
þátttöku í yfirheyrslum á vegum
Bandaríkjahers. Þar með er
tryggt að þeir taki á engan hátt
þátt í pyntingum eða öðrum
umdeildum yfirheyrsluaðferðum.
Hins vegar verður sálfræðing-
um heimilt að starfa fyrir
mannúðarsamtök að málefnum
fanganna í Guantanamo-
búðunum. - gb
Bandarískir sálfræðingar:
Vilja ekki starfa
í Guantanamo
DÓMSMÁL Héraðsdómur Reykja-
víkur sýknaði í gær Þórmund
Bergsson, framkvæmdastjóra
birtingahússins Mediacom, af
brotum á lögum um happdrætti í
tengslum við auglýsingar sænska
veðmálafyrirtækisins Betsson.
„Ég taldi alltaf út úr myndinni
að hægt yrði að koma sökinni yfir
á birtingastofuna í þessu máli. Það
hljómar álíka gáfulega og að
skjóta sendiboðann til að fram-
fylgja réttvísinni,“ sagði Þór-
mundur þegar Fréttablaðið hafði
samband við hann eftir að dómur
hafði verið kveðinn upp.
Samkvæmt íslenskum lögum
má aðeins reka happdrætti hér á
landi til þess að afla fjár til
almannaheilla. Fyrirtækið Bets-
son hefur þó auglýst fjárhættuspil
sem hægt er að stunda á vefsíðu
fyrirtækisins í íslenskum miðlum
frá árinu 2006.
Í kjölfar auglýsinganna var
óskað eftir því að lögregla hlutað-
ist til um málið og kannaði hvort
það stæðist lög að erlendir veð-
bankar sem starfrækja veðbanka
sína á netinu auglýstu í íslenskum
fjölmiðlum. Framkvæmdastjóri
íslenska birtingahússins Media-
com, sem annaðist milligöngu um
birtingu auglýsinga frá Betsson,
var síðar ákærður vegna málsins.
Dómari komst hins vegar að því
að málið væri utan íslenskrar lög-
sögu þar sem síðan væri vistuð í
útlöndum og var Þórmundur því
sýknaður. Ríkissaksóknari ákveð-
ur hvort málinu verður áfrýjað til
Hæstaréttar. - kdk
Segir að sakfelling hefði verið í líkingu við að sendiboði hefði verið skotinn:
Mátti auglýsa fjárhættuspil á Íslandi
AUGLÝSING BETSSON Hefur auglýst
fjárhættuspil sem hægt er að stunda á
vefsíðu fyrirtækisins.
DÓMSMÁL Karl Sigurbjörnsson
biskup hefur leyst sr. Gunnar
Björnsson, sóknarprest á
Selfossi, tímabundið frá emb-
ætti.
Biskup tók
ákvörðun um
þetta eftir að
ríkislögreglu-
stjóri gaf út
ákærur á
hendur sr.
Gunnari fyrir
kynferðislega
áreitni og
blygðunarsem-
isbrot gegn
tveimur
stúlkum. Þrjár stúlkur til
viðbótar lögðu fram kæru, en
ekki var ákært vegna þeirra.
Ákvörðun biskups hefur,
lögum samkvæmt, verið vísað til
nefndar sérfræðinga, sem taka
munu afstöðu til réttmætis
hennar, að því er fram kemur í
tilkynningu frá Biskupsstofu. - bj
Biskup bregst við ákærum:
Prestur leystur
frá embætti
SR. GUNNAR
BJÖRNSSON
KJARAMÁL
Lögreglan vill hærri laun
Samningar lögreglumanna losna í
lok október. Í samtali við Vísi í gær
sagði Snorri Magnússon, formaður
Landssambands lögreglumanna, að
verulegrar launahækkunar yrði krafist.
Við ramman reip væri þó að draga
enda verkfallsréttur ekki fyrir hendi.
REYKJAVÍK
Styrkur til fjölskylduverndar
Borgarráð hefur samþykkt að fram-
lengja samning við Félagsvísindasvið
Háskóla Íslands sem felur í sér áfram-
haldandi þátttöku í rekstri Rannsókna-
seturs í barna- og fjölskylduvernd með
750 þúsund króna framlagi árlega
næstu þrjú ár.
LÖGREGLUFRÉTTIR
Varað við Kazim Abdul
Lögreglan varar starfsfólk gistihúsa
við manni sem undanfarið hefur
pantað gistingu og gefið upp erlend
kortanúmer. Því næst hættir hann við
bókun og óskar eftir endurgreiðslu í
peningum. Í öllum tilfellum hefur við-
komandi kynnt sig sem Kazim Abdul.
VEISTU SVARIÐ?