Fréttablaðið - 19.09.2008, Síða 16
16 19. september 2008 FÖSTUDAGUR
nær og fjær
„ORÐRÉTT“
VIKA 32
DAGBÓK NÝRRA ÍSLENDINGA
„Ég var nú að koma heim úr námi í Kína, fyrir
hálfum mánuði, og er á leiðinni til Lundúna
að læra meira,“ segir Kolbrún Ólafsdóttir, nemi
við Háskólann í Peking og London School of
Economics.
Alþjóðafræðin sem Kolbrún nemur fjallar um
alþjóðahagfræði, stjórnmálafræði og sögu en
megináherslan í Peking var á öryggismál og
málefni Suðaustur-Asíu ásamt innan- og
utanríkismálum Kínverja.
Þetta er tveggja ára mastersnám,
sem Kolbrún segir hagnýtt til starfa fyrir
alþjóðastofnanir, utanríkisþjónustu og
fyrirtæki í alþjóðaviðskiptum. „Þetta gæti
opnað ýmsar dyr að öllu sem er
tengt alþjóðamálum á einhvern
hátt,“ segir hún.
„Námið er ótrúlega áhugavert
og víkkaði sjóndeildarhring
minn mikið. Ég lærði að sjá Vestrið frá öðru
sjónarhorni og áttaði mig á því að við vitum
ekkert mjög mikið um Kína hér á landi.“
Kolbrún segist að sjálfsögðu hafa farið á
Ólympíuleikana að fylgjast með handboltanum.
„Ég fór á alla leikina sem ég komst á, ég held
þeir hafi verið fimm talsins. Ég keypti mér
miða á úrslitaleikinn í febrúar og krossaði
fingurna.“
Á síðasta kjörtímabili var Kolbrún
aðstoðarmaður Sivjar Friðleifsdóttur
heilbrigðisráðherra. Spurð um pólitískan
metnað sinn segist hún opin fyrir frekara
starfi í þágu Framsóknarflokksins.
„Það kemur bara í ljós hvort maður
fer aftur í pólitíkina og það er alls
ekki útilokað. En ég get alveg eins
hugsað mér að fara út í heim og
búa til dæmis í Asíu,“ segir hún.
HVAÐ ER AÐ FRÉTTA? KOLBRÚN ÓLAFSDÓTTIR, NEMI Í ALÞJÓÐAFRÆÐUM
Á flugi frá Peking til Lundúna
■ Frá því árið 1999 hefur í
smiðju Bills Dubé í Denver
í Colorado verið unnið við
að smíða og betrumbæta
kraftmesta og hraðskreiðasta
rafmagnsmótorhjól heims. Þetta
sérstæða farartæki ber heitið
KillaCycle og er drifið áfram af
tveimur riðstraums-rafmótorum
sem samanlagt teljast afkasta yfir
500 hestöflum. Orkuna fá mót-
orarnir úr 90 kílóa þungri liþíum-
járn-nanófosfat-rafhlöðu, sem
alls getur vistað 9,1 kílóvattstund
af raforku. Í desember 2007 náði
hjólið tímanum 7,82 sekúndum
í kvartmíluspyrnu. Hröðun úr
núlli í 100 km hraða er rétt rúm
sekúnda.
RAFMÓTORHJÓL
YFIR 500 RAF-HESTÖFL
„það er auðvitað algert grín að það
sé ekki hægt að borga löggæslu-
mönnum í landinu sómasamleg
laun fyrir störf sín,“ segir Bergvin
Oddsson, nemi
og formaður
ungliðahreyfing-
ar Blindrafélags-
ins, um fækkun
lögreglumanna
og kjör þeirra.
Bæjarstjórar
í Kópavogi,
Hafnarfirði og
Garðabæ hafa
áhyggjur af
ástandinu. „Mér
þykir ótrúlegt að dómsmálaráðherra
sjái ekki hag í því að uppfylla kröfur
samfélagsins um gæslu. Það er eins
og menn hafi hætt að brjóta lög í
úthverfunum þar sem ráðherrann
fékk áhuga á hermálum og baráttu
við alþjóðlega glæpahringi. Hann
verður að átta sig á því að alþjóða-
væðingin í glæpum er ekki einangr-
að vandamál dómsmálaráðherra og
glæpamanna heldur snertir þetta
fólkið í landinu,“ segir Bergvin og
vísar svo til frétta af auknu ofbeldi
gagnvart lögreglumönnum. „Svo
virðist eina launauppbót þessa fólks
vera barsmíðar í vinnunni.“
SJÓNARHÓLL
FÆKKUN LÖGREGLUMANNA
Undarleg sýn
ráðherra
BERGVIN ODDSSON
Nemi
„Ég nýt þess að vera
í Lundúnum, þó að
hér sé meira stress
en heima í Reykja-
vík. Ég er byrjuð að
stunda Bikram-jóga.
Hver tími tekur 90
mínútur þar sem
farið er yfir 26
Hatha-stöður og tvær öndunaræf-
ingar. Þetta er allt öðruvísi en jóga
sem ég hef áður prufað, ekki síst þar
sem það er 40 gráðu hiti og um 60
prósenta raki í herberginu. Hitinn á
meðal annars að hjálpa manni við
teygjurnar og koma í veg fyrir meiðsl
en þetta eru ferlega erfiðar æfingar.
Í þessari viku hef ég alltaf mætt
klukkan 6, áður en ég fer í vinnuna
og það þó ég hati að vakna svona
snemma. Það er samt svo frábært
að byrja daginn svona og mér líður
strax betur. Annars hef ég líka hitt
nokkra gamla vini hér í Lundúnum
og farið á sýningar.“
Charlotte Ólöf Jónsdóttir Ferrier:
Stundar jóga
í Lundúnum
NICE08 er norræn lista-
hátíð sem haldin verður
í tengslum við Liverpool-
tvíæringinn, sem hefst í dag.
Ingi Þór Jónsson, Liverpool-
búi og framkvæmdastjóri
hátíðarinnar, lofar glæsi-
legri dagskrá með mikilli
þátttöku Íslendinga.
„Það er allt að gerast hér í Liver-
pool þessa dagana. Þetta menningar-
borgarár er búið að vera ein sam-
felld veisla og besti hlutinn er enn
eftir. Borgin hefur hreinlega lifn-
að við í ár,“ segir Ingi Þór Jónsson,
framkvæmdastjóri NICE08, nor-
rænnar lista hátíðar, sem haldin
verður í tengslum við Liverpool-
tvíæringinn svokallaða.
Tvíæringurinn er ein stærsta
listahátíð sem haldin hefur verið í
Bretlandi. Búist er við 600.000
manns til Liverpool um helgina
vegna opnunarhátíðarinnar, en
Liverpool er menningarhöfuðborg
Evrópu í ár. NICE08, norræni hluti
hátíðarinnar, verður settur 20.
nóvember.
Þrír íslenskir myndlistarmenn
verða með sýningar á tvíæringn-
um, þau Katrín Friðriks, Laufey
Johansen og Hrafnkell Sigurðs-
son, auk ljósmyndasýningar
Ragnars Axelssonar. Þegar
NICE08 hefst í nóvember tekur
svo við runa af atburðum þar sem
Ísland kemur við sögu á einn eða
annan hátt.
Meðal atriða má nefna að Vladi-
mir Ashkenazy stýrir flutningi
Fílharmoníusveitar Liverpool á
níundu sinfóníu Beethovens, og
Langholtskirkjukórinn syngur við
sama tilefni. Einnig verða haldnir
íslensk/færeyskir jólatónleikar
þar sem fram koma Eivör Páls-
dóttir, Björg Þórhallsdóttir og
Elísabet Waage.
Stuttu eftir að NICE08 lýkur, í
byrjun desember, er svo fyrirhug-
að að Bryndís Jakobsdóttir, Dísa,
haldi tónleika í St. Luke‘s Church.
Kirkjan sú í miðborg Liverpool
var sprengd illa í síðari heims-
styrjöldinni, en í stað þess að end-
urbyggja kirkjuna ákváðu borgar-
yfirvöld að
leyfa henni að
standa eins og
hún er til minn-
ingar um fórnar-
lömb stríðsins.
Kirkjan er lýst
upp á tyllidög-
um og býður
upp á afar
glæsilegan
vettvang fyrir
hljómleika.
Þá verða verk íslenskra hönn-
uða til sýnis og heimildarmyndir
frá Íslandi sýndar í kvikmynda-
húsum. Íslands-tengdar sýningar
verða settar upp á söfnum borgar-
innar, og svo mætti lengi telja.
Ingi Þór hefur búið í Englandi
síðustu tvo áratugina. Hann bjó
lengi í London, en hefur verið
búsettur í Liverpool í tæplega þrjú
ár, með viðkomu í Manchester.
Hann segist kunna mun betur við
sig norðanmegin í Englandi. „Ég
gæti aldrei flutt aftur til London
eftir að hafa búið hér. Hér er allt
mun vinalegra, og íbúarnir í raun
nauðalíkir okkur Íslendingum að
mörgu leyti.“
Ingi Þór segir NICE08-hátíðina
byggjast mikið á samvinnu við
Bretana. „Það þýðir ekki að ætla
sér að bjóða erlendu fólki upp á
hvað sem er og ætlast til að það
kunni að meta allt sem að þeim er
otað. Þetta verður að gerast í sam-
vinnu, að bjóða upp á það besta á
beggja forsendum,“ segir Ingi Þór.
Hann lofar skemmtilegri dagskrá
á hátíðinni og hvetur alla sem vett-
lingi geta valdið til að láta sjá sig.
kjartan@frettabladid.is
Íslenskur andi yfir Liverpool
VIÐBURÐUR Vladimir Ashkenazy stýrir flutningi Fílharmoníusveitar Liverpool á níundu sinfóníu Beethovens á NICE08-listahátíðinni.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
INGI ÞÓR JÓNSSON
„Ég hef gaman af því
að lesa á kvöldin,
sérstaklega íslensk
dagblöð þar sem
þau hjálpa mér að
læra íslensku. Þótt
ég skilji ekki allt sem
þar er skrifað þá
hjálpa myndirnar til.
Ég held að þetta sé góð leið til að
læra íslensku svo ég hef reynt að lesa
blaðið á hverju kvöldi, þegar ég kem
heim úr vinnu. Ég las meira af bókum
þegar ég var yngri en missti eiginlega
áhugann. Núna eru flestar bækurnar
mínar heima hjá konunni minni svo
ég hef ekki úr mörgu að velja ef mig
langar að grípa í bók. Ég á einhverjar
spænskar, franskar og enskar bækur
en núna er mig farið að langa til að
lesa íslenskar bækur, bækur sem
hjálpa mér að skilja tungumálið. Svo
er líka ágætt að nota tímann þegar
veðrið er slæmt til að lesa.“
Rachid Benguella:
Les dagblöð
til að læra íslensku
Slagsíðujafnaðarmaður
„Kristinn er ekkert annað en
jafnaðarmaður, með svipaða
slagsíðu og sumir lands-
byggðarþingmenn okkar, að
ógleymdum byggðaráðherr-
anum.“
ÖSSUR SKARPHÉÐINSSON IÐN-
AÐARRÁÐHERRA UM ÁTÖK INNAN
FRJÁLSLYNDA FLOKKSINS.
Heimasíða Össurar Skarphéðinssonar, 17.
september
Ástarjátning
„Ég hef einu sinni verið ást-
fanginn af bíl. Það var Ford
Bronco Ranger sem karl faðir
minn átti.“
SVEINN ANDRI SVEINSSON LÖG-
FRÆÐINGUR UM BÍLAKALLA.
Fréttablaðið, 18. september
Nýtt! Gras.is beint á skjáborðið þitt!
Gras.is hefur sett upp vefþjónustu (Gagdet) sem t
engir þig beint
við fréttirnar, án þess að þurfa opna vafrann þinn!
„Í síðustu viku
ákvað ég að gera
mér dagamun þar
sem ég hef verið
svo afskaplega
upptekin upp á
síðkastið,“ segir
Junphen. „Þannig
að ég fór með
vinum mínum að skemmta mér.
Við fórum í billjard og keilu og það
var afar skemmtilegt. En staðreynd-
in er sú að nú þegar haustið er
gengið í garð með leiðindaveðri
þá hef ég varla löngun til að fara
nokkurn skapaðan hlut. Ég er
meira að segja orðin löt við að
fara í sund. Þannig að ég er mikið
til heima hjá mér en þá er líka
tækifæri til að bæta íslenskuna því
Háskóli Íslands er með námskeið
og hægt er að nálgast æfingar og
gögn á netinu.“
Junphen Sriyoha:
Veðrið heldur
henni heima