Fréttablaðið - 19.09.2008, Page 12
12 19. september 2008 FÖSTUDAGUR
ÖRYGGISMÁL Nýtt öryggiskerfi var
tekið í notkun í Sundlaug Kópa-
vogs í gær. Myndavélum, sem
tengdar eru við tölvur, hefur
verið komið fyrir undir vatnsyfir-
borði og gera þær viðvart með
hljóðmerki ef maður liggur
hreyfingalaus á botninum í
fimmtán sekúndur. Sundlaugar-
vörður getur þá þegar séð af
tölvuskjáum hvar hinn nauð-
staddi er í sundlauginni.
Sérfræðingar frá norska
fyrirtækinu Davo AS settu kerfið
upp og fínstilltu auk starfsmanna
Sundlaugar Kópavogs. Það var
Ómar Stefánsson, formaður
bæjarráðs Kópavogs, sem tók
kerfið formlega í notkun. - jse
Sundlaug Kópavogs:
Öryggiskerfi
tekið í notkun
KERFIÐ TEKIÐ Í NOTKUN Ómar Stefáns-
son, formaður bæjarráðs Kópavogs, tók
öryggiskerfið formlega í notkun.
HAFNARFJÖRÐUR Bæjarfulltrúar
Sjálfstæðisflokks í Hafnarfirði
greiddu atkvæði gegn samningi
um vatnssölu úr Kaldárbotnum til
átöppunarverksmiðjunnar Glacier-
World.
Á fundi bæjarstjórnar sögðust
sjálfstæðismenn telja samninginn
við GlacierWorld vera ófullnægj-
andi. Meðal annars væri óljóst
með ákvæði um einkarétt, fjár-
hagslega tryggingu fyrirtækisins
gagnvart bænum og hvort verðið
sé umtalsvert lægra en til
almennra notenda í Hafnarfirði.
„Bæjarfulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins fagna öllum tækifærum
til atvinnuuppbyggingar í Hafnar-
firði og nýtingar auðlinda, en telja
að vanda beri mjög samning sem
þennan og greiða því atkvæði
gegn honum,“ sagði í bókun sjálf-
stæðismannanna.
„Rétt er að vekja athygli á því
að samningurinn við GlacierWorld
ehf. gerir ráð fyrir nær fimmföld-
un á vatnsverði frá því sem gildir
í gjaldskrá til annarra stórnotenda
á vatni hjá Vatnsveitu Hafnar-
fjarðar auk þess sem söluverðið
er gengistryggt og með skýrum
endurskoðunarákvæðum,“ sagði í
svari Lúðvíks Geirssonar bæjar-
stjóra, sem lagði fram bókun fyrir
hönd meirihluta Samfylkingar-
innar. Sagðist bæjarstjórinn telja
bókun sjálfstæðismanna byggja á
öðrum sjónarmiðum en þeim að
efla atvinnulíf í Hafnarfirði. - gar
Meirihlutinn í Hafnarfirði vísar á bug gagnrýni sjálfstæðismanna á vatnssölu:
Fá fimmfalt verð fyrir vatnið
LÚÐVÍK GEIRSSON Bæjarstjórinn í Hafnar-
firði segir sjálfstæðismenn ekki hafa
eflingu atvinnulífs að leiðarljósi með
gagnrýni á vatnssölusamnning.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
SKOÐANAKÖNNUN 48,8 prósent segj-
ast nú vera hlynnt aðild Íslands að
Evrópusambandinu, en 32,4 prósent
segjast vera andvíg aðild. Þetta
kemur fram í nýrri könnun sem
Capacent vann fyrir Samtök iðnað-
arins (SI) og hefur stuðningur við
aðild ekki mælst hærri í sambæri-
legum könnun-
um SI. Ef aðeins
er tekið tillit til
þeirra sem taka
afstöðu til spurn-
ingarinnar segj-
ast 60,1 prósent
vera hlynnt
aðild, en 39,9
prósent andvíg.
Helgi Magnús-
son, formaður
SI, segist finna fyrir því að stuðn-
ingur við aðild fari mjög vaxandi,
bæði innan atvinnulífsins og meðal
almennings. „Núverandi efnahags-
ástand á sinn þátt í því. Fólk er að
gera sér grein fyrir því að núver-
andi kerfi, með íslensku krónunni
og gríðarlega háum vöxtum gengur
ekki,“ segir Helgi.
Fyrr í vikunni kynnti SI niður-
stöður sömu könnunar sem sýndi að
55,4 prósent styðja upptöku evru
hér á landi. Ef einungis er tekið til-
lit til þeirra sem taka afstöðu eru
það 64,6 prósent sem styðja upp-
töku evru hér á landi en 35,4 pró-
sent eru því mótfallin.
Þá telur meirihluti, eða 55 til 60
prósent, að aðild að Evrópusam-
bandinu yrði almennt hagstæð fyrir
eigin lífskjör og gott fyrir efnahag
Íslands.
Í ljósi þess hve jákvæðir Íslend-
ingar eru gagnvart Evrópusam-
bandinu, kemur það því ekki á óvart
að 52,6 prósent segjast hlynnt því
að ríkisstjórnin breyti stefnu sinni
og taki ákvörðun um það á þessu
kjörtímabili hvort sækja skuli um
aðild að Evrópusambandinu. 38,0
prósent telja slíka ákvörðun ekki
tímabæra.
Helgi segir að við núverandi
aðstæður hnígi öll rök að því að
þetta kjörtímabil verði ekki látið
líða án þess að ákvörðun verði tekin
í málinu. Hann bendir á að hægt sé
að fela Evrópunefnd stjórnvalda
aukin verkefni, meðal annars að
framkvæma hagsmunamat. „Allt
sem þessi nefnd gerir er til bóta, en
til að henni verði falin aukin verk-
efni þarf ríkisstjórnin að breyta
sinni stefnu. Ég vona svo sannar-
lega að hún geri það. Núverandi
fyrirkomulag gjaldeyrismála og
vaxta er mjög íþyngjandi fyrir þjóð-
ina. Þó svo stefna sé mótuð í upp-
hafi kjörtímabils geta aðstæður
verið með þeim hætti að það þurfi
að breyta henni.“
svanborg@frettabladid.is
Aldrei fleiri sem
vilja aðild að ESB
Tæp 49 prósent eru hlynnt aðild að Evrópusambandinu og hefur stuðningur
ekki verið meiri. Meirihluti telur aðild hagstæða fyrir lífskjör sín. Formaður SI
vonar að ríkisstjórnin breyti um stefnu og ákveði af eða á um umsókn.
HELGI
MAGNÚSSON
HOLTAGÖRÐUM GLÆSIBÆ KRINGLUNNI SMÁRALIND SÍMI 545 1500
Klæðir börn vel!
Helen stelpuúlpa
St. 80-130
6.990
Hugo strákaúlpa
St. 80-130
6.990
FIMMTÁN MANNS Í bænum Lakhtar
í Surendranagar-héraði á Indlandi
þurftu nærri fimm þúsund manns að
yfirgefa heimili sín vegna flóða. Þessi
ökumaður lét sig ekki muna um að
bjóða fjórtán farþegum á litla farar-
tækið sitt. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
BANDARÍKIN, AP Condoleezza Rice,
utanríkisráðherra Bandaríkjanna,
segir að stefna Rússlands undan-
farið geri það að
verkum að
Rússland
einangrist á
alþjóðavettvangi
og hætti að skipta
máli.
„Leiðtogar
Georgíu hefðu
vissulega getað
brugðist betur
við atburðunum í
Suður-Ossetíu í síðasta mánuði,“
sagði hún í ræðu í Washington í
gær, en í raun hafi þeir fallið í
gildru Rússa.
Rússar geti hins vegar engum
nema sjálfum sér kennt um það að
staða þeirra á alþjóðavettvangi sé
verri en nokkru sinni frá falli
Sovétríkjanna árið 1991. - gb
Condoleezza Rice:
Rússland óðum
að einangrast
CONDOLEEZZA
RICE
Viðskiptabann tefur fyrir
Viðskiptabann Bandaríkjanna á Kúbu
torveldar og tefur fyrir uppbyggingar-
starfi eftir fellibylinn Ike, sem skildi
eftir sig mikla eyðileggingu. Þessu
heldur Felipe Perez Roque, utanríkis-
málaráðherra Kúbu, fram.
KÚBA
SVÍÞJÓÐ Hópur sænskra athafna-
manna er talinn hafa svikið sænska
ríkið um jafnvirði 700 milljóna
íslenskra króna í gegnum banda-
ríska pókersambandið, að sögn
Aftonbladet.
Mennirnir bjuggu til greiðslu-
kerfi sem gerði Bandaríkjamönn-
um kleift að spila með peninga á
netinu. Mennirnir eru taldir hafa
þénað fjóra milljarða króna. Sænsk
skattayfirvöld telja að mennirnir
hafi selt falsaða hótelreikninga,
myndir, flugmiða og annað sem
hægt hafi verið að nota sem
greiðslu í pókerspili á netinu. - ghs
Sænskir athafnamenn:
Sviku stórfellt
undan skatti
DÓMSMÁL Karlmaður um fimm-
tugt var í gær sakfelldur í
Hæstarétti fyrir að eiga 24
þúsund ljósmyndir og 750
hreyfimyndir sem sýndu börn á
kynferðislegan og klámfenginn
hátt. Margar myndanna voru
mjög grófar og taldist brot hans
því stórfellt. Honum var gert að
sæta fangelsi í tólf mánuði, þar af
eru níu mánuðir skilorðsbundnir.
Í dómnum kom fram að
maðurinn hefði leitað aðstoðar
sálfræðings við að ná tökum á
vanda sínum. Héraðsdómur hafði
áður dæmt manninn í sex mánaða
skilorðsbundið fangelsi. Maður-
inn játaði brotin. - kdk
Þriggja mánaða fangelsi:
Stórtækur safn-
ari barnakláms
Andvíg Hvorki né Hlynnt
feb
´0
3
jan
-fe
b
´0
4
ág
ús
t ´
04
feb
´0
5
ág
ús
t ´
05
feb
´0
6
ág
ús
t ´
06
feb
´0
7
ág
ús
t ´
07
ág
ús
t ´
08
feb
´0
8
50
40
30
20
10
0
%
STUÐNINGUR VIÐ AÐILD AÐ EVRÓPUSAMBANDINU